Þjóðviljinn - 18.05.1989, Síða 2
FRÉTTIR
Hernám
ísland standi við skyldu sína
Brot úr athyglisverðri kveðjurœðu aðmírálsins á Keflavíkurflugvelli
Eg vil tala opinskátt við fólk og
stjórnvöld á íslandi. íslend-
ingar sem styðja Varnarliðið og
NATO ættu að tala jafn fullum
hálsi og jafn oft og herstöðva-
andstæðingar gera. Þeir eiga að
tryggja að hin almenna umræða
sé kraftmikil en einkennist ekki af
illskufullu og langdregnu eintali
vinstrimanna. Leyfið ekki lands-
mönnum ykkar að gera minni
kröfur til Sovétríkjanna en til
Bandaríkjanna eða annarra. Þeir
ykkar sem þekkja Varnarliðið og
bandaríska og aðra leiðtoga
NATO best, ættu að rísa upp oft-
ar í réttlátri reiði, þegar stað-
reyndum er snúið við eða rétt-
látum markmiðum snúið til verri
vegar.“
Þetta sagði Eric McVadon að-
míráll í hinni athyglisverðu og op-
inskáu kveðjuræðu sinni á Kefla-
víkurflugvelli í fyrradag. Ræðan
var ekki bara árás á íslenska her-
stöðvaandstæðinga, hún var ekki
síður alvarleg ásökun í garð ís-
lenskra herstöðvasinna, her-
mangara og íslenskra stjórnvalda
fyrir skilningsskort þeirra á þörf-
um bandaríska hersins á íslandi
og skort á ábyrgðartilfinningu
gagnvart NATO. McVadon boð-
aði nýja endurskoðun „varnar-
samstarfsins" á nýjum forsend-
um:
Endurskoðun
varnarsáttmálans
„Tillaga um endurskoðun sam-
skipta íslenskra stjórnvalda og
Varnarliðsins á ekki að vera
bundin við þá samsteypustjórn
sem nú er og hefur vinstriöflin
innan sinna raða.
Samsteypustjórn framtíðar-
innar er stendur nær miðju eða
hægri ætti einnig að setja í stjórn-
arsáttmála sinn slík endurskoð-
unarákvæði, en með öðrum
áherslum.
Segja má að þörf sé á því að
endurskoða hvort afstaða Islands
sé við hæfi og fullnægjandi hvað
varðar stuðning við Varnarliðið.
Eru íslendingar ánægðir með
þann stuðning, þá gestrisni og
það samstarf, sem þróast hefur á
þeim nærri fimm áratugum, sem
þessir aðilar hafa verið banda-
menn í sama bandalagi og íbúar á
sömu eyju? ...Endurskoðun
varnarsamskiptanna ætti að
beinast að ábyrgð íslands, en
ekki að því að draga úr þeim
áhrifum sem dvöl nokkurra þús-
unda útlendinga á einu horni
landsins kann að hafa eða að
þeim ávinningi sem menn kunna
að vænta frá Bandaríkjastjórn í
formi ábatasamra verkefna, at-
vinnutækifæra eða annarra pen-
ingaútláta. Grundvallaratriði
slíkrar endurskoðunar ætti að fel-
ast í rannsókn á hlutverki íslands
sem aðila Atlantshafsbandalags-
ins og gestgjafaþjóð Varnarliðs-
ins. Ef Island hefur ekki bolmagn
til þess að láta af hendi aðstöðu
og annan verðmikinn búnað sem
gestgjafaland, eins og tíðkast
annars staðar, ætti fsland þá ekki
að leita annarra leiða til þess að
sýna stuðning sinn sem gestgjafa-
land í verki?“
Ábyrgð
íslands
„Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra hefur lýst því
skilmerkilega yfir, að íslensk
stjórnvöld eigi að taka virkari
þátt í undirbúningi æfinga og
þátttöku í þeim. Hin frábæra en
takmarkaða samvinna sem við
höfum haft við íslenskar stofnan-
ir eins og Landhelgisgæsluna,
Lögregluna, Flugmálastjórn, Al-
mannavarnir ríkisins og stjórn-
endur sjúkrahúsa, getur nú tekið
risastökk framávið...Starf Al-
berts Jónssonar fyrir Öryggis-
málanefnd virðist frábær grund-
völlur fyrir ábyrga íslenska emb-
ættismenn innan þessarar stjórn-
ar og þeirrar næstu til þess að
horfast í augu við ábyrgð sína.
Um er að ræða alvarlega ábyrgð,
sem menn verða að horfast í augu
við varðandi veru Varnarliðsins á
íslandi. Þessi ábyrgð varðar sam-
eiginleg verkefni, hún varðar
stuðning gestgjafalandsins, hún
varðar meiri vilja og árvekni ís-
lenskra stjórnvalda til að takast á
við stærri ákvarðanir á alþjóð-
legum krepputímum og spennu-
tímum, til þess að hamla gegn ár-
ásarviðmóti eða allsherjarstríði.
