Þjóðviljinn - 26.04.1989, Qupperneq 11
LESANDI
VIKUNNAR
Herborg
Gestsdóttir
Mynd: Jim Smart.
Hvað ertu að gera núna, Her-
borg?
„Eg er ekkert að gera lengur,
komin í frí, hætt að vinna og tekin
til við að bíða eftir að verða eldri
eins og allir aðrir. Þegar maður er
orðinn 76 ára hefur maður ekki
mikið fyrir stafni. Ég elda svolítið
ofan í sjálfa mig, les, geri handa-
vinnu og því um líkt.“
Hvað varstu að gera fyrir tíu
árum?
„Þá var ég að vinna við Borgar-
bókasafnið. Þar vann ég samtals í
fjörutíu og þrjú ár, allar götur frá
því að safnið var í húsnæðishraki í
Ingólfsstræti 12 og þangað til það
komst í húsnæðishrakið í Þing-
holtsstræti. Ingólfsstrætið var
auðvitað ennþá verra, þar skildi
hálfur metri skápana í bóka-
geymslunum og viðskiptavinirnir
urðu að vera grannvaxnir til að
komast að bókunum."
Hvað ætlaðirðu að verða þegar
þú yrðir stór?
„Ég hafði dálítinn áhuga á
læknisfræði en það urðu ekki ráð
til þess. Eiginlega lenti ég í þessu
bókavarðarstarfi af tilviljun. Ég
hafði alltaf lifað og hrærst í
bókum og þegar ég kom til
Reykjavíkur til að fara í gagn-
fræðaskóla Ágústs Bjamasonar
var ég fljót að finna safnið og
kom mikið þar. Svo fór stúlka
sem vann þar í barneignarfrí og
ég fékk starfið hennar um stund-
arsakir - en hún kom ekki aftur.
Ég hafði þá hætt í menntaskóla
og festist í starfinu.
Ég hef ennþá skipti við Borgar-
bókasafnið. Bæði nota ég litla
útibúið á Hofsvallagötu og ágæta
þjónustu sem þau kalla Bókin
heim. Þá legg ég lista inn til þeirra
og þær tína bækurnar til jafnóð-
um og þær koma inn úr útláni.“
Hvaða frístundagaman hef-
urðu?
„Nú eru allar mínar stundir
frístundir. Ég er dálítið farin að
tapa sjón en mitt aðaltómstunda-
gaman hefur alltaf verið að lesa.
Tvö dagblöð, sitt hvorum megin
frá, les ég afar vendilega.“
Hvaða bók ertu að lesa núna?
„Ég er að lesa glæpareyfara
sem stendur, en síðasta bókin
sem ég las var kirkjugarðsbókin
eftir Björn Th. Björnsson, Minn-
ingarmörk í Hólavallagarði.
Bráðskemmtileg bók. Þær sendu
mér líka síðast nýju Sturlunguút-
gáfuna. Ég þurfti auðvitað ekki
að lesa hana en var forvitin að
skoða viðbótarheftið. Svo las ég
nýlega bestu bók ársins í fyrra,
Býr íslendingur hér, um Leif
Muller. Það er óvenjulegt að sjá
svona bók, skrifaða í alvöru og
einlægni.“
Hvað flnnst þér þægilegast að
lesa í rúminu á kvöldin?
„Mér þykir langþægilegast að
lesa í rúminu, en þá er voðalegt
að lenda í bók eins og kirkju-
garðsbókinni, maður verður út-
slitinn og gigtveikur í báðum öxl-
um af að halda á þessu!“
Hvaða bók myndirðu taka með
þér á eyðiey?
„Ætli það yrði ekki Sturlunga
þótt ég kunni orðið ansi mikið í
henni. Ég er óánægð með nýju
útgáfuna, og aukaheftið finnst
mér fáránlegt. Sturlunga er til að
lesa hana, það þarf ekkert annað
Finn til
skyldleika
við íra
en textann, ættartölur og örstutt-
an formála, 5-6 blaðsíður. Þessar
teikningar og uppdrættir eru
óþörf. Sturlunga er skemmti-
legust af okkar fornbók-
menntum, það finnur maður
strax við að lesa hana í annað
sinn.“
Hver var uppáhaldsbarnabók-
in þín?
„Lestrarfélag Langdælinga í
Austur-Húnavatnssýslu var
geymt heima hjá mér. Það var á
við vænan bókaskáp á heimili.
Það gekk illa að kenna mér að
lesa því ég vildi fremur vera úti,
en eftir að ég var orðin læs las ég
fljótlega allt lestrarfélagið. Þar
var fátt um barnabækur, en ég las
Kapítólu, Fangann af Zenda,
Búnaðarritið, Iðunni, Skírni.
Allt! Mjallhvíti mun ég hafa átt
og las hana í kringum 1920.“
Hvað sástu síðast í leikhúsi?
