Þjóðviljinn - 19.09.1989, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 19.09.1989, Qupperneq 2
FRETTIR Erró Slær öll met Stórkostleg lista- verkagjöftil Reykja- víkurborgar. Að- sóknarmet á sýning- una. Allar myndir seldar Erró hefur afhent Reykjavík- urborg höfðinglega listaverka- gjöf; um tvö þúsund verk, sem spanna nánast allan hans feril allt frá æskumyndum til mynda frá undanförnum árum. Auk lista- verkanna fylgja gjöfinni skissu- og dagbækur, bréfasafn, ljós- myndir og fleira, sem kasta Ijósi á listamannsferil Errós. Er fyrir- hugað að safnið verði kjarninn í nýrri listamiðstöð, sem sett verð- ur upp á Korpúlfsstöðum. Erró býr nú til skiptis í Thai- landi, í París og á Mallorca. Hann mun lengi hafa haft í huga að gefa Reykjavíkurborg listaverkin, en það hefur tekið sinn tíma að koma safninu saman. Engin skil- Síld Samið við Svía og Finna Kaupafyrirfram 60- 70þúsund tunnur, miðað við síldina hausskorna og slógdregna. Ennfremurýmsar tegundir afflakaðri síld Samningar hafa tekist við helstu saltsíldarinnflytjendur í Svíþjóð og Finnlandi á kaupum á 60 - 70 þúsund tunnum á kom- andi vertíð. Söluverð á hefð- bundnum tegundum hækkar um 6% - 7% frá fyrra ári en það er eins og áður í sænskum krónum og finnskum mörkum. Þegar eru hafnar samningaum- leitanir um fyrirframsölu á salt- aðri sfld til Sovétríkjanna, en for- mlegar samningaviðræður hafa ekki enn hafist og liggur ekki ennþá fyrir hvenær Sovétmenn verða tilbúnir til þeirra viðræðna. í frétt frá Sfldarútvegsnefnd Nýliðastarf SVFI Slysavarnasveitin í Reykjavík er nú að hefja nýliðastarf vetrarins. Hefst það með kynningarfundi í húsnæði sveitarinnar, Gróubúð, Grandagarði 1 kl. 20 í kvöld, þriðjudag. Ávallt er tekið vel á móti nýliðum sem vilja taka þátt í slysavarnastarfi, en í fyrra var sveitin kölluð út 33 sinnum og at- hafnaði sig jafnt á sjó og landi. kemur fram að eins og á undan- förnum árum hafa sænskir og finnskir kaupendur nokkurn frest til að staðfesta endanlegt samn- ingsmagn en þó er búist við að það verði svipað og selt var með fyrirframsamningum á síðast- liðnu ári eða samtals 60 - 70 þús- und tunnur, miðað við sfldina hausskorna og slógdregna. En um er að ræða allmargar tegundir þar á meðal ýmsar tegundir af flakaðri sfld. Á undanförnum árum hefur tekist í vaxandi mæli að selja saltsfldina til Norðurlanda flak- aða, ýmist ferskflakaða á söltun- arstöðvunum eða flakaða eftir að Pósthúsið R-9 flytur í Mjódd Póstútibúið R-9 sem þjónar elsta hluta Breiðholtsins, þe. Bökkum og Stekkjum, hefur nú verið flutt af Arnarbakka 2 í nýtt húsnæði í Mjódd. Er heimilisfang útibúsins nú Þönglabakki 4 en það hús verður í framtíðinni skiptistöð SVR. í útibúinu verður veitt öll hún er fullverkuð. Aðdragandi þessara breytinga er þó orðinn alllangur, en vöruþróun þessi varð öll auðveldari eftir að til- raunastöð Sfldarútvegsnefndar tók til starfa fyrir 4 árum. Frá þeim tíma hafa um 55 þúsund tunnur af fullverkaðri sfld verið teknar þar til ýmiskonar flaka- vinnslu fyrir erlenda markaði, þar af 25 þúsund tunnur frá síð- ustu vertíð. Miðað við núverandi gengisskráningu er áætlað að út- flutningsverðmæti þeirrar sfldar sem unnin hefur verið á stöðinni frá byrjun, hafi aukist um 140 miljónir króna. -grh venjuleg þjónusta, þám. póstfax, forgangspóstur og sala símtækja. Pósthólfum verður fjölgað úr 308 í 420 og geta leigjendur haft að- gang að þeim frá 8-23 alla daga. Afgreiðslutími útibúsins verður hins vegar sá sami og fyrr, þe. frá 8.30-16.30 alla virka daga nema fimmtudaga, þá verður opið til kl. 18. Starfsmenn í útibúinu eru 26 og útibússtjóri Soffía Jóns- dóttir. Hlíf Svavarsdóttir nýbúin að fá Petrusjka verðlaunin í fyrra. (dag tekur hún við Bjartsýnisverð- launum Bröstes. Bjartsýnisverðlaun Hlíf fær verðlaun Bröstes Verðlaunin afhent í ráðhúsinu í Lyngby í dag Hlíf Svavarsdóttir listdans- stjóri Þjóðleikhússins tekur í dag við Bjartsýnisverðlaunum Bröst- es (Bröstes optimistpris). Verða verðlaunin, 30 þúsund krónur danskar, afhent í ráðhúsinu í Lyngby, Danmörku í dag. Verndari Bjartsýnisverðlaun- anna