Þjóðviljinn - 15.08.1989, Qupperneq 9
ERLENDAR FRETTIR
Iran
Forustan að klofna?
Khamenei gengur í berhögg við Rafsanjani ígíslamáli með harðyrðum ígarð Bandaríkjanna
Ali Khamcnei, æðsti trúarleið-
togi írans síðan Khomeini
gamli lést, sagði í gær í ræðu að
aldrei skyldi það verða að íran
gengi til samninga við Bandaríkin
út af vestrænu gislunum í Líban-
on, nema því aðeins að þau létu
fyrir fullt og allt af stuðningi við
Israel. Kvað Khamenei íranskan
almenning hata Bandaríkjastjórn
innUegar en nokkurn annan aðila
í heimi, að ísrael þó frátöldu.
Þessi hviða frá Khamenei kom
allmjög á óvart, enda stingur hún
áberandi í stúf við ummæli Rafs-
anjanis íransforseta 4. þ.m.
Bauðst Rafsanjani þá til að
hjálpa Bandaríkjastjórn til að fá
gíslana lausa, með vissum skil-
yrðum að vísu. Blað eitt í Teher-
Khamenei - hötum (srael mest,
Bandaríkin þar næst.
an hélt því frám s.l. fimmtudag að
innan nokkurra daga myndu
hefjast óformlegar viðræður
Bandaríkjanna og írans um gísl-
amálið, sennilega með þátttöku
Pakistans sem málamiðlara.
Bandaríkjastjórn hefur ekki
staðfest að hér sé rétt með farið,
en hinsvegar lýst sig reiðubúna til
viðræðna við íranska ráðamenn.
Pakistan, sem er í vinfengi við
bæði Bandaríkin og fran, hefur
að sögn íranskra heimilda boðist
til að miðla málum þeirra á milli.
Ummæli Khameneis, sem
ganga á skjön við orð Rafsanjanis
skömmu áður, endurspegla að
líkindum valdabaráttu í innsta
hring íranskra ráðamanna. Þeir
hafa nú nokkumveginn komist
að samkomulagi um myndun
nýrrar ríkisstjómar eftir forseta-
kosningarnar 28. júlí s.I., en í
þeim fór Rafsanjani létt með að
fá sig kjörinn. Samkvæmt nýrri
stjórnskipan, sem nú er gengin í
gildi, fylgja forsetaembættinu
mikil völd, gagnstætt því sem
hingað til hefur verið.
Khamenei hefur til þessa verið
talinn stuðningsmaður Rafsanj-
anis og að honum frátöldum
helsti maður í hófsemdararmi
svokölluðum í írönsku forust-
unni. En þessi síðustu ummæli
hans virðast benda til þess, að
hann sé tekinn að hallast að
strangtrúaðri armi forustunnar,
en liðsoddur hans helstur mun nú
vera orðinn Ahmad Khomeini,
sonur höfuðklerksins sáluga. Ut
á faðernið hefur hann veruleg
áhrif. Talið er að hann verið ko-
sinn eftirmaður Rafsanjanis sem
forseti þingsins, en það kemur
saman í dag. Aðrir helstu for-
ustumenn róttækari armsins eru
Mir-Hossein Mousavi, áður for-
sætisráðherra, en Rafsanjani hef-
Am.k. 105 óbreyttir borgarar
■ voru drepnir og um 450
limlestir og særðir í Beirút, höf-
uðborg Líbanons, í stórskotahríð
er stóð linnulaust yfir frá
fimmtudegi í s.l. viku og s.l. sunn-
udagskvölds. Telja sumir að stór-
skothríð þessi hafi verið sú harð-
asta í öllu líbanska borgarast-
ríðinu, er nú er orðið 14 ára.
í Beirút og víðar í landinu
eigast enn við annarsvegar
kristnir menn undir forustu Mic-
hels Aoun, sem lýstu því yfir í
mars s.l. að þeir væru staðráðnir í
því að reka Sýrlandsher úr landi,
ur að nokkru tekist að bola hon-
um frá völdum með því að leggja
forsætisráðherraembættið niður.
Hinn er Ali Akbar Mohtashemi,
sem Rafsanjani er að reyna að
losna við úr embætti innanríkis-
ráðherra, en ætlað er að Ahmad
Khomeini standi þar fyrir fast.
