Þjóðviljinn - 07.01.1989, Blaðsíða 3
FRETTIR__________________
Réttarhálsbruninn
Eldvamareftiiiitið brást
Bergsteinn Gizurarson: Eldvarnaeftirlitið hefði áttað krefjast
brunahönnunar á húsinu. Svo geturfarið að sjóðir Húsa-
trygginga Reykjavíkur tæmist vegna tjónsins
Plastpokar
Gjaldtaka
oheimil
Verðlagsstofnun hefur lýst því
yfir að kaupmönnum sé óheimilt,
vegna gildandi verðstöðvunar, að
selja kaupendum burðarpoka úr
plasti, eins og boðað hefur.
Það voru Kaupmannasam-
tökin, verslunardeild Sambands-
ins og Landvernd sem gerðu á
dögunum samkomulag um pok-
asöluna. Átti hver poki að kosta 5
krónur og þar af átti helmingur
andvirðis að renna til Landvernd-
ar. Kaupmannasamtökin segja
að með þeirri ákvörðun sé Verð-
lagsstofnun notuð í pólitískum
tilgangi og góðu samstarfi sam-
takanna við Verðlagsráð sé nú
ógnað með þeirri ákvörðun.
Vestfirðir
Svavar
í yfirreið
Svavar Gestsson menntamáia-
ráðherra mun heimsækja Vest-
firði dagana 13. janúar tU 15. jan-
úar. Með honum i för verða
Gerður G. Óskarsdóttir ráðu-
nautur í skóla- og uppeldismálum
og Guðrún Ágústsdóttir aðstoð-
armaður ráðherra.
Föstudaginn 13. janúar mun
ráðherrann hitta fólk í ýmsum
stofnunum sem undir mennta-
málaráðuneytið heyra á Þingeyri
og Flateyri og Héraðsskólinn á
Núpi verður heimsóttur.
Laugardaginn 14. verður hald-
inn opinn fundur með skólafólki
á ísafirði. Markmið þess fundar
er að gefa fólki tækifæri til að
reifa hugmyndir sínar og skoðan-
ir í uppeldis- og skólamálum.
Þessi fundur verður haldinn kl.
14 á Hótel ísafirði.
Til Bolungarvíkur verður farið
að morgni laugardagsins.
Á sunnudag mun ráðherra
kynna sér íþróttamál, safnamál
og æskulýðsmál og skoða
mannvirki sem tengjast þessum
málaflokkum.
Mánudeginum vrður svo varið
til að heimsækja skóla og dagvist-
arheimili á ísafirði.
Heimsókninni lýkur síðdegis á
mánudag.
essar tillögur sjávarútvegs-
ráðherra komu okkur alveg í
opna skjöldu og eru skref aftur á
bak að okkar mati. Ef ætlunin er
að knýja þær í gegn munum við
koma okkur út úr kvótakerfinu
þar sem tillögurnar ganga í ber-
högg við núgildandi kerfi sem full
samstaða náðist um þrátt fyrir
andstöðu margra úr okkar hópi,
sagði Kristján Ragnarsson for-
maður Landssambands íslenskra
útvcgsmanna.
Mikil reiði er meðal útvegs-
manna vegna tillagna sjávarút-
vegsráðherra að koma á fót úr-
Eldvarnaeftirlit Reykjarvíkur
getur ekki skotið sér undan
ábyrgð á því hversu illa fór í
brunanum á Réttarhálsi. Það er
skylda þess að fylgjast með því,
að brunavarnir séu í lagi, sagði
Bergsteinn Gizurarson bruna-
málastjóri í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
- Það er skylda samkvæmt
lögum og reglugerðum um
Við ákváðum að gera upp þessa
skúra. Þeir voru algerlega
verðlausir og til háborinnar
skammar, sagði Árni Thorlacius
hjá Framkvæmdasjóði íslands,
aðspurður um hvers vegna sjóð-
urinn stæði í fjárfestingum í mið-
borg Reykjavíkur.
