Þjóðviljinn - 16.03.1989, Side 6
FLÓAMARKAÐURINN
Til sölu
skrifborð „extra" stórt á kr. 5.000,
hillusamstæða á kr. 9.000, barna-
vagn (svalavagn) á kr. 5.000. Upp-
lýsingar í síma 12737.
Tensai
hljómflutningstækjasamstæða til
sölu. Upplýsingar í síma 12056.
Leiguskipti
Reykjavík - Selfoss
Ég á 150 fm einbýlishús á Selfossi
og óska eftir leiguskiptum á því og
3-4 herbergja íbúð á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Leigutíminn er eitt ár
frá ca. 1. júní. Upplýsingar í símum
91-90363 og 91-43862.
Gleraugu í óskilum
á afgreiðslu Þjóðviljans. Upplýsing-
ar í síma 681333.
Til sölu
Lada 1300, safír, árg. '86, ekinn
19.000 km. Selst með sumar- og
vetrardekkjum, útvarpi og dráttar-
krók. Nánari upplýsingar í síma
39104.
Reglusaman námsmann
vantar litla eða einstaklingsíbúð.
Engin fyrirframgreiðsla. Húshjálp
kemur til greina. Sími 72831 eftir
hádegi.
Til sölu
borðstofuborð og 4 stólar úr tekki.
Selst ódýrt. Upplýsingar eftir kl.
18.00 í síma 685558.
Til sölu
geislaspilari meðfjarstýringu. Einn-
ig útvarps- og kassettutæki í bíl
ásamt hátölurum. Upplýsingar í
síma 11096.
Til sölu
Suzuki Alto '81. Lipur og sparneyt-
inn á vetrardekkjum. Selst ódýrt.
Upplýsingar í síma 621126 eftir kl.
19.00.
Eldavél óskast keypt
Upplýsingar í sama 19239.
Til sölu - óskast keypt
Skíðaskór til sölu á 5-6 ára, einnig
skíði 130 cm með bindingum og
stöfum. Selst allt mjög ódýrt. A
sama stað vantar barnabílstól. Sími
681463 eftir hádegi.
Rafmagnsritvél
Óska eftir notaðri rafmagnsritvél.
Þarf að vera í góðu lagi. Upplýsing-
ar í síma 611354 eftir kl. 17.00.
Til sölu
ódýr bíll, Fiat '82, skoðaður '88.
Upplýsingarísíma 40511 ákvöldin.
Þvottavél
Vantar ódýra og góða þvottavél.
Upplýsingar í síma 93-81407 eftir
kl. 17.00.
Atvinna óskast
Ég er 23ja ára finnskur harðjaxl og
bráðvantar vinnu (fullt starf). Ég er
vanur vélavinnu á stórum flutninga-
skipum. Get unnið hvað sem er svo
lengi sem ég get séð fyrir konunni
minni. Jan, sími 32598.
Plymouth Volare ’77
6 cyl., sjálfskiptur með vökvastýri,
til sölu á góðu verði. Verðhugmynd
30-40.000. Upplýsingar í síma
46942.
Til sölu
Trabant station ’87
Selst með sumar- og vetrardekkj-
um. Góður bíll. Verð: tilboð. Upp-
lýsingar í síma 17618.
Óska eftir dýnu
stærð 140x200. Upplýsingar í
síma 17087.
Aldraðan man
úti á landi vantar félagsskap og að-
stoð eldri konu. Uppl. í síma 98-
78512.
Til sölu
nýlegur myndlykill, lítið notaður.
Verð 15.000,-. Sími 53699 eftir kl.
18.
Óskast keypt
Vil kaupa ódýr skíði og skíðaskó
fyrir 7 ára strák. Sími 18301.
Til sölu er BMW 318 árg. ’78
á 130.000 kr. stgr. Bíllinn er í ágætu
ástandi á nýjum vetrardekkjum og
m8ð dráttarkrók. Nánari upplýsing-
ar í síma 36475.
Tii sölu
IKEA rúm, 1,60x2. Lítið notað á kr.
15.000. Upplýsingar í síma 22791
fyrir hádegi og eftir kl. 21.00.
íbúð óskast
Ung hjón með barn vantar 3 her-
bergja íbúð frá 1. júní. Vinsam-
legast hafið samband í síma 32814.
Skipti á íbúðum,
Reykjavík - Gautaborg
Ert þú á leiðinni til Gautaborgar?
Við viljum skipta á leiguíbúð á besta
stað í miðborg Gautaborgar og
leiguíbúð einhvers staðar á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Samningur til
a.m.k. eins árs frá og með í sumar.
Einstakt tækifæri. Upplýsingar í
síma 91-10958.
Óska eftir
stórri, gamalli, rúmgóðri kommóðu.
