Þjóðviljinn - 30.11.1988, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 30.11.1988, Qupperneq 3
FRÉTTIR Hluti listamannanna sem fram koma á fjáröflunartónleikum Kvennaathvarfsins á sunnudagskvöldið á Hótel íslandi: Góðar undirtektir almennings skipta öllu. Mynd: ÞÓM. Kvennaathvarfið Það munar um allt! Bubbi, Bjartmar, Sverrir Stormsker og Herdís Hallvarðsdóttir meðal listamanna sem komafram áfjáröflunartónleikum Kvennaathvarfsins á sunnudagskvöldið. María Sólbergsdóttir: Skiptir öllu að vel takist til Það skiptir framtíð Kvennaat- hvarfsins öllu máli að tónleik- arnir takist sem best; fjölmargir listamenn koma fram ókeypis,. húsið fáum við okkur að kostnað- arlausu, og að auki hafa einstakl- ingar, sveitarfélög og félaga- samtök látið fé af hendi rakna - mismikið eins og gengur - en við leggjum áherslu á að það munar um allt, sagði María Sólbergs- dóttir, gjaldkeri Samtaka um kvennaathvarf, er hún fjallaði um bága fjárhagsstöðu samtak- anna á fundi með fréttamönnum í gær og fyrirhugaða fjáröflunar- Magnús Jónsson Magnúsar- dagskrá lýkur Á morgun, fimmtudag lýkur dagskrá í minningu Magnúsar Jónssonar kvikmyndaleikstjóra, sem staðið hefur í Ásmundarsal í tengslum við sýningu á verkum Kjuregej Alexöndru. Kl. 16 er Óvænt uppákoma. Kl. 18.00 verður flutt tónverk eftir Atla Heimi Sveinsson, sam- ið í minningu Magnúsar. Og klukkan 18.30 flytja þeir Eyvind- ur Erlendsson og Karl Guð- mundsson ágrip af leikriti Magn- úsar um Frjálst framtak Steinars Ólafssonar í veröldinni. Sýningunni lýkur svo kl. 20.00. Aðsókn hefur verið góð og sjö myndir hafa selst. tónleika á sunnudagskvöldið á Hótel íslandi til að rétta hana við. Listamennirnir sem koma fram á tónleikunum eru Bubbi Mort- hens, Bjartmar Guðlaugsson, Sverrir Stormsker, Herdís Hallvarðsdóttir og Gullfiskarnir, Kársneskórinn, Hornaflokkur Kópavogs, Jóhanna Þórhallsdótt- ir, Brávallagatan og Perlan (leikhópur þroskaheftra). Að auki verður starf Kvennaat- hvarfsins kynnt, sem og hug- myndafræðin sem að baki býr. A fundinum kom fram að fjár- hagsstaðan er venju fremur erfið, Aðeins rétt rúmar 3 vikur eru fram að jólaleyfi þingmanna. Það hefur vakið athygli að ríkis- stjórnin hefur ekki iagt mjög mörg mál fyrir deildir þingsins, þó vissulega séu þau mál stór í sniðum sem lögð hafa verið fram. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra segir allmörg mál hafa verið samþykkt í ríkisstjórn- inni og í þingflokkum stjórnar- flokkanna en höfuðáhersla verði lögð á að koma tekjuöflunar- frumvörpum ríkisstjórnarinnar í gegn fyrir áramót. Eitt þessara frumvarpa var til umræðu í neðri deild í gær. En þá lagði Ólafur Ragnar Grímsson fram frumvarp um seinkun gildis- töku virðisaukaskatts, sem myndi rýra tekjur ríkissjóðs um 1,2 miljarða tæki hann gildi um mitt næsta ár, eins og gert hefur verið ráð fyrir. Steingrímur sagði Þjóðviljanum í gær, að því væri og vantar nú hálfa aðra miljón upp á að endar nái saman í rekstr- inum til áramóta. Stöðugildin eru tæplega 8, og hefur verið brugðið á það ráð að segja starfsfólki upp frá og með áramótum til að skapa starfseminni svigrúm í óvissri framtíð. Rekstraráætlunin fyrir næsta ár hljóðar upp á 15 miljónir þegar allt er talið, þar á meðal fræðslu-, kynningar- og útgáfustarfsemi. Þá er þörf á stórauknum stuðn- ingi