Þjóðviljinn - 03.08.1989, Side 11
Þjóðviljinn
- Frá lesendum -
Síðumúla 6
108 Reykjavík
Ekki sama
Jón og hjón
Mikið var ég sár út í Ólaf Ragn-
ar Grímsson þegar ég sá álagn-
ingarseðilinn minn í morgun. I>á
fékk ég staðfestingu á því sem ég
hef lengi vitað og það er að við
einstæðir foreldrar borgum meira
í skatt en hjón. Ég ætla að setja
hér upp smá dæmi um tvær
þriggja manna fjölskyldur:
Hjón með eitt barn (8 ára):
Skattaafsláttur: 38.838 kr., barn-
abætur: 1.956 kr., barnabótaauki
0 kr. Samtals á mánuði 40.794 kr.
Einstaklingur með 2 börn (8 ára):
Skattaafsláttur: 19.419 kr.,
barnabætur 11.738 kr., barnabót-
aauki 0 kr. Samtals á mánuði
31.157 kr.
Ef báðar fjölskyldurnar þéna
fyrir 110.000 kr. á mánuði þá
borga hjónin ekki krónu í skatt
en einstaklingurinn borgar
19.419 kr í skatt en fær barnabæt-
ur upp á 11.738 kr. til baka. Ein-
staklingurinn fær engan bama-
bótaauka því hann er allt of
tekjuhár. Finnst ykkur þetta vera
réttlátt?
Ég vona að einhver af þessum
háum herrum sem stjórna þessu
landi geti svarað fyrir sig.
Undrið í
eldhús-
skápnum
Það var kvöld eitt í desember
1988, fallegt vetrarveður með
hægum andvara og stjörnubjört-
um himni þaðan sem ljósalaugar
vetrarbrautarinnar sendu and-
legan yl til jarðar.
Konan mín var frammi í eld-
húsi í leiguíbúðinni okkar í
Breiðholti í Reykjavík, ársgömul
dóttir okkar svaf í barnarúminu
sínu inni í stofu og ég lá á stofu -
gólfinu og horfði á sjónvarpið.
Petta var kyrrlátt kvöld og
klukkan var um það bil hálf tíu.
Það var þá sem það skeði. At-
burður sem olli mér og konu
minni talsverðum áhyggjum fyrst
á eftir. Ekki urðum við óttasleg-
in, né heldur fundum við nein
ónot, hvorki sem aðdraganda eða
eftir á.
En skyndilega hrekkur kona
mín upp við það að innan úr ein-
um eldhússkápnum berst þessi
líka ægilegi hvellur. Þar sem ég
var inni í stofu, hélt ég að hún
hefði misst einhvern þungan hlut.
Hún skildi ekki hvað þetta gat
verið en þegar hún opnar eldhús-
skápinn sem hávaðinn barst frá,
gat heidur en ekki á að líta: Eitt
glasið í miðhillunni hafði gjör-
samlega splundrast og lágu gler-
| brotin innanum hin glösin í hill-
unni og á þeirri næstu fyrir neð-
an, eins og greinilega sést af með-
fylgjandi mynd sem ég tók áður
en nokkuð var hreyft við brotun-
um.
Hvað var það sem olli þessu?
Hvers vegna fór aðeins þetta eina
glas í þúsund mola? Hvaða feikna
afl var hér að verki? Hafði ein-
hver dáið í fjölskyldunni? Eða
var hér um svokallaðan ærsla-
draug (poltergeist) að ræða? Og
þá hvers vegna? Allar þessar
spurningar komu upp í huga okk-
ar og raunar enn fleiri. Mest held
ég þó að við höfum undrast þetta
fyrirbæri, hver hefði valdið því og
hvers vegna.