„Það er orðið geysilangt síðan
ég fór í leikhús og bíó. Bæði þarf
ég að kvabba um flutninga og svo
þarf ég að velta hverjum eyri fyrir
mér þó að ég sé með eftirlaun og
ellilífeyri. Ég bý í leiguhúsnæði
og þegar búið er að borga leigu,
hita, rafmagn og öll afnotagjöld-
in þá er lítið eftir og betra að líta
vel eftir krónunum.“
Er eitthvað í leikhúsunum
núna sem þú vilt helst ekki missa
af?
„Nei, það held ég ekki, en ef ég
færi þá liti ég á það sem unga
fólkið er að gera. Ég fór töluvert í
leikhús áður fyrr og man eftir
einu og einu góðu stykki en líka
mörgum vondum! Beðið eftir
Godot hjá Leikfélaginu er lang-
besta leiksýning sem ég hef séð á
ævi minni. Það var líka merkilegt
að sjá Harald Björnsson í Antig-
ónu hvernig hann forkláraðist
uppi á sviði. Hann var nú að
mörgu leyti skrítinn, Haraldur,
og hafði margt á móti sér. Það var
eftirminnilegt að sjá hann standa
dýrlegan á sviðinu."
En í bíó?
„Ég hef misst af Kristnihaldinu
ennþá, en það er kannski eina
íslenska kvikmyndin sem mig
langar til að sjá.“
En í sjónvarpi?
„Ég fylgdist auðvitað með
Matador, það var sérstakur þátt-
ur, kúltíveraður þáttur. Svo horfi
ég á Derrick, hef gaman af að
hlusta á þýskuna. Ég horfi á frétt-
ir, en nú er niður fallið mitt eftir-
lætisefni sem eru veðurfréttir.
Fólk er sífellt að japla á að það
eigi að vera meira íslenskt sjón-
varpsefni, en það er enginn gæða-
stimpill að efni sé framleitt hér.
Meiriparturinn af því er tilgerð-
arlegt, simpilt og ómenningar-
legt. Ég vil svolítið undanskilja
Egil Helgason sem er með Mann-
lega þáttinn, og móðir hans, hún
Guðrún Ólafsdóttir, stóð sig vel
sem fyrsta manneskjan á landinu
á laugardagskvöldið.“
En í útvarpi?
„Ég hlusta töluvert á útvarp ef
ég get sneitt hjá endurtekning-
um. Oft heyri ég í Þjóðarsálinni á
rás 2 og finnst ágætt að heyra
hvernig fólkið í landinu hugsar og
talar. Það er stutt í ofsóknirnar
hjá íslendingum. Þeir vilja halda
því fram að þeir séu siðaðir, þol-
inmóðir og tillitssamir. Ég hef
ekki orðið vör við það.“
Hefurðu alltaf kosið sama
stjórnmálaflokkinn?
„Ég hef aldrei á ævi minni kos-
ið með flokki. Ég er aldrei svo
ánægð með flokk. Fyrst og fremst
hef ég kosið á móti hinum! En
alltaf sama flokkinn."
Hvaða stjórnmálamann langar
þig mest til að skamma?
„Ég vildi skamma hvem ein-
asta stjórnmálamann á landinu
fyrir utan Jóhönnu Sigurðardótt-
ur og Ólaf Ragnar Grímsson."
Hvernig myndir þú leysa efna-
hagsvandann?
„Ég hefði gert það strax í haust
áður en þing kom saman með
mjög hörðum bráðabirgðalögum
sem hefðu slegið niður peninga-
valdið í landinu. Til að bæta á-
standið þarf byltingu í efnahags-
lífinu, og hún fæst ekki nema með
mikilli grimmd.“
Hvernig á húsnæðiskerfið að
vera?
„Það á að vera nóg til af leigu-
íbúðum og hafa kerfið þannig að
fólki sé gert kleift að eignast lág-
markshúsnæði, byrja smátt,
stækka svo við sig með aðstoð ef
þörf krefur og fá hjálp til að
minnka við sig aftur. Fólk á ekki
að fá lán nema í svona kerfi. Svo
eiga dvalarheimilin að standa
opin þegar fólk er orðið eitt. Fólk
á að hafa öryggi í húsnæðismál-
um, en í borginni er eytt meira í
að skemmta gömlu fólki en
hjálpa því.“
Hvaða kaffitegund notarðu?
„Merrild. Mér þykir
Nicaraguakaffið því miður ekki
nógu gott.“
Hvað borðarðu aldrei?
„Ég borða aldrei hvalkjöt. Mér
var boðið að smakka það einu
sinni fyrir fjörutíu árum og ég
þarf þess ekki aftur. Siginn fisk
gæti ég ekki heldur látið inn fyrir
mínar varir.“
Myndirðu vilja búa annars
staðar en á íslandi?
„Nei, ekki hér eftir. En ef ég
væri ung núna gæti ég vel hugsað
mér að fara til Irlands og ganga í
írska lýðveldisherinn. Eg hef
alltaf fundið til skyldleika við
íra.“
Hvernig finnst þér þægilegast
að ferðast?
„í bíl. Það er notalegt að fljúga
en ekki eins þægilegt."
Hvernig sérðu framtíðarlandið
fyrir þér?