Hún varðar líka viljann til þess að
takast á við erfiðar ákvarðanir til
þess að draga úr alþjóðaspennu -
framtíðarsýn sem við vonumst öll
til þess að geta nú horft fram á“...
Hluti af þeirri lokasamninga-
lotu sem stóð yfir í gær í deilu
BHMR og ríkisins snýr að því
hvernig eigi að ganga frá skóla-
slitum um land allt. Svavar Gests-
son menntamálaráðherra hefur
ásarnt skólameisturum staðið í
þeim viðræðum við fulltrúa
kennara og eru aðilar sammála
um að slíta verði skólaárinu með
formlegum hætti.
Lausnir verða hins vegar mis-
munandi eftir skólum og liggur
ljóst fyrir að kenna verður fram í
júní og jafnvel byrja fyrr í haust
til að ljúka námsönnum. En
Viðskipti og
samviska
„Það eru aðrar hliðar sam-
skiptanna sem verðskulda um-
hugsun. Viðskiptaleg samskipti
ættu að geta staðist samviskuár-
ásir innra með okkur og þau eiga
að geta staðist rannsóknir þinga
eða þingnefnda í framtíðinni.
Sjálfhygli af hálfu íslendinga eða
Bandaríkjamanna getur einfald-
lega leitt til þess að bandaríska
varnarmálaráðuneytið eða þing-
ið nái ekki að samþykkja fram-
kvæmdaáform, sem Varnarliðið
sárvantar og koma íslandi beint
eða óbeint til góða. Við verðum
að framkvæma hlutina á eins
ódýran hátt og mögulegt er og
nota hugmyndaflugið til þess að
draga úr kostnaði og auka hag-
Ríkið og BHMR
deilan snýr einnig að samninga-
nefnd ríkisins og þá um hvort og
þá með hvaða hætti eigi að greiða
kennurum fyrir þá vinnu, sem
þeir telja utan vinnuskyldu sinn-
ar.
Flestir kennarar eru þegar
komnir í frí, þar sem þeir vinna af
sér kennslustundir yfir veturinn.
Þeir fara því fram á að sú kennsla
sem þeir þurfa að inna af hendi að
verkfalli loknu og í sumum tilfell-
um í haust verði greidd í yfirtíð.
Ríkið hefur á móti viljað halda
því fram að þar sem kennsla hafi
fallið niður í þær sex vikur sem
kvæmni. Það gengur ekki lengur í
Pentagon eða á Kapítólhæðinni
að útskýra með fölskum afsökun-
artón, að ísland sé einstakt, og
halda síðan að umbeðið fjármagn
muni koma sjálfkrafa, eða að sér-
stakar undanþágur verði gerðar
frá hefð og markaðri stefnu.“
Eric McVadon lauk máli sínu
með því að segja að sá samdráttur
í bandarísku herliði sem menn
vonist til að komist til fram-
kvæmda á meginlandi Evrópu
muni auka á mikilvægi herliðsins
á íslandi. Og lokaorðin voru
þessi: „Sú rödd NATO, sem
heyrist á íslandi, má ekki um alla
framtíð tala ensku með amerísk-
um hreim.“
Þá höfum við íslendingar feng-
ið okkar lexíu frá The American
Friend.
-ólg
verkfallið hefur staðið, hafi
kennarar ekki náð að vinna af sér
tilskilinn tímafjölda sem heimili
þeim að fara í sumarfrí á launum.
Á þetta vilja kennarar ekki fallast
og telja sig í sterkri stöðu til að ná
sínu fram. Þeir geti haldið verk-
falli áfram vilji ríkið ekki gefa
eftir og tíminn vinni með þeim.
Kennarar líta þannig á að meðan
þessi deila er óleyst haldi þeir
einnig uppi pressu á samninga-
nefnd ríkisins hvað önnur atriði í
samningum BHMR og ríkisins
snertir.
phh
Þrefað um skólaslit
Greiðslafyrir kennslu utan vinnuskyldu bitbein samninganefnda
Vistmenn og starfsfólk á Sólheimum hafa æft af kappi síðustu daga,
fyrir Islandsmótið í Svarta Pétri sem verður á laugardaginn.
Islandsmot í Svarta Pétri
Fyrsta íslandsmótið í spilinu Svarti Pétur, fer fram á Sólheimum í
Grímsnesi n. k. laugardag. Mótið er fyrst og fremst hugsað sem keppni
fyrir þroskahefta, en vegna eðlis leiksins er jafnræði með þroskaheft-
um sem öðrum og keppnin því öllum opin. Keppnisstjóri verður
Svavar Gests og verður keppt um veglegan farandbikar, en stefnt er að
því að þetta mót verði árlegur viðburður. Þá eru mörg aukaverðlaun í
boði. Þátttaka er ókeypis og er skráning í síma 98-64430. Byrjað
verður að spila kl. 14.00 á laugardag en sætaferðir verða frá Umferðar-
miðstöðinni á hádegi.
