Þjóðviljinn - 20.12.1989, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 20.12.1989, Blaðsíða 4
þJÓÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Alþýðubandalagið og umheimurinn Ritstjóri Þjóölífs, Óskar Guömundsson, fjallar í síöasta hefti tímaritsins um breytt viðhorf í Evrópu og öllum heimi, sem tengd eru hrööu hruni valdakerfis kommúnistaflokk- anna í Austur-Evrópu. Hann minnir, sem og margir aörir nú um stundir, réttilega á þaö, aö þessi þróun, ásamt meö stórbatnandi sambúð Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, sé nú sem óöast aö tortíma þeim óvinum sem menn hafa haft sér til trausts og halds í pólitískum ólgusjó. Þegar hann yfirfærir dauða óvinarins yfir á íslenskar aöstæöur segir hann sem svo, að bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- bandalagiö komist í nokkurn tilvistarvanda vegna þess aö þessir flokkar hafi misst andskota sína - heimskommúnism- ann og bandaríska heimsvaldastefnu. Um síðarnefnda flokkinn segir ritstjórinn síðan, að Alþýöubandalagiö hafi reyndar færst heldur til sem flestir aðrir flokkar „í áttina aö sameinaðri Evrópu, þó það sé að mörgu leyti eins og steingervingur í afstöðu til útlanda í samanburði viö aöra flokka". Þetta er beinlínis rangt. Steingervingur er í þessu sam- bandi væntanlega sá sem rígheldur sér í kaldastríðshug- myndir um ástand heimsmála. í raun og veru hefurobbinn af Alþýöubandalaginu gengiö í gegnum langt og drjúgt breytingaskeið, þar sem viðleitni til aö réttlæta flokksræöið í Austur-Evrópu hefur fyrir löngu snúist í gagnrýni á grund- vallaratriði stjórnarhátta þar um slóðir. Þá hefur hinn einfaldi og sjálfvirki antiameríkanismi vinstrisinna (sem átti sér síð- ast blómaskeið með kynslóð, sem kennd er við árið 68 og stundum kölluð lýðræðiskynslóð) einnig verið á undanhaldi fyrir málefnalegri skoðun bandarísks þjóðfélags. Þótt menn svo vilji ekki ganga eins langt í bjartsýni og Þjóðlífsritstjórinn sem telur Bandaríkjamenn orðna „tiltölulega saklausa á heimsmælikvarða". Það er hinsvegar út í hött að tala um að sá flokkur sé „steingervingur í afstöðu til útlanda", sem tekur í talsverðum mæli mið af hefð heillar aldar í íslenskri sjálfstæðisbaráttu og finnst að búið sé að skapa með yfirborðslegum áróðri óhóflega bjartsýni á blessunarleg áhrif þess að ísland gangi undir viðskiptahætti Evrópubandalagsins. Ekkert er eðli- legra en ótti lítils samfélags við að missa forræði yfir auð- lindum og atvinnulífi úr höndum sér eftir langa sjálfstæðis- baráttu. Okkur getur þótt snúið að svara því í verki hvort t.d. Patreksfjörður eða Siglufjörður eigi að lifa eða deyja, en enn verra þykir okkur þó að afhenda vald sem einhverju um það ráði í reynd til skriffinna í Brussel ellegar norðurþýskrar fiskiðnaðarsamsteypu. Þeir sem byggja sinn málflutning á kröfum um sjálfsforræði fara ekki með útúrboruhátt eða þjóðrembu eins og einatt er haldið fram í Alþýðublaðinu. Þeir eru ekki síst að fylgja eftir því vinstrimannaviðhorfi, að krafan um aukið og betra lýðræði sé um leið krafa um dreifingu valds. Og þá um það að ákvarðanir séu teknar sem næst því fólki sem ákvarðanirnar bitna á en ekki af einhverj- um yfirþjóðlegum apparötum. Ef menn vilja kenna slík við- horf, sem sannarlega eru sterk í Alþýðubandalaginu, við steingervinga, þá er því helst til að svara, að skárra er að hafa eitthvað af hörku steinsins en að gera sig að einskonar pólitískum leir sem hver og einn getur hnoðað að vild sinni sem stórar krumlur hefur. ÁB KLIPPT OG SKORIÐ STAMPA Davíð og Olafur