„Það er erfitt að segja. Ætli
sennilegasta framtíðarlandið sé
ekki rústir eftir kjarnorkustyrj-
öld með dauðu hafi í kring? Éf
einn kafbátur springur í grennd
við okkur nægir það til þess að við
getum ekki veitt fisk í þúsund ár.
Ein sprengja á Keflavíkurflugvöll
nægir líka, - eða í Aðaldalinn."
Hvaða spurningu langar þig að
svara að lokum?
„Mig langar ekki til að svara
heldur spyrja hvernig á því stend-
ur að Mjólkursamsalan sullar
svona miklum sykri í alla hluti?
Og af því ég var að reyna nýja
eðaljógúrtið þeirra þá langar mig
að spyrja hvaða sultutau þeir hafi
notað í Grúsíu. “
SA
I DAG
þlÓÐVILJINN
FYRIR50ÁRUM
Breiðfylking afturhaldsins neit-
ar að svara til saka frammi fyrir
þjóðinni. Vantrauststillaga Sósí-
alistaflokksins felld með 41 at-
kvæði gegn 4.
Almenn herskylda lögleidd í
Bretlandi.
Kaupum flöskur, stórar og
smáar, viskípela, glös og bón-
dósir. Flöskubúðin Bergstaða-
stræti 10. Sími 5395. Sækjum.
Opiðallan daginn.
26.APRÍL
miðvikudagur í fyrstu viku
sumars, sjötti dagur hörpu, 116.
dagur ársins. Sól kemur upp í
Reykjavíkkl. 5.17 en sestkl.
21.36. Tungl minnkandi á þriðja
kvartili.
VIÐBURÐIR
Fæddur Björgvin Guðmundsson
tónskáld 1891. Þjóðhátíðardagur
Tansaníu.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavlk. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúöavlkuna
21 .-27. apríl er í Ingólfs Apóteki og
Laugarnesapóteki.
Fyrrnefnda apótekiö eropiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Síöarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu tyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur..........sími 4 12 00
Seltj.nes..........sími 1 84 55
Hafnarfj...........sími 5 11 66
Garðabær...........sími 5 11 66
Slökkvilið og sjukrabilar:
Reykjavík..........sími 1 11 00
Kópavogur..........simi 1 11 00
Seltj.nes..........sími 1 11 00
Hafnarfj...........sími 5 11 00
Garðabær...........sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavikur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vifj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir i síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspft-
alinn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarf|örður: Dagvakt, Heilsugæslan
simi 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspftalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspftallnn:
virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðlngardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Hellsuverndarstöðinvið
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspftall: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadelld:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspftall Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spítalinn:alladaga 15-16 og 18.30-19.
SJúkrahúslð Akureyrl: alla daga 15-16
og 19.19.30. Sjúkrahúslð
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavfk: alladaga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Simi: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf i sálfræðilegum
efnum. Sfmi 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga frá
kl. 10-14. Sími 688800.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
sími 21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem oröið hafa
fyrirsifjaspellum, s. 21500, simsvari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, simi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafaverið ofbeldi eða orðið fyrirnauðgun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma fólags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21 -
23. Símsvari á öðrum timum. Síminn er
91-28539.
Félag eldri borgara. Opið hús I Goöheim-
um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga kl. 14.00.
Bilanavakt (rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sif jaspellamál. Slmi
21260 alla virka daga kl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opiðhús" krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið í síma91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
25. apríl
1989 kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar........... 52,76000
Sterlingspund.............. 89,86300
Kanadadollar............... 44,36800
Dönsk króna................. 7,28230
Norskkróna.................. 7,80010
Sænsk króna................. 8,32570
Finnsktmark................ 12,67960
Franskurfranki.............. 8,36460
Belglskurfranki............. 1,35260
Svissn. frahki............. 32,06900
Holl. gyllini.............. 25,09990
V.-þýsktmark............... 28,31540
Itölsk líra................. 0,03865
Austurr. sch................ 4,02290
Portúg.escudo............... 0,34250
Spánskur peseti............. 0,45590
Japanskt yen........... 0,40187
írskt pund................. 75,49700
KROSSGÁTA
I Lárótt: 1 starf 4efst8 I
1 ía 3 4 6 é 7 iörbirgö 9 etja 11 lélega 12 príla 14 skáld 15 hjara17mas19fugl21 ilát 22 samtals 24tryllti 25 guðir
r^ í^j '8
9 ið LJ 11 hræddi3öfl4hæðir5 þjóta 6 svail 7 kjaffa 10 sandali 13 hali 16 sam- tals17fönn18sveifla 20reyki23svik
12 1 13 n 14
í^j l j 15 « i r^ L J Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 vist4glas8 völlinn9spöl11Óðni 12 alltaf 14 aö 15 iðin 17snara19örg21 átu 22 nasa 23 luku 25 akka
■ 18 fl 19 20
n 22
24 25 * Lóðrótt:1 vísa2svöl3 töltir 4 glófi 5 lið 6 Anna 7sniðug 10plöntu 13
aðan 16nösk 17sál 18 auk 20 rak 23 AA
Mi&vlkudagur 26. apríl 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11