Vil greiða allt að kr. 10.000. Upplýs-
ingar í síma 10242,
Mexicóferð - spænskunemar
Á vori komanda hyggja spænsku-
nemar við H. í. á námsferð til Mex-
ico. Við erum tilbúin til þess að taka
að okkur verkefni sem geta styrkt
okkur til fararinnar. Uppl. i síma
14646 Margrét, 21953 Ásdís og
35618 Ásdís.
Til sölu
Canon AE I myndavél með 50 mm
linsu, 28-70 mm breiðlinsu, 300
mm zoomlinsu, thyristor flassi og
tösku. Allt nýlegt. Upplýsingar í
síma 37552.
Til sölu
velúrgarínur, kirsjuberjarauðar fyrir
7 m glugga og 2 m glugga, með
rúffköppum. Einnig stórísar. Upp-
lýsingar í síma 44412.
Til sölu
Apple II e tölva með 2 diskadrifum,
ásamt mús og stýripinna, 30 forrit-
um og bókum sem fylgja. Verð kr.
40.000. Upplýsingar í síma 687804
milli kl. 9 og 3.
Til sölu
Lundia furuhillur, h. 2,28, br. 2, d.
40 cm. Upplýsingar í síma 19924.
ísskápur
óskast gefins fyrir einstæða móður.
Upplýsingar í síma 14349 á daginn
og 22936 á kvöldin.
Til sOlu
Emmaljunga tvíburavagn, blár.
Einnig blár Britax barnabílstóll (0-9
mán.) og bláir ungbarnaburðar-
pokar, Cosy carrier. Allt einnotað
og vel með farið. Upplýsingar í sima
42397.
Hjónarúm óskast
Vil kaupa hjónarúm ca 160 cm á
breidd. Þarf að vera hvítt eða úr
beyki og með góðum dýnum. Upp-
lýsingar í síma 681310 kl. 9 og kl. 5
og 675862 eftir kl. 20.00.
Kennarar - foreldrar!
Svavar
Fjóröi fundur menntamálaráö-
herra um skólamál veröur í
Hvassaleitisskóla í kvöld 16.
mars kl. 20.30. Notið tækifærið
til aö hafa áhrif.
Fundurinn er fyrir foreldra og
starfsfólk eftirtalinna skóla:
Álftamýrarskóla, Bústaöaskóla,
Breiöagerðisskóla, Fossvogs-
skóla, Heyrnleysingjaskóla,
Hlíöaskóla, Hvassaleitisskóla,
Réttarholtsskóla, Safamýrar-
skóla og Öskjuhlíðarskóla.
Menntamálaráðuneytið
VIÐHORF
þetta ræðst einnig af því að Morg-
unblaðið hefur efni á þessari
þjónustu en hitt sný ég ekki aftur
með að Morgunblaðsmenn gera
sér betur grein fyrir mikilvægi
þessa þáttar en Þjóðviljamenn.
Eitt dæmi enn, til upplýsingar:
Morgunblaðið berst Selfyssing-
um fyrir klukkan átta á morgn-
ana, Þjóðviljinn um hádegi.
Við hverju búast menn síðan
þegar það hefur nánast verið hug-
sjón að reka Þjóðviljann með
tapi? Það þykir stundum fínt að
vitna í Magnús heitinn Kjartans-
son sem sagði einhvern tíma að
hann vonaði að Þjóðviljinn yrði
rekinn áfram með tapi. Sú hugs-
un er nefnilega ótrúlega lífseig í
vinstri hreyfingunni að það sé
ljótt að reka einhvern hlut með
hagnaði. En kannski að núver-
andi ástand Þjóðviljans neyði
menn til að fara að hugsa á öðrum
nótum.
Nýtt blað
Við þurfum nýtt dagblað á ís-
landi. Við þurfum ekki nýtt sam-
einað flokkamálgagn. Pólitískir
flokkar á íslandi koma þörfinni
fyrir nýtt dagblað ekkert við.
Fiokkspólitískar hugmyndir
verða að víkja og journalistískar
(fann ekki betra orð) að koma í
stað þeirra. Trúboðsrit eiga ein-
faldlega ekki við lengur og fólk
sækist ekki eftir þeim heldur.
Morgunblaðið er óeðlilega
stórt og áhrifamikið og langt í frá
að vera hlutlægt. Þröngsýni,
kaldastríðshystería og kanadekur
eru þar ótrúlega lífseig, sérstak-
lega í erlendum fréttum. Mót-
vægið sem okkur vantar við
Morgunblaðið er því ekki áróður
frá „hinni hliðinni" heldur upp-
lýsing, víðsýni, frjálslyndi og
gagnrýnin umfjöllun um mál
þjóðfélagsins. Dagblað gegnir
nefnilega mjög mikilvægu hlut-
verki í gangverki lýðræðisins.
Menn verða því að þora að
hugsa þá hugsun að skora Morg-
unblaðið á hólm og keppa við það
en ekki vera sífellt að væla yfir því
hvað Mogginn sé stór og sterkur.
