Þjóðviljinn - 02.11.1989, Side 2
FRETTIR
Jarðgöng
Múlagöng tilbúin að árí
Verktakar í Ólafsfjarðarmúla búast við að verða komnir í
gegn í byrjun mars. Göngin verða tilbúin nœsta haust
Ríkisendurskoðun
Röng
endur-
skoðun
Petta hefur gengið nokkurn
veginn eftir áætlun, sagði
Björn Harðarson staðarverk-
Tónleikar
Hamflett
klósett-
skrímsli
Smekkleysukvöld í
Keisaranum
I kvöid halda hljómsveitirnar
Ham og Bootlegs tónleika í kjall-
ara Keisarans. Tónleikarnir eru
eitt af alræmdum Smekkleysu-
kvöldum og eru haldir í tilefni
þess að Bootlegs hefur nýlega sent
frá sér sína fyrstu plötu, Klósett-
skrímslin, en hljómsveitin hefur
lagt lag sitt við svo kallað „speed
metal“, eða hratt þungarokk.
Ham er nýkomin úr tónleikaferð
með Sykurmolunum um Bret-
landseyjar.
Ham hefur einnig nýlega sent
frá sér sína fyrstu breiðskífu,
„Buffalo Virgin“, og hefur af-
kvæmið fengið góða dóma í
bresku popppressunni að sögn
Smekkleysu. NME gaf plötunni 8
stig af 10 mögulegum og Sounds
gaf henni 4 stig af 5 mögulegum.
Útgáfa sveitarinnar á gamla
Abbalaginu „Voulez Vous“, er
það lag sem greiðastan aðgang
hefur átt að eyrum skríbenta.
Aðgangur að tónleikunum er
krónur 650.
-hmp
fræðingur Vegagerðar ríkisins á
Ólafsfirði en hann hefur umsjón
með gerð jarðganganna í gegnum
Ólafsfjarðarmúlann.
Alls verða göngin 3.140 metrar
að lengd en nú er búið að bora
2.400 metra, þar af 300 Dalvíkur-
megin. „Verktakinn telur sig
verða kominn í gegn í byrjun
mars, en þá er heljarmikið verk
eftir við frágang," sagði Björn.
Hann sagði að bergið í Múlan-
um hefði reynst auðvelt viður-
eignar nema hvað það var heldur
laust í sér fyrstu metrana Dalvík-
urmegin. Það skánaði þó þegar
innar dró og hefur verið svipað og
menn áttu von á.
Ólafsfjarðarmegin er búið að
steypa forskála ganganna en það
er eftir Dalvíkurmegin. Stefnt er
að því að ljúka vegagerð að göng-
unum næsta sumar en öllu verk-
inu lýkur væntanlega í október
eða nóvember að ári.
Að sögn Björns vinna um 50
manns við jarðgangagerðina þeg-
ar mest er en yfir veturinn eru
þeir aðeins 25-30. Að undan-
förnu hefur verið unnið á þrí-
skiptum vöktum allan sólarhring-
inn aðra hvora viku en í vetur
verður heldur hægt á fram-
kvæmdum enda verkið frekar á
undan áætlun en eftir.
Yfirverktaki við göngin er fyr-
irtækið Krafttak sem er sameign
norska fyrirtækisins Aker og Ell-
erts Skúlasonar í Njarðvíkum.
Ellert er svo sjálfur í vegagerð-
inni en Fjölnismenn á Akureyri
sjá um vegskálana. Jarðganga-
gerðin hefur skapað nokkra
vinnu á Ólafsfirði þar sem heima-
menn reka steypustöð auk þess
sem iðnaðarmenn hafa fengið
verkefni við göngin. -ÞH
Þaö var heldur kaldranalegt um að litast við munna jarðgangnanna
Dalvíkurmegin þegar blaðamaður Þjóðviljans var þar á ferð á dögun-
um. Við blasti kolsvart gímald og grýlukertin voru ógnandi. Eins og sjá
má á eftir að gera forskála og leggja veg að munnanum en hann er þar
sem vegurinn fyrir Múlann sækir á brattann. Mynd: -ÞH.
Iðntæknistofnun hefur gert at-
hugasemdir vegna skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um rekstur stofn-
unarinnar en Ríkisendurskoðun
segir Iðntæknistofnun hafa farið
85,3 miljónir fram úr fjárlögum
árið 1988. Þetta segir Iðntækni-
stofnun að sé rangt. Bent er á að
tekjur Iðntæknistofnunar séu
annars vegar sértekjur sem aflað
sé með sölu á þjónustu til atvinnu-
lífsins og hins vegar ríkisframlag.
í fjárlögum fyrir 1988 hafi verið
gert ráð fyrir að stofnunin fengi
65 miljónir króna í ríkisframlag.
Þetta hafi þýtt verulegan niður-
skurð miðað við árin á undan.
Þá sagði í tilkynningu frá Iðn-
tæknistofnun að í fjárlögum árs-
ins í ár hefði komið fram að fjár-
veiting til stofnunarinnar hefði
verið vanáætluð 1988. Enda hefði
18 miljóna leiðrétting komið
1988 og fjárveiting þess árs því
hækkað í 83 miljónir króna. Sért-
ekjur hefðu verið 101,3 miljónir
og heildartekjur því 184,3 milj-
ónir. Rekstargjöld voru 186,6
miljónir samkvæmt tilkynningu
Iðntæknistofnunar, eða 2,3 milj-
ónir umfram tekjur.
í skýrslu Ríkisendurskoðunar
segir að heildargjöld til stofnun-
arinnar hafi verið 85,3 miljónir
umfram fjárlög eða 31%. Þetta
segir Iðntæknistofnun að sé
rangt. Hið rétta sé að um áramót
1988-1989 hefði skuld stofnunar-
innar við ríkissjóð numið 7,7
miljónum króna, eða 9,25% af
fjárveitingu. Þessi skuld hafi þeg-
ar verið gerð upp.
