Þjóðviljinn - 02.11.1989, Side 9
Árni Árnason höfundur Óvæntrar heimsóknar. Anna Cynthia Leplar höfundur mynda.
Nýr höfundur
Óvænt heimsókn
HEIMSOKN
Árni Árnason
Nýtt útgáfufyrirtæki, Barnabókaútgáfan, gefur út œvintýrið Óvœnt
heimsókn eftir Arna Arnason, myndskreytt af Önnu Cynthiu Leplar
etta er aevintýri fyrir krakka á
aldrinum 7-12 ára en auk þess
ættu allir aðrir sem varðveita
barnið í sér að geta haft gaman af
þessari bók, sagði Árni Árnason
um bókina Ovænt heimsókn, sem
hann hefur samið í samvinnu við
myndlistarmanninn Önnu Cynt-
hiu Leplar.
Auk þess sem Árni semur text-
ann hefur hann jafnframt forræði
Barnabókaútgáfunni, en það er
nýtt útgáfufyrirtæki sem mun sér-
hæfa sig í útgáfu og gerð bóka
handa börnum.
Árni þekkir vel til útgáfu
barnabóka því hann hefur um-
Myndbandsupptökuvél
til sölu. Sony handy cam. m/
fylgihlutum í tösku. Vel með farin.
Verðhugmynd 65.000.-. Uppl. í síma
621859 eftir kl. 17.00 virka daga.
Til sölu
tveir pelsjakkar, tvær svampdýnur,
alveg nýtt litasjónvarp, símaborð
með tveim stólum, gylltir kertastjakar
á vegg, mjög falleg ný kápa og stórt
veggteppi á blindramma. Sími
34931.
Hreingerningar
Við erum tvær skólastelpur og tökum
að okkur að þrífa í heimahúsum.
Erum vanar og vandvirkar. Uppl. í
síma 36718, Sara eða 35206, Hrafn-
hildur.
Tapast hefur
vínrautt Iðnaðarbankaveski með skil-
ríkjum. Finnandi vinsamlegast hringi í
Björgu í síma 82345, fundarlaun.
Sjominjar
Áttu sjóminjar eða veistu um minjar
sem tengjast sögu sjávarútvegs á Is-
landi? Sjóminjasafn Islands tekur á
móti öllum slíkum munum, gömlum
og nýjum til varðveislu. Hafið sam-
bandísíma 91-52502 ámilli kl. 14-18
alla daga. - Sjóminjasafn íslands.
f Kolaportinu
geta allir selt nánast hvað sem er.
Pantið sölubása í símum 621170 (kl.
16-18) og 687063 (á kvöldin). Útveg-
um afgreiðslufólk ef óskað er. Selj-
endur notaðra muna fá núna sölu-
bása á aðeins kr. 1.500. Kolaportið
- alltaf á laugardögum.
Til sölu
vél, gírkassi, drif og öxlar í Suzuki ’81.
Uppl. í síma 84006.
sjón með slíkri útgáfu hjá Náms-
gagnastofnun. Þá hefur hann
skrifað tvær bækur fyrir börn sem
eru að læra lestur.
Óvænt heimsókn greinir frá því
hvernig hallarbúar í Skugga-
björgum hrökkva upp við það að
Hugi kóngssonur hefur horfið á
dularfullan hátt. Frá örófi alda
hafa þeir búið um sig innan múra
hallarinnar í þeim tilgangi að
verjast hugsanlegum óvinum.
Sagan fjallar um leitina að Huga
og hvað gerist þegar brotist er úr
einangruninni, en umfram allt er
þetta saga Huga og hvernig gerð-
ir hans verða til þess að koma
Til sölu
ísskápur, Husquarna, tvískiptur, 165
cm á hæð, nýyfirfarinn. Verð kr.
15.000. Einnig stofugardínur, verð kr.
5.000. Uppl. í síma 34879.
Eldavél
Noti'ð eldavél til sölu, breidd 70 cm, 4
hellur, 2 bakarofnar. Verð ca. 10.000.
Uppl. í síma 34252 eftir kl. 17.00.
Grátt filtteppi ókeypis
60 fm af gráu filtteppi ásamt svamp-
undirlagi fæst gefins gegn því að vera
sótt. Uppl. í síma 29402 eða 33422
eftir kl. 18.00.
Vetrardekk óskast
Negld vetrardekk undir Lödu, helst á
felgum, óskast. Uppl. í síma 75042
seinnipart dags.
Tvöföld hurð
Vill einhver losna við tvöfalda hurð
(vængjahurð - franska hurð)? Ef svo
er hef ég áhuga á að kaupa slíka.
Uppl. í síma 21764 eftir kl. 17.00.
Vill einhver bjarga
köttunum mínum?
Eins og tveggja ára læður, fallegarog
vel vandar, teknar úr sambandi,
verða að fara vegna brottflutnings.
Uppl. í síma 25958 og 11017 á kvöld-
in.
VIII elnhver þiggja
notaðan svefnbekk
með rúmfatageymslu undir? Ef svo
er þá hafið samband í síma 681333.
Til sölu hjónarúm
svart járnrúm með rimlagöflum. Anna
Karen, sími 685762.
Tll sölu
Sem ný „tweed“kápa nr. 40-42. Verð
kr. 4.000. Sími 46117.
ráðamönnum ríkisins í samband
við annað fólk.
