Þjóðviljinn - 20.12.1989, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 20.12.1989, Blaðsíða 6
ERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía 300-400 sagðir drepnir Hundruð særðra manna á sjúkrahúsum í Timisoara. Herinn á hverju strái. Fréttamönnum ekki hleypt inn í landið. Ionesco heitir á Gorbatsjov Samkvæmt fréttum ungverska útvarpsins voru 300-400 manns drepnir í borginni Timiso- ara í Banathéraði á sunnudag er her- og iögregluiið réðist á mót- mælafólk. Skothríð kvað einnig hafa heyrst í borginni í gær. Ógn- arástand virðist ríkja þar en frétt- ir af ástandi þar og annarsstaðar í landinu eru óljósar, þar eð Rúm- enía er nú lokað land. Haft er eftir Ungverja, er hefur verið í símasambandi við ættingja sína, sem eru læknarí Timisoara, að á einu sjúkrahúsanna þar í borg hafi um 250 manns látist af sárum. Hundruð særðra manna séu þar og á öðrum sjúkrahúsum, margir illa særðir af skotum og aðrir væru limlestir eftir að skrið- drekum hefði verið ekið á þá. Nefndir læknar segja að hermenn hafi í tvær klukkustundir eftir að til átaka kom bannað að sjúkra- bílar sæktu særða menn og læknir einn, sem reynt hefði að veita særðum mönnum liggjandi á göt- unum bráðabirgðahjálp hefði verið handtekinn. Téðir heim- ildamenn segja að þátt í mótmæl- unum hefðu tekið bæði Rúmenar og Ungverjar og bæði námsmenn og verkamenn. Rúmenía hefur lokað öllum landamærum sínum og fá nú eng- ir að fara inn í landið nema ein- staka stjórnarerindrekar og ferðamenn, sem ætla gegnum landið til annars lands. Við fréttamann sem ætlaði inn í landið frá Búlgaríu sögðu rúmen- skir landamæraverðir: „Hér er ekkert að skrifa um.“ Búlgarskir vörubílstjórar, nýkomnir til Ung- verjalands eftir að hafa ekið gegnum Timisoara, segjast ekki hafa séð þar neinn glugga óbrot- inn, skriðdrekar og herbílar væru á hverju strái og ekki yrði þver- fótað fyrir hermönnum. Augljóst væri að sumir þeirra væru varalið- ar, er kvaddir hefðu verið til vopna af skyndingu. Annað fólk sem sæist á götunum virtist hafa orðið fyrir taugaáfalli. Heyrst hefur að í gær hafi her- þyrlur margar verið á sveimi yfir Hernaðarbandalög Allur Sovéther heima um aldamót? Manfred Wörner, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins, lýsti því yfir í gær að reikna mætti með að Bandaríkin fækkuðu á næstu árum að mun í Evrópuher sínum. Á döfínni er samkomulag um að Bandaríkin og Sovétríkin fækki í Evrópuherj- um sínum niður í 275,000 manns hvort stórveldi, en Wörner gaf í skyn að Bandaríkjamenn myndu fækka enn meira í sfnum Evrópu- her. Af hálfu Sovétríkjanna hefur. því verið lýst yfir að þau stefni að því að kveðja heim allt herlið sitt á erlendri grund fyrir aldamót. Wörner sagði við áðurnefnt tæki- færi að Natóríki þyrftu að endur- meta hernaðarógnunina frá Var- sjárbandalaginu í ljósi umbóta í Austur-Evrópu, sem dregið hefðu úr stríðshættu, eins og það er orðað í Reuterfrétt. Allar á- kvarðanir um fækkun í Evrópu- her Bandaríkjanna niður fyrir 275,000-markið yrðu teknar í samráði við bandamenn þeirra í Nató, sagði Wörner. Reuter/-dþ. Ceausescu (t.v.) með Rafsanjani íransforseta á Teheranflugvelli - kona hans stjórnar í fjarveru hans. borginni Brasov í Transsylvaníu, þar sem til mikilla mótmælaað- gerða gegn stjórnvöldum kom fyrir tveimur árum. Tékkósló- vaki sem ók gegnum Rúmeníu til Ungverjalands segist hafa verið á þeirri leið stöðvaður á 20 km fresti og krafinn um skilríki. Her- lög virðast gilda í landinu í raun. Víða um lönd hafa þessar að- farir rúmenskra stjórnvalda verið harmaðar og fordæmdar, þ. á m. af Bandaríkjastjórn, Evrópu- bandalaginu og kirkjusam- tökum. Hinn heimsfrægi leikrit- ahöfundur Eugene Ionesco, sem er Rúmeni en býr í Frakklandi, skoraði í gær á Gorbatsjov So- vétríkjaforseta að slíta efnahags- tengsl við Rúmeníu í þeim til- gangi að fella Ceausescu harð- stjóra. Ionesco gagnrýndi Vest- urlönd fyrir skeytingarleysi um Rúmeníu hingað til. Hann sagði að Ceausescu væri óður, svo og valdasjúk eiginkona hans og sonur þeirra hjóna fábjáni. Væri með ólíkindum að annarri eins fjölskyldu skyldi líðast að kvelja 23 miíjónir manna. Ceausescu er sjálfur staddur í íran