Þjóðviljinn - 02.11.1988, Blaðsíða 2
FRETTIR
Fiárlagafrumvarp
Slegið á útgjaldaþenslu
Framlög tilýmissaframkvœmdasjóða lækka að raungildi. Fjárfesting-
arstofnana minnkaðar og starfsemiþeirra tekin til endurskoðunar.
Sparnaður í heilbrigðiskerfi. Söluskattur á happdrœtti
Ifjárlagafrumvarpi fyrir næsta
ár er gert ráð fyrir hækkun ým-
issa óbeinna skatta eins og vöru-
gjalds, bcnsíngjalds og innflutn-
ingsgjalds á bílum til að styrkja
stöðu ríkissjóðs og draga úr inn-
flutningi og viðskiptahalla.
Framlög til ýmissa framkvæmda-
sjóða, endurgreiðslu söluskatts í
sjávarútvegi og jöfnunargjalds í
iðnaði verða nær óbreytt að
krónutölu og lækka því að raun-
gildi. Söluskattur verður settur á
happdrætti og möguleikar at-
vinnurekenda til að færa einka-
neyslu sína á fyrirtæki verða
þrengdir.
Dregið verður skipulega úr
starfsmannafjölda ríkisins og
stefnt er að 2,5% fækkun á ári í
nokkur ár. Ólafur Ragnar Gríms-
son sagði að þetta yrði gert með
því að ráða ekki fnýjar stöður og
verktakaútboð ráðuneyta yrðu
endurskoðuð.
Fjárfestingarframlög til stofn-
ana verða lækkuð. Til að mynda
hafði verið ráðgert að Póstur og
sími fengi 900 miljónir til fjárfest-
inga en það framlag verður lækk-
að í 200 miljónir. Starfsemi stofn-
ana og viðfangsefni þeirra verða
tekin til sérstakrar athugunar og
starfsemi þeirra lögð niður, flutt
annað eða hagrætt. Dæmi um
stofnanir sem verða endurskoð-
aðar eru Sala varnarliðseigna,
lög- og tollgæsla í Keflavík , sem
fjármálaráðherra segir mjög
dýra, og Skipaútgerð ríkisins.
Skiparekstur Landhelgisgæsl-
unnar og vitaþjónusta Vitastofn-
unar verða samræmd og varð-
skipið Óðinn selt.
Stefnt er að því að stofnanir
eins og Vinnueftirlit ríkisins,
Húsameistari ríkisins og Raf-
magnseftirlit ríkisins verðleggi
þjónustu í samræmi við tilkostn-
að. Sparnaður í heilbrigðiskerf-
Sverrir Hermannsson
Bjöm haldinn
misskilningi
Landsbankinn gæti
keypt hlutabréfí
Útvegsbanka fyrir 720
miljónir
„Ég býst við að Björn Frið-
flnnsson sé haldinn misskilningi
að þessu leyti, þar sem eftir hon-
um er haft að ríkisbankarnir hafi
ekki sjálfstæði til hlutabréfak-
aupa í Útvegsbankanum. Hann
hefur sennilega ekki náð að
glöggva sig á nýju bankalögu-
num. Ríkisbönkunum er heimilt,
samkvæmt þeim lögum, að eiga
hlut í öðrum bankastofnunum að
því marki sem nemur 20% af
eiginfé bankans og miðað við það
ætti Landsbankinn að mega
kaupa fyrir um 720 miijónir
króna,“ sagði Sverrir Hermanns-
son, bankastjóri Landsbankans,
þegar Þjóðviljinn bar undir hann
uirtmæli Björns Friðflnnssonar,
formanns nefndar sem vinnur að
sölu hlutabréfa í Útvegsbankan-
um.
í frétt Pjóðviljans í gær var haft
eftir Birni að ríkisbankarnir
hefðu ekki sjálfstæði til að bjóða í
hlutabréf Útvegsbankans hf.,
þau sem nú er verið að undirbúa
sölu á. „Lögin banna okkur þetta
ekki, en hitt er svo annað mál
hvort bankinn hefur áhuga á
þessum kaupum, um það segi ég
ekkert,“ sagði Sverrir. phh
inu verði stóraukinn með skipu-
lagsbreytingum og breyttum
verðákvörðunum á lyfjum.
Ólafur Ragnar sagði í gær að
þetta yrði gert með því að færa
lyfsölu að einhverju leyti inn í
heilsugæslustöðvarnar og með
breytingum á innkaupum lyfja.
