Þjóðviljinn - 30.11.1988, Qupperneq 4
þj ÓÐVILJIN N Vi7 sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
gengisævintýri
„Afleiðingin af stjórnarstefnu undanfarinna ára er gífurleg
tilfærsla á fjármagni í þjóðfélaginu, ekki síst frá frumfram-
leiðslugreinum til fjármagnseigenda. Þessi stefna hefur leitt til
þess að undirstöðuatvinnuvegir landsmanna og fjölmörg heim-
ili standa nú frammi fyrir greiðsluþroti."
Þessi lýsing á ástandinu í landinu er úr ályktun miðstjórnar-
fundar Alþýðubandalagsins síðustu helgi, og víst að margir
geta tekið undir.
Hvað er til ráða? Sjálfstæðisflokkurinn æpir á gengisfellingu,
helst sem allra mesta, og hefur þannig komið sér upp einföldu
lausnarorði í heimi sem verður flokknum sífellt erfiðari og flókn-
ari. Undir þetta hafa tekið nokkrir atvinnurekendur, þar á meðal
ýmsir forsvarsmenn í frystingunni.
Staðreyndin er sú að bæði Sjálfstæðisflokkurinn og ýmsir
áðumefndra forystumanna hafa ákveðið að missa sjónar á
raunveruleikanum í bili og lifa lífinu í nánustu framtíð í vímu-
kenndum draumaheimi þarsem ekki þarf annað á sig að leggja
en að bíða einsog í eldhúsróman eftir því að bókarhöfundur
hugsi upp hamingjusamleg endalok.
Þetta er eðlilegt í tilviki Sjálfstæðisflokksins. Á þeim bæ eru
bústólparnir orðnir langþreyttir á pólitískri tilraunamennsku og
vandræðagangi og búnir að ákveða að þeim sé fyrir bestu að
hætta um sinn afskiptum af stjórnmálum. Þeir eru komnir í frí
þangaðtil forsjónin geri útaf við vinstristjórnina og kalli aftur á
Flokkinn til að sólunda enn einu góðærinu útum gluggann.
Þetta er hinsvegar óeðlilegt í tilviki þeirra forystumanna í
atvinnulífinu sem bera ábyrgð á afdrifum stórra fyrirtækja, at-
vinnu fjölda manns og viðgangi heilla byggðarlaga.
Bæði skynsemin og reynslan ættu að segja þessum
mönnum að það er fráleitt að gengisfelling leysi nokkurn vanda
nema í einstaka fyrirtæki. Það sem hefur breyst er að skuld-
bindingar útflutningsfyrirtækjanna eru að langmestu leyti mið-
aðar við gengi eða þannig verðtryggðar að það litla sem ynnist
fyrir útflutningsatvinnuvegina mundi fljótlega étast upþ vegna
óhagræðis af aukinni verðbólgu sem hætt er við að sigldi í
kjölfarið. Þetta geta menn skoðað af skynsemi, stjórnendur og
starfsmenn, hver í sínu fyrirtæki og hver í sínu byggðarlagi.
Það sem atvinnuvegirnir fá útúr gengisfellingu jafnast nokk-
uð á við þá sjálfhitun líkamans sem felst í að pissa í skóinn sinn.
Reynslan ætti líka að geta sett ofaní við þá sem standa og
æpa á gengisfellingu með stuttbuxnaliðinu úr Valhöll. Á árinu
hafa verið gerðar hvorki meira né minna en þrjár gengisfelling-
ar, og samt standa menn slyppir eftir og snauðir.
Bæði reynslan og skynsemin segja okkur líka að gengisfell-
ingar hafa einn galla öðrum stærri. Þær seilast fyrst og fremst í
vasa almennings eftir fjármagninu gegnum stórhækkað vöru-
verð. Þær jafngilda kjaraskerðingu hjá alþýðu manna, og rýra
hvergi þann gróða sem síðustu árin hefur safnast upp í gegnum
peningaverslunarfyrirtækin.
Á miðstjórnarfundinum um helgina hafnaði Alþýðubanda-
lagið með öllu þessari leið, og aðrir aðilar stjórnarsamstarfsins
virðast einhuga um að láta það íhaldsúrræði eiga sig, - þótt
auðvitað komi einhverskonar gengisleiðréttingar til greina fyrr
eða síðar þyki tæknimönnum þörf á.
í stað gengisfellingar vill Alþýðubandalagið að menn sam-
einist um endurskipulagningu í atvinnulífinu, fyrirtæki fyrir fyrir-
tæki, bygðarlag fyrir byggðarlag, til að aga þau eftir veruleik
samtímans og koma á nútímalegri hagræðingu með fullu tilliti til
félagslegra sjónarmiða og hagsmuna byggðarlaga.