Árni sagði að Framkvæmda-
sjóður hefði eignast þessa skúra
við Tryggvagötu, þegar Álafoss
eldingarsjóði fiskiskipa til að
fækka veiðiskipum og auka á
hagkvæmni í útgerð þeirra skipa
sem eftir verða. Sérstaklega fer
fyrir brjóstið á útgerðarmönnum
að ætlunin er að úthluta sjóðnum
5 þúsund þorskígildum á þessu
ári og síðan 15 þúsund tonnum
árlega.
Ætlunin er að sjávarútvegsráð-
herra ákveði árlega samsetningu
úthlutunarinnar en stjórn sjóðs-
ins sem verður að meirihluta
skipuð pólitískt, mun framselja
þessar heimildir til eins árs í senn
samkvæmt nánari reglum. Verð-
lagning mun taka mið af mark-
brunavarnir að framkvæma
brunahönnun á öllu meiri háttar
atvinnuhúsnæði. Það er einnig
skylda byggingarnefnda og bygg-
ingarfulltrúa að senda til Bruna-
málastofnunar gögn um bruna-
varnir meiriháttar atvinnuhús-
næðis, en ekkert slíkt hefur kom-
ið inn á borð til okkar. Trúlega
hefur þetta húsnæði ekki verið
talið flokkast undir þetta ákvæði í
byrjun. Eldvarnaeftirlit Reykja-
var sameinaður Ullardeild Sam-
bandsins, en sjóðurinn á einnig
Vesturgötu 2 en þar er nú til húsa
verslun Álafoss.
- Við gátum valið um tvo
kosti, að rífa skúrana og breyta
lóðinni í bflastæði, eða að gera þá
upp og annað hvort selja húsnæð-
ið eða leigja það, sagði Árni.
Hann sagði að stefnt væri að því
að gera húsið fokelt og síðan yrði
tekin ákvörðun um framtíð þess.
aðsverði á hverjum tíma. Ma.
verður heimilt að ákveða að
landssvæði sem hafa ótryggan að-
gang að hráefni eða þar sem at-
vinnuástand er óviðunandi hafi
forkaupsrétt á allt að helmingi
þeirra veiðiheimilda sem sjóður-
inn ræður yfir.
„Með þessu er verið að brjóta
þá grundvallarreglu að veiði-
heimildum skuli ekki úthluta til
annarra en eigenda fiskiskipa,"
sagði Kristján Ragnarsson.
I stofnfé eru sjóðnum ætlaðar
að minnsta kosti 330 miljónir
króna með yfirtöku tveggja sjóða
sjávarútvegsins. Eignum gamla
víkur hefði samkvæmt iögum átt
að krefjast þess að brunahönnun
færi fram, í ljósi þeirrar starfsemi
sem þarna fór fram. Það stendur
skýrt í lögunum um brunavarnir
og síðan hefði átt að senda þessa
brunahönnun til okkar til sam-
þykktar. Það hafa aldrei komið
nein gögn til okkar um þetta hús,
sagði Bergsteinn.
- Ásmundur Jóhannsson hjá
Eldvarnaeftirliti sagði í Þjóðvilj-
- Okkur hafa borist margar
fyrirspurnir um þetta húsnæði, og
því er ekki að leyna að margir
hafa spurt hvort hægt væri að fá
að setja upp krá þarna, sagði
Árni. Ekki sagðist hann vita hvað
þessi endurbygging myndi kosta,
þar sem hún væri í raun hluti af
endurbyggingu á þeim hús-
eignum sem Framkvæmdasjóður
ætti á þessum reit.
Ureldingarsjóðsins sem lagður
var niður við afnám sjóðakerfis
sjávarútvegsins sem nema 80
miljónum króna og eignum
Aldurslagasjóðs fiskiskipa sem
nema um 250 miljónum króna.
„Við munum ræða þessar til-
lögur við sjávarútvegsráðherra
áður en langt um líður en hinu er
ekki að neita að það hlakkar í
andstæðingum kvótakerfsins sem
hafa verið að hringja í mig og
segja: Þarna sérðu. Hvað sögð-
um við ekki á sínum tíma þegar
þetta kvótakerfi var sett á fót,“
sagði Kristján Ragnarsson.
