Þjóðviljinn - 02.11.1988, Blaðsíða 7
MENNING
Ljóð
Lýsingarháttur
nútíðar
Steinarjóhannsson: Ég er mjög hrifinn afljóði Sigfúsar Daðasonar,
Það hæfir manni ágætlega að deyja
Steinar Jóhannsson, Ijóð-
skáld og sálfræðinemi, gefur
út sína fyrstu Ijóðabók í þess-
ari viku. Lýsingarháttur nútíð-
ar heitir bókin og í henni eru
fyrstu Ijóðin sem Steinar birtir
eftir sig, - ég hef bara skrifað
fyrir skúffuna, og hún var lík-
lega ekki orðin nógu góð fyrr
en núna, segir hann.
- Flest þessara ljóða eru ný,
eitthvað um ársgömul, en innan
um leynast ljóð sem eru fimm til
sex ára. Þau eru flest um tilfinn-
ingar, eins og þær koma fyrir.
Eins konar myndir; þegar maður
málar mynd er það yfirleitt út frá
einhverri tilfinningu, maður
lætur skoðun sína í ljós með því
hvernig maður lýsir hlutnum.
Pú ert með tilvitnanir í Bob
Dylan og Ara Gísla í byrjun bók-
arinnar. Líturðu á þá sem lœri-
feður?
- Nei, ég kenni mig ekki við
neinn sérstakan. Þeir eru báðir í
miklu uppáhaldi hjá mér, þess
vegna er ég með þessi ljóð þarna.
En ég er til dæmis mjög hrifinn af
ljóði Sigfúsar Daðasonar, Það
hæfir manni ágætlega að deyja.
Hvað er það sem hrífur þig við
það Ijóð?
- Eg veit það ekki. Það er erfitt
að benda á einhvern ákveðinn
þátt. Ef til vill er það uppsetning-
in. Hvernig hann notar líkingarn-
ar, og svo kaldhæðnin.
Steinar: Þetta eru samt hugsanirokkar... Mynd - ÞÓM.
Finnst þér sálfræðin ekki vera
nein andstaða við Ijóðagerðina?
- Sálfræðin er mjög spenn-
andi, og ágætis undirstaða í ýmis-
legt, ekki síður skáldskap en ann-
að. En ég held að ég hætti mér
ekki út í frekari hugleiðingar um
þetta að sinni...
Heldurðu að þú snúir þér að
lengri ritsmíðum eftir að hafa
komið út þessari bók?
- Ég held ég sé of latur. Á
meðan ég fæ hugmyndir held ég
áfram að skrifa ljóð. - Annars er
aldrei að vita, ég gæti vel hugsað
mér að skrifa eitthvað viðameira
ef sú staða kæmi upp.
-LG
Sinfónían
Tchaikovsky - tónleikar
Þriöju áskriftartónleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands
veröa haldnir annaö kvöld í
Háskólabíói og hefjast klukk-
an 20:30. Á efnisskrá verða
þrjú verk; Píanókonsert nr. 1,
Rococo tilbrigöin og Fran-
cesca da Rimini, öll eftir Tcha-
ikovsky. Einleikarar verða
þau Nina Kavtaradze píanó-
leikari og Erling Blöndal
Bengtsson sellóleikari.
Stjórnandi verður Petri Sak-
ari, aöalhljómsveitarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitar íslands.
Piotr Ilyich Tchaikovsky fædd-
ist í Úralfjöllunum í Rússlandi í
maí, 1840 og lést í Pétursborg í
nóvember 1893, sonur námaeftir-
litsmanns. Hann hlaut góða tón-
listarmenntun og varð eitt ástsæl-
asta tónskáld Rússa og jafnframt
eitt þeirra, sem rússneska bylt-
ingin viðurkenndi og hélt á lofti.
Hann var enda eitt þeirra tón-
skálda, sem rómantíkin reis hæst
hjá. Verkin þrjú, sem verða flutt
Erling Blöndal Bengtsson selló-
leikari.
á tónleikunum, voru samin á ár-
unum 1874-1877.
Nina Kavtaradze píanóleikari
er fædd í Sovétríkjunum en hefur
sest aðíDanmörku. Húnhófferil
sinn sem konsertpíanisti strax á
námsárunum í Sovétríkjunum.
Hún hefur haldið tónleika víða
um heim, í Sovétríkjunum,
Bandaríkjunum og flestum
löndum Evrópu. Hún hefur
hlotið margar viðurkenningar og
verðlaun fyrir leik sinn og
gagnrýnendur keppast við að
hæla hénni fyrir frábæra tækni og
næma túlkun í tónlist.
Erling Blöndal Bentsson er af
dönsku og íslensku bergi brotinn.
