Þjóðviljinn - 26.04.1989, Síða 9
Þýskur heiður. Vestur-þýsk stjórnvöld hafa heiðrað Þorvarð Alfonsson, framkvæmdastjóra Iðnþróunar-
sjóðs, fyrir áratuga starf við eflingu samskipta og samstarfs Sambandslýðveldisins Vestur-Þýskalands og
íslands, með því að sæma hann orðunni „Das Grosse Verdienstkrenz". Vestur-þýski sendiherrann á
islandi, Hans Herman Haferkamp, afhenti Þorvarði orðuna við hátíðlegt tækifæri 18. apríl s.l. Þorvarður
hefur setið í stjórn þýsk-íslenska félagsins Germanía óslitið frá 1963 og verið formaður þess s.l. sex ár.
Þessi mynd var tekin þegar orðan var afhent, en á myndinni eru t. f. v. Almut Alfonsson, Þorvarður
Alfonsson, Hans Hermann Haferkamp og Ursula Haferkamp.
Björgunarskóli LHS
Yfir 100 leiðbeinendur
í skyndihjálp úrskrifaðir
r
Asíðasta leiðbeinendanám-
skeiði í skyndihjálp hjá Björg-
unarskóla LHS útskrifuðust 14
björgunarsveitamenn og stóðust
allir þátttakendur prófíð. Skólinn
hefur þá útskrifað 105
leiðbeinendur í skyndihjálp frá
upphafi, auk fjölda annarra á
öðrum sviðum björgunarstarfa.
Á þessum 12 daga námskeiðum fá
þátttakendur leiðbeiningar og
reynslu í að kenna þá sérhæfðu
skyndihjálp sem björgunarsveita-
menn verða að hafa á valdi sínu.
Útskrifaðir leiðbeinendur fá
rétt til þess að kenna skyndihjálp
innan björgunarsveita og á nám-
skeiðum fyrir almenning. Pá fá
leiðbeinendurnir einnig s.k.
flokksstjóraréttindi innan vett-
vangsstjórnaskipulags Almanna-
varna ríkisins.
Pistill til Jóns
Framhald af bls. 5.
Sko, ef þú ekki veist það, þá er
fé rekið á fjall á vorin, og hér að
minnsta kosti ekki fyrr en gróður
er vel á veg kominn þar efra, því
það er okkar skaði að reka fé á
gróður sem er of lítill.
Síðan eru blessaðar skepnurn-
ar í ró og spekt á fjalli yfir sumar-
ið og það er enginn að eltast við
þær, sem ég veit heldur ekki
hvaða tilgangi ætti að þjóna.
Nema að þú haldir að alltaf sé
verið að gera út leiðangra til að gá
hvað lömbin stækka vel.
Á haustin eru svo göngur og þá
koma lömbin feit og falleg úr
frjálsræðinu, einmitt af því að
þau gátu valið sér þann gróður
sem helst hentaði þeim.
í staðinn getum við svo státað
af því að eiga heilbrigðasta fé í
heimi og getum með réttu kallað
dilkakjötið okkara hreina nátt-
úruafurð, hvað mér skilst að sé
orðið næsta fágætt að fá í heimi
hér.
En svona aukreitis þér að
segja, þá tekur sauðkindin ekki
bara, heldur skilur hún svolítið
eftir í staðinn og það er nokkuð
sem kallast húsdýraáburður á
prentuðu máli.
Upp á spursmál þitt hvort ekki
myndi hætta á sauðfjársjúkdóm-
um ef fé gengi í beitarhólfum þá
vil ég geta þess að talin er meiri
hætta á útbreiðslu sjúkdóma þar
Þátttakendur í leiðbeinendanámskeiðinu.
Leiðbeinendanámskeiðunum
lýkur með skriflegu prófi og verk-
legu kennsluprófi þar sem próf-
dómarar dæma kennslu hvers og
eins nemanda. Prófnefndina
skipa fulltrúar frá Almannavörn-
sem fé gengur þröngt og mikið á
sömu stöðum.
Að sjálfsögðu viljum við hafa
landið okkar grænt og gróður-
sælt, en þar spilar veðráttan
mikið inn í hvernig til tekst.
Snjóalög, frost, jarðskjálftar,
eldgos, vatnagangur, skriðuföll
og stórviðri, þetta kallast nátt-
úruhamfarir ef mikið gengur á og
við það ræður enginn.
Auðvitað getum við gengið vel
um landið, stuðlað að upp-
græðslu og takmarkað ágang
búfjár á viðkvæm svæði, hvað og
þegar hefur verið gert, en fyrir
alla muni gróðurverndarfólk
hættið að líta á sauðkindina sem
einhvern ógnvald og eyðilegging-
armátt, eins og hún sé eini gras-
bíturinn á landinu.
