Þjóðviljinn - 03.11.1988, Blaðsíða 1
Neskaupstaður
Engin stríðstól hér
BœjarstjórnNeskaupstaðarhafnaði beiðni utanríkisráðuneytisins um að leyfa rannsóknaskipi
fráNATO aðhafaþar viðdvöldagana9.-10. nóvembernk. Ferístaðinn tilEskifjarðar.
Umboðsaðili skipsins kaupfélagið Fram íNeskaupstaðfyrir tilstuðlan SÍS
Beiðni utanríkisráðuneytisins
um að NATO- rannsóknaskipið
Alliance fengi heimild til að
koma til hafnar í Neskaupstað
dagana 9. - 10. nóvember nk. var
hafnað á fundi hafnarstjórnar og
einnig á fundi bæjarstjórnar í
fyrradag.
Að sögn Ásgeirs Magnússonar
bæjarstjóra er hér um að væða
táknræna yfirlýsingu um að til
hafnar í Neskaupstað séu skip
sem sigla undir fánum hernaðar-
bandalaga, hvort sem það eru
skip frá NATO eða Varsjár-
bandalaginu, ekki velkomin,
nema í neyðartilvikum.
Á fundi hafnarstjórnar var
beiðni utanríkisráðuneytisins
einróma hafnað en þar sitja 3 full-
trúar Alþýðubandalagsins, 1 frá
Sjálfstæðisflokki og 1 frá Óháð-
um borgurum. Á fundi bæjar-
stjórnar í fyrradag lögðu 5 bæjar-
fulltrúar Alþýðubandalagsins
fram tillögu þess efnis um að skip
sem sigla undir fánum hernaðar-
bandalaga væri óheimill að-
gangur að Norðfjarðarhöfn og
var það samþykkt með 5 at-
kvæðum meirihlutans en minnih-
lutinn sat hjá. Hann skipa 2 sjálf-
stæðismenn, 1 Framsóknarmað-
ur og 1 frá Óháðum borgurum.
Pegar svo fundargerð hafnarst-
jórnar kom til afgreiðslu á bæjar-
stjórnarfundinum greiddu allir 9
bæjarstjórnarfulltrúarnir henni
samþykki sitt.
Ásgeir Magnússon bæjarstjóri
sagði það vera umhugsunarefni
fyrir- lítil bæjarfélög hvað þau
gætu gert til að leggja sitt af
mörkum til að stemma stigu við
sívaxandi hernaðarbrölti stór-
veldanna í kringum landið. Sér-
staklega ætti þetta við sveitar- og
bæjarfélög þar sent Alþýðu-
bandalagið mætti sín einhvers þar
sem þingmönnum þess á Alþingi
væri haldið úti í kuldanum þegar
utanríkis- og varnarmál væru
annars vegar.
Prátt fyrir bann bæjar- og hafn-
aryfirvalda í Neskaupstað við því
að NATO-skipið Alliance komi
þar til hafnar hafa Eskfirðingar
samþykkt að leyfa því að koma til
hafnar þar í bæ. Umboðsaðili
skipsins þegar það kemur til
Austfjarða er kaupfélagið Fram í
Neskaupstað og þá væntanlega í
gegnum Samband íslenskra Sam-
vinnufélaga sem virðist hafa góð
og náin tengsl við NATO.
-grh
Lesendakönnun
Skýr sérstaða Þjóðviljans
LesendurÞjóðviljansjákvœðirengagnrýnir. Vilja hvassapólitík og sjálfstœða
afstöðu. Þrír lesa hvert blað
Fjárlagafrumvarp
Þjóðviljinn hefur skýra sér-
stöðu meðal dagblaðanna; hann
er ótvírætt málgagn „vinstri-
hreyfingar". Það eru lesendur
blaðsins sem þetta segja. Þeir eru
samkvæmt nýgerðri áskrifenda-
könnun gagnrýnir á ýmsa efnis-
þætti blaðsins en í heildina
ánægðir með meginstefnu þess.
f könnuninni var úrtak af les-
endum beðið að taka afstöðu til
ýmissa fullyrðinga um Þjóðvilj-
ann, og var áberandi að lesendur
samsinntu mjög þeim fullyrðing-
um sem lögðu áherslu á pólitískt
hlutverk hans. Lesendur líta
greinilega á blaðið sem nátengt
Alþýðubandalaginu en virðast
ætlast til sjálfstæðra vinnubragða
á ritstjórn. Til dæmis kom fram
eindregið jákvæði við fullyrðingu
um að blaðið ætti „ekki að vera
málsvari forystumanna samtaka
launafólks, heldur leggja sjálf-
stætt mat á launabaráttuna".
Þegar lesendur í könnuninni
voru beðnir að segja til um hvaða
svið ætti að fjalla meira um í blað-
inu voru skýrastar óskir um
neytendamál og húsnæðismál, og
einnig lögð áhersla á efnahags- og
peningamál. Svarendur virtust
tiltölulega sáttir við umfjöllun
blaðsins um skólamái, dagvist-
armál, heilbrigðismál, málefni
kvennahreyfingar. Þá vilja les-
endur að blaðið standi sig í her-
stöðvamálinu.
Samkvæmt könnuninni eru
fleiri á því að Þjóðviljinn sé
„skemmtilegur aflestrar" en
ekki, og flestir eru á því að útlit
blaðsins sé „í góðu lagi“. Menn
eru síður á því að í blaðinu sé
„neikvæður nöldurtónn“, og fáir
kannast við að hafa oft orðið var-
ir við „óvandaðan fréttaflutning.
í könnuninni kemur fram að
þrír einstaklingar að meðaltali
lesa hvert eintak af Þjóðviljan-
um, og er þá aðeins átt við áskrift
á heimili og ekki teknir með
vinnustaðir. Þetta þykir há tala
og ætti að vekja athygli auglýs-
enda.
Þeir félagsfræðingarnir Þor-
björn Broddason og Kristinn
Karlsson önnuðust könnunina í
samráði við Þjóðviljann og munu
nákvæmari niðurstöður birtast
hér í blaðinu næstu daga.
Inmriðir kannaðir
Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir 10 miljarða tekju-
aukningu ríkissjóðs. Ýmsum stofnunum gert að bera
sig. Menning og listir efldar
Fyrsta fjárlagafrumvarp Ólafs
Ragnars Grímssonar fjármála-
ráðherra gerir ráð fyrir því að
tekjur ríkissjóðs aukist um 10
miljarða frá fjárlögum þessa árs.
Tekjuskattur hækkar um 2 milj-
arða og hækkandi tolltekjur og
tekjur vegna bjórs skila rúmum 3
miljörðum í ríkissjóð.
Hækkanir á framlögum til
menningar og lista eru verulegar
á sumum sviðum. Til dæmis
hækka framlög til Alþýðuleik-
hússins um 159% og sex nýir aðil-
ar fá nú framlög úr ríkissjóði í
fyrsta skipti. Kvikmyndasjóður
fær 71 miljón til ráðstöfunar og
framlög til Kvikmyndasafns
hækka um 56%.
Sölunefnd varnarliðseigna er
gert að skila 50 miljóna hagnaði á
næsta ári ella verður hún lögð
niður. Flugstöðinni á Keflavíkur-
flugvelli er einnig gert að skila
hagnaði og framlag til Áburðar-
verksmiðjunnar er lækkað. Það
leiðir til 26% hækkunar áburðar-
verðs.
Sjá miðopnu