Hann fæddist í Kaupmannahöfn
og hóf barnungur að læra á selló
og kom m.a. oft fram á tónleikum
í Reykjavík á unglingsárum sín-
um. Hann stundaði nám í Banda-
ríkjunum og kennslu hefur hann
stundað við tónlistarháskóla á
Norðurlöndunr og í Vestur-
Þýskalandi. Hann hefur oft áður
leikið einleik nreð Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Stjórnandi á tónleikunum
verður Petri Sakari, aðalhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveit-
arinnar.
Á föstudag heldur Sinfóníu-
hljómsveitin til Akureyrar ásamt
einleikurunum og verða
Tchaikovsky-tónleikarnir endur-
teknir í fþróttaskenrmunni á
föstudagskvöldið.
Afmælistilboð
Maðurinn og skáldið
Steinn Steinarr
í þessunr mánuði hefði höfuð-
skáld íslenskrar nútímaljóðlistar,
Steinn Steinarr, orðið 80 ára, ef
hann hefði lifað.
Skáldbróðir Steins, Sigfús
Daðason, skrifaði í fyrra bókina
Maðurinn og skáldið Steinn
Steinarr. Reykholt hf. gaf út. í
bókinni rekur Sigfús æviferil
Steins Steinarrs, fjallar um skáld-
skap hans og lífsskoðanir, - og
loks er í bókinni birtur ýmis kveð-
skapur Steins, hluti hans áður
óbirtur.
Nú hefur Reykholt hf. ákveðið
að bjóða unnendum Steins bók-
ina á sérstöku afmælisverði. Til-
boð þetta stendur til jóla. Nýju
upplagi bókarinnar, sérmerktu í
tilefni afmælisins, hefur verið
dreift í bókaverslanir. Venjulegt
verð bókarinnar er kr. 2.150. Af-
mælisverðið er kr. 1.720.
' Miðvikudagur 2. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
Skólaskrifstofu Reykjavíkur, óskareftirtilboöum í
tölvubúnaö fyrir Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Um er aö ræöa allt aö 20 einmenningstölvur
ásamt prenturum. Útboösgögn eru afhent á skrif-
stofu vorri aö Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboöin
verða opnuð á sama stað miövikudaginn 9. nóv-
ember kl. 11.00.
INNKAUPASTÖFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
________Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Nauðungaruppboð
Nauöungaruppboö, önnurog síöari sala, ferfram
á M.F. Keflavík, skráöri eign skipafélagsins Víkur
hf., föstudaginn 4. nóv. 1988 kl. 18 á skrifstofu
uppboðshaldara, Ránarbraut 1, Vík í Mýrdal.
Uppboösbeiðendur eru Lífeyrissjóöur sjómanna,
Landsbanki íslands og innheimtumaöur ríkis-
sjóös.
Sýslumaðurinn í Vestur-Skafafellssýslu,
Jón H. Snorrason, settur.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldskóla
Við Stýrimannaskólann í Reykjavík er laus til umsóknar staða
kennara og viðgerðarmanns í siglinga- og fiskileitartækjum, sem
jafnframt hefði á hendi umsjón og viðhald tækjanna.
Skilyrði er að viðkomandi hafi lokið prófi í meðferð og viðgerð
þessara tækja auk verklegrar reynslu.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 25.
nóvember nk.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Norrænt
tækniár 1988
Siðfræði og störf
tæknimanna
Námstefna í samvinnu við
Verkfræðingafélag íslands
og Tæknifræðingafélag íslands
EFNI:
Á námstefnunni verður fjallað um siöfræði og
siöferöileg álitamál, sem tengjast tækni og störf-
um tæknimanna. Bæöi álitamál sem tengjast
störfum einstakra tæknimanna og tækniþróun al-
mennt.
DAGSKRÁ
Kl. 13.00-14.00 Hvað er siðfræði? Eyjólfur Kjal-
ar Emilsson lektor.
Kl. 14.00-15.00 Veröld tækninnar og mannleg
verðmæti. Páll Skúlason prófessor.
Kl. 15.00-15.30 Kaffi.
Kl. 15.30-16.15 Siðfræðileg vandamál í störf-
um íslenskra tæknimanna. Egill Skúli Ingi-
bergsson verkfræöingur, Rafteikning hf.
Kl. 16.15-17.00 „Limitsto Growth, a National
Responsibility". Dean Abrahamsson Ph. D.
prófessor viö háskólann í Minnesota aöjúnkt
við Háskóla íslands.
Umsjón: Pétur Maack prófessor og Eyjólfur Kjal-
ar Emilsson. Heimspekistofnun H.í.
Tími og verð: 4. nóvember, kl. 13.00-17.30 í
Norræna húsinu. Verö kr. 12.000.-.
Skráning fer fram á aðalskrifstofu H.Í., sími
694306 en nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu endurmenntunarstjóra í símum
23712 og 687664.
HASKOLI ISLANDS
ENDURMENNTUNARNEFND