Þjóðviljinn - 18.05.1989, Síða 11
Þjóðviljinti
- Frá lesendutn -
Síðumúla 6
108 Reykjavík
Síðbúin
kvittun
Kveðja til
Eggerts Haukdals
Það var nú meiri barningurinn
þegar Ingólfur heitinn á Hellu og
við vorum að reyna að búa til úr
þér alþingismann, Eggert Hauk-
dal. En þetta tókst samt eða við
skulum segja það. Hitt er svo allt
önnur saga hvernig þú reyndist
þegar við vorum búin að fá þér
allt upp í hendurnar. Sjaidan
launar kálfur ofeldi. Mikið var
um það talað í Sjálfstæðisflokkn-
um á sínum tíma hvernig þú brást
Geir og svo Gunnari. Flest okkar
vorum við búin að vinna lengi og
vel fyrir þann flokk en svo mikill
var hrokinn orðinn á þeim bæ að
þeir töldu sig ekkert hafa við at-
kvæðin okkar að gera. Þá þótt-
umst við sjá foringjaefnið okkar í
þér en vonbrigðin urðu skelfileg.
Við máttum líka alltaf trúa því
sem Gunnar og Geir sögðu. Síð-
an brást Jón Sólnes þegar hann
reyndi að gera bandalag við þig
og koma á samstöðu með S-
listanum og L-listanum. Hann
valdi þér líka réttu orðin í bókinni
sinni. En svo voru svikin þín við
okkur þau langsamlega verstu.
Það eru líka þau sem munu end-
anlega kollsteypa þér og sárin
sem þú þá veittir okkur L-
listafólki gróa aldrei. Þessar fáu
línur eru bara síðbúin kvittun
okkar fyrir það, þegar þú stökkst
frá okkur yfir í breiðsæng íhald-
sins einsog einn Allaballinn orð-
aði það og vitanlega gerðir þú
þetta þegar við máttum síst við
því. Þá var nýtt stjórnmálaafl að
fæðast, en þú eyðilagðir það allt.
Þú varst þá foringinn okkar. En
koma dagar og koma ráð af því að
nú erum við endanlega laus við
þig og betri meðbyr getur ekkert
stjórnmálaafl fengið. Aumingja
Árni Johnsen hefur lýst því með
miklum tilþrifum, hvernig þú
sveikst hann í tryggðum. Samt
ætlar hann svo að lyfta þér á þing
næst. Það er alveg mögnuð lyst en
Eyjaíhaldið virðist geta slarfað í
sig hverju sem er. Hvar skyldi svo
þinn pólitíski svikaferill enda?
Það má bara líta á þetta síðar en
fyrst verður þetta að koma al
gefnu tilefni. Við höfum heyrt og
séð tilburði þína undanfarið þar
sem þú ert að mjálma utan í okk-
ur. Ja svei. Þetta er alveg von-
laust fyrir þig því við erum ein-
mitt nýbúin að hittast og ræða
okkar mál og þína hörmulegu
stöðu, sem enginn heilvita maður
vill koma nálægt. Við ákváðum
að veita þér aldrei oftar stuðning
- þótt við séum búin að gefa þér
ótal tækifæri til þess að bæta ráð
þitt og það gleymist aldrei hvað
við lögðum á okkur fyrir þig. Við
óðum eld fyrir þig og einmitt þá
sveikstu okkur. Þú færð þó að
kynnast því að við getum ekki
haldið áfram að styðja bara ein-
nota þingmann. Við ákváðum
líka að gefa ekki Þorsteini
Pálssyni lengri frest. Hann skal
sko fá að finna fyrir því í næstu
kosningum hvað það kostar að
ganga með þig í farteskinu sem á
öllum þessum árum hefur aldrei
komið einu einasta marktæku
máli í gegnum Alþingi. En þú
þóttist ekki geta verið með okk-
ur. Það er líka fróðlegt að sjá
hvernig nýju vinirnir þínir
reynast þér og tala um þig. Sérðu
það ekki og heyrirðu það ekki?
