Þjóðviljinn - 07.11.1989, Síða 6
ERLENDAR FRETTIR
Grikklandskosningar
Sósíalistar unnu á
Erfitt verður að mynda stjórn. Hugsanlegt að kosið verði til þings í
Þegar þorri atkvæða hafði ver-
ið talinn eftir þingkosning-
arnar í Grikklandi, sem fram
fóru á sunnudag, voru allar líkur
á því að hinn íhaldssami Nýi lýð -
ræðisflokkur fengi rúmlega 46 af
hundraði atkvæða og 148 þing-
menn kjörna. Eru þetta veruleg
vonbrigði fyrir flokkinn, sem lagt
hafði allt kapp á að ná hreinum
meirihluta á þingi, þar sem 300
fulltrúar eiga sæti.
Panhellenska sósíalistahreyf-
ingin, eins og sósíalistaflokkur
landsins heitir, sem fékk tæplega
41 af hundraði greiddra atkvæða
og 128 þingsæti, er hinsvegar hin
hressasta með útkomuna, enda
hefur flokkurinn heldur unnið á
frá því í júní s.l., er hann hraktist
frá völdum eftir að hafa farið með
stjórn í átta ár. Þriðji stærsti
flokkurinn, vinstrisinnað banda-
lag þar sem kommúnistar eru
helsti aðilinn, tapaði verulega frá
júníkosningunum, fékk tæplega
11 af hundraði atkvæða og 21
þingsæti, eða sjö færri en í júní.
Eru þá eftir þrjú þingsæti og er
líklegt að þau fái óháður vinstri-
sinni, umhverfisverndarsinni og
múslími.
Heildarútkoman boðar ekkert
gott fyrir stöðugleikann í grískum
stjórnmálum á næstunni. Eftir
júníkosningarnar, er sósíalistar
þriðja sinn á árinu
misstu þingmeirihluta, mynduðu
íhaldsmenn og kommúnistar
samsteypustjórn. Þótti það stór-
tíðindum sæta, því að hér bræddu
sig saman aðilar sem þangað til
höfðu verið svarnir fjandmenn.
Markmið þeirrar stjórnar var það
eitt að draga sex fyrrverandi sósí-
alistaráðherra, þeirra á meðal
Andreas Papandreú, leiðtoga
sósíalistaflokksins og forsætis-
ráðherra alla stjórnartíð hans,
fyrir lög og dóm út af ákærum um
fjárdrátt og símahleranir. Ekki er
búist við að réttarhöld út af þessu
hefjist á árinu.
Talið er að tap kommúnista
stafi af óánægju margra í röðum
stuðningsmanna þeirra með
stjórnarsamvinnu þeirra við
íhaldsmenn, og því er ekki víst að
kommúnistar fáist til að vera í
stjórn með þeim lengur. Papand-
reú biður kommúnista nú ákaft
að koma í stjórn með sér, en þeir
höfðu áður svarið að vinna aldrei
með sósíalistum meðan Papand-
reú stýrði flokki þeirra. Ekki
nægir Papandreú heldur að hafa
kommúnista með sér. Til þess að
fá þingmeirihluta fyrir stjórn sína
yrði hann aukheldur að ná á sitt
band tveimur óháðu þingmann-
anna. Þessir þrír hafa þannig
verulega aðstöðu til áhrifa í sam-
bandi við stjórnarmyndun. Ekki
er vitað hvort Konstantín Mitso-
takis, leiðtogi íhaldsmanna, hef-
ur einhverja möguleika á að fá þá
í lið með sér, en honum veitti
ekki af þeim öllum til að geta
myndað stjórn, ef kommúnistar
vilja ekki halda áfram með hon-
um.
Það næsta verður að leiðtogar
flokkanna þriggja reyna hver af
öðrum að mynda samsteypu-
stjórn. Mistakist þeim öllum,
verður að kjósa enn á ný, og er
hugsanlegt að til þess komi fyrir
áramót.
Reuter/-dþ.
Papandreú - hinn kátasti eftir úrslitin og biðlar til kommúnista um
stjórnarsamvinnu.