Reuter/-dþ.
og hinsvegar Sýrlendingar og lí-
banskir bandamenn þeirra, eink-
um Drúsar og Amalsjítar. Þessi
þáttur stríðsins hefureinkum ein-
kennst af gríðarlegri stórskota-
og eldflaugahríð á báða bóga,
sem harðast hefur komið niður á
óbreyttum borgurum, en litlar
breytingar hafa orðið á vígstöðu
hinna stríðandi herja. Beirút,
sem eitt sinn var talin með fallegri
borgum við Miðjarðarhaf, heldur
jafnt og þétt áfram að molna í
rústir undir hríðinni.
Reuter/-dþ.
Bandaríkin
beggja blands
um Afganistan
Meðal bandarískra áhrifa-
manna kvað nú sú skoðun ryðja
sér til rúms að hæpið sé að halda
áfram stuðningi við mujahideen í
Afganistan, þar eð þeir noti
vopnin, sem þeir fá frá Banda-
ríkjunum, aðallega til að berjast
innbyrðis. Opinberlega hefur þó
ekki orðið nein breyting á af-
stöðu Bandaríkjanna í þessu
máli. Sovétmenn hafa látið í ljós,
að þeir séu reiðubúnir að hætta
að sjá Najibullahstjórninni fyrir
vopnum, að því tilskildu að
Bandaríkin hætti að vopna muja-
hideen, en tillögu um það höfn-
uðu Bandaríkjamenn á ráðstefnu
risaveldanna um Afganistan í
Stokkhólmi nýverið.
Loðselastofn
í hættu
Nýsjálensk náttúruvemdar-
samtök skomðu í gær á
stjórnvöld landsins að grípa til
ráðstafana til vemdar þeim stofni
Ioðsela, sem hefst við á miðunum
kringum landið. Saka náttúra-
verndarmenn japönsk og sovésk
fiskiskip um að drepa selina í
hundraðatali og laða þá í færi
með því að fleygja í sjóinn ýmsu
ætilegu.
Líbanon
Mesta storskota-
hríð í 14 ár
Mið-Ameríka
Forsetar fimm Mið-Ameríku-
ríkja, Gúatemala, Salvadors,
Hondúras, Níkaragva og Kosta -
ríku komust í s.l. viku að
samkomulagi um að leysa upp
kontraliðið í Hondúras og binda
þar með endi á ófriðinn milli
kontra og sandinistastjórnarinn-
ar í Níkaragva. í þeim éfriði hafa
um 50.000 manns látið lífið, að
sögn talsmanna Níkaragvastjórn-
ar.
Enn er ekki ljóst hvernig
gengur að framfylgja samningi
þessum. í febr. s.l. komust sömu
forsetar að samkomulagi um að
kontraliðið skyldi leyst upp innan
90 daga. Sá frestur rann út í maí,
en kontrarnir sitja enn sem fast-
ast í bækistöðvum sínum í Hond-
úras.
120 daga áœtlun
ÖIlu meiri alvara virðist vera
að baki nýgerða samningnum,
ekki síst af hálfu Hondúra. Þeir
virðast nú fyrir hvern mun vilja
losna við kontrana, sem þeir ótt-
ast að annars muni stofna til
vandræða í Hondúras. í samn-
ingnum er tekið fram, að Hond-
úras muni ekki lengur láta það
viðgangast að uppreisnarmenn
frá öðra ríki noti hondúranskt
land til árása á það.
í samningnum er skorað á
Sameinuðu þjóðirnar og Sam-
band Ameríkuríkja (OAS) að
skipa innan 30 daga nefnd, er
skipuleggi og fylgist með afvopn-
un kontranna og leitist við að
koma í veg fyrir átök á landamær-
um Hondúras og Níkaragva í því
sambandi. Síðan er ætlunin að
kontrarnir, 10,000-12,000 að
tölu, verði afvopnaðir á 90 daga
tímabili og fluttir frá Hondúras.
Gert er ráð fyrir að flestir þeirra
setjist að í föðurlandinu, en Gú-
atemala, Kostaríka og Salvador
lofa að taka við einhverjum
þeirra kontra, sem þangað kunni
að vilja fara fremur en að snúa
heim til Níkaragva. Ljóst er að
sumir og sennilega margir kontra
vilja helst flytjast til Bandaríkj-
anna og ekki er talið að Mið-
Ameríkuríkin hafi neitt á móti
því, þótt ekki sé minnst á Banda-
ríkin í samningnum þessu við-
víkjandi.