Auglýsendur hafa engar pólit-
ískar hugsjónir. Þetta hefur verið
útbreiddur misskilningur meðal
vinstri manna. Auglýsendur aug-
lýsa þar sem þeir telja hag sínum
best borgið. Þeir auglýsa í út-
breiddum blöðum sem fólk les.
Það eru því viðskiptalegar for-
sendur fyrir hendi að stofna hér
nýtt dagblað og gera strandhögg í
útbreiðslu og auglýsingatekjur
Morgunblaðsins.
Hvernig nýtt
dagblaö?
Ef þær hugmyndir, sem ég hef
sett fram hér að framan, eru
dregnar saman er hægt að setja
fram ákveðnar meginhugmyndir
um hvernig nýtt dagblað gæti litið
út:
Það er óháð öllum pólitískum
flokkum, hagsmunum og hug-
myndafræði.
Það gerir sér far um að fá til sín
vel menntaða og færa blaðamenn
og ritstýrendur.
Blaðið hefur fastan svip og
markvissa framsetningu þannig
að hægt er að ganga að þáttum,
dálkum og öðru föstu efni á sín-
um stað. Það ræður til sín fasta
leiðaraskríbenta.
Mikil áhersla er lögð á dreif-
ingu blaðsins. Það sé komið til
áskrifenda sem allra, allra fyrst.
Blaðið kemur út sjö daga vik-
unnar.
BÍaðið er gefið út í heimsblaða-
formi (A2). Þó ekki úrslitaatriði
en skemmtileg sérstaða.
Blaðið er rekið með hagnaðar-
sjónarmiði.
Ég varpa þessum hugmyndum
fram hér í blaðinu sem umræðu-
grundvelli og vona að nýtt og gott
dagblað verði sem fyrst að veru-
leika.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmála-
ráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði
mánudaginn 20. mars kl.
20.30 í Lárusarhúsi.
Fundarefni:
Dagskrá Bæjarstjórnar-
fundar 21. mars nk.
Önnur mál.
Stjórnin
Heimir Sigríður
Alþýðubandalagið í Kóþavogi
Bæjarfulltrúar
Laugardaginn 18. mars klukkan 10 -12 verður Val-
þór Hlöðversson bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins á
skrifstofunni I Þinghól að Hamraborg 11 og ræðir
málefni bæjarins.
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Kóþavogi
Bæjarmálaráð
Miðvikudaginn 20. mars klukkan 20,30 verður haldinn fundur í bæjarmála-
ráði Alþýðubandalagsins í Þinghól að Hamraborg 11.
Dagskrá: Dagvistunarmál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið á Selfossi
Opið hús
Opið hús verður hjá Alþýðubandalaginu á Sel-
fossi laugardaginn 18. mars klukkan 10 -12 að
Kirkjuvegi 7. Margrét Frímannsdóttir alþingis-
maður mætir á staðinn og ræðir um
stjórnmálaviðhorfið. Kaffi á könnunni.
Félagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
AB-
Vestmannaeyjum
Opið hús
Alþýðubandalagsfólk
Vestmannaeyjum. Opið
hús hjá félaginu í Kreml
við Bárustíg, laugardag-
inn 18. mars kl. 14.00.
Bæjarfulltrúarnir Guð-
munda Steingrímsdóttir
og Ragnar Öskarsson
ræða bæjarmálin, Mæt-
um öll í spjall, kaffi og
meðlæti.
Alþýðubandalagið Garðabæ
Félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn miðvikudagskvöldið 22. mars kl.
20.30 í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun og
framkvæmdir í Garðabæ 1989. 2. Staðan í landsmálunum. 3. Önur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Garðabæ
Skemmtun
Skemmtikvöld laugardaginn 18. mars í Goðatúni 2. Hefst kl. 20.30, söngur,
glens og gaman.
Þátttakendur hafi samband við Hilmar, s. 65-60-87, eða Guðmund Rúnar s
65-61-56.
Stjórnin
Auglýsið í Þjóðviljanum
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöðu við grunnskóla.
Umsóknarfrestur til 4. apríl
Stöður grunnskólakennara við grunnskóla Reykjavíkur.
Vestfjarðaumdæmi
Stöður skólastjóra við Reykhólaskóla og Flateyri.
Stöður sérkennara og grunnskólakennara við Grunnskólann á ísa-
firði meðal kennslugreina heimilisfræði, mynd- og handmennt.
Stöður grunnskólakennara við grunnskólana:
Bolungarvík, Reykhólaskóla, Barðastrandarhreppi, Patreksfirði,
Tálknafirði, Bíldudal, Þingeyri, Mýrahreppi, Mosvallahreppi, Flat-
eyri, Suðureyri, Súðavík, Finnbogastaðaskóla, Drangsnesi, Klúku-
skóla, Hólmavík meðal kennslugreina íþróttir, Broddanesi og Borð-
eyri
Menntamálaráðuneytið