A ustur-Þýskaland
Mælt með afsögn
stjómmálaraðs
Hömlum á ferðafrelsi aflétt fyrir áramót
Hneyksli í Bandaríkjaher
Felldi 600 - svikinn
um heiðursmerid
Á að hafa verið sniðgenginn vegna þess að
hann var gyðingur
Bandaríska blaðið New York
Times skýrði frá því á sunnu-
dag að þjá landhernum væri nú til
athugunar hvort stríðshetja úr
heimsstyrjöldinni síðari, David
Rubitsky, hefði verið svikinn um
heiðursmerki vegna þess að hann
var gyðingur. Heiðursmerkið
sem hér um ræðir er Medai of
Honor, það æðsta sem Banda-
ríkjaþing veitir fyrir frammi-
stöðu á vígvelli. Að sögn Rubit-
skys, sem nú er 72 ára að aldri og
var eftir að stríðinu lauk sjómað-
ur á kaupskipum, barðist hann
einn við heilan her Japana í frum->
skógum Nýju Gíneu í des. 1942 og
felli af þeim um 600 manns.
Rubitsky skýrði svo frá í út-
varpsviðtali nýverið að bardagi
þessi hafi átt sér stað nálægt bæn-
um Buna á norðausturströnd
Nýju Gíneu. Flótti brast í bata-
ljón þá í Bandaríkjaher, sem Ru-
bitsky tilheyrði, en hann fór öfugt
að, eins og Sveinn Dúfa forðum,
og hélt uppi vörn áfram vopnaður
vélbyssu og tveimur rifflum.
Segir hann Japani hafa ætt að sér í
hverri röðinni af annarri gegnum
lággróður skógarins, en hann
hefði beðið uns þeir voru í 10-13
metra fjarlægð frá honum og’
skotið þá svo ört sem hann mátti,
jafnframt því sem hann var á
hreyfingu svo að Japanir skyldu
halda að hann væri ekki einn.
Rubitsky og stuðningsmenn
hans hafa lagt fram handskrifað
bréf frá japönskum herforingja
sem segist í bréfinu hafa ákveðið
að svipta sig lífi vegna mistaka
sinna í bardaganum, en í honum
hefðu 600 góðir japanskir her-
menn fallið fyrir einum banda-
rískum hermanni. New York
Times vitnar í herforingja, sem
segist hafa heyrt John Mott of-
ursta, yfirmann Rubitskys, segja
hlæjandi er stungið var upp á að
Rubitsky fengi áminnst heiðurs-
merki: „Eigið þið við að gyðingur
fái heiðursmedalíu þingsins?
Hans-Joachim Hoffmann,
menningarmálaráðherra
Austur-Þýskalands, hefur lagt til
að allt hið 18 manna stjórn-
málaráð kommúnistaflokks
landsins segi af sér, að sögn ADN-
fréttastofunnar á sunnudag. Lét
Hoffmann þetta í Ijós á fundi með
fulltrúum kirkna og kennurum f
Leipzig.
Hoffmann kvað þessa ráðstöf-
un nauðsynlega til þess að Egon
Krenz, hinn nýkjömi leiðtogi
kommúnistaflokks og ríkis, fengi
nægilegt olnbogarými fyrir um-
bótastarfsemi. Ef alvara yrði úr
þessu, ætti það sér ekkert for-
dæmi í sögu ríkja undir stjórn
kommúnista.
Austurþýska innanríkisráðu-
neytið tilkynnti á sunnudags-
kvöld að ákveðið hefði verið að
nema úr gildi að mestu hömlur á
ferðalög Austur-Þjóðverja utan.
Samkvæmt nýjum reglum um
þetta, sem taka myndu gildi fyrir
áramót, yrði öllum austurþýsk-
um ríkisborgurum heimilt að fá
vegabréf og vegabréfsáritun til
utanlandsferðar innan 30 daga
frá umsókn. Ekkert lát er ennþá á
fólksstreyminu úr landi til
Vestur-Þýskalands. Yfir 18,000
Austur-Þjóðverjar fóru þangað
um helgina eftir að stjórnvöld
þeirra höfðu heimilað þeim
brottför í gegnum Tékkóslóvak-
íu. Það sem af er árinu hafa yfír
180,000 Austur-Þjóðverjar flust
eða flúið til Vestur-Þýskalands.
Reuter/-dþ.
