Þjóðviljinn - 09.02.1989, Page 3
________________________FRETTIR__________________________
Stóreignir
I digra sjóði að sækja
Þeir500 efnamestu eiga um 20 miljarða skuldlausa. Stóreignaskattur gefur um 300 miljónir.
Svanfríður Jónasdóttir: Það er ísjóði að sœkja ef menn vilja færa tilfjármuni íþjóðfélaginu
essar upplýsingar um fjölda
stóreignafólks á Islandi koma
mér satt að segja nokkuð á óvart.
Það er oft gumað af því að hér-
lendis búum við í stéttlausu
þjóðfélagi, en það sést skýrt á
þessum tölum að launatekjur
segja alls ekki alla söguna. Fjöld-
inn allur af bæði hjónum og ein-
staklingum á tugmiljóna eignir og
þá er eingöngu miðað við það sem
Iðnaður
Risarí
samstarf
Samkeppnin of
kostnaðarsöm
Fyrirtækin Marel hf., Póls-
tækni hf. og Rekstrartækni hf.
hafa fyrir milligöngu Félags ís-
lenskra iðnrekenda gert með sér
samning um samstarf og 50 milj-
ón króna sameiginlega hlutafjár-
aukningu fyrirtækjanna. Marel
og Pólstækni hafa verið í harðri
samkeppni undanfarin ár.
Fyrirtækin munu engu að síður
verða áfram sjálfstæð hlutafélög
en nátengd rekstrarlega. Heild-
arvelta þeirra er áætluð um 300-
350 miljónir króna og starfsmenn
liðlega 50 talsins. Markmið sam-
starfsins er að treysta rekstrar-
stöðu þeirra og efla þróunar- og
markaðsstarfsemi hér sem er-
lendis.
Ástæða þessarar samvinnu
fyrirtækjanna er sögð vera rekstr-
arerfiðleikar fyrirtækja í fisk-
vinnslu, vaxandi samkeppni við
erlenda aðila og mikill fjár-
magnskostnaður. Auk þess hefur
hækkun á innlendum rekstrar-
kostnaði og óhagstæð þróun á
gengi krónunnar skekkt verulega
rekstrargrundvöll þeirra.
Bæði Marel og Pólstækni hafa
framleitt tölvuvogir fyrir fiskiskip
og fiskvinnslufyrirtæki í landi,
flokkunarvélar, samvalsvélar,
tímaskráningartæki o.fl. -grh
Hagkaup
kemur fram á skattskýrslum,
segir Svanfríður Jónasdóttir að-
stoðarmaður fjármálaráðherra.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í
gær eiga um 250 hjón hérlendis
skuldlausar eignir að verðmæti
yfir 30 miljónir króna og um 250
aðrir einstaklingar eiga skuld-
lausar eignir yfir 15 miljónum.
Þessar upplýsingar eru komnar
frá hagdeild fjármálaráðuneytis-
Afundi samtaka launamanna,
Samvinnuferða-Landsýnar
og Arnarflugs, sem haldinn var í
gær, kom fram að Arnarflug
treystir sér til að annast flutninga
á þeim félagsmönnum samtak-
anna sem ætla í orlofsferðir í
sumar. Að sögn Helga Jóhanns-
sonar forstjóra S-L var ákveðið
að hefja vinnu að samningagerð
af fullum krafti, þar sem félög
launamanna legðu mikla áherslu
á að ganga frá samningum sem
fyrst og hefur næsti fundur verið
ákveðinn klukkan 11 á föstudag.
ins og eru unnar upp úr skatt-
framtölum frá í fyrra.
Fjármálaráðuneytið gerir ráð
fyrir að sérstakur stóreigna-
skattur sem samþykktur var um
áramótin, muni gefa ríkissjóði
um 300 miljón krónur í tekjur.
Heildareignir þessara 500 eigna-
mestu hjóna og einstaklinga í
landinu eru hins vegar að verð-
mæti tæpir 20 miljarðar.