FRÁ LESENDUM
Sjálfstæðisflokkurinn stofnaði
einstæða nefnd á þykku gólftepp-
unum fyrir sunnan eftir síðustu
kosningar (Naflaskoðunarnefnd-
ina) og átti hún að segja honum
hvað hann mætti að gera og hvað
hann ætti ekki að gera til þess að
andlitið á honum yrði ekki of ljótt
í augum kjósenda. Okkur er t.d.
sagt að á Mogganum hafi alveg
verið ráðið frá því að birta fleiri
greinar eftir dr. Hannes Hólm-
stein Gissurarson af því að öll
hans margra kílómetra skrif væru
búin að skaða flokkinn nóg. Síð-
an var flokknum alveg ráðið frá
því að hampa Utstrikunarkóngi
Islands Eggert Haukdal. Sástu
virkilega aldrei logandi háðið og
glampann í augum vinanna þinna
þegar þú mættir þeim á göngum
Alþingis? Er þér alveg sama þeg-
ar birtar eru aftur og aftur í
stærsta blaði landsins af þér
myndir sem hálft hross? Virkar
þetta kannski á þig sem traustsyf-
irlýsing? Mikill dæmalaus afglapi
gastu nú annars verið að stökkva
út í ómokaðan íhaldsflórinn þeg-
ar við heiðarlegt og venjulegt
bændafólk reyndum að gera úr
þér mann. Moggi gamli var ís-
kyggilega fljótur að breyta því í
hálft hross, Luktar-Gvend og allt
það. Gera menn svoleiðis þegar
þeir vilja reynast vinum sínum
vel?
Um daginn voru okkur svo
sagðar mjög óvenjulegar lýsingar
nokkurra þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins á þér og öllu þínu bauki
en þeir þykjast víst orðið þekkja
þig fullvel. Það var víst einhvern
veginn svona: Hausinn á honum
er eins og óinnréttað ris. Okkur
varð nú ekki um sel þegar þessi
maður var í fyrsta sinn leiddur inn
í flokksherbergið okkar. Við sett-
um auðvitað strax á hann afrugl-
ara, en það bar bara engan árang-
ur. Hann lokaðist inni í klæða-
skáp og baular þar eins og kálfur-
inn, sem hann kom með í bíl-
skottinu á Alþingi sællar minn-
ingar. Greyið gengur með enda-
lausar sérþarfir, sem enginn
flokkur getur leyst. Það er útilok-
að að ræða við hann um pólitík af
því að hann sér hana aldrei nema
í baksýnisspeglinum. í flokknum
okkar eru tveir fílabeinsturnar.
Sá stóri með Þorsteini litla og sá
litli með Eggerti stóra. Þetta
kannski flýtur hjá okkur á meðan
þingmenn eru ekki settir í
greindarpróf.
Já fyrrverandi foringi okkar!
Ljótt er nú að heyra en ekkert
getum við gert að því þótt svona
berist okkur til eyrna og fólkið á
þykku gólfteppunum hafi gaman
af að teygja þig sundur og saman.
Þetta vildirðu og þangað vildirðu
æða þegar framtíðin blasti við þér
með lykilaðstöðuna frá okkur.
Hvernig þú gast klúðrað öllu! Og
þú skalt alltaf muna það að við
höfum aldrei talað um háð,
gáfnafötlun eða vitsmunakreppu
í sambandi við þig.
Það sóttir þú þér annað. En
varaðu þig bara á einu. Komdu
aldrei skríðandi til okkar aftur.
Reyndu heldur við Framsókn.
Hún er svo vitlaus að hún má al-
veg gleypa pólitíska banabitann
sinn. Hvað munar þá um eina
kaffibaun?
Við ræddum svo líka um það
hver þín pólitísku endalok munu
verða. Sumir sáu þar þögnina
besta með hinu óumflýjanlega
hruni þínu. Þá kom ein merkasta
konan í sunnlenskri bændastétt
með þessa lausn: Ég hugsa að
hann endi sem pólitísk fatafella í
Grímsneskerinu hans Árna.