Foringjar á flótta
Forustumenn kontra hafa
bragðist illa við samningnum og
neitað að afvopna lið sitt fyrr en í
fyrsta lagi aðloknum næstu kosn-
ingum í Níkaragva, sem fram eiga
að fara i febr. n.k. Þeir lýsa því
einnig yfir, að verði þeir neyddir
til að yfirgefa Hondúras, muni
þeir ekki snúa heim til föður-
landsins öðruvísi en vopnaðir. En
kjarkurinn er ekki mikill í liðinu,
eins og sýndi sig með því að níu af
helstu foringjum kontra sóttu
eftir birtingu samningsins um
leyfi til landvistar í Bandaríkjun-
um. Þeirra á meðal er Israel Ga-
ieano, herráðsforingi kontra.
Hermt er að liðsmönnum þeirra
þyki þeim farast miður
karlmannlega og kalli umsókii-
irnar um landvistarleyfi (sem þrír
þeirra hafa þegar fengið jákvætt
svar við) heldur hallærislegan
flótta.
Af hálfu Bandaríkjastjómar
hefur komið ffarn að hún er ekki
ánægð með þennan samning
Mið-Ameríkuforseta og reyndi
með þrýstingi á suma þeirra að
hindra að hann yrði gerður. í
febr. s.l. komst Bushstjómin að
vísu að samkomulagi við þing-
leiðtoga demókrata þess efnis, að
Bandaríkin skyldu ekki lengur
leggja áherslu á „hernaðarlegar
lausnir" í Mið-Ameríku, heldur
reyna samningaleiðina. En stjórn
Bush hefur viljað draga að leysa
upp kontraliðið þangað til eftir
kosningarnar í Níkaragva, senni-
lega með það fyrir augum að geta
brúkað það til að ógna sandinist-
um á ný, ef hún yrði óánægð með
kosningaúrsltin.
Fitzwater
slær varnagla
Bandaríkjastjóm hefur þó lýst
yfir stuðningi sínum við samning-
inn, enda mun hún þeirrar skoð-
unar, að Bandaríkjunum yrði
það síst til aukinna vinsælda í
Mið-Ameríku að beita sér opin-
skátt gegn samkomulagi, sem
leiðtogar flestra ríkja þar hafa
komist að. En Bandaríkjamenn
slá varnagla. Marlin Fitzwater,
talsmaður Hvíta hússins, gaft.d. í
skyn fyrir helgina að stuðningur
Bandaríkjanna við samninginn
byggðist á loforðum, sem hann
kvað forseta Hondúras og Kost-
aríku, José Azcona Hoyo og Osc-
ar Arias Sánchez, hafa gefið, þess
efnis að kontrar yrðu ekki látnir
leysa upp her sinn og snúa aftur
til Níkvaragva, væri þeim það
nauðugt.
Eitt vandamál í þessu sam-
bandi er að kontraliðið er að lík-
indum hvergi velkomið, hvort
heldur er í föðurlandi þess,
Bandaríkjunum eða annarsstað-
ar. Það á áreiðanlega sinn þátt í
gremju þess út af samningnum.
Og varla telja Hondúrar sig ein-
færa um að reka það af höndum
José Azcona Hondúrasforseti (sitjandi) og Daniel Ortega Níkaragvaforseti á
ráðstefnunni í Tela.
sér, ef það þybbast við að fara.
Framvinda málsins veltur trúlega
að einhverju leyti á undirtektum
S.þ. og OAS við tilmælin, sem
forsetarnir beina til þeirra í samn-
ingnum. „Samningurinn inni-
heldur bæn um hjálp til samtaka
allra þjóða heims,“ sagði Azcona
er hann las upp fréttatilkynningu
í lok forsetaráðstefnunnar, sem
haldin var í Tela í Hondúras.
dþ.
Samningur um upplausn kontraliös
Kontrar segja nei. Bandaríkjastjórn reyndi að koma í vegfyrir gerð samningsins.
Mið-Ameríkuforsetar heita á S.þ. og OAS
Þrlðjudagur 15. ágúst 1989 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 9