og ráðgjöf fyrir börn sem leita í athvarfið með mæðrum sín- um, en áherslan í starfinu hefur í ekki að neita að það hefði tekið nokkurn tíma að undirbúa tekju- öflunarfrumvörpin. Þau væru oft flókin en ötullega hefði verið unnið að þeim og þau færu að koma fram eitt af öðru næstu daga. Steingrímur vildi engu spá um það hvort stjórninni tækist að koma öllum fjáröflunarfumvörp- unum í gegn fyrir áramótin. „Fjármálaráðherra mun að sjálf- sögðu hefja viðræður við stjórn- arandstöðuna um þessi mál,“ sagði Steingrímur. Það væru mörg viðkvæm mál í þessum málaflokki og enginn vafi á að menn þyrftu að mætast á miðri leið. Forsætisráðherra telur, að vegna minni tekna ríkissjóðs af völdunt augljóss samdráttar í þjóðfélaginu, gæti markmiðið um 1,2 miljarða tekjuafgang á fjárlögunt verið í hættu. Það gæti farið svo að ríkisstjórnin yrði að sætta sig við minni tekjuafgang. auknum mæli beinst að börnun- um. Fimm börn og þrjár konur dvöldu þar að meðaltali á dag í fyrra. Tónleikarnir á Hótel íslandi hefjast klukkan hálfníu á sunnu- dagskvöldið og kostar miðinn þúsund krónur. Þjóðviljinn hvet- ur fólk til að sýna hug sinn í verki með því að fjölmenna, og leggja þar með sitt af mörkum til að bægja þeirri hættu frá sem nú steðjar að Kvennaathvarfinu. En hann héldi að allir væru sam- mála um að afgreiða ætti fjárlaga- frumvarpið með tekjuafgangi. Staðan í dag kallaði á meiri niður- skurð og eða meiri tekjuöflun, og um þetta væri nú rætt í ríkis- stjórninni. Bráðabirgðalög ríkisstjórnar- innar eru enn stödd í efri deild, þar sem þau voru lögð fram í upp- hafi þings. Þau eru nú til umræðu í fjárhags- og viðskiptanefnd og eru sumir þingmenn orðnir lang- eygir eftir því inn í deildina aftur. Eiður Guðnason formaður nefndarinnar segir að vel fari unt málið í nefndinni. Fundað hafi verið um það í um 11 klukku- stundir og það sé væntanlegt úr nefndinni í byrjun desember. Hann segir það fráleitt að verið sé að tefja málið í nefndinni, eins og sumir hafa haldið fram. Ef eitthvað, hafi afgreiðsla þess ver- ið röskari en gangi og gerist með bráðabirgðalög. -hmp Miövikudagur 30. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3 -HS Fjárlög Tekjuafgangur í hættu Jólaannirað hefjastáAlþingi. Forsœtisráðherra: Höfuðáhersla lögð á afgreiðslu tekjuöflunarfrumvarpanna. Bráðabirgðalögin úrnefndí nœstu viku Bokaklubbur áskrifenda Þjoðviljans Tilboð vikunnar: Verð 1.950.- (Verð út úr búð kr. 2.188.-) Gunnlaðar saga eftir Svövu Jakobsdóttur. Utgefandi For- lagið. NlNABJÖRK ÁRNADÓTTIR MÓÐIR - K0NA • MEYJ A Móðir, kona, meyja fyrsta skáldsaga Nínu Bjarkar Arna- dóttur. Utgefandi Forlagið. Verð kr. 1.750.- (Verð út úr búð 1.988.-) Himinn og hej eftir Sweden- borg. Útgefandi Örn og Örlygur. Verð kr. 1.930.- Verð út úr búð kr. 2.450.-) Sturlunga Þriggja binda glæsi- útgáfa frá Svörtu og hvítu. Verð kr. 11.900.- (Verð út úr búð kr. 14.980.-) Leitin að dýragarðinum Nýtt smásagnasafn eftir Einar Má Guðmundsson. Verð kr. 2.150.- (Verð út úr búð kr. 2.670.-) Að lokum Síðustu Ijóð Ólafs Jó- hanns Sigurðssonar. Myndir eftir JórfHReykdal. Verð kr. 1.850.- (Verð út úr búð kr. 2.175.-) Þrjár sólir svartar Skáldsaga af Axlar-Birni eftir Úlfar Þormóðs- son. Verð kr. 1.900.- (Verð út úr búð kr. 2.632.-)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.