Þjóðviljinn - 26.09.1989, Blaðsíða 3
FRETTIR
Fjármagnsskatturinn
Enskukunnáttu
ábótavant
Eitthvað virðist enskukunnáttu
viðskiptaséníanna sem gefa út
vikuritið Vísbendingu vera áfátt.
í grein sem birtist í síðasta tölu-
blaði Vísbendingar og ber yfir-
skriftina „Skattar þar og hér“, er
m.a. fjallað skatta á fjármagns-
tekjur og birt með tafla úr tíma-
ritinu Financial Times sem hefur
verið þýdd á íslensku. í Financial
Times er taflan um staðgreiðslu
skatta á vaxtatekjur í Efnahags-
bandalagslöndunum, en sama
tafla er í Vísbendingu um Skatta á
vexti. Þarna er vitaskuld stór
munur á.
Yfirskrift töflunnar í Financial
Times 9. febrúar í ár er „Europe-
an Witholding Tax Regimes“, en
witholding tax þýðir stað-
greiðsluskattur. Hvað skatta af
fjármagnstekjum varðar þá er ís-
land eina landið innan OECD
sem ekki hefur verið með skatt af
vaxtatekjum.
Staksteinar Moggans voru
fljótir að hagnýta sér vankunn-
áttu viðskiptaséníanna og birtu
töfluna og greinina úr Vísbend-
ingu til að reyna að ná höggi á
stefnu ríkisstjórnarinnar, en eins-
og kunnugt er hefur nefnd nýlega
skilað frá sér tillögum um slíkan
skatt og fer það mjög fyrir brjóst
íhaldsins. Hvort misskilningur
inn í Vísbendingu var af van-
kunnáttu eða af ráðnum hug geta
menn svo velt fyrir sér.
,-Sáf
Alexej Kankov, Olga Makova og Alexander Abcanov segjast mikið
geta lært af starfsemi Æskulýðssambands (slands. Mynd: Jim Smart.
ii
n
ii
Æskulýðsstarf
Sovésk ungmenni
í heimsókn
Ungtfólk íSovétríkjunum bindur miklar von-
ir við perestrojku
Adögunum voru í heimsókn hér
á landi þrjú sovésk ungmenni
í boði Æskulýðssambands ís-
lands. Þetta voru þau Alcxander
Abcanov, ritari Moskvudeildar
Æskulýðssambands kommún-
ista, Alexej Kankov, starfsmaður
Sovéska æskulýðssambandsins og
Olga Makova, stúdent í fjármál-
aháskóla Moskvu. Þau segja
æskufólk Sovétríkjanna binda
miklar vonir við perestrojku Gor-
batsjofs, en fólk sé almennt farið
að gera sér grein fyrir að perest-
rojkan sé langtíma verkefni. Til-
gangur heimsóknar þremenning-
anna til íslands var að kynnast
starfsemi ÆSÍ og efla tengsl á
milli þjóðanna.
Á blaðamannafundi sem ÆSÍ
boðaði til vegna heimsóknar So-
vétmannanna, sögðust ung-
mennin hafa kynnst mörgu for -
vitnilegu í starfi ÆSÍ sem myndi
Lánskjör
Ný vísitala
Seðlabankinn hefur gefið út
lánskjaravísitölu sem gildir fyrir
októbermánuð. Er hún 2640 og
hefur hækkað um 2,17% frá sept-
embermánuði. Umreiknað til
árshækkunar hefur breytingin
verið þessi: í síðasta mánuði
29,3%, síðustu 3 mánuði 16,7%,
síðustu 6 mánuði 21,6% og síð-
ustu 12 mánuði 16,6%.
-ÞH
nýtast þeim heimafyrir. Fyrir
utan marga og forvitnilega fundi
með fulltrúum ÆSÍ, hefðu þau
kynnst í þessari ferð athygli-
sverðu landi, þjóð og sögu hér á
íslandi, sem kæmi að notum í
skilningi þeirra á fólkinu sem hér
byggi-
Þau sögðu að nú glímdi perest-
rojkan við nokkur meginvand-
amál í sovéskum þjóðarbúskap.
Pólitísk endurreisn væri á fullum
skriði, en í efnahagsmálum væru
miklir erfiðleikar fyrir og þar
gengju endurbætur hægar. Engu
að síður hefði grundvöllur perest-
rojkunnar verið lagður og ekki
yrði hægt að snú við til fyrri tíma í
Sovétríkjunum.
Það kom fram í máli þeirra að
ungt fólk byndi miklar vonir við
perestrojkuna. Um þessarmund-
ir væri erfitt að sjá hvort markmið
perestrojkunnar næðu öll fram
að ganga, en fólk væri í vaxandi
mæli farið að gera sér grein fyrir
því að perestrojkan væri langtím-
averkefni. Umbætur í efnahags-
lífinu gerðust ekki á einum degi.