er frú Vigdís Finnbogadótt- ir og eru þau veitt íslendingi einu sinni á ári. Var fyrsta verðlauna- afhendingin árið 1981, en þá hlaut Garðar Cortes óperusöngv- ári Bjartsýnisverðlaunin. Verð- launahafi í fyrra var Einar Már Guðmundsson, en árinu áður Guðmundur Emilsson hljóm- sveitarstjóri. LG Erró og verkið, sem í framtíðinni mun prýða Borgarleikhúsið nýja. Myndir: Kristinn / Jim Smart. yrði fylgja gjöfinni af hálfu Errós, en hinsvegar fyrirheit um fleiri verk er fram líði stundir. Óhætt er að segja að Reykvík- ingar hafi verið gripnir Erróman- íu um helgina því þá sáu sýningu hans á sjötta þúsund manns. Á mánudagsmorguninn klukkan ellefu var sjötta þúsundinu náð og rúmlega það, og er það að- sóknarmet að sýningu á Kjarvals- stöðum yfir eina helgi. Ef svo heldur sem horfir slær Erró að- sóknarmet Picassos, en sýning- una á verkum hans að Kjarvals- stöðum sáu í allt 18 þúsund manns. Allar myndirnar á sýningunni eru seldar og var reyndar hluti þeirra seldur áður en sýningin var opnuð á laugardaginn. Meðal lukkulegra eigenda nýrrar mynd- ar eftir Erró er Borgarleikhúsið nýja, en sú mynd mun hafa verið pöntuð hjá Erró þegar hann sýndi hér síðast, árið 1985. LG Mjólkurdeilan Hætla á mjólkurskorti Hundruðum þúsunda lítra hellt niður Birgir Guðmundsson mjólkur- busstjóri Mjólkurbús flóa- manna segir að komi til tveggja daga verkfalls mjólkurfræðinga hjá búinu í dag og á morgun, verði fljótlega skortur á mjólk í Reykjavík, þar sem stærsti hluti mjólkur og ýmissa mjólkurvara komi frá Mjólkurbúi Flóamanna. Að sögn Birgis gæti þurft að hella niður miklu magni af mjólk. Mjólkurfræðingar funduðu í gær hjá ríkissáttasemjara. Vegna þess að engin yfirvinna hefur verið unnin í mjólkurbúinu undanfarna viku, hefur engin birgðasöfnun átt sér stað, að sögn Birgis. Hann sagði að strax í dag yrði skortur á mjólk á Selfossi. Ef framhald yrði á aðgerðum færi einnig að skorta skyr, jógúrt og aðrar sýrðar mjólkurvörur. En töluverður lager væri til af G- vörurri. Það kemur ekki til greina að mati Birgis að keyra mjólkina sem venjulega færi til mjólkur- búsins, eitthvað annað. Hann reiknaði með að mjólkurfræðing- ar myndu bindast samtökum um að taka ekki á móti henni. Þetta mál hefði ekki verið rætt við mjólkurfræðinga og hann vildi ekkert segja hvort það yrði gert. Ef mjólk yrði keyrð í önnur mjólkurbú yrði það gert eftir samkomulag við mjólkurfræð- inga. Ef kjaradeilu mjólkurfræðinga lýkur ekki eftir daginn á morgun og aðgerðir mjólkurfræðinga í Reykjavík á fimmtudag og föstu- dag ganga eftir, sagði Birgir að mjólk myndi safnast upp hjá Mjólkurbúi Flóamanna. Því magni yrði síðan erfitt að ná nið- ur vegna yfirvinnubannsins og þá gæti þurft að hella niður mjólk. Birgir sagði að nauðsynlegt gæti reynst að hella niður 2-4 hundruð þúsund lítrum. Venjulega færu um 7 hundruð þúsund lítrar í gegnum búið á viku. -hmp Lúðvík Geirsson Lúðvík Geirsson fer til Blaðamannafelagsins Lúðvík Geirsson hefur ákveðið að láta af störfum fréttastjóra Þjóðviljans og helga sig störfum fyrir Blaðamannafélag íslands, en hann er formaður þess. Mál hafa æxlast svo til, sagði Lúðvík í gær, að ég hefi verið í leyfi í allt sumar og sinnt ritstörf- um og ýmsum verkefnum fyrir Blaðamannafélagið. Ég hefi smám saman sogast sífellt meir inn í dagleg störf þar. Það er erfitt að sinna öllum áhugaverðum verkum samtímis og því hefi ég ákveðið að láta af störfum á Þjóð- viljanum og gefa mig meir að fé- lagslegu starfi fyrir Blaða- mannafélagið. Eftir tíu ára starf á Þjóðviljan- um get ég ekki kvatt blaðið nema með tölverðri eftirsjá, þar hefur mér liðið vel, og þrátt fyrir svipt- ingar á stundum veit ég að vand- fundinn er betri hópur samstarfs- manna en sá sem ég hefi fengið að starfa með þar. Ég óska blaðinu, starfsfélögum mínum og nýráðnum ritstjóra alls hins besta í framtíðinni sagði Lúðvík að lokum - og hafi hann sjálfur heila þökk fyrir prýðileg störf fyrir Þjóðviljann fyrr og síð- ar. áb 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. september 1989

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.