Þjóðviljinn - 30.11.1988, Blaðsíða 14
I DAG
A jólaróli
í þessum pistli, hér við hliðina á
þessum fjölmiðlaefniskynning-
um, er mér „ekki markaður bás
meira en svona og svona". í
rauninni tel ég að þar sé heimilt
að skrifa um allt milli himins og
jarðar, ef svo vill verkast. Nema
kannski skammir um „blaðið okk-
ar“, sem alltaf þarf að vera að
skipta um ritstjóra. Og hver veit
nema það væri allt í lagi. Ég hef
meira að segja gerst svo bíræfinn
að skrifa hér um bækur, eða þó
kannski öllu heldur tímarit. Og ég
hefi orðið þess áþreifanlega var,
að það er ekkert lakara fyrir þessi
ritog aðstandendurþeirra, aðá
þau sé drepið hér í þessari alls-
herjar ruslakistu en annarsstaðar
íblaðinu.
Nú er þannig mál með vexti að
til er hér á landi fyrirtæki, sem
nefnist Osta- og smörsalan s.f.
Þetta er samvinnufyrirtæki og ber
vonandi gæfu til að verða það
áfram, þó að hinni gömlu og góðu
samvinnuhugsjón vegni nú ekki
alltof vel sem stendur, í þessu
peningahákarlaþjóðfélagi. Að því
standa samtök mjólkurframleið-
enda í landinu. Osta- og smörsal-
an selur þó ekki mjólk heldur
ýmsar lostætar vörur, sem úr
henni eru unnar og standa fylli-
lega á sporði erlendri mjólkur-
vöruframleiðslu, eins og
reynslan hefursýnt.
Fyrir kemur að Osta- og
smjörsalan gefur út bæklinga til
þess m.a. að kynnaframleiðslu
sína o.fl. Nýlega hefur einn slíkur
komið út. Nefnist hann „Á jóla-
róli“, - bakað - föndrað - eldað -
pakkað - skreytt, en um allt þetta
erfjallaðíblaðinu. írauninnier
vikið að flestu því, sem lýturað
undirbúningi jólahaldsins á
þessu sviði, -frá aðventu til
gamlárskvölds. Skiptist það í
eftirfarandi kafla: 1. Hvernig á að
gera aðventukransa. 2. Pipar-
kökur og jólaglögg. 3 Mikinn fjöl-
dasmákökuuppskrifta. 4. Margs-
konar hugmyndir að heimatilbún-
um jólagjöfum, föndri o.fl. og fylg-
ir snið þar sem þess þarf með. 5
Tertu- og kökuuppskriftir. 6. Fjöl-
margar uppskriftir að girnilegum
jólamat. 7. Aragrúi uppskrifta að
jólasælgæti. - Þeir verða ekki í
vandræöum með að gera sér
dagamun um jólin, sem hafa
þennan bækling við höndina.
Blaðið er 24 myndskreyttar
síður og hið besta úrgarði gert.
Þið getið fengið það í flestum
matvöruverslunum og verðið er
um 150 kr. Og ef þið viljið fá ein-
hverjar nánari upplýsingar þá er
bara að hringja í Osta- og
smörsöluna, - sími 82511, - og
hafa tal af henni Dómhildi Sigfús-
dóttur hússtjórnarkennara og for-
stöðumanni tilraunaeldhúss
Osta- og smjörsölunnar. Hún
mun góðfúslega og greiðlega
veita þær upplýsingar, sem um
erbeðið. -mhg
ÍDAG
er30. nóvember, miðvikudagurí
sjöttu viku vetrar, tíundi dagur
ýlis, 335. dagurársins. Sól kemur
upp í Reykjavík kl. 10.43 en sest
kl. 15.49.Tunglminnkandiá
þriðja kvartili.
UM UTVARP & SJQNYARP jK
Newman-hjónin.
Verölaunin
Sjónvarp kl. 21.45
Þessi kvikmynd leikstjórans
Marks Robsons er gerð eftir sögu
Irvings Wallace og með aðalhlut-
verkið í myndinni*fer Paul New-
man. Ýmislegt gengur nú þarna
á. Amerískur rithöfundur, hálf-
gerður drykkjubolti, er staddur í
Stokkhólmi. Þangað á hann það
erindi, að taka við bók-
menntaverðlaunum Nóbels.
