Þjóðviljinn - 28.11.1989, Síða 1
Þriðjudagur 28. nóvember 1989 203. tölublað 54. órgangur
Virðisaukaskattur
Ovissa um gildistöku
Jón Baldvin Hannibalsson: Ekkiþingmeirihlutifyrirfyrra samkomulagi ogfresta ber upptöku virðisaukaskatts.
ÓlafurRagnarGrímsson: Gildistaka virðisaukaskattsfyrsta skrefið ílœkkun vöruverðs, annað þrep nœsta skref.
Steingrímur Hermannsson: Á báðum áttum
Mikil óvissa er um það hvort
virðisaukaskattur verður
tekinn upp um næstu áramót í
kjölfar samþykktar þingflokks
Alþýðuflokksins í gær og yfírlýs-
inga Jóns Baldvins Hannibals-
sonar, formanns flokksins. Jón
Baldvin segist líta svo á að ekki sé
lengur þingmeirihluti fyrir
samkomulagi stjórnarflokkanna
um framkvæmd virðisaukask-
attslaganna og hann búist þess
vegna við frumvarpi um frestun
gildistökunnar.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra telur hins vegar
enga ástæðu til að fresta gildis-
töku laganna. Virðisaukaskattur-
inn muni leiða til 9-10% lækkun-
ar á mjólk, kindakjöti, fiski og
innlendu grænmeti, sem geti ver-
ið fyrsta skrefið að almennri
verðlækkun matvæla. Annað
skrefið væri síðan víðtækt annað
og lægra þrep á matvælum.
Eins og sjá má á þessum yfirlýs-
ingum eru formennirnir ekki
sammála um hvernig beri að
standa að framkvæmd virðis-
aukaskattslaganna. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
sagði þetta mál ekki setja framtíð
ríkisstjórnarinnar í óvissu. Mið-.
stjórn Framsóknarflokksins
hefði samþykkt á laugardag að
standa við fyrra samkomulag
stjórnarflokkanna en að mögu-
leiki tveggja þrepa yrði skoðað-
ur. Ríkisstjórnin væri að verða
við tilmælum hagsmunaaðila í
þjóðfélaginu um að skoða málið
enn á ný.
í umræðum á Alþingi í gær
sagði Ólafur Ragnar að undir-
búningur upptöku virðisauka-
skatts hefði verið mjög víðtækur
og á undanförnum vikum hefðu
nauðsynlegar reglugerðir komið
fram og fleiri mikilvægar ættu
eftir að koma fram á næstu
dögum. íslendingar væru fyrr á
ferðinni með reglugerðirnar en
Danir hefðu td. verið þegar þeir
tóku upp virðisaukaskatt.
Jón Baldvin sagði Þjóðviljan-
um að því miður væri sá tími að
baki að von væri um að stjórnar-
flokkarnir gætu náð saman um að
virðisaukaskattur taki gildi um
næstu áramót. Þingmeirihluti
væri ekki fyrir hendi vegna yfir-
lýsinga formanna Framsóknar-
flokks og Alþýðubandalags og
samþykkta flokka þeirra. Ólafur
Ragnar sagðist ekki sammála
þessu mati Jóns Baldvins. Hann
tryði því ekki að Alþýðuflokkur-
inn vildi fresta þeirri lækkun á
verði matvæla sem stjórnarflokk-
arnir hefðu náð samkomulagi um
í sumar.