Um nóttina dreymir mig til-
tekna manneskju sem ég og kona
mín vissum að bæri illan hug til
LESENDABRÉF
Skiautleg
Á dögunum var ég að horfa á
upptökur í sjónvarpinu frá bisk-
upsvígslu í Skálholti. Það var ver-
ið að vígja vígslubiskup fyrir
suðurpart Iandsins og margir
klerkar voru viðstaddir eins og
sjálfsagt er.
En þegar nú sjónvarpið var að
bregða upp myndum af þessu,
ekki síst skrúðgöngu til Skál-
holtskirkju, þá fannst mér allt í
einu eins og ég væri að horfa á
einhverja atburði í allt öðru landi
og frá allt öðruvísi kirkju en
þeirri sem við höfum vanist. Ég
fór að velta því fyrir mér hvernig
á þessu stæði og viti menn: það
var blátt áfram þetta - hve skraut-
leg þessi athöfn var.
Nú eru tveir fyrrverandi bisk-
upar viðstaddir helstu kirkju-
legar athafnir, síðan Ólafur bisk-
up nývígður og tveir vígslubisk-
upar. Og þeir eru búnir að koma
sér upp skrúða svo miklum og
skrautlegum að eiginlega verður
biskup kaþólskra, sem var í Skál-
þjóðkirkja
holti líka, hálf svona „sveitó“ í
samanburði við þá.
Vafalaust hefur þetta ekki
gerst í gær, ég þykist núna muna
það að lútherska kirkjan hefur
verið að sækja sig í hátíðleik og
ytra búnaði um alllangt skeið. En
það er ekki fyrr en hún tjaldar
öllum þeim búnaði á einni hátíð
eins og gerðist í Skálholti á dög-
unum, að mann svona hnykkir
við yfir því hve skrautgjörn þjóð-
kirkjan er orðin.
Ekki skal ég efast um það að öll
höfum við þörf fyrir spariföt og
tildragelsi. En hóf er best segir
einhversstaðar. Að minnsta kosti
kýs ég heidur að þjóðkirkjunnar
menn veki á sér athygli með því
að komast vel að orði um hlutina
en með skrautsýningum, sem
verða því miður ekki annað en
tímaskekkt eftirlíking af þeim
íburði fyrir augað sem aðrar og
eldri kirkjur hafa tamið sér um
aldir.
HJ.
okkar. í draumnum kemur hún í
gættina á útidyrunum og segir
með miklum þjósti: „Ég kom
hingað í gærkveldi og það er í
síðasta skipti sem ég kem.“ Var
sá draumur ekki lengri en okkur
finnst líklegt að þar sé að finna
skýnngu á fyrrgreindum atburði.
í framhaldi af frásögn þessari
verður mér hugsað til þess regin-
afls sem hugurinn býr yfir. Með
huganum getur sumt fólk hreyft
hluti úr stað eða beygt málma, og
sumir lesa hugsanir annarra eða
fást við huglækningar. En menn
geta líka gert margt áþreifanlega
slæmt af sér, m.a. brotið glös og
valdið ýmsu tjóni þaðan af verra.
Hversu mörgu væri ekki hægt
að breyta til batnaðar ef maður-
inn temdi sér fallegar og göfugar
hugsanir og sendi frá sér kærleika
til alls sem lifir.
Einar Ingvi Magnússon
Ort um Grænhöfðaeyinga
Lesandi hringdi og vildi koma vísu á framfæri. Þegar Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra, tók á móti starfsbróður sínum frá
Grænhöfðaeyjum, sagði hann íslendinga geta verið Grænhöfðaeyja-
búum fyrirmynd í skattheimtu og stjórnsýslu. Þessi ummæli landföður-
ins mikla kveiktu vísukornið í huga skáldsins:
Skattpíndir landar við þorrann og góuna þreyjum
en þorum ei lengur að tóra’ af því kaupi sem fengu.
En þó kynni’ að ske að gengið á Grænhöfðaeyjum
gerði sig ánægt með fimmtíu prósent af engu.
k.k.
