Þjóðviljinn - 14.09.1989, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 14. september 1989 156. tölublað 54. árgangur
Landsbankinn
Sverrir hefur rangt við
Ekki IjósthvortLúðvíkJósepsson hafi brotið trúnaðarlög.
Lúðvík: Verð að segja sannleikann íhneyksli sem þessu. Hafi ég brotið afmér koma fleri áþann sakabekk.
Þórður Olafsson: Munum kanna ýmis ummœli manna í stjórnunarstöðum
„Menn hafa reynt að snúa máli
mínu yfir í það að vera aðgerð
gegn Sambandinu en ég hef að-
eins gagnrýnt vinnubrögð Lands-
bankans í þessu máli, enda eru
þau hneyksli,“ sagði Lúðvík Jós-
Loðnubrœðslur
Ekkert selt
fyrírfram
Loðnuverksmiðjur hafa ekki
gert neina fyrirframsamninga á
loðnuafurðum í ár eins og gert
hefur verið undanfarin tvö ár. I
staðinn bíða menn og sjá hver
framvindan verður í ioðnu-
veiðunum en hingað til hefur
loðnan ekki látið sjá sig á miðun-
um hvað sem síðar kann að
verða.
Aö sögn Jóns Ólafssonar fram-
kvæmdastjóra Félags íslenskra
fiskimjölsframleiðenda hefur
reynst erfitt fyrir verksmiðjurnar
að geta staðið við fyrirfram gerða
sölusamninga og þá sérstaklega á
síðustu vertíð. Þá stóð það í járn-
um fram eftir vertíð en rættist þó
úr að lokum. Meðal annars af
þeirri ástæðu var ekki talið
skynsamlegt að semja um sölu á
loðnuafurðum í ár fyrr en vitað er
með nokkurri vissu hvort
eitthvað veiðist eður ei.
Það setur mikla pressu á sölu-
málin þegar veiðar byrja og
semja verður um sölu á afurðun-
um. Jón sagði að markaðurinn
væri setinn og miklar mjölbirgðir
væru fyrir hendi.
-grh
Flóttamenn
Tekið við 60
flóttamönnum
Ríkisstjórnin samþykkti á
fundi fyrr í mánuðinum að ísland
taki við 60 flóttamönnum á næstu
þremur árum. Flóttamennirnir
koma úr flóttamannabúðum í
Suðaustur-Asíu þar sem hundruð
þúsunda flóttamanna bíða úr-
lausnar sinna mála.
Haukur Ólafsson hjá utan-
ríkisráðuneytinu sagðist reikna
með því að Rauði kross íslands
sæi um móttöku flóttamannanna
eins og áður. Fyrirkomulagið
verði sennilega svipað og þegar
flóttafólk frá Asíu kom hingað
árið 1979.
Áætlað er að 35 þúsund flótta-
menn komi frá flóttamannabúð-
um í Suðaustur-Asíu til Vestur-
Evrópu á næstu þremur árum.
Norðurlöndin munu taka við
4.000 einstaklingum. Haukur
sagði að ef miðað væri við höfða-
tölu íbúa Norðurtanda, ættu ís-
lendingar að taka á móti 40 flótta-
mönnum. Það hefði hins vegar
verið ákveðið að taka við 60.
-hmp
epsson um þau ummæii sem hann
hefur látið hafa eftir sér að und-
anförnu vegna kaupa Lands-
bankans á hlut Sambandsins í
Samvinnubankanum.
Lúðvík hefur verið ásakaður
um tvennt í þessu máli. í fyrsta
lagi að fara rangt með hver skuld
Sambandsins er í Landsbankan-
um og einnig að hafa brotið trún-
aðarákvæði í viðskiptalögunum.
Lúðvík sagði þessar ásakanir alls
ekki eiga við rök að styðjast.
„Sú heildarskuld Sambandsins
sem ég nefndi er nákvæmlega rétt
og fullyrðingar Sverris Her-
mannssonar og Kjartans P.
Kjartanssonar eru þarafleiðandi
rangar. Ég hef áður bent á að
samkvæmt yfirliti frá hagdeild
Landsbankans frá 29. ágúst kem-
ur það fram að skuldir Sam-
bandsins voru samanlagt 2,612
miljarðar, eða nákvæmlega sú
tala sem ég nefndi. Hér er því um
að ræða algerlega rétt mál af
minni hálfu.“
„Það eru mörg dæmi um að
bankastjórar eða bankaráðs-
menn hafi skýrt frá hver er
heildarskuldarstaða einstakra
viðskiptamanna. Síðasta dæmið
eru yfirlýsingar Sverris Her-
mannssonar bankastjóra og Pét-
ur SigurðsSonar formanns bank-
aráðs um heildarskuldir og van-
skil Olís hf. Hafi ég brotið ein-
hvern trúnað með því að segja
rétt frá skuldastöðu Sambandsins
koma sýnilega fleiri á þann saka-
bekk en ég. Að auki er frásögn
um heildarskuldir Sambandsins
ekkert leyndarmál. Það er
auðvelt að lesa úr opinberum
skýrslum Sambandsins til að sjá
hverjar skuldir þess eru. í skýrsl-
unni um síðustu áramót kemur
ma. fram að heildarskuldir Sam-
bandsins voru 8,6 miljónir króna.
