Þjóðviljinn - 29.03.1989, Qupperneq 2
________________________FRETTIR__________________________
Meitillinn
Frysting hefst að nýju
Framkvœmdastjórinn: Reksturinn ekki eins vonlaus og hann var í
haust. 20 - 30 manns fá vinnu til viðbótar við þá 70 sem eru á launaskrá
fyrirtœkisins
Herœfingar
Kvennalisti
mótmælir
Kvennalistakonur mótmæla
þeirri óhæfu að umfangsmiklar
heræfingar skuli leyfðar hér á
landi og það á sjálfan þjóðhátíð-
ardaginn. Það hlýtur að vekja
furðu hvers sómakærs íslendings
að stjórnvöld skuli glúpna fyrir
slíkri ögrun.
Kvennalistakonur eru andvíg-
ar hernaðarumsvifum og hugar-
fari hermennskunnar og þykir
sem varla hafi birst hér á landi
jafn glöggt dæmi um hernám hug-
ans.
Þjóðhátíðardegi íslendinga
væri betur varið til að reyna að
uppræta slíkt hugarfar en ala á
því.
- Við höfum ákveðið að hefja
takmarkaða frystingu á morgun
fímmtudag og við það fá 20 - 30
manns vinnu. Ástæðan er að verð
fyrir frystar afurðir er núna betra
en áður vegna gengisbreytinga og
við teljum reksturinn ekki eins
vonlausan og hann var í haust,“
sagði Páll Jónsson framkvæmda-
stjóri Meitilsins hf. í Þorlákshöfn.
Eins og kunnugt er hætti fyrir-
tækið allri frystingu sjávaraíla sl.
haust þegar ljóst var að það
mundi leiða til gjaldþrots vegna
vonlausrar rekstrarstöðu fryst-
ingarinnar. Þá voru á launaskrá
fyrirtækisins 190 manns sem
öllum var sagt upp og komu upps-
agnirnar til framkvæmda 1. októ-
ber.
Að sögn Páls Jónssonar fram-
kvæmdastjóra Meitilsins hafa um
30 manns unnið hjá fyrirtækinu
við saltfiskvinnslu í vetur og 40
við útgerð. Þegar byrjað verður
að frysta á ný verður heildar-
starfsmannafjöldi fyrirtækisins
um 100 manns. Páll sagði að ekki
þýddi lengur að salta vertíðarufs-
ann þar sem hann væri verðlaus
og eins félli alltaf til fiskur í
saltfiskvinnslunni sem ekki væri
hægt að koma í verð nema með
þvi að frysta hann.
Aðspurður hvort Meitillinn
hefði fengið einhverja opinbera
aðstoð til að hefja frystingu að
nýju sagði Páll svo ekki vera. Sér-
stakur starfsmaður var nýlega
ráðinn til að vinna að sameiningu
fiskvinnslufyrirtækjanna Glett-
ings og Meitilsins og sagði Páll
ekkert að frétta af þeim málum
ennþá. -grh
Slysavarnafélag íslands
Nýr björgunarbátur
I fyrradag kom til heimahafnar
í Reykjavík Henry A. Hálfdáns-
Leiðrétting
Spurning varð
upphrópun
Meinleg mistök urðu við prent-
vinnslu fréttapistils um fjölmiðla-
sjóð sem ætlunin er að stofna
með breytingu á útvarpslögum. í
aðalfyrirsögn tók spurningar-
merki hvimleiðum stakka-
skiptum og varð upphrópunar-
merki. Einsog glöggir Iesendur
hafa náttúrlega áttað sig á við
lestur greinarinnar var það niður-
staða höfundar að fjölmiðlasjóð-
urmeð 12% auglýsingagjaldi yrði
ekki baggi á herðum blaðaútgef-
enda. Þvert á móti.
ks
I
son sem er 70 tonna björgunar-
bátur sem Slysavarnafélag Is-
lands keypti frá Englandi.
Heimahöfn bátsins var áður í Kir-
kwall á Orkneyjum þar sem hann
gegndi veigamiklu björgunarhlu-
tverki á því erfiða hafsvæði.
Hann kemur í stað Gísla J. Jo-
hnsens sem fer til Hafnarfjarðar.