Um leið verður auðvitað að losa atvinnuvegina úr þeirri
snöru sem frjálshyggjustefna síðustu ríkisstjórna hefur brugðið
þeim um háls, lækka vexti og draga úr verðbólgu þannig að
sambærilegt verði við grannlöndin.
Þetta er kjarninn í verkefnum ríkisstjórnarinnar næstu mán-
uði. Það verður að horfa lengra en frammí næstu viku og jafnvel
forsvarsmenn í atvinnurekstri verða að fara að taka á sig þá
ábyrgð að hugsa um annað og meira en þrönga flokks-
hagsmuni Sjálfstæðisflokksins. Enda virðast vera nógir til
þess, jafnvel á æðstu stöðum í ríkiskerfinu.
Allan sannleikann!
Þegar Magnús Thoroddsen hefur sagt af sér störfum dóm-
ara í æðsta rétti þjóðarinnar, - sem hlýtur að verða -, á það að
vera næsta verkefni að upplýsa að fullu um öll einkakaup
ráðamanna með niðursettu verði í Áfengisversluninni.
Almenningur krefst þess að þessi ömurlega spilling sé upp-
rætt í eitt skipti fyrir öll. -m
KLIPPT
Rifrildi hjóna
Sæmundur heitir rit, sem gefið
er út af SÍNE, og mun heita í
höfuðið á þeim Islendingi sem
einna kunnastur hefur orðið fyrir
nám í útlöndum, Sæmundi fróða.
í síðasta tölublaði birtist frásögn
af sumarráðstefnu sem SÍNE hélt
í ágúst leið. Sú lesning er heldur
betur hressandi fyrir þá sem eru
hættir að nenna að hafa skoðanir
á málum, hvað þá að þeir standi í
ströngu við að berjast fyrir þeim.
Fundarmenn vírðast ekki allir
hafa verið ánægðir með skýrslu
stjórnar og vildu sumir að felldur
yrði niður í henni kafli um að
ákveðnir menn tengdust Sam-
bandi ungra Sjálfstæðismanna.
Var farið fram á það við fráfar-
andi formann að hann bæðist afs-
ökunar á þessum aðdróttunum
„ella skyldi hann hundur heita“.
Það hlýtur að vera umhugsuna-
refni fyrir Sjálfstæðismenn að
námsmenn skuli leggja slíkt of-
urkapp á að hreinsa mannorð sitt
af því að vera bendlaðir við flokk-
inn.
Ekki er nákvæmlega greint frá
orðaskiptum en eftir einum
fundarmanni er haft að honum
liði „eins og hann vœrí dreginn
inn í rifrildi gamalla hjóna. “
Svo er þó að sjá sem menn hafi
ekki haft geð f sér til að núa hverj-
ir öðrum um nasir samneyti við
þessa framvarðarsveit íslenskra
íhaldsmanna. Eða hvað?
„Nú tók Kristján Ari til máls og
bað Óskar Borg fyrirgefningar á
því að hann skyldi hafa bendlað
hann við Sjálfstœðisflokkinn. “
Ég elska þig stormur
Margir hafa áhyggjur af ís-
lenskri Ijóðagerð. I hálfa öld eða
lengur hafa sjálfskipaðir vöku-
menn varað við hættunni af at-
ómljóðum og brýnt fyrir þjóðinni
að ljá ekki eyra einhverju rausi í
grilluföngurum sem kunna ekki
að láta standa í hljóðstöfum, um-
gangast rím eins og strákar sem
krota á vegg og hafa ekki eyra
fyrir hrynjandi. Þótt enn megi
rekast á blaðagreinar þar sem
boðað er heilagt stríð gegn
óbundnum Ijóðum, leggur drjúg-
ur hluti þjóðarinnar skáldum það
ekki endilega til lasts þótt þau
hirði ekki um að hneppa ljóð sín í
þrönga formfjötra. Einkum ef
þau hafa eitthvað að segja. En
því miður munu þeir víst vera
fleiri sem láta sig ljóð litlu skipta,
hvort heldur um er að ræða hefð-
bundinn kveðskap eða ekki. í erli
og amstri tækniþjóðfélagsins nær
ljóðið ekki eyrum þeirra.
Því skiptir miklu að þeir, sem
ráða fyrirferðarmiklum og oft
ærið hávaðasömum fjölmiðlum,
OG SKORIÐ
leyfi veikri en ómþýðri rödd
ljóðsins stöku sinnum að brjótast
í gegnum skarkala hversdagsins.