Guðmundur Bjarnason
heilbrigðisráðherra hefði í sam-
vinnu við landlækni unnið að
skynsamlegum tillögum til sparn-
aðar í heilbrigðiskerfinu. Ekki
ætti að draga úr þjónustu við
sjúka heldur lækka kostnað við
milliliði.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
ákvæði skattalaga varðandi tekj-
ur í formi hlunninda verði hert.
Þetta á við um bílaafnot, úttektir
á reikning fyrirtækis og lánafyrir-
greiðslu. Afskriftareglur fyrir-
tækja verða endurskoðaðar.
Skatthlutfall á tekjuskatt ein-
staklinga verður hækkað en pers-
ónuafsláttur jafnframt hækkaður
þannig að skattbyrði lægri tekna
breytist lítið sem ekkert. Hér er
miðað við 60-70 þúsund króna
mánaðartekjur. Þá eiga barna-
bætur að hækka og til athugunar
er að taka upp sérstakt skattþrep
á háar tekjur. Einnig er stefnt að
því að veðdeildir og fjárfestingal-
ánasjóðir verði skattlagðir á
sama hátt og bankastofnanir.
Söluskattur upp á 12% verður
settur á happdrættismiða. Ólafur
Ragnar sagði að áætluð velta
happdrættanna á næsta ári væri 4
miljarðar á sama tíma og dýrasta
einstaka framkvæmdin það ár,
við Búrfellsvirkjun, yrði upp á 1
miljarð. Til greina kæmi að happ-
drættisfyrirtækin gætu sett upp-
hæð sem samsvaraði 12% sölu-
skattinum í rekstur. Til dæmis
gæti Happdrætti Háskólans sett
það fjármagn í rannsóknir í stað
býgginga.
-hmp
Fjárlagafrumvarp 1989
Skrpting tekna
5,95% °-83%
7,25%
3,69%
7,26%
3,75%
| Söluskaltur
E3 Innflutningsgjöld
Beinir skattar
42 7% E2 Vörugjald
□ Launaskattar
M Vaxtatekjur
fH Hagnaður ÁTVR
a Ýmsir óbeinir skattar
□ Ýmislegt
18,16%
10,40%
Á þessari mynd sést hvernig tekjur ríkissjóðs á næsta ári skiptast. Rúmur helmingur þeirra koma af
söluskatti og innflutningsgjöldum. 7,5% tekna koma frá ÁTVR og tekjuaukning ÁTVR vegna bjórsins er
áætluð um 1 miljarður.
Fiskiþing
Bankasameiningin
Sparisjóðir
r
i
sigtinu
Jón Sigurðsson: Eðlilegt
að einkabankarnir og
sparisjóðirnir hafi
forgang að
hlutabréfakaupum í
Útvegsbankanum hf.
„Það er rétt að nefndinni, sem
Björn Friðfinnsson veitir for-
stöðu, hefur fyrst og fremst verið
falið að ræða þá banka og lána-
stofnanir sem ekki eru á vegum
ríkisins, en það er alls ekki útséð
um hvernig það fer. Það kemur
auðvitað til álita, ef ekki tekst að
ná sameiningu banka þá leiðina,
að hugleiða aðrar leiðir, t.d. að
breyta öðrum hvorum ríkisbank-
anna í hlutafélag til að greiða
fyrir slíkum samruna," sagði Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra
þegar Þjóðviljinn ræddi við hann
i gær. Sagðist Jón telja eðlilegt að
bjóða einkabönkunum, og spari-
sjóðunum ekki síður, forgang að
hlutabréfakaupunum. „Reyndar
tel ég mest um vert að gera skipu-
lagsbreytingar á sparisjóðun-
um.“ Aðspurður sagði Jón að
það væri til í dæminu að ríkis-
bönkunum væri hagkvæmt að
kaupa þessi hlutabréf.
Um það hvort þessi málsmeð-
ferð, að útiloka tvo banka af sjö
frá hugsanlegum samruna við Út-
vegsbankann, væri í samræmi við
stefnu ríkisstjórnarinnar, sagðist
Jón telja að svo væri, enda stefndi
hún að samruna í bankakerfinu.