-hmp
991000
Símaþjónusta Miðlunar og Pósts og síma gekkst fyrir samkeppni um
nafn á sameiginlegan rekstur á upplýsingasímunum 991000-991005, en
fram til þessa hefur þjónustan gengið undir nafninu 991000 eftir upp-
kallsnúmerinu. Ýmsar tillögur bárust m.a. símvarp, gróa, alvitur, ari
fróði og bella símamær. Einnig bárust tillögur um að þjónustan bæri
áfram heitið 991000 og var ákveðið að taka þann kost og dregið úr
tillögum þess efnis. Upp kom nafn Júlíusar Baldurssonar, Alftamýri 30
í Reykjavík og hlaut hann í verðlaun ferð fyrir tvo til Lundúna með
gistingu á úrvalshóteli. Á myndinni sést Júlíus taka við vinningnum.
SJÁYAR STUNDASKRÁ
Sjávarstundaskrá
Samvinnubankinn hefur látið
gera stundaskrá fyrir skólanem-
endur iandsins og er hún hlaðin
upplýsingum um nytjafiska ís-
lendinga og fiskimiðin í kringum
landið. Við ísland hafa aðeins
fundist 207 fisktegundir af um 20
þúsund tegundum sem þekktar
eru í heiminum og af þeim teljast
aðeins um 30 til nytjafiska. Það er
norski teiknarinn Rolf Sörby sem
hefur myndskreytt stundaskrána.
Almanak
Háskólans 1990
Út er komið Almanak Háskólans
fyrir árið 1990. Þetta er 154. ár-
gangur ritsins en það hefur komið
út samfellt síðan árið 1837. Dr.
Þorsteinn Sæmundsson stjarn-
fræðingur hefur reiknað alman-
akið og búið það til prentunar.
Ritið er 96 síður að stærð en auk
dagatals með upplýsingum um
flóð og gang himintungla flytur
almanakið margvíslegan fróðleik
s.s. yfirlit um hnetti himingeims-
ins, mælieiningar, skrá um veður-
met og töflu sem sýnir sólarátt og
sólarhæð á mismunandi tímum.
Þá er þar að finna stjörnukort,
kort sem sýnir áttavitastefnur á
ísiandi og kort sem sýnir hvað
klukkan er hvar sem er á jörð-
inni, ásamt yfirliti sem lýsir þeim
fjölbreyttu reglum sem gilda um
sumartíma. Háskólinn annast
sölu almanaksins og dreifingu
þess til bóksala. Almanakið kem-
ur út í 7500 eintökum en auk þess
eru prentuð 2500 eintök sem
Þjóðvinafélagið gefur út sem
hluta af sínu almanaki með leyfi
Háskólans.
Hvöt mótmælir
Félagsfundur í Hvöt, félagi
Sjálfstæðiskvenna í Reykjavík,
mótmælir þeim hugmyndum fé-
lagsmálaráðherra að flytja dag-
vistarheimili undir félagsmála-
ráðuneytið.
Verðlækkun
á lambakjöti
í gær gekk í gildi verðlækkun á
lambakjöti frá haustinu 1988 en
sú verðlækkun kemur í kjölfar á-
kvörðunar ríkisstjórnarinnar um
að veita fé til verðlækkunar á
þessu kjöti. Verður verðlækkun-
in í gildi út nóvembermánuð. Hér
er um að ræða lækkun frá 5 til
16%. Hér er um að ræða kjöt í
úrvalsflokkum og verður það ein-
göngu boðið í hálfum skrokkum
og snyrt á sama hátt og í sumar en
með nýrri niðurhlutun. í pokun-
um verður súpukjöt, hálfur
hryggur, grillrif og læri í heilu. Þá
er einnig annað kjöt á boðstólum
sem selt verður til verslana.
Heildarkostnaður ríkissjóðs
vegna þessa getur numið allt að
40,5 miljónum króna.
Herlúðrasveit
í Kringlunni
Lúðrasveit konunglega breska
landgönguliðsins undir stjórn
Peter Rutterford liðsforingja
mun leika í Kringlunni í dag frá
kl. 17-18.15.
Kaupmáttur
verði tryggður
Fundur BSRB félaga á ísafirði
sem haldinn var á þriðjudag á-
lyktaði einróma að kaupmáttur
almenns launafólks yrði aukinn
og tryggður. „Ekki verður lengur
unað við, að kreppu þjóðfélags-
ins, raunverulegn og tilbúinni
verði velt yfir á almennt launa-
fólk. Fundurinn krefst þess að
innan hverrar stofnunar verði
greidd sömu laun fyrir sömu
vinnu óháð stéttarfélagi,“ segir
einnig í ályktuninni.
Linda Pétursdóttir með Sony
myndbandstæki.
Flugleiðir fá
viðurkenningu
Sony fyrirtækið hefur veitt Flug-
leiðum sérstaka viðurkenningu
fyrir þjónustu um borð í flugvél-
um félagsins á sérstakri sýningu
sem ætluð er fyrirtækjum í frí-
hafnarþjónustu, í Cannes í
Frakklandi. Fyrirtækið hlýtur
þessa viðurkenningu fyrir sér-
staklega vel heppnaða notkun á
Sony GV 8 myndbandstækjum
um borð í flugvélum á Norður-
Atlantshafsleiðum. Þetta er í
fyrsta skipti semj þessi viður-
kenning er veitt.
‘2 SÍÐA - ÞJÓÐVJLJINN Fimmtudagur 2. nóvember 1989