Þjóðviljinn - 30.11.1988, Page 6
FRETTIR
Aldraðir
Frá menntamálaráðuneytinu:
Að Fjölbrautaskólanum í Breiðholti vantar stundakennara á vor-
önn í:
Vömsvik á Vesturgötu 7
Þýsku, eðlisfræði, efnafræði, sálarfræði og rafiðnir, en í þá
grein er óskað eftir tæknifræðingi.
Þeir sem hug hafa á kennslu eru beðnir að senda umsóknir til
skólameistara fyrir 10. desember n.k.
Menntamáiaráðuneytið
IfdfM,
Isffcrtt
| pirirr
Flensborgarskólinn i Hafnartirði
Frá Flensborgarskóla
Þeir sem ætla að hefja nám við dagskólann á
vorönn 1989 þurfa að skila umsóknum um skóla-
vist eigi síðar en 10. des. n.k., sama gildir um
eldri nemendur sem ætla að hefja nám að loknu
hléi.
í öldungadeild skólans fer innritun fram frá 4.-5.
jan. n.k.
Skólameistari
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
BRÉFBERA
hjá Pósti og síma Kópavogi.
Upplýsingar hjá stöðvarstjóra í síma 91-41225.
S|lFrá Borgarskipulagi
IJJf Reykjavíkur
Einarsnes - Bauganes
Tillaga að deiliskipulagi svæðis sem markast af
Einarsnesi, Bauganesi og Skeljanesi, staðgr.r.
1.672 og 1.673, auglýsist hér með samkvæmt gr.
4.4 í skipulagsreglugerð nr. 318/1985.
Uppdráttur og greinargerð verður til sýnis hjá
Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 4.
hæð frá kl. 8.30 til 16.00 alla virka daga frá 30.
nóvember 1988 til 13. janúar 1989.
Athugasemdum eða ábendingum, ef einhverjar
eru, skal skila skriflega til Borgarskipulags innan
auglýsts kynningartíma.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Borgartúni 3,
105 Reykjavík.
Hjartanlegt þakklæti til allra þeirra sem heiðruðu
okkur hjónin með nærveru sinni, blómum, gjöfum
og heillaóskum eða á annan hátt 21. nóvember
sl., á 90 ára afmæli mínu. Gæfa og gengi fylgi
ykkur öllum.
Gísli Ólafsson
Minningarathöfn um
Svein Bergsveinsson
prófessor
Austur-Berlín
veröur haldin í Fossvogskapellu fimmtudaginn 1. desember
kl. 13.30.
Aðstandendur
I
Byggingin hefur verið auglýst í ástandi sem stangast á við
byggingarreglugerð. Kauptilboð hafa borist í 16 íbúðir af26.
Mun meirihluti hundsa reglugerðir eða breyta húsinu?
Hilmar Guðlaugssonformaður byggingarnefndar segir að
engin lausn sé ennfundin
Skilafrestur umsókna um nýjar
söluíbúðir aldraðra að Vestur-
götu 7 er þann 9. desember og
samkvæmt upplýsingum Hjartar
Hjartar hjá Reykjavíkurborg
hafa borist kauptilboð í 16 íbúðir
af 26. Það er hins vegar einn galli
á gjöf Njarðar og hann er sá að
byggingin brýtur í bága við bygg-
ingarreglugerðir og eigi að hlýta
þeim regium verður að breyta
húsinu. Það þýðir að væntan-
legum kaupendum hefur verið
boðið upp á vöru sem ekki stenst
settar reglur og mætti jafnvel
kalla slíkt vörusvik. Meirihluti
byggingarnefndar stendur því
frammi fyrir því að keyra sam-
þykki fyrir byggingunni óbreyttri
í gegnum nefndina jafnvel þó það
sé skýlaust brot á reglugerð eða
að krefjast þess að byggingunni
verði breytt.
Opnanlegir eða
lokaðir gluggar
Verði byggingunni breytt er
hins vegar hætt við að áhugi vænt-
anlega kaupanda kunni að dofna
nokkuð. Sá hluti byggingarinnar
sem augljósast stangast á við regl-
ugerðina er „svalagangur, yfir-
byggður með gleri,“ eins og segir
í auglýsingabæklingi fyrir íbúð-
irnar. Það að svalagangurinn er í
heild lokaður af með gleri þýðir
að ekki er hægt að telja þá glugga
sem opnast út í ganginn „opnan-
lega“ samkvæmt skilningi reglu-
gerðar, en þar er miðað við að
gluggar opnist út undir bert loft,
sbr. grein 6.3.1. í byggingarregl-
ugerðinni.
fbúar ganga inn í íbúðir sínar
frá svalaganginum og til að kom-
ast í þjónustukjarna á neðri hæð-
um þurfa þeir eðlilega að fara
eftir áðurnefndum svalagangi. f
þjónustukjarnanum er m.a.að
finna matsal og framreiðslueld-
hús, hársnyrtingu, föndurher-
bergi og setustofu, auk heilsu-
gæslustöðvar. Gangurinn var
Útlitsteikning af Vesturgötu 7. Gluggarnir umtöluðu eru á forhlið álmunnar etst
til vinstri.