Sú ákvörðun Ríkissjónvarpsins
að sýna ljóðaþætti, þar sem gerð
er grein fyrir einhverju skáldi og
lesið valið ljóð eftir það, hefur
því verið þakksamlega þegin af
mörgum. Og kannski hefur þessi
dagskrárliður orðið til að kveikja
einhvers staðar ljóðaáhuga þar
sem lítið var um hann áður.
sem geisar um grund
Síðastliðið sunnudagskvöld
var kvæðið Stormur eftir Hannes
Hafstein flutt í ljóðaþætti Ríkis-
sjónvarpsins. f inngangi var gerð
grein fyrir ævi Hannesar og sagt
frá starfi hans að skáldskap og
pólitík á fyrstu áratugum þessar-
ar aldar. Hannes hefur löngum
vakið áhuga manna bæði með
ljóðum sínum og þá ekki síður
fyrir það að hafa sameinað í einni
og sömu persónunni skáld og
stjórnmálamann. Ó, að við ætt-
um nú enn þá stjórnmálamenn
sem gætu gert eitthvað meira en
að tala um menninguna! Hér
áður fyrr var mikið um það rætt
hve glæsilegur Hannes Hafstein
var á velli. En því miður fyrir þá,
sem eru örlítið þyngri en þeir
voru á sínum unglingsárum, rikja
nú þær tískukröfur að mönnum
með vaxtarlag Hannesar er ein-
dregið ráðlagt að fara í leikfimi-
æfingar og minnka við sig matar-
skammtinn.
Að lokinni kynningu á Hann-
esi Hafstein hófst upplestur
kvæðisins. Og hver birtist þá á
skerminum og hefur upp sína
raust? Sjálfur borgarstjórinn í
Reykjavík, Davíð Oddsson.
Hann flutti ljóðið mæta vel og
skorti ekkert á þann
karlmennskuanda sem hrekja vill
burt loftilla og dáðlausa
lognmollu.
Framhaldsþættir
Þótt óreyndum ungmennum,
sem ekki hafa enn gert sér grein
fyrir því hvernig pólitík og skáld-
skap getur slegið saman, yrði á að
spyrja hvort hann væri nýr þessi,
skynjuðu þeir lífsreyndari að hér
voru mikil tíðindi að gerast. Hér
rann allt saman í eitt; skáldið,
ljóðið og flytjandinn. Er ekki Da-
víð einmitt skáldmæltur sjálfur?
Er hann ekki á bólakafi í pólitík-
inni? Og hvað með vöxtinn?
Áhorfendur hljóta að mega
vænta framhalds á því að pólitík-
usar, sem keppast um hylli al-
mennings, verði látnir lesa Ijóð
góðskáldanna. Ugglaust má bú-
ast við því að Svavar Gestsson
verði fenginn til að lesa Brautina
eftir Þorstein Erlingsson. Kann-
ski les svo Steingrímur Her-
mannsson eitthvað eftir Guð-
mund Inga á Kirkjubóli og Jó-
hanna Sigurðardóttir fer með
kvæði eftir Erlu. Hér er um gullið
tækifæri að ræða fyrir stjórnmála-
menn til að efla vinsældir sínar.
En ósagt skal um það látið hvort
þessi tilhögun verður til að auka
ljóðaáhuga almennings.
ÓP
Þjóðviljinn
Síðumúla 6-108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
ÚtgefandlrÚtgáfufélagÞjóöviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Möröur Árnason, Ottar Proppé.
Fréttastjóri: Lúövík Geirsson.
Blaðamenn: Dagur Porleifsson, Guömundur RúnarHeiöarsson,
Heimir Már Pétursson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, Kristófer
Svavarsson, Magnús H. Gíslason, Lilia Gunnarsdóttir, Ólafur
Gíslason, Páll Hannesson, Siguröur A. Friðþjófsson (Umsjónarm. Nýs
Helgarb.), Sævar Guðbjörnsson, Þorfinnur Ómarsson (íþr.).
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir.
Ljósmyndarar: Jim Smart, Þorfinnur ómarsson.
Útlit8teiknarar: Kristján Kristjánsson, KristbergurÓ.Pétursson
Framkvæmdastjóri: HallurPáll Jónsson.
Skrifstofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir.
Símavarsia: Sigríöur Kristjánsdóttir, ÞorgeröurSiguröardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Húsmóöir: Anna Benediktsdóttir
Útbreiöslu- og afgreiöslustjóri: Björn Ingi Rafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
innheimtumaður: Katrín Báröardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333&681663.
Auglýsingar: Síöumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiöja Þjóöviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 70 kr.
Nýtt helgarblað: 100 kr.
Áskriftarverð ó mánuði: 800 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 30. nóvember 1988