Rússneskur glæpalýður hefur
hug á að ræna einum verðlauna-
hafanum, hvað sem það á nú að
þýða. Alls óafvitandi verður kan-
inn til þess að fletta ofan af þessu
samsæri og er nú ekki að sökum
að spyrja. Honum ersýnt banatil-
ræði, eltingaleikur hans við Rúss-
ana berst fram og aftur um skerj-
agarðinn og m.a. inn í nektarný-
lendu, uss. - Sænsk yfirvöld mót-
mæltu sýningu á þessari mynd á
þeim forsendum, að hún varpaði
skugga á afhendingu Nóbelsverð-
launanna. En íslenska Sjónvarp-
ið o.fl. hafa þau mótmæli að
engu.
-mhg
Hjónaskilnaðir
Rás 1, kl. 21.30
í þættinum Börn og foreldrar,
sem er á dagskrá Rásar 1 í kvöld
svara sálfræðingarnir Einar Gylfi
Jónsson og Wilhelm Norðfjörð
og félagsfræðingarnir Sigrún Júlí-
usdóttir og Nanna K. Sigurðar-
dóttir nokkrum þeirra fjölmörgu
spurninga, sem þættinum hafa
borist varðandi börn og hjóna-
skilnaði. - Þetta efni er nú öðru
sinni til umfjöllunar í þessum
þáttum og er athyglinni nú beint
að hlutverki föðurins við sam-
búðarslit, en svo virðist sem það
sé oft vanmetið. Barnið vill verða
útundan í deilum foreldra við
skilnað, en það á að öllu jöfnu
rétt á umgengni við báða for-
eldra. - Umsjónarmaður þáttar-
ins er Lilja Guðmundsdóttir.
-mhg
„Konan í dalnum...“
Rás 1, kl. 13.35
Ástæða er til að vekja athygli á
lestri Sigríðar Hagalín á miðdeg-
issögunni „Konan í dalnum og
dæturnar sjö“, en það er saga
Moniku Helgadóttur frá Merki-
gili í Austurdal, eftir Guðmund
Hagalín. Lestursögunnar byrjaði
að vísu á mánudaginn svo að
þetta er þriðji lesturinn í dag. En
þó einhverjir hafi misst af
tveimur fyrstu lestrunum ættu
þeir ekki að setja sig úr færi með
að hlýða á framhaldið. - Saga
Moniku á Merkigili er einstæð
afreks- og hetjusaga og verður
Gróöurhúsaáhrifin
Rás 1, kl. 22.30 sem kola, olíu og jarðgass. Þá
í kvöld er á dagskrá Rásar eitt verður og fjallað um ýmsar leiðir
þáttur þar sem fjallað er um svo- til orkusparnaðar, aðra orku-
nefnd gróðurhúsaáhrif og þverr- gjafa en þá, sem að ofan eru
andi orkulindir. Rætt verður um nefndir og þá annmarka, sem
hvernig draga megi úr gróðurhús- þykja í notkun sumra þeirra, svo
aáhrifunum, sem aftur mundi sem kjarnorku.-Umsjónarmað-
leiða af sér mikinn samdrátt í ur þáttarins er Páll Heiðar Jóns-
notkun lífrænna orkugjafa svo son. -mhg
Guðmundur G. Hagalín
jafnan talin meðal merkustu ævi-
sagna Hagalíns. _mh
GARPURINN
KALLI OG KOBBI
__r ^ Wo
FOLDA
VIÐBURÐIR
Andrésmessa. Þjóðhátíðardagur
Skotlands. Þjóðhátíðardagur
Barbados.
ÞJÓÐVILJINN
FYRIR50ÁRUM
Dagsbrún heldurfund um
atvinnuleysið. Félagiðskorará
önnur verklýðsfélög að vera með
í skipulagningu atvinnuleysisbar-
áttunnar. Almennur fundur í síð-
asta lagi á sunnudag.
Eldvarnavika Slysavarnafélags-
ins. Olíuborin efni geta valdið
sjálfkveikju.
Þín óheppni, koddi,
að lenda í rúmi þarsem
er hugsað svona fast
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 30. nóvember 1988