Aðspurður sagðist Helgi ekki
telja að samningar um verð yrðu
Samvinnuferðum-Landsýn óhag-
stæðari en að öðrum kosti hefði
orðið, jafnvel þótt nánast væri
búið að útiloka aðra viðsemjend-
ur en Arnarflug. Samvinnuferðir
hefðu þegar verið búnar að gera
samninga við Arnarflug um flutn-
ing á nokkrum hluta félagsmanna
verkalýðsfélaganna og hann ætti
ekki von á því að verð yrði fyrir-
staða í þessu máli. Hann væri því
bjartsýnn á að samningar næðust
fljótlega.
- Þessar tölur ættu að sýna svo
ekki verður um villst að það er í
ákveðna sjóði að sækja ef menn
vilja færa til fjármuni í þjóðfé-
laginu og það er fyllilega rétt-
lætanlegt að sækja fé frá þeim
betur settu til að halda hér uppi
velferð og þjónustu í landinu,
segir Svanfríður Jónasdóttir.
Kristinn Sigtryggsson, forstjóri
Arnarflugs sagði að félagið væri í
stakk búið til að annast þessa
flutninga. Aðspurður hvort fyrir-
tækið væri í aðstöðu til að gera
svona samninga nú, þegar fyrir
lægi að fyrirtækið gæti jafnvel
orðið gjaldþrota á næstu dögum
eða að skipt yrði um eigendur,
sagði Kristinn að ijóst væri að
næðust samningar sæi Arnarflug
um ferðirnar, jafnvel þótt svo
færi að fyrirtækið skipti um
eigendur.
phh
Flug
Varavöllur
á Héraði
Samgönguráðherra:
Egilsstaðir
varaflugvöllur og
verði tilbúinn 1994
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra kynnti I gær
áform sín um að gera Egilsstaða-
flugvöll að varaflugvelli fyrir
millilandaflug og að framkvæmd-
um við hann Ijúki árið 1994.
Samkvæmt skýrslu flugmála-
stjórnar er Egilsstaðaflugvöllur
talinn heppilegasti kosturinn
fyrir varaflugvöll er þjóni ís-
lensku millilandaflugi. Til að svo
megi verða þarf að lengja flug-
brautina úr 2.200 metrum í 2.700
metra. Verður flugbrautin lengd í
suður og þarf því að flytja þjóð-
veginn. Aætlaður kostnaður við
framkvæmdina er talinn vera um
300 miljónir króna.
Efnahagsmál
Kapprætt um
fjármagnið
Þeir Sigurður B. Stefánsson og
Már Guðmundsson eru fram-
sögumenn á opnum fundi um pen-
ingastefnu, vaxtamál og fjár-
magnsmarkað sem Félag frjáls-
lyndra jafnaðarmanna heldur í
kvöld í Tæknigarði kl. 20.30.
Búast má við fjörugum umræð-
um um fjármagnið -annar frum-
mælenda er forstöðumaður
Verðbréfamarkaðar Iðnaðar-
bankans en hinn efna-
hagsráðgjafi fjármálaráðherra en
með þessum aðilum hefur ekki
verið of hlýtt undanfarnar vikur.
-*g-
Á fundi Samvinnuferða-Landsýnar, samtaka launafólks og Arnarflugs, sem haldinn var í gær, fullvissaði flugfélagið
væntanlega viðsemjendur sína um getu sína til að flytja félagsmenn í orlofsferðir í sumar. Eru nú samningaviðræður
hafnar af krafti, enda leggja samtök launafólks áherslu á að þeim verði flýtt. Mynd Jim Smart
Orlofsferðir ^
Amarflug er tilbúið
Vill taka að sér flugfyrir samtök launamanna
Óeðlileg
rýrnun
Hert öryggiseftirlit
innan fyrirtœkisins
Eigendur Hagkaupa hafa grip-
ið til þess ráðs að herða allt ör-
yggiseftirlit með rýrnun í verslun-
um sínum, en á nýliðnu ári er tal-
ið að rýrnun hafl numið allt að
150 miljónum króna af um 6 milj-
arða veltu.
Þetta kemur fram í fréttabréfi
fyrirtækisins og segir Þorsteinn
Pálsson sölustjóri Hagkaupa að
hluti þessarar rýrnunar verði ekki
rakinn til annarra en þeirra sem
selja fyrirtækinu vöru, viðskipta-
vina og starfsfólks. Um eitt-
hundrað viðskiptavinir hafi á sl.
ári verið kærðir til lögreglu fyrir
hnupl í verslunum Hagkaupa og
nýlega hafi tveimur starfsmönn-
um verið sagt upp störfum vegna
þjófnaðar.