Hvernig er það með gæsina og
álftina, vitið þið ekki að það eru
grasbítar og þeim líkar ágætlega
að éta nýgræðing.
Þið hafið ef til vill ekki séð ný-
rækt eftir ágang gæsa og álfta en
það hef ég.
Sauðkindin á annað betra
skilið af okkur fslendingum en að
henni sé gefin stór sök á gróður-
eyðingu sem svo margt annað
veldur og fyrir mér og mörgum
öðrum myndi ísland ekki vera
það ísland sem við viljum vera
láta ef hvergi á að sjást til heiða
fallegt fé með styggð í fasi og
frelsi í augum.
um ríkisins, Rauða krossi íslands
og Björgunarskóla LHS. Stjórn-
andi þessa níunda leiðbeinenda-
námskeiðs var Thor B. Eggerts-
son og honum til aðstoðar voru
Oddur Eiríksson og María Har-
aldsdóttir, yfirkennari skyndi-
hjálpar- og almannavarnasviðs
Björgunarskóla LHS.
ITT
litasjónvarp
er fjárfestíng
ív-þýskum
gæðumog
fallegum
j Illfitum
Heiðrún er sauðfjárbóndi að
Litlu-Ásgeirsá í Húnavatnssýslu.
SKIPHOLTI 7 SIMAR 20060 6 26800
Myndlist
Góð aðsókn að Eiríki
Sumardaginn fyrsta opnaði
Eiríkur Smith sýningu á
vatnslitamyndum í Gailerí Borg.
Er skemmst frá því að segja að
sýning Eiríks hefur slegið öll fyrri
aðsóknarmet, um það bil þrjú
þúsund manns lögðu lcið sína í
Gallerí Borg á fyrstu fjórum
dögum sýningarinnar.
Eiríkur sýnir nú 22 vatnslita-
myndir og eru nokkrar þeirra all-
stórar, en Eiríkur hefur ekki áður
sýnt svo stórar vatnslitamyndir.
Állar myndirnar eru málaðar á
undanförnum mánuðum og sýna
vetrararíkið senr ríkt hefur und-
anfarið. Næsta helgi er seinni
sýningarhelgi sýningarinnar en
henni lýkur þriðjudaginn 2. maí.
Á laugardögum og sunnudögum
er opið frá klukkan tvö til sex.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
AB Reykjavík
Félagsfundur
miðvikudag 26. apríl kl. 20.30 í
Miðgarði
Dagskrá: 1) Ný menntastefna.
Framsaga: Svavar Gestsson
menntamálaráðherra og Arthúr
Mortens kennari. 2) Kosning
uppstillingarnefndar vegna
stjórnarkjörs. 3) Önnur mál.
Munið félagsgjöldin.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Vorfagnaður
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði heldur „Vorfagnað" í veitingahúsinu A.
Hansen, föstudagskvöldið 5. maí nk.
Skemmtiatriði og gítarspil. Inngangseyrir innifalinn í matarverði. Félagar
fjölmennið og takið með ykkur gesti. Fögnum vorkomu í Firðinum. Nánar
auglýst síðar.
Stjórn ABH
ÆSKUL ÝÐFYLKINGIN
Heimsmót æskunnar
Fundur hjá undirbúningsnefnd fyrir Heimsmót æskunnar í N-Kóreu, verður
haldinn að Hverfisgötu 105, miðvikudaginn 26. apríl, kl. 20.00. - Æsku-
lýðsfylkingin.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Simi: 681333
« j Verkefnisstjóri
3 *li
Félagsmálaráðuneytið óskar eftir að ráða verk-
efnisstjóra vegna aðgerða stjórnvalda til að
fjölga atvinnutækifærum fyrir konur í dreifbýli.
Um er að ræða þriggja til fjögurra mánaða verk-
efni. Nánari upplýsingar eru veittar í félags-
málaráðuneytinu sími 91-609100. Háskólapróf
eða góð reynsla úr atvinnulífinu áskilin. Skrif-
legar umsóknir, þar sem m.a. er gerð grein fyrir
menntun og fyrri störfum, sendist ráðuneytinu í
síðasta lagi 8. maí 1989.
Félagsmálaráðuneytið,
24. apríl 1989
Lokað vegna jarðarfarar
Vegna jarðarfarar Kristínar Haraldsdóttur verða
skrifstofurokkar lokaðar fimmtudaginn 27. apríl
frá kl. 13.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
Eiginmaður minn og faðir okkar
Kristján Kristjánsson
Mávahlíð 1
Reykjavík
sem lést á Mallorka 13. apríl 1989 verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 27. apríl n.k. kl. 13.30.
Elín Guðmundsdóttir Erlingur Kristjánsson
Sigrún Kristjánsdóttir Kristján G. Kristjánsson
Miðvikudagur 26. apríl 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9