En vel á minnst. Er nú ekki
kominn tími til að Morgunblaðið
birti ræðuna þína frægu í Fram-
kvæmdastofnun, sem 'varð svo
fræg að endemum að allir ætluðu
að ganga út? Þetta er þó eina af-
rekið þitt um dagana og okkur er
sagt að Moggi haldi svo^mikið
upp á ræðuna að hún sé geymd
þar í sprengjuheldri skúffu.
Vertu svo margblessaður og
líði þér alltaf sem allra best hjá
öllum góðu vinunum þínum sem
þú taldir miklu fínni en okkur af
því að þeir eru á þykku gólftepp-
unum í Reykjavík, en ekki bara
bændur svo notuð séu frægu orð-
in frá sjálfum þér.
L-lista fólk
Kirkjan
og kristin-
dómurinn
George Bernhard Shaw sagði
einu sinni: „Kristindómur væri af
hinu góða ef fólk aðeins lifði
hann.“
Á undanförnum vikum hefur
ýmislegt verið skrifað um ferm-
ingu, bæði fermingu í kirkjunni
og borgaralega fermingu. Eins og
Hope Knútsson skrifar (Morgun-
blaðið 11. 5. ’89), hefur kirkjan
ekki einkaleyfi á orðinu „ferm-
ing“. Ég þekki Hope persónulega
í gegnum geðhjálp, og er hún ein
af þeim fáu kristnu manneskjum
sem ég hef hitt á lífsleiðinni. Hún
er svo sannarlega að feta í fótspor
Krists og hefur boðskap hans um
kærleika, frið og réttlæti að
leiðarljósi í lífinu. Aftur á móti
Íiekki ég aðeins einn prest hér á
slandi sem er í raun og veru
þjónn Guðs en ekki þjónn ríkis-
rekinnar þjóðkirkju, hann Hall-
dór S. Gröndal. Eins og Jesús
sagði við þessa hræsnara sem
þykist vera prestar: „Þið getið
ekki þjónað Guði og Mammon."
Og fermingarbörnin eru ekki trú-
uð fyrir það eina að láta fermast.
Já, það væri gott ef mennirnir
virkilega praktíseruðu kristind-
óm. Þá væri veröldin öðruvísi en
hún er í dag. En hvar sér maður
það þegar maður lítur í kringum
sig? Hvernig eru heimsfréttir?
Stríð og ofbeldi, ofbeldi og stríð.
Hvar er kærleikurinn, umburðar-
lyndi, samúð? Við erum á beinni
leið inn í 3. heimsstyrjöldina, og
það þýðir ekki að loka augunum
fyrir þessari staðreynd. Það kem-
ur að því, því fyrir rúmlega 2000
árum spáði Jesús þannig: „Því að
þá mun verða svo mikil þrenging,
að engin hefir þvflík verið frá
upphafi heims allt til þessa, né
heldur mun verða. Og ef dagar
þessir yrðu ekki styttir kæmist
enginn maður af; en sakir hinna
útvöldu - Guðs börn - munu
þessir dagar verða styttir,“ Matt-
eus 24:21-22. Hér er greinilega
um kjarnorkustríð að ræða.
E.J.
I DAG
þJÓDVILJINN
FYRIR50ÁRUM
Palestinasjálfstætt ríki innan
10 ára? Gyðingar eiga aðeins að
verða þriðjungur þjóðarinnar.
Hitaveitan til 1. umræðu á bæj-
arstjórnarfundi í gær. Tilboð Höj-
gaard & Schultz var gagnrýnt
mjög skarplega, en talið óhjá-
kvæmilegt að ganga að þvi með
tilliti til stríðshættu.
18.MAÍ
fimmtudagur í fimmtu viku
sumars, tuttugasti og níundi dag-
urhörpu, 138. dagurársins. Sól
kemur upp í Reykjavík kl. 4.03 en
sest kl. 22.48. Tungl vaxandi á
öðru kvartili (fullt laugardag).