Þá sögðust ungmennin telja að
ungt fólk notfærði sér aukið mál-
frelsi í kjölfar glasnost og fengi nú
meiri upplýsingar um sögu þjóð-
ar sinnar en áður, og væri forvitið
að vita hvað hefði gerst í fortíð-
inni. Glasnostið skilaði sér líka í
auknum upplýsingum um það
sem væri að gerast í Sovétríkjun-
um í dag.
-hmp
Allar götur síðan 1938 þegar
núverandi vinnulöggjör var
samþykkt sem lög frá Alþingi hef-
ur verið þegjandi samkomuiag á
milli aðila vinnumarkaðarins að
ekki verði hróflað við henni nema
með samþykki beggja aðila. A
þessum tíma hefur aðeins einu
sinni verið reynt að einhverju
marki að leggja fram tillögur til
breytinga á vinnulöggjöflnni og
það var árið 1976 þegar þáver-
andi félagsmálaráðherra dr.
Gunnar Thoroddsen lét semja
frumvarp til laga um stéttarfélög
og vinnudeilur sem ætlunin var
að leggja fram á Alþingi þá um
veturinn. En andstaða vcrka-
lýðsfélaga við frumvarpið varð
þess valdandi að það komst aldrei
á málaskrá þingsins og hefur ekk-
ert til þess spurst síðan.
Á þessum rúmlega fimmtíu
árum sem liðin eru frá setningu
laganna um stéttarfélög og vinnu-
deilur hafa þó annað slagið heyrst
þær raddir úr herbúðum atvinnu-
rekenda að brýnt sé að endur-
skoða lögin í takt við breyttan tíð-
aranda. Sérstaklega hafa þessar
raddir orðið háværar þegar fá-
mennir hópar launamanna hafa
beitt sér af hörku gegn viðsemj-
endum sínum og getað, ef til
verkfalls skyldi koma, stöðvað
eða lamað starfsemi stærri hópa
sem standa fyrir utan viðkomandi
Akall um helsi
vinnudeilu. Þessi hljóð úr her-
búðum atvinnurekenda hafa þó
aldrei verið nema í nösunum á
þeim því engar breytingar hafa
verið gerðar á vinnulöggjöfinni
og í dag er ekkert sem bendir til
að hróflað verði við henni þó svo
að formaður Vinnuveitendasam-
bands íslands telji þörf á því og
einnig Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra. Ástæðan er sú
hin sama og var árið 1976 að
hvorki Alþýðusamband íslands
né hin einstöku félög innan þess
vilja breytingar á núverandi vinn-
ulöggjöf, og þar við situr.
Aukin völd
til sátta
En hvað er það núna sem kallar
á endurskoðun vinnulöggjafar-
innar og hverju þarf að breyta að
mati Steingríms Hermannssonar
forsætisráðherra:
- Ég er þeirrar skoðunar að
tryggja þurfi betur en nú er að
hagsmunir heildarinnar ráði, en
ekki hagsmunir fámennra hópa
og að ríkissáttasemjari fái aukin
völd þannig að hann geti til dæm-
is frestað verkföllum þegar þann-
ig stendur á.
Aðspurður hvort endurskoðun
vinnulöggjafarinnar hafi komið
inná borð ríkisstjórnarinnar
sagði Steingrímur svo ekki vera,
heldur væri þetta sín persónulega
skoðun og búin að vera lengi. En
finnst forsætisráðherra vera
meira lag til breytinga nú en oft
áður?
- Það verður að vísu aldrei gert
nema með samþykki aðila vinn-
umarkaðarins og í samráði við
þá. Ef innan þeirra raða er mikil
andstaða við endurskoðun og
breeytingar á vinnulöggjöfinni
verður ekkert gert. En að hinu
leytinu finnst mér vera meira lag
til að gera breytingar á þessari
rúmlega fimmtíu ára löggjöf á
sama tíma og ríkisstjórnin telur
nauðsynlegt að gera stórtækar
kerfisbreytingar í peningamál-
um, landbúnaðarmálum og svo
framvegis, sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra.
Að mati F.inars Odds Krist-
jánssonar formanns Vinnu-
veitendasambands íslands hefur
öll umræða um vinnulöggjöfina
verið feimnismál hingað til og
tími til kominn að vekja athygli á
henni og þeim agnúum sem á lög-
unum eru í nútímaþjóðfélagi.