„En annað markmið með þessu
er að tryggja nokkurt jafnræði
með þeim stofnunum sem á
markaðnum starfa og þá er
augljóst að hinar smærri og
dreifðari einingar koma fyrst til
álita. En auðvitað tel ég að á
endanum verði þetta að gerast
með aðhaldi frá erlendum lána-
stofnunum líka,“ sagði Jón Sig-
urðsson viðskiptaráðherra.
phh
„Fiskveiöistjómunin eitt jójó“
Jón Páll Halldórsson: Núverandi fiskveiðistefna andstœð góðri fiskvinnslustefnu.
Vestfirðingar leggja til að útflutningur ísfisks á erlenda markaði verði kvótaskiptur
Meðal þeirra mála sem komu
til umræðu á Fiskiþingi í gær
voru fiskveiðistjórnunin, sem
sögð var eitt allsherjar jójó, og
tillaga Vestflrðinga um sérstakan
útflutningskvóta á ísflsk í stað nú-
verandi úthlutunarreglna.
Framkvæmdastjóri Norður-
tangans hf. á ísafirði og ritari
Fiskiþings Jón Páll Halldórsson
gagnrýndi harðlega fiskveiði-
stefnu stjórnvalda í gær og líkti
henni við jójó. Því til staðfesting-
ar sagði Jón Páll að eitt árið væri
leyfður 36 þúsund tonna rækju-
afli en strax á því næsta væri hann
skorinn niður í 20 þúsund tonn.
Sömu sögu mættí segja um veiðar
á grálúðu. í því sambandi sagði
Jón að nú stæðu framleiðendur
frammi fyrir kaupendum sem
stóluðu á svipað magn á næsta ári
og þeir keyptu í ár en vegna boð-
aðs samdráttar í grá-
lúðuveiðunum væri einsýnt að
ekki yrði hægt að uppfylla þær
kröfur.
„Núverandi fiskveiðistefna
stjórnvalda er andstæð góðri fisk-
vinnslustefnu. Jafnstöðuafli er
fiskvinnslunni nauðsyn. Eins og
stefnan er í dag er það útgerðinni
hagstæðast að veiða sem mestan
afla þegar það er hagstæðast með
sem minnstum tilkostnaði án til-
lits til vinnslunnar í landi. Hennar
hagur er að vinnsla sjávarafurða
dreifist sem jafnast yfir allt árið,“
sagði Jón Páll.
Hann lagði til að Fiskiþingið
mótaði ákveðna fiskvinnslu-
stefnu til halds og traust fyrir
ríkisstjórnina en samkvæmt
stjórnarsáttmála hennar er stefnt
að gerð sérstakrar fiskvinnslust-
efnu á næstunni.
Þá urðu töluverðar umræður
um tillögu Fjórðungsþings Fiski-
deildanna á Vestfjörðum um að
útflutningur fsfisks verði kvóta-
skiptur á meðan núverandi
kvótakerfi er við lýði. Samkvæmt
tillögunni verður þeim skipum,
sem hafa leyfi til botnfiskveiða,
heimilað að flytja út ákveðið
hlutfall af botnfiskkvóta sínum ís-
varinn með hliðsjón af markaðs-
aðstæðum.
-grh
StÖð 3
Samstarf við Sjónvaipið?
ísfilm ísjónvarpsslaginn nœsta haust. Indriði G. Þorsteinsson: Klókt
af RÚV að íhuga samstarf
Það eru persónulegar hug-
myndir mínar að Ríkisút-
varpið gæti hugsanlega gerst
hluthafl í svona stöð, og þá staðið
betur að vígi í sambandi við
ákveðna tegund af efnisflutningi,
sagði Indriði G. Þorsteinsson rit-
höfundur, einn forvígismanna ís-
fllm hf., er blaðamaður ræddi við
hann í gær, en útvarpsréttar-
nefnd hefur nú heimilað fyrirtæk-
inu sjónvarpsútsendingar.
Fyrirhugaða sjónvarpsstöð
hafa menn nefnt Stöð 3 sér til
hægri verka, og kvað Indriði ekki
fyrirséð hvenær hún tæki til
starfa, en bjóst við að það gæti
orðið næsta haust.
í fjölmiðlum hefur mögulegu
samstarfi Sjónvarpsins og Stöðv-
ar 3 heyrst fleygt, og af því tilefni
sagði Markús Orn Antonsson út-
varpsstjóri að hann hefði ekkert
heyrt á slíkt minnst nema í frétt-
um: Það er ekki á döfinni, og ég
hef reyndar ekki séð ástæðu til að
ígrunda hugsanlegt samstarf,
sagði hann.
-HS
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 2. nóvember 1988