VIÐBURÐIR
Stjórnarskrá konungsríkisins ís-
lands staðfest 1920. Fæddur
Jakob Thorarensen skáld 1886.
FæddurGunnarGunnarsson rit-
höfundur1889.
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúðavikuna
12.-18. maí er í Lyfjabúðinni löunni og
GarðsApóteki.
Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Siðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur...............sími 4 12 00
Seltj.nes...............sími 1 84 55
Hafnarfj................sími 5 11 66
Garðabær................simi 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík...............sími 1 11 00
Kópavogur...............sími 1 11 00
Seltj.nes...............sími 1 11 00
Hafnarfj................sími 5 11 00
Garðabær................sími 5 11 00
LCKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er i Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspitalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
iækni eöa ná ekki til hans. Landspít-
alinn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspitalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar. Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspitalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alladaga 14-20
og eftirsamkomulagi. Grensásdeild
Borgarspitala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðinvið
Barónsstígopinalladaga 15-16og
18.30-19.30. Landakotsspítali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði:
alladaga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spítalinn:alladaga 15-16 og 18.30-19.
Sjúkrahúsið Akureyriralladaga 15-16
og 19.19.30. Sjúkrahúsið
DAGBÓK
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alladaga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Simi: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf i sálfræðilegum
efnum. Sími 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga frá
kl. 8-17. Síminn er 688620.
Kvennaraðgjötin Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
sími 21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18—19, annars sim-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, simi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa veriö ofbeldi eða orðið tyrir nauðgun.
Samtökin ’78. Svarað er i upplýsinga- og
ráðgjafarsima félags lesbía og homma á
mánudags-ogfimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Simsvariáöðrumtímum. Síminner
91-28539.
Félag eldri borgara. Opið hús í Goðheim-
um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga
ogsunnudagakl. 14.00.
Bilanavakt (raf magns- og hitaveitu: s.
27311. Rafmagnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sifjaspellamál. Simi
21260 allavirka dagakl.1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, erveittísima 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús" krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmludögumkl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið i sima 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
17. maí
1989 kl. 9.15.
Sala
Bandarikjadollar......... 55,29000
Sterlingspund............ 90,40200
Kanadadollar............. 46,44100
Dönskkróna................ 7,34260
Norskkróna................ 7,89580
Sænskkróna................ 8,44510
Finnsktmark.............. 12,81940
Franskurfranki............ 8,39510
Belgískur franki....... 1,35800
Svissn. franki........... 31.74850
Holl. gyllini............ 25,22300
V.-þýsktmark............. 28,43330
Itölsklíra................ 0,03906
Austurr. sch.............. 4,04090
Portúg. escudo............ 0,34570
Spánskurpeseti............ 0,45440
Japanskt yen............ 0,40198
Irsktpund................ 76,02100
KROSSGÁTA
I
1— 2 1 j m 4 6 7 Lárétt: 1 sæti4gildur8 fylgja 9 rof 11 slæmt 12 hárugur14samtök15 strik 17 krús 19 þræll 21 púki22skartgrip24 vinnusemi25þungi Lóðrétt: 1 kröggur2 hávaða3ílát4húð5 kostur 6 hörgull 7 bjálf- ann10heit13spilið16 muldra17dýrki 18 mjúk20 eðja23áköf Lausnásíðustu krossgátu Lárétt: 1 toll4æska8
n ■
9 16 n 11
12 13 14 í
L.J 18 18 u
17 18 LJ 18 20 einstök9slit 11 tóla 12 kerlur14dr15atir17 ífæra 19 úrs 21 lit 22
21 LJ 22 s nemi24 arta25rifa Lóðrétt: 1 tusk2leir3 litlar 4 æstri 5 stó 6 köld 7akarns10leyfir13 utan 16rúmi 17 íla 18 ætt20 rif 23 er
2« " 1 n 28 ‘
Fimmtudagur 18. maí 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11