- Ég itef reynt að benda
mönnum á að allur þessi her -
kostnaður og sú mikia vinna við
samninga- og samningagerð hafi
skilað okkur litlu og þá sérstak-
lega til þeirra sem lægst hafa
launin. Þá er mér engin launung á
þeirri persónulegu skoðun minni
að völd verkalýðsfélaganna eru
rosalega dreifð og mundi heldur
kjósa að heildarsamtök þeirra
væru sterkari fyrir vikið. Engu að
síður er það staðreynd að við í
VSÍ munum aldrei hvetja til pó-
litískrar baráttu fyrir breytingum
á löggjöfinni í andstöðu við
samtök launamanna, sagði Einar
Oddur Kristjánsson formaður
VSÍ.
Ekki stóra málið
En hvað finnst Asmundi Stef-
ánssyni forseta Alþýðusambands
íslands um þessar raddir sem
í BRENNIDEPLI
koma uppá yfirborðið annað
slagið og vilja endurskoðun á
vinnulöggjöfinni? Telur hann
þörf á einhverjum breytingum frá
því sem nú er?
- Ég held tæplega að breyting-
ar eða endurskoðun á vinnu-
löggjöfinni sé stóra málið í dag.
Heppilegasta aðferðin við lausn
kjaradeilna er sú að viðkomandi
aðilar vinni saman á frjálsum
grundvelli eins og verið hefur.
Þessi umræða um breytingar eða
endurskoðun hefur komið
skringilega upp í gegnum tíðina
og yfirleitt þegar fámennir hópar
hafa beitt sér af hörku gegn við-
semjendum sínum. Hjá okkur í
ASI hefur tiltölulega lítið verið
um átök smáhópa og ofast nær
gengið vel að ná samstöðu um
niðurstöðu, sagði Ásmundur
Stefánsson forseti ASÍ.
Sömu skoðunar er Björn Grét-
ar Sveinsson formaður verkalýðs-
félagsins Jökuls á Höfn í Horna-
Tómt mál er að tala um
endurskoðun eða
breytingar á núverandi
vinnulöggjöfá meðan
ekki ersamstaða um það
á meðal aðila vinnu-
markaðarins. Þó er
greinilegur vilji meðal
forustumanna VSÍ að
skerða mannréttindi
launamannafrá þvísem
nú er
firði sem jafnframt á sæti í fram-
kvæmdastjórn Verkamannasam-
bands íslands. - Ég sé enga stóra
ástæðu til að breyta vinnulöggjöf-
inni. Hins vegar virðist mér
greinilegur vilji hjá forystu-
mönnum VSÍ að skerða mann-
réttindi launamanna frá því sem
nú er. í sjálfu sér skilur maður
sjónarmið þeirra í sínum
aumingjaskap þar sem þeir virð-
ast ekki valda starfi sínu, og eina
ráðið sem þeim dettur í hug er að
fá því framgengt að frelsi verka-
lýðsfélaga og launamanna verði
skert. En ákvörðunarrétturinn
verður áfram hjá hverju einstöku
verkalýðsfélagi og verður ekki
færður til neinna heildarsama-
taka launamanna. Við viljum
frjálsa verkalýðshreyfingu, en
ekki að hún sé í fjötrum sam-
kvæmt hugmyndum þeirra VSÍ-
manna, sagði Björn Grétar
Sveinsson.
Séu hugmyndir þeirra Stein-
gríms Hermannssonar forsætis-
ráðherra og Einars Odds Krist-
jánssonar formanns VSÍ bornar
saman við þær sem var að finna í
áðurnefndu frumvarpi dr. Gunn-
ars Thoroddsens frá árinu 1976
kemur í ljós að þeir eru sammála
því sem stóð í frumvarpinu að
auka völd forustu ASÍ og einnig
vald ríkissáttasemjara. Því til við-
bótar vildi dr. Gunnar skerða
verkfallsréttinn til muna frá því
sem er í núgildandi vinnulöggjöf.
Sextíu sólarhringa
frestur
Samkvæmt frumvarpi dr.
Gunnars Thoroddsens var gert
ráð fyrir því að sáttasemjari geti
frestað boðaðri vinnustöðvun í
allt að fimm sólarhringa telji
hann líkur á að samkomulag sé í
höfn. Óheimilt verði að semja
um skemmri uppsagnarfrest en
tvo mánuði í stað eins, og boðun-
arfrestur verkfalls verði lengdur
úr sjö sólarhringum í tíu. Þá átti
félagsmálaráðherra að fá vald til
að fresta verkfalli sem bundið var
við einn vinnustað eða fámennt
verkalýðsfélag sem ekki taldi
fleiri en hundrað félagsmenn í allt
að sextíu sólarhringa. Þó var það
tekið fram í frumvarpinu að ekki
megi beita þessu ákvæði nema
einu sinni í hverri vinnudeilu. Þá
mátti samkvæmt frumvarpinu
ekki hefja samúðarvinnustöðvun
fyrr en fnimvinnustöðvunin hefði
staðið í fjórtán sólarhringa.
-grh
ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3