Þórður Ólafsson, formaður
bankaeftirlitsins, sagðist ekkert
geta sagt um hvort ummæli Lúð-
víks hafi vepð brot á trúnaðar-
lögum. „Við ætlum okkur hins-
vegar, að gefnu tilefni, að kanna
þau ummæli sem ýmsir aðilar í
stjórnunarstöðum bankakerfis-
ins hafa látið frá sér að undan-
förnu. Þetta á ekkert fremur við
um þetta ákveðna tilefni heldur
en ýmis önnur sem heyrst hafa
upp á síðkastið."
Lúðvík Jósepsson vildi einnig
benda á að þarsem heildarskuld
Sambandsins til Landsbankans
yrði með kaupunum yfir fjórir
miljarðar króna hefði verið mjög
erfitt að skýra frá afstöðu sinni til
kaupanna án þess að viðurkenna
nefnda skuld Sambandsins.
Þannig hefði Lúðvík talið sig ekki
lengur bundinn þagnarskyldu
eftir margumtalaðan bankaráðs-
fund þegar kaupin voru sam-
þykkt.
„Ég sagði ekkert á meðan mál-
ið var í vinnslu en eftir að því var
lokið fannst mér það skylda mín
að segja satt og rétt frá stað-
reyndum málsins," sagði Lúðvík
Jósepsson.
-þóm
Lúðvík Jósepsson: Sagði aðeins sannleikann og því eru fullyrðingar
Sverris Hermannssonar og Kjartans P. Kjartanssonar rangar.
Mynd - Kristinn.
Alverið
Verkfall eftir viku
VSI hafnaði tilboði sem var lítið frábrugðið þeirra eigin.
Gylfi Ingvarsson: Höfum heyrt að verkfall gœti haft áhrif á stœkkun álversins
Starfsmcnn í álverinu í
Straumsvík hafa boðað verk
fall á fimmtudag í næstu viku haf
ekki samist fyrir þann tíma. Síð
ast liðinn mánudag lagði samn
inganefnd starfmanna fram til
boð sem var svar við tilboði at
vinnurekenda frá því fyrir hclgi
Gylfi Ingvarsson aðaltrúnaðar
maður álversins segir að tilboð
starfsmanna hafi ekki verið fjarri
tilboði atvinnurekenda en samt
sem áður hefðu atvinnurekendur
hafnað því. Þórainn V. Þórarin-
son er formaður samninganefnd-
ar atvinnurekenda og hefur VSI
aldrei áður farið eins afgerandi
með samningamál fyrir hönd
Isals og nú, að sögn Gylfa.
í samtali við Þjóðviljann sagði
Gylfi að ágreiningur stæði bæði
um sérákvæði samninga og
beinar launagreiðslur. Hann vildi
ekki rekja þetta nánar þar sem
samninganefnd vildi kynna sátt-
asemjara málin áður en hún
ræddi þau opinberlega. En deilu-
aðilar koma saman hjá ríkissátt-
asemjara klukkan 14 í dag.
Heyrst hefur að hugsanlegt
verkfall í álverinu geti haft áhrif á
það hvort verði stækkun álversins
í Straumsvík. Gylfi sagði að þess-
ari hótun hefði ekki verið haldið
formlega að starfsmönnum, en
hann gæti þó ekki neitað því að
hafa heyrt þessu fleygt fram.
Starfsmenn gerðu sér grein fyrir
alvarleika stöðunnar, en þeir
væru að fjalla um sín kjaramál og
settu ekki fram óhóflegar kröfur
og væru ekki að bera sig saman
við þá sem mest hefðu fengið í
samningum.
Við erum með kröfur sem ætti
að vera auðvelt að ganga að og
við erum óhressir með að deilan
skuli vera komin í þessa stöðu,“
sagði Gylfi. Starfsmenn væru
hlyntir stækkun álversins og hann
vonaði að deilan leystist áður en
til harðari átaka kæmi.
Að sögn Gylfa fer Vinnu-
veitendasamband íslands með
samningamál fyrir hönd ísal með
meira afgerandi hætti en áður.
Þórarinn V. Þórarinsson, for-
maður VSÍ stýrði viðræðunum og
eini einstaklingurinn í saminga-
nefnd sem kæmi frá fyrirtækinu
væri starfsmannastjórinn en hann
sæti í nefndinni sem fulltrúi VSÍ,
ekki ísal.
-hmp
Skák
TR gegn Ungverjum
Reykvíkingarnir kljást við Polgar-systur
„Það verður að segjast einsog
er að þetta var held ég nokkuð
góður dráttur, en það þýðir ekki
að þessi viðureign verði
auðveld,“ sagði Helgi Ólafsson
stórmeistari í samtali við Þjóð-
viljann í gær, en TR lenti á móti
MTK Búdapcst þegar dregið var í
þriðju umferð í Evrópukeppni
taflfélaga.
Ungverska liðið er skipað
sterkum skákmönnum. Á fyrsta
borði er stórmeistarinn Lajos
Portich og á öðru og þriðja borði
Polgar-systurnar Susza og Judit.
Reykvíska sveitin er ekki heldur
skipuð neinum aukvisum, þeim
Jóhanni Hjartarsyni, Jóni L.
Árnasyni, Margeiri Péturssyni,
Helga Ólafssyni, Hannesi Hlífar
og Karli Þorsteins. Varamaðurer
Þröstur Þórhallsson.
Keppnin fer fram í Ungverja-
landi og þarf reglum samkvæmt
að vera lokið fyrir jól. Sigri TR í
þessari umferð er sveitin komin í
fjögurra liða úrslit og fyrirkomu-
lagið það sama og síðast munu
þau fjögur lið keppa innbyrðis á
móti um titilinn Evrópumeistari
félagsliða í skák.
-Sáf