yfirbyggður svo að íbúar gætu
notið kosta húsins án þess að
þurfa að fara í kuldagallann á leið
í matinn eða í hárgreiðslu. En þar
sem hönnunin stangast á við regl-
ugerðina þarf hér að verða
breyting á; annað hvort verður
svalagangurinn aðeins með gler-
skyggni eins og fyrst mun hafa
verið ætlunin, sem þýðir kulda-
gallaklæðnað fyrir matinn, eða
að reglugerðinni verði breytt en
slíkt tekur tíma auk þess sem alls
er óvíst hvort slík breyting næði
fram að ganga. Þriðji mögu-
leikinn er reyndar fyrir hendi og
hann er sá sem fyrr var nefndur
eða að meirihluti byggingar-
nefndar hundsi byggingarreg-
lugerð.
Reyndar er hinn yfirbyggði
svalagangur ekki eina atriðið sem
brýtur í bága við reglugerðina.
Breidd svefnherbergja í níu ein-
staklingsíbúðum mun aðeins vera
um 1,50 metrar og er það í bága
við grein 6.1.3., stærstu herbergi
einstaklingsíbúða er 16,3 ferm-
etrar en skulu hið minnsta vera 18
fermetrar skv. grein 6.1.1. auk
þess sem vafi leikur á hvort fleiri
atriði standist reglugerð.
Hilmar Guðlaugsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokks og formaður
byggingarnefndar Reykjavíkur-
borgar sagði að málið væri í
skoðun, en enn hefði ekki verið
fundin lausn á þessum vandamál-
um. Taldi Hilmar víst að lausn
finndist, en næsti fundur bygging-
arnefndar er þann 8. desember
eða daginn áður en umsóknar-
frestur fyrir íbúðirnar rennur út.
phh
Miðstjórn AB
Ríkisstjómin gangi ekki gegn
boðskap friðar og afvopnunar
Alyktun miðstjórnarfundar umfriðar- og afvopnunarmál
Friðar- og afvopnunarbarátta
hafa ætíð verið grundvallarþáttur
í þjóðmálastarfi Alþýðubanda-
lagsins. Það er og verður stefna
flokksins að ísland verði herlaust
og friðlýst land. Alþýðubanda-
lagið hefur alla tíð verið andvígt
skiptingu heimsins í tvær valda-
blokkir undir forræði Bandaríkj-
anna annars vegar og Sovétríkj-
anna hins vegar. Flokkurinn
tekur því fullan þátt í alþjóðlegri
baráttu fyrir því að öll hernaðar-
bandalög verði lögð niður.
Það er lágmarkskrafa til
þeirrar stjórnar félagshyggju og
jafnréttis sem nú situr að hún
gangi ekki gegn boðskap friðar
og afvopnunar á alþjóðlegum
vettvangi. Þvert á móti á ríkis-
stjórnin að styðja friðar- og af-
vopnunarviðleitni í heiminum.
Það er grundvallaratriði að
Bandaríkjaher og Nató fái ekki
að gera varaflugvöll hér á landi.
Flokkurinn mun leggja þunga
áherslu á eftirfarandi mál:
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur
1. Ríkisstjórnin styðji tillögu á
vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna um tafarlausa frystingu
kjarnavopna sem fyrsta skref
í Allsherjaráætlun Samein-
uðu þjóðanpa um afvopnun.
2. Ríkisstjórnin vinni að því að
lýst verði yfir kjarnorku-
vopnalausu svæði Norður-
landanna.
3. Ríkisstjórnin beiti sér gegn
öllum áformum Bandaríkja-
hers og Nató um aukin hern-
aðarumsvif á Norðurslóðum.
4. Ríkisstjórnin gangist fyrir því
að haldin verði alþjóðleg ráð-
stefna á íslandi til að undir-
búa formlega samninga um
afvopnun á Norður-
Atlantshafi.
5. Ríkisstjórnin beiti sér gegn
öllum áformum Nató um end-
urnýjun kjarnavopna í Evr-
ópu samkvæmt Montebello
samþykktinni svokölluðu
1983.
6. Ríkisstjórnin styðji hug-
30. nóvember 1988
myndina um stórfellda fækk-
un í hefðbundnum herafla
Nató og Varsjárbandalagsins
í Evrópu. Jafnframt vinni
stjórnin að því að fækkun
vopna í Norður-Atlantshafi
verði tekin inn í þær við-
ræður.
7. Ríkisstjórnin styðji tillögur
um að kjarnavopnum verði
aldrei beitt að fyrra bragði.
8. Ríkisstjórnin taki þátt í að
móta hugmyndir um hvernig
þeim hundruðum miljarða
dollara sem varið er árlega til
vígvæðingar verði beitt í þró-
unarhjálp.
9. Ríkisstjórnin viðurkenni hið
nýja Palestínuríki og fordæmi
jafnframt morð og limlesting-
ar ísraelshers á palestínskum
almenningi.
10. Ríkisstjórnin mótmæli íhlut-
unarstefnu risaveldanna hvar
sem hún birtist og standi fast
við þá grundvallarstefnu að
sjálfsákvörðunarréttur þjóða
sé virtur.