Vestursæknir Austur-Þjóðverjar við vesturþýska sendiráðið í Prag -
18,000 fóru vesturyfir um helgina.
Eþíópía
Tígremenn sækja
inn í Shoa
Sumir vegir eru
þannig að mætingar
eru mjög varasamar og
framúrakstur kemur
vart til greina.
tfUMFERÐAR
RÁÐ
Utvarp Alþýðufrelsisfylkingar
Tígre (TPLF) skýrði svo frá á
sunnudag að hersveitir hennar
hefðu unnið héraðið Mehal Meda
í fylkinu Shoa, sem er miðsvæðis í
Eþíópíu. í Shoa er höfuðborgin
Addis Ababa og aðalbyggðir Am-
hara, þjóðar þeirrar er mestu
ræður í landinu.
Ef hér er sagt frá með sanni
hafa Tígremenn nú að líkindum á
valdi sínu mestan hluta fylkisins
Wollo, sem er norðaustanvert í
landinu á milli Shoa og Tígre.
Friðarviðræður voru teknar upp í
Róm í lok s.l. viku milli TPLF og
Eþíópíustjómar, fyrir milligöngu
ítölsku stjórnarinnar. Krefst
TPLF þess að mynduð verði
bráðabirgðastjórn með aðild
allra helstu stjórnmálaafla Eþí-
ópíu og semji hún landinu nýja
stjórnarskrá. Tígremenn, sem
eru í bandalagi við aðra upp-
reisnarhreyfingu minni, Eþí-
ópsku alþýðulýðræðishreyfing-
una, ráku Eþíópíuher úr Tígre í
febrúar og hófu í ágúst sókn
suður í fylkin Wollo og Gondar.
6 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Þriðjudagur 7. nóvember 1989
Heimild um þjóðaratkvæðagreiðslu samþykkt
Æðstaráðið í Litháen samþykkti á föstudag tillögu sem heimilar að
fram fari í landinu þjóðaraticvæðagreiðsla um hvort Litháen verði
sjálfstætt. Sajudis, hin öfluga grasrótarhreyfing þarlendis, segist hins-
vegar vera mótfallin því að þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta fari fram á
næstunni. Af hálfu stjórnar annars sovétlýðveldis, Georgíu, hefur því
verið lýst yfir að til greina koma að hliðstæð heimild um þjóðarat-
kvæðagreiðslu verði felld inn í stjómarskrá lýðveldisins.
Líbanon hefur forseta
Líbanonsþing kaus um helgina Rene Muawad, Maroníta hlynntan
Sýrlendingum, forseta landsins í framhaldi af gerð friðarsamnings
kristinna og íslamskra landsmanna. Michel Aoun, herstjóri kristinna,
og stuðningsmenn hans, sem telja samninginn of hagstæðan Sýrlend-
ingum, brugðust illa við kosningunni og kalla Muawad lepp Sýrlands-
stjórnar. Nasrallah Butros Sfeir, patríarki maronítakirkjunnar, er
flúinn yfír á sýrlenska hemámssvæðið eftir að fylgismenn Aouns höfðu
vaðið inn á hann og neytt hann til að kyssa mynd af Aoun. Patríarkinn
hafði lýst yfir stuðningi við friðarsamning og forsetakosningu.
Thatcher kölluð ósannindamanneskja
Breska blaðið Independent hélt því fram á sunnudag að Margaret
Thatcher, forsætisráðherra, hefði sagt ósatt um mikið umtalaða afsögn
Nigels Lawson úr embætti fjármálaráðherra. Lawson segist hafa tekið
skýrt fram við hana að ástæðan til afsagnarinnar hefði verið óþolandi
afskiptasemi Sir Alans Walters, helsta ráðgjafa forsætisráðherra um
efnahagsmál. En í sjónvarpsviðtali fyrir nokkm sagðist Thatcher ekki
vita hvort Lawson hefði orðið kyrr á ráðherrastóli ef hún hefði vikið
Walters frá. Independent telur að ósannindi þessi verði henni til
óbætanlegs álitshnekkis. Talið er að Thatcher eigi nú í meiri pólitísk-
um erfiðleikum en nokkm sinni fyrr á þeim tug ára er hún hefur verið
við völd.