Forráðamenn Slysavarnafé-
lagsins sóttu bátinn í síðustu viku
og sigldu honum heim með við-
komu í Færeyjum. Að sögn Hálf-
dáns Henryssonar hrepptu
leiðangursmenn slæmt veður á
leiðinni og reyndist báturinn í alla
staði mjög vel. Fyrir utan að
sinna björgunarverkefnum sem
kunna að koma upp mun Slysa-
varnaskóli sjómanna, Sæbjörg,
einnig njóta góðs af honum við
kennslu og þjálfun sjómanna.
Báturinn er mjög vel útbúinn
og eru byrðingur og þilfar úr stáli,
en lúkarskappi og yfirbygging úr
áli. Botninn er tvöfaldur og síð-
urnar líka og hólfaðar í mörg
uppdrifs- eða flotrými. Alls eru
43 vatnsþétt rými í bátnum. Hann
er knúinn tveim 230 hestafla að-
alvélum, sem hvor um sig er í
sjálfstæðu vatnsþéttu vélarrúmi
og ganghraðinn er 11,5 sj ómflur á
klukkustund. Þá er báturinn bú-
inn öflugum slökkvi- og björgun-
ardælum auk margháttaðs annars
öryggisbúnaðar. A framþilfari er
16 feta slöngubátur með40 hest-
afla utanborðsvél til notkunar á
grunnsævi. í áhöfn Henrys A.
Hálfdánssonar verða 5 manns.
-grh
oJL. WMWíWí ^ 1
Læknafélag Reykjavíkur hefur fest kaup á húsi því er áður stóð við Tjarnargötu
11. Fyrirhugað er að nýta húsið til barnaheimilishalds.
Holiday Inn
lýst gjaldþrota
Skiptaréttur Reykjavíkur tók í
gærmorgun bú Holiday Inn hót-
elsins til gjaldþrotaskipta. Síð-
ustu fimm mánuði hefur hótelið
verið í greiðslustöðvun en ekki
tókst á þeim tíma að finna varan-
lega lausn á erfiðri skuldastöðu.
Skuldir hótelsins nema tæpum
700 miljónum. Hótelið var aug-
lýst til sölu og kom aðeins eitt
tilboð, frá bresku hótelkeðjunni
Trusthouse Forte uppá 350 milj-
ónir. í yfirlýsingu sem eigandi
Holiday Inn hótelsins, Guðbjörn
Guðjónsson, sendi frá sér í gær,
segir m.a. að allt greiðslustöðv-
unartímabilið hafi verið unnið
sleitulaust og af heilindum að því
að finna kaupanda að eigninni og
að fá aukið hlutafé. Það hafi ekki
tekist og því ekki um annað að
ræða en afhenda bú félagsins
Skiptarétti til gjaldþrotaskipta.
Menntamálaráðherra
heimsækir Austfirði
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra mun heimsækja Egilss-
taði, Reyðarfjörð og Norðfjörð í
þessari viku. í kvöld heldur ráð-
herrra opinn fund með skólafólki
og áhugafólki um skólamál í
Menntaskólanum á Egilsstöðum.
í fyrramáiið verður farið til
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar og
Norðfjarðar og heimsóttir skólar
og aðrar stofnanir er heyra undir
ráðuneytið. Annað kvöld verður
síðan fundur um skólamál í Nes-
kaupstað. Á föstudag heimsækir
ráðherra Eiða og Hallormsstað
og skóla og stofnanir á Egilsstöð-
um. í för með Svavari verða þær
Gerður G. Óskarsdóttir ráðu-
nautur í uppeldis- og menntamál-
um og Guðrún Ágústsdóttir að-
stoðarmaður ráðherra.
Útflutningsverðlaun
á sumardaginn fyrsta
Þann 20. aprfl nk., á sumardag-
inn fyrsta, verða í fyrsta sinn veitt
sérstök útflutningsverðlaun fors-
eta fslands, til einstaklinga eða
fyrirtækja, innlendra eða er-
lendra, sem unnið hafa sérlega
gott starf til að auka sölu á ís-
lenskum vörum og þjónustu er-
lendis. Sérstök úthlutunarnefnd
hefur verið skipuð og eiga sæti í
henni þeir Þorvaldur Gylfason,
Ólafur B. Thors, Ragna Berg-
mann, Kornelíus Sigmundsson
og Ingjaldur Hannibalsson. For-
seti íslands mun afhenda verð-
launin en til þeirra er stofnað í
samvinnu embættis forseta og
Útflutningsráðs.