Enga síbylju
í strætó
Samtökin Átak gegn hávaða hafa
nýverið sent rekstraraðilum í al-
menningssamgöngum erindi þar
sem mælst er til þess að hætt verði
að leika tónlist og halda mynd-
bandasýningar í langferðabílum,
strætisvögnum og öðrum al-
menningsfarartækjum, nema til
komi sérstakt samkomulag, sem
allir farþegar sætta sig við. í er-
indi félagsins segir að það sé
grundvallarregla að enginn þurfi
að þola að aðrir troði upp á hann
sjálfvöldum hljómleikum. Þá
bendi niðurstöur lækna til þess að
þrátt fyrir að bílstjórar telji sér
yndisauka að hljómleikum í út-
varpi eða af hljómböndum, þá
hafi sú síbylja í raun slæm áhrif á
þá flesta, flýti fyrir þreytu og auki
streitu.
Ósætti um
Fossvog harmað
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu harmar það
ósætti sem komið er upp milli
tveggja stærstu sveitarfélaga
landsins vegna framtíðar Foss-
vogsdals og óttast að þeirri góðu
samvinnu sem verið hefur með
sveitarfélögunum á höfuðborgar-
svæðinu, stafi hætta af slíku
ósætti. Þá telur stjórnin einnig
ámælisvert að samningum sem
eru í gildi milli sveitarfélaganna á
svæðinu sé rift einhliða. Tekið er
undir tillögu Skipulagsstjórnar
ríkisins um að hlutlausir aðilar
verði fengnir til að meta þörf á
lagningu Fossvogsbrautar með
alla umferð á höfuðborgarsvæð-
inu í huga. Ályktun þessa efnis
var samþykkt með 10 atkvæðum í
stjórn SSH, en Kristín Ólafsdótt-
ir borgarfulltrúi sat hjá.
Friðarömmur
með ráðstefnu
Hvað er friðaruppeldi og friðar-
fræðsla?, er yfirskrift ráðstefnu
sem „Friðarömmur" gangast
fyrir að Hótel Sögu á laugardag-
inn. Á ráðstefnunni verða flutt 6
erindi, en hún hefst kl. 13.30. Til-
gangurinn með ráðstefnunni er
að fá lærða og leika til að fjalla
um gildi skipulagðrar friðar-
fræðslu og friðaruppeldis frá
ýmsum hliðum og er þess vænst
að sem flestir uppalendur taki
þátt í ráðstefnunni.
Fundu 430 gr
af kókaíni
Fíkniefnalögreglan hefur lagt
hald á um 430 gr af kókaíni og
hafa tveir menn verið úrskurðað-
ir í gæsluvarðhald vegna málsins.
Aðrir tveir sem voru í gæslu grun-
aðir um aðild að þessu kókaín-
smygli hefur verið sleppt úr hald:.
Það sem af er árinu hefur verið
lagt hald á um 600 gr af kóakaíni,
en áður hefur mest verið lagt hald
á um 500 gr á heilu ári. Að sögn
Iögreglu ber meira á kókaíni hér
en áður og jafnframt hefur sölu-
verð lækkað sem víðar í heimin-
um.
Skipaverslun
Sambandsins
Sambandið hefur sett á stofn
sérstaka lagerverslun þar sem
skip og bátar geta gert öll matar-
og hreinlætiskaup á einum stað.
Allar vörur hjá skipaversluninni
er á heildsöluverði eða með mest
10% álagningu. Þetta er fyrsta
skipahöndlaraþjónustan af þessu
tagi hérlendis frá því að Jes Zim-
sen hætti slíkri þjónustu fyrir
rúmum þremur áratugum.
Heiðurslistamenn
Kópavogs
Lista- og menningarráð Kópa-
vogs hefur úthlutað starfslaunum
bæjarlistamanns í þriðja sinn. Að
þessu sinni hlutu launin þeir Sig-
urður Bragason óperusöngvari
og Hjörtur Pálsson rithöfundur.
Sigurður hlýtur launin frá 1. júlí
til ársloka en Hjörtur frá byrjun
næsta árs til loka júní 1990. Þá er
hafin almenn fjársöfnun fyrir
Listasafn Kópavogs undir stjórn
Kristjáns Guðmundsonar bæjar-
stjóra. Með honum í söfnunar-
stjórn eru þau Árni Guðjónsson,
Birna Stefánsdóttir, Styrmir
Gunnarsson og Tómas Zoéga.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. mai 1989