Ragnar Mörgum þótti nýstárlegt að fylgjast með stælum Ólafs Ragn- ars Grímssonar fjármálaráðherra og Davíðs Oddssonar borgar- stjóra í Sjónvarpinu síðasta laugardagskvöld. Deildu þeir um rekstrar- og stjórnarform Borg- arspítalans í Reykjavík. Hins vegar vöktu leikaðferðir stjórnmálamannanna almennt meiri athygli en umræðuefnið, þótt brýnt sé. Davíð Oddsson gerði sér grein fyrir því, að þetta var eldskírn hans sem varaformanns Sjálf- stæðisflokksins gegn höfuðand- stæðingnum, formanni Alþýðu- bandalagsins. Það var því skyn- samleg tækni hjá Davíð að halda sig við þrautþjálfuð brögð sín, hvatskeytleg og snögg tilsvör. Þau snertu ekki alltaf umræðu- efnið, en gátu ef vel heppnaðist drepið því á dreif og slegið and- stæðinginn út af laginu. Davíð vissi sem var að Ólafur Ragnar vill kurteislegar röksemdafærslur og fer nauðugur til orðaleikja. Sjálfstæðismenn fengu nú tækifæri til að meta hvort bar- dagatækni Davíðs dugir á þeim þjóðarvettvangi sem þeir hentu honum út á í haust. Ekki er að efa, að margir þeirra hrífast af einfaldleika Davíðs, meitluðum sendingum og eftirminnilegum hortugheitum. Sverrir Her- mannsson var aldrei verulega sannfærandi jarðvöðull og remb- dist full mikið við að fyrna ræðu sína. Og aðrir háskakjaftar hafa ekkert látið á sér kræla árum saman. Við reiknum ekki Hall- dór Blöndal með, vegna hæver- sku hans dagfarslega, þrátt fyrir skringilegheit þegar andrenalínið ber hann ofurliði í ræðustólum. Það er óhætt að reikna með því, að margir Sjálfstæðismenn séu harðánægðir með frammi- stöðu Davíðs gegn Ólafi Ragnari. Leiðtogi sem flækir ekki málin, heldur heggur á alla borða sem fyrir verða og tiplar feti framar með kutann en Þorsteinn Páls- son, er eflaust afburðamaður í augum margra Heimdallar- og SUS-félaga. Staðreyndin er sú, að sumt í ræðuþjálfun og mál- fundakeppni æskunnar hérlendis undanfarin ár hefur verið upp- suða úr bandarískum stjórnmál- um, þar sem lítt er gætt ná- kvæmra röksemda eða hæversku. Ræðumenn hafa verið verð- launaðir fyrir hálfgert skrum og öfgakennda framkomu. Jarðveg- urinn fyrir Davíð er frjór. Hér er ekki fjallað um skoðanaágreining Davíðs og Ólafs Ragnars, sanngirni og rétt- læti í málflutningi þeirra. A hinu lék ekki vafi, að Ölafur Ragnar beitti hefðbundinni tækni í rök- semdafærslu sinni, yfirvegun og skipulegri framsetningu. Þessa aðferð kunna allir þeir að meta, sem umgangast margs konar að- ila í samningum og á fundum, þurfa að taka tillit til flókinna sjónarmiða og óska í stjórnsýslu, viðskiptum og þjónustu. Gera má ráð fyrir, að Ólafur Ragnar afli sér með þeim hætti vaxandi trausts hjá ákveðnum fylkingum fólks úr öllum skoðanahópum. Það má því segja, að Sjálfstæð- isflokkurinn komi nú fram sem ögrandi, orðheppið afl, en Al- þýðubandalagið sé tákngerving- ur virðuleika, hefðbundinnar röksemdafærslu og góðrar kurt- eisi. Fyrr á tíð var þessu víst öfugt farið, þá urðu róttækir jafnaðar- menn frægir sem leiftrandi orð- hákar, en íhaldsmenn varðveittu ró sína og lærða framkomu. Ekki er víst að þessi hlutverka- skipting sé tímabundin uppá- koma. Hugsanlegt er að Davíð Oddsson sjái það í hendi sér, að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að liggja í stjórnarandstöðu á íslandi um ókomin ár. Flokkurinn neyðist því stöðugt til að sækja á, með misvönduðum meðulum. Eini möguleiki flokksins, og Da- víðs sem formanns, gegn ráðsett- um stjórnarherrum er þá að vera sífellt beittur, ögrandi, vekjandi á sér athygli með öllum ráðum. Að þessu leyti var Ólafur Ragnar ef til vill