Vandaðar litmyndir Önnu
Cynthiu Leplar prýða hverja
opnu bókarinnar en hún starfaði
sem myndmenntakennari til
skamms tíma. Þá hefur hún áður
fengist við myndskreytingar á
bókum m.a. fyrir Mál og menn-
ingu og fyrir Námsgagnastofnun.
Samvinna þeirra Árna og
Önnu við að ganga frá bókinni í
endanlegri mynd var mjög náin.
Fyrst gekk Árni frá handriti að
bókinni sem hún hafði svo frjáls-
ar hendur með að myndskreyta.
Hún kom svo með sínar tillögur
Vetrardekk til sölu
Fjögur 15 tommu vetrardekk
(Volkswagen/Saab). Uppl. í síma
681748.
MC Colt '81
Til sölu í góðu standi. Ekinn 89 þús.
km. Verð 110 þús. staðgreitt. Sími
77136.
Pennavinir um vtða veröld
Miss Dorothy Ani Abban 25 ára
R NO D 56/3 Coronation st. 983
Cape district
Ghana - W-Africa
Miss Joyce Norrison 24 ára
P. O. Box 117
Oguaa c/r Ghana
Mr. Harbo
P. O. Box 820
Rancho Cordova
California 95741 USA
Miss Susanne Hofbauer 23 ára
Am Lindenberg 15
D- 8783 Hammelburg
West-Germany
Mr. Philip N. Sirnmons
338 Village Baxter
Baxter, Victoria
Australia 3911
Rehiodi Rafik Chaz Zerarka Mo-
hamed 20 ára
21 Rue azah Sid-ahmed
Birkhadem 16330
Algeries (Alsír)
Annegret May
Rekheide 36
4504 S M Hulte
V-Þýskalandi
Annegret er 39 ára kennari með mörg
áhugamál.
Miss Masako, Ikeda
164-8 Kamekuma
Makabe-Machi
Ibaraki, 300-44
Japan.
Ikeda er 28 ára með áhuga á rokki,
tölvuleikjum, matseld og frímerkja-
söfnun.
og var þá textinn lagaður að
þeim.
„Við reyndum að láta texta og
myndir vinna sem nánast saman
til þess að heildarmyndin næði
sem best til lesenda," sagði Árni.
En hvað er Barnabókaútgáf-
an?
„Barnabókaútgáfan ætlar ein-
göngu að einbeita sér að því að
gefa út bækur fyrir börn. Barna-
bækur krefjast sérstakrar fram-
setningar og þær verða að vera
vandaðar svo þær þjóni tilgangi
sínum sem best. Aldurshóparnir
eru mjög ólíkir að þroska og því
verður að skoða hvern hóp út af
fyrir sig og bæði höfundur og
myndlistarmaður verða að taka
mið af þroska hópsins þegar þeir
vinna verkið. Útgáfufyrirtæki
sem starfar bara á þessu sviði ætti
að geta náð meiri árangri en aðr-
ir.
Þetta er enginn dómur yfir
þeirri útgáfu sem stunduð hefur
verið hér fyrir börn. Þar hefur oft
tekist vel til og margar yndislegar
barnabækur litið dagsins ljós.
Mér hefur reyndar fundist að ís-
lensk útgáfufyrirtæki hefðu mátt
hafa meira frumkvæði að vinnslu
alíslenskra barnabóka í stað þess
að þýða erlendar barnabækur,
þótt það sé einnig góðra gjalda
vert. En það er tímafrekt að setja
saman barnabók og því skiljan-
legt að útgáfur sem leggja áherslu
á að sinna öllum láti slíkt kannski
sitja á hakanum. Tilgangurinn
með Barnabókaútgáfunni er að
gera útgáfu fyrir börn markviss-
ari,“ sagði Árni Árnason.
-Sáf
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Spilakvöld
Spilakvöld veröur í Þinghól Hamraborg 11 mánudaginn 6. nóv-
ember klukkan 20.30.
Allir velkomnir. Stjórnin
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Reykjanesi
verður haldinn laugardaginn 11.nóvemberkl. 13íGaflinum Hafn-
arfirði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ný stjórn kjörin.
3. Fulltrúar á landsfund kjörnir.
4. Magnús Jón Árnason bæjarfulltrúi í Hafnarfirði ræðir um
sveitarstjórnarmál og samstarf við Alþýðuflokkinn í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar.
Ólafur Ragnar Grímsson formaður flokksins og Geir Gunnars-
son alþingismaður mæta á fundinn og gefst fundarmönnum tæki-
færi til að ræða stjórnmálaviðhorfið á komandi vetri.
Stefnt er að því að fundi verði lokið kl. 18.00.
Kl. 20.00 er kvöldverður og kvöldvaka. Félagar sýna á sér hina
hliðina. Einar Guðmundsson leikur undir borðhaldi og Heimir
Pálsson syngur. Leynilögreglan kemur á staðinn. Veislustjóri er
Lúðvík Geirsson formaður Blaðamannafélagsins.
Skyndihappdrætti Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi.
Dregin verður út utanlandsferð að eigin vali fyrir 50 þúsund krón-
ur, auk margra annarra góðra vinninga.
Allir félagar í Alþýðubandalaginu og gestir þeirra eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Stjórnin
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin
Undirbúningur undir landsfund
Undirbúningsfundur undir landsfund Alþýðubandalagsins verður
haldinn á Hverfisgötu 105 fimmtudagskvöldið 2. nóvember kl.
20.30.
Landsfundarfulltrúar eru sérstaklega hvattir til þess að mæta.
Stjórnln
FLÓAMARKAÐURINN
SMÁAUGLÝSINGAR