þJÓDVIUINN
FYRIR50ÁRUM
„ Ef Hitler kæmi til Islands, svona í
kurteisisskyni, og gerði það af
náð og miskunn að lofa íhalds-
blöðunum að birta viðtöl, á hvað
skyldi hann leggja mesta
áherslu?
Enginn spyr þannig af því að
hann viti ekki hið rétta svar.
„Foringinn" mundi segja: Þið
verðið að leggja áherslu á barátt-
unagegn kommúnismanum.
Baráttan við kommúnismann
ereinu sinni hans Alfaög
Omega...“ - Úr leiðara.
I DAG
3. ágúst
fimmtudagur í 16. viku sumar.
215. dagur ársins. Ólafsmessa
hin síðari. Sólarupprás í Reykja-
vík kl. 4.40 - sólarlag kl. 22.25.
Viðburðir
Upphaf menningarbyltingarinnar
íKína1966.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavfk. Helgar- og kvöldvarsla lyfja-
búða vikuna 28.-4. ágúst er f Vesturbæjar
Apóteki og Háaleitis Apóteki.
Fyrrnefnda apótekið eropið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10frídaga). Síðarnef nda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
' Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur..........sími 4 12 00
Seltj.nes..........sími 1 84 55
Hafnarfj...........sími 5 11 66
Garðabær...........sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík..........sími 1 11 00
Kópavogur..........sfmi 1 11 00
Seltj.nes..........sími 1 11 00
Hafnarfj...........sími 5 11 00
Garðabær...........sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virkadaga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tima-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspít-
alinn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartfmar: Landspftallnn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspftalinn:
virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-T8,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spftalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspitala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsu verndarstöðin við
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspftall: alia
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspftali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spítallnn: alla daga 15-16 og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- '
1t og 19-19.30. Sjukrahús Akraness:
alLdaga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavfk: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum
efnum. Sími 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga frá
kl. 8-17. Sfminner 688620.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur- ■
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
simi 21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrirsifjaspellum, s. 21500,símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
ámiðvikudögumkl. 18-19, annarssfm-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, síml 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrirnauðgun.
Samtökin ’78. Svarað er f upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
'23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópurum sifjaspellamál. Simi
21260 alla virka daga kl. 1 -5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið i sfma 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
2. ágúst
1989 kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar......... 58,00000
Sterlingspund............ 96,55000
Kanadadollar............. 49,39300
Dönskkróna................ 8,06980
Norskkróna................ 8,52440
Sænskkróna................ 9,15040
Finnsktmark.............. 13,89390
Franskurfranki............ 9,25410
Belgískur franki....... 1,49790
Svissn. f ranki.......... 36,46770
Holl. gyllini............ 27,80770
V.-þýskt.mark............ 31,36240
Itölsk líra............... 0,04359
Austurr. scfi............. 4,45660
Portúg. escudo............ 0,37400
Spánskurpeseti............ 0,50000
Japanskt yen.............. 0,42583
Irsktpund................ 83,65100
KROSSGÁTA
-------------------
- Lárétt: 1 gremja 4 úði 6
l heysæti 7 hnuplaði 9
skoðun12glúrna14
| sál 15sel 16skemma
19 spjót 20 mikið 21
steinn
Lóðrétt:2upphaf3
vonda 4 orm 5 þreyta 7
hungruðu 8 ásjóna 10
lélegral 1 glataði 13
hættumerki17fugl18
slóttug
Lausn á sfðustu
krossgátu
Lárétt: 1 nóló 4 sorg 6
Iök7saug 9 Iran 12
natni 14eld 15tau 16
rækja 19 maur 20 óður
21 nauöi
i Löðrétt: 2 ósa 3 ólga 4
J skfn 5 róa 7 skemma 8
undrun10ritaði11
naumri13tak17æra
18jóð
Fimmtudagur 3. ágúst 1989 ÞJÖÐViLJINN - SÍÐA 11