-grh
anum í gær að ljóst væri að reglu-
gerðir um brunavarnir hefðu ver-
ið þverbrotnar í húsinu. Bruna-
málastjóri segir að það hljóti að
vera skylda Eldvarnaeftirlitsins
að sjá til þess að reglum sé fylgt,
og eftirlitið hefði átt að gera
meiriháttar úttekt á þessu húsn-
æði vegna þeirrar eldhættu sem
þarna var. Eins og kom fram í
Þjóðviljanum í gær var húsið
tryggt hjá Húsatyggingum
Reykjavíkur, en þar eru allar
fasteignir í Reykjavík tryggðar.
Kristinn Ó. Guðmundsson for-
stjóri Húsatrygginga sagði í gær
við Þjóðviljann að svo gæti farið
að sjóðir Húsatrygginga myndu
tæmast vegna þessa bruna, og
gera mætti ráð fyrir að taka yrði
lán til að ná endum saman. Hann
sagði að sl. ár hefðu Húsatrygg-
ingar haft í tekjur um 100 miljón-
ir af iðgjöldum. En hann tók fram
að enn væri ekki ljóst hvað tjónið
væri mikið, þar sem ekki hefur
enn verið hægt að meta hvað
mikið af húsinu hefur eyðilagst.
Hann sagði að ekkert eftirlit með
fasteignum færi fram á vegum
Húsatrygginga; þeir treystu alfa-
rið á Eldvarnaeftirlitið. Eld-
varnaeftirlit Reykjavíkur hefur
ákveðið að bjóða hönnuðum og
byggingarmeisturum að skoða
með sér brunarústirnar í dag. Það
er gert að sögn þeirra til að fræða
menn um það, hvernig hin ýmsu
byggingarefni reynast í eldsvoða.
-*g
Atvinnu-
trygginasjóður
Bréfin í
moldviðri
Steingrímur Hermanns-
son: Höfum vissulega
áhyggjur af þessu
Steingrímur Hermansson for-
sætisráðherra segir að ríkis-
stjórnin hafi áhyggur af tregri
sölu á skuldbréfum Atvinnu-
tryggingarsjóðs. Það moldryk
sem þyrlað hafi verið upp varð-
andi bréfin hafi valdið vand-
ræðum. Steingrímur segir banka-
stjóra og fleiri meta trygging-
arnar að baki þessara bréfa meira
en fram hafi komið í fjölmiðlum.
Steingrímur sagði á blaða-
mannafundi í gær að sjálfsagt
myndu einhverjir lífeyrissjóðir
ekki kaupa skuldabréf Atvinnu-
tryggingasjóðs. En þeir lífeyris-
sjóðir sem væru tengdir sjávarút-
veginum ættu að hugsa sig vel
um.
Á sama fundi sagði Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra að mikið hefði verið gert úr
því að einstakir lífeyrissjóðir á
höfuðborgarsvæðinu hefðu ekki
viljað kaupa skuldabréfin. En líf-
eyrissjóðir úti á landi í sjávar-
plássum hefðu ýmsir ákveðið að
kaupa bréfin; þar skildu menn
mikilvægi þessara aðgerða. „Og
ég held að lífeyrissjóðir verslun-
armanna, byggingarmanna og
annarra ættu að sjá samhengið í
því að traustleiki sjávarútvegsins
leiðir fyrr eða síðar til þess að
verslun og byggingariðnaður geti
verið í blóma,“ sagði Ólafur
Ragnar.
-hmp
-sg
Úreldingarsjóðurinn
Utvegsmenn ævareiðir
Kristján Ragnarssonformaður LÍÚ: Sjóðurinn er skref aftur á bak. Gengur í
berhögg við núgildandi kvótakerfi. Munum koma okkur úrþví nái tillögurnarfram.
Hlakkar í andstæðingum kvótakerfisins
Nýbygging Framkvæmdasjóðs í Tryggvagötu. Margir hafa áhuga á að opna þar bjórkrá. Mynd - Þóm.
Framkvœmdasjóður
Skúrum breytt í verðmæti
Árni Thorlacius: Ætlum að seljaþetta hús eða leigja. Nokkrirhafa
spurst fyrir um hvort hœgt sé að fá inni fyrir krá í þessu húsi
Laugardagur 7. janúar 1989 pjÓÐVILJINN - SÍÐA 3