að sýna okkur inn í fram- tíðina, leiða Davíð í gildrur og fá hann til að glenna á sviðinu alda- mótaklærnar. Scandalo islandese Nú þegar máli Magnúsar Thor- oddsens, fyrrum forseta Hæsta- réttar, er lokið fyrir dómstólum, væri ef til vill ekki úr vegi að rifja upp þá landkynningu sem af því hiaust strax í byrjun. ítölskum ferðamönnum hingað til lands fjölgaði mjög á árinu. Eflaust eru á því margar skýringar, en gæti Magnús átt þar hlut að máli? Allajafna er ísland ekki í for- síðufréttum á Ítalíu, en sunnu- daginn 27. nóvember 1989 bar nýrra við. Fimm dálka frétt á for- síðu LA STAMPA, eins út- breiddasta blaðs ítaía, fjallaði um „uno scandalo islandese" - íslenskt hneyksli aðeins 3 dögum eftir að málið varð opin'oert í Reykjavík. Það er athyglisvert, að Magn- úsarmálið verður ítalska blaðinu fyrst og fremst kærkomið tæki- færi til að ítreka það undir rós fyrir lesendum, hversu klikkaðir Norðurlandabúar séu. 1440 vín- flöskur eru í augum ítala jafn- merkilegar og 1440 eldspýtu- stokkar. í íslenska skandalnum var engin hjákona, engin snek- kja, engar miljónir í Sviss, hvorki morð né meiðingar. Prúðmenni er einfaldlega hrakið frá völdum vegna afbrigðilegrar siðferðis- kenndar og frumstæðra hefða. Til að auka áhrifin kallar LA STAMPA Magnús aldrei annað en varaforseta Islands. Sagt er frá hrukkulausum ferli þessa ágæta embættismanns, sem lent hafi í nútíma víkingasögu (semsé: villi- mannasögu). Tekið er fram, að söguþráðurinn sé óskiljanlegur öðrum þjóðum en íslendingum. Til að hjálpa lesendum að átta sig á dellunni tekur blaðið strax fram, að íslendingar séu eina þjóð heims- að múslimum unda- nskildum - sem banni bjór- drykkju. Áfengi sé selt á upps- prengdu verði. Samtök mótmæl- endatrúarmanna líti á áfengi sem synd í sjálfu sér. Margt fleira er upptalið til að sýna Islendinga sem sérvitringa og furðufugla, sem lifa lengi og hanga í bókum. Bersýnilegt er að LA STAMPA hefur lúmskt gaman af sögunni um þessa strangtrúar- menn norðursins, sem segja strax hausinn af, þegar hægt er að hanka heiðursmann á einhverju smáræði. f viðtölum við heima- menn í Róm kom líka í ljós fyrir ári, að fáum var kunnugt um Vig- dísi, enginn hafði heyrt um hval- veiðarnar, en allir höfðu samúð með varaforsetanum Thorodd- sen. ÓHT pJÓDVILJINN Síðumúla 6-108 Reykjavík Sími: 681333 Kvöldsími: 681348 Símfax:681935 Útgefandi: Útgáfufélr.g Þjóöviljans. Framkvœmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: Siguröur Á. Friðþjófsson. Aðrir blaðamenn: Dagur Þorieifsson, Elías Mar (pr.), Guömundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), LiljaGunnarsdóttir, ÓlafurGíslason.ÞorfinnurÖmarsson (iþr.), Þröstur Haraldsson. Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guörún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Olga Clausen. Auglýaingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingi- mundardóttir, UnnurÁgústsdóttir. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir. Bflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu-ogafgreiðslustjóri:GuðrúnGísladóttir. Afgrelðsia: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir. Utkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 68 13 33 & 68 16 63. Símfax:68 19 35 Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Pren niðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 90 kr. Nýtt Helgarblað: 140 kr. Askriftarverð á mánuði: 1000 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 20. desember 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.