Meirihlutinn
vill 2 flugfélög
Mikill meirihluti aðspurðra telur
æskilegt að hér á landi séu rekin
tvö flugféiög sem sinni utanlands-
flugi. Þetta kemur fram í skoð-
anakönnun sem Gallup á íslandi
gerði á dögunum fyrir Arnarflug.
Af þeim sem svöruðu töldu
79,2% æskilegt að hafa tvö
flugfélög í utanlandsflugi, 13,2%
töldu það óæskilegt og 7,6%
höfðu ekki skoðun á málinu.
Spurt var: Telur þú æskilegt eða
óæskilegt, að starfandi séu tvö ís-
lensk flugfélög í utanlandsflugi?
Af 624 sem voru í úrtaki svöruðu
620.
Barnaheimili
unglækna
Læknafélag Reykjavíkur hefur
fest kaup á hinu reisulega timbur-
húsi sem áður stóð við Tjarnar-
götu 11 og flutt var suður í
Skerjafjörð þegar rýma þurfti
lóðina fyrir ráðhúsbygginguna
miklu.
Fyrirhugað er að reka barna-
heimili í þessu húsi og munu það
vera foreldrar úr Unglæknafélag-
inu sem að því standa. Læknafé-
lag Reykjavíkur kaupir húsið af
borginni en foreldrafélagið sér
síðan um rekstur þess..
Gert er ráð fyrir því að húsið
rúmi ein þrjátíu börn og er einnig
ætlunin að stofnsetja skóladag-
heimili eftir þörf.
Aðdragandi þessa er sá að í
haust kölluðu ungir kvenlæknar
til fundar og kynntu málið sem
hlaut góðar undirtektir foreldra
úr læknastétt. Hingað til hafa
læknar ekki fengið inni fyrir börn
sín á barnaheimilum sjúkrahúsa-
nna þar sem heimilin eru ein-
vörðungu ætluð hjúkrunarfólki,
þ.e. hjúkrunarfræðingum og í
einstaka tilfellum sjúkraliðum en
ekki læknum, Sóknarkonum né
öðru starfsfólki sjúkrahúsanna.
Að öllum líkindum mun starf-
semin hefjast í sumar og er gert
ráð fyrir að dagheimilisgjald fyrir
hvert barn verði um kr 24.000 á
mánuði. eb
20 miljónir fyrir
hvalkjöt í fyrra
Á síðasta ári voru einungis 180
tonn af hvalkjöti og öðrum hvala-
afurðum seld úr landinu fyrir um
20 miljónir króna, að því er fram
kemur í verslunarskýrslum
Hagstofunnar. Þetta er minnsti
útflutningur á hvalaafurðum frá
því vísindaveiðar hófust. Árið
1987 voru flutt úr um 2800 tonn
og árið 1986 eftir fyrstu vísinda-
veiðavertíðina voru seld úr landi
1.900 tonn af hvalkjöti. Útflutn-
ingur árin á undan var um 4-5000
tonn. Eggert ísaksson skrifstofu-
stjóri Hvals hf. segir þessar tölur
ekki marktækar fyrir útflutning á
síðasta ári, því mjög óreglulega
sé skipað út þessi síðustu ár og
nokkrar birgðir séu enn í landinu.
Haförninn
opnar að nýju
Nú er útlit fyrir að fiskvinnsla
hefjist á nýjan leik í Haferninum
hf. á Akranesi von bráðar í kjöl-
far ákvörðunar um að auka hluta-
fé þess um allt að 100 miljónir
króna. Fyrirtækið hefur verið
lokað frá því um áramótin vegna
rekstrarörðugleika en fyrir þann
tíma unnu um 80 manns hjá því.
Bæjarstjórn Akraness hefur sam-
þykkt fyrir sitt leyti að heimila
kaup á hlutafé til að stuðla að
endurskipulagningu á fjárhag
þess og beiðni fyrirtækisins og
kaupstaðarins um þátttöku
Byggðasjóðs hefur verið send
Byggðastofnun. Auk þess er gert
ráð fyrir þátttöku fleiri aðila, en
endanleg niðurstaða hvað varðar
hlutafjárkaup einstakra aðila
mun væntanlega fást á næstu
dögum.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. mars 1989