Hagkaup hafa brugðist við
þessari rýrnun með auknu eftirliti
með viðskiptavinum og starfs-
fólki. Þorsteinn segir að þessu
fylgi óneitanlega óþægindi fyrir
starfsfólk en það taki þessu með
skilningi. -lg.
Æra
Er séra Þórir opinber?
Ríkissaksóknari ákœrir vegna meintrar móðgunar við Þóri Stephensen. Frávísunar krafist
þarsem Þórir hafi ekki verið í prestsstarfi á þeim tíma
Igær var tekin fyrir í Sakadómi
Reykjavíkur ákæra ríkissak-
sóknara á hendur Halli Magnús-
syni blaðamanni, vegna greinar
sem Hallur birti í Tímanum í
sumar um Þóri Stephensen dóm-
kirkjuprest og staðarhaldara í
Viðey og saksóknari telur að-
dróttun að opinberum starfs-
manni. Lögfræðingur Halls,
Ragnar Aðalsteinsson, lagði fram
frávísunarkröfu á þeirri forsendu
að Þórir hefði ekki verið opinber
starfsmaður þegar greinin birtist,
en Þórir var þá í fríi frá Dóm-
kirkjunni.
Bragi Steinarsson vararíkis-
saksóknari sagði í gær að beiðni
hefði borist frá lögfræðingi Þóris,
og saksóknaraembættið ákveðið
að gefa út ákæruna eftir rann-
sókn. Hallur á að hafa brotið 108.
grein hegningarlaga sem bannar
þegnunum að skamma eða
móðga opinbera starfsmenn. í
greininni segir að aðdróttun varði
sektum þótt sönnuð sé ef „hún er
borin fram á ótilhlýðilegan hátt“.
Grein sína í Tímanum skrifaði
Hallur „í heilagri reiði“ vegna
þess að kirkjugarðurinn í Viðey
hafði verið sléttaður, án þess -
segir Hallur - að samband hafi
verið haft við ættingja þeirra sem
þar voru síðast jarðaðir, en þar á
meðal er Gunnar Gunnarsson
skáld. Þau ummæli eru ákærð, og
einnig sú fullyrðing að sléttunin
hafi verið „ófyrirgefanlegt
skemmdarverk á heilögum stað“.
Þá eru ákærð þau ummæli að
Þórir hafi blandað pólitík á óvið-
urkvæmilegan hátt inní stólræður
sínar, og hafi þannig sýnt að hann
sé óhæfur til hvors tveggja, að
vera staðarhaldari og dómkirkju-
prestur. Ennfremur ákærir ríkis-
saksóknari þau ummæli Halls að
„greinarkorn þetta" verði honum
„ekki til framdráttar, allra síst
þegar ljóst er að það kemur við
kaunin á háttsettum frímúrara“.
Enn eru ákærð þau ummæli
Halls að Þórir hafi sjálfur skipað
sig staðarhaldara í Viðey og borg-
arráð bjargað honum fyrir horn
eftirá. En borgarráð samþykkti
að ráða Þóri daginn eftir að Þórir
hafði sagst vera orðinn staðar-
haldari í sjónvarpsviðtali.
„Þetta er einsog að sparka í
lögregluþjón" sagði Bragi vara-
ríkissaksóknari aðspurður um
fordæmi, og vísaði meðal annars
til nýfallins dóms í máli gegn Sig-
mundi Morgunblaðsteiknara sem
hafði teiknað þýsku .Geirfinns-
lögguna í nasistabúningi.
Athygli vekur að Þórir velur
ekki leið meiðyrðamáls, þarsem
aðeins er refsað með sektum,
heldur hegningarlögin þarsem
þyngsta refsing þess sem móðgar
opinberan starfsmann er þriggja
ára fangelsi. Ríkissaksóknari
krefst í ákæru sinni refsingar,
miskabóta og sakarkostnaðar,
Þórir staðarhaldari [ Viðey og dóm-
kirkjuprestur.
auk þess sem ummæli Halls séu
dæmd dauð og ómerk.
Hallur sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að hann stæði við
grein sína og væri reiðubúinn að
færa sönnur á mál sitt fyrir dómi.
-m
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3