-hmp
Sjá bls. 3
Borgarafundur
Snúum
þróuninni
við
Fjölmennur borgara-
fundur á Hótel Borg í
gœr mótmœlir
minnkandi þjónustu
viðfœðandi konurá
sama tíma ogfœðing-
um fjölgar
- Við erum ekki bara hingað
komin til að mótmæla áformum
borgaryfírvalda um að leigja út
stóran hluta af húsnæði Fæðing-
arheimilis Reykjavíkur heldur
einnig til að vekja athygli á
bágborinni aðstöðu fæðandi
kvenna hér í borginni, sagði Elín
G. Ólafdóttir m.a. þegar hún setti
almennan borgarafund á Hótel
Borg í gær.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur borgarráð ákveðið
að ganga til viðræðna við lækna
um leigu á 1. og 2. hæð Fæðingar-
heimilisins. Ef af því verður hefur
Fæðingarheimilið aðeins yfir 10
rúmum að ráða og óttast margir
að þess verði þá skammt að bíða
að Heimilið verði lagt niður með
öllu þar sem svo smá eining er
mjög dýr í rekstri. Vegna þessa
efndu konur úr ýmsum stéttum,
félögum og flokkum til almenns
borgarafundar í gær og var fund-
urinn vel sóttur.
í ályktun sem samþykkt var á
fundinum er skorað á borgar-
stjórn Reykjavíkur að leigja ekki
út 1. og 2. hæð Fæðingarheimilis-
ins. Þess er krafist að 2. hæð
heimilisins, þar sem er rúm fyrir
18 konur, verði nú þegar tekin í
notkun fyrir sængurkonur en
báðar hæðirnar hafa verið lokað-
ar um nokkurra mánaða skeið í
sparnaðarskyni. í ályktuninni
kemur fram hörð gagnrýni á það
ástand sem hefur skapast á und-
anförnum árum þegar fæðingum
fer ört fjölgandi en á sama tíma er
þjónusta við fæðandi konur
skert. -iþ
Landsvirkjun
40 hestafla hús í Þjórsárdal
Landsvirkjun reisir hesthús íÞjórsárdalfyrir starfsmenn Búrfellsvirkj-
unar. Kostnaður um 5 miljónir króna
Landsvirkjun er að reisa 40
hesta hesthús í Þjórsárdal fyrir
starfsfólk við Búrfellsvirkjun.
Hesthúsið er staðsett austan við
Fossá og er áætlaður kostnaður
við það 4,5 til 5 miljónir króna, en
starfsfólkið leggur til mikla vinnu
við húsið.
Jóhann Már Maríusson að-
stoðarframkvæmdastjóri Lands-
virkjunar sagði að fyrirtækið
hefði fallist á að reisa þetta hest-
hús fyrir starfsfólkið þar sem
hesthúsin sem fyrir eru væru orð-
in mjög léleg. Hann sagði að með
þessu væri verið að koma til móts
við það fólk sem þarna starfaði
fjarri mannabyggðum.
Guðmundur Hermaníusson
verkstjóri er í forsvari fyrir Hags-
munafélag hestamanna í Búrfelli.
Hann sagði að hestamenn í Búr-
felli hefðu haft afnot af gömlum
húsum sem voru flutt frá
Steingrímsstöð árið 1962. Þau
hús væru orðin mjög léleg og því
hefðu þeir fengið úthlutað fyrir
nýju húsunum.
„Það eru um átta til níu fjöl-
skyldur hér sem stunda hesta-
mennsku og flestir hafa starfað
hér í um 20 ár. Við leggjum sjálfir
mikla vinnu í þetta auk þess sem
við eigum mikið inn í húsin. Þau
hús sem fyrir voru eru ónýt og til
lýta fyrir staðinn. Nýju húsin eru
reist annarsstaðar, töluvert út úr
alfaraleið.“
Guðmundur sagði að starfsfólk
í Búrfelli hefði haft góð samskipti
við sína yfirmenn sem vildu sýna
að þeir mætu mannlega þáttinn
við starfið einhvers. Þá benti
Guðmundur á að Hagsmunafélag
hestamanna hefði unnið mikið
verk við ræktun lands í Þjórsár-
Borgarleikhúsið
Nafnið til
Leikfélagsins
í dag munu forráðamenn
Ferðaleikhússins, Light Nights
f æra Leikfélagi Rey k j avíkur form-
lega að gjöf nafnið á Borgar-
leikhúsinu sem þeir hafa átt til
þessa. Afhendingin fer fram á
skrifstofu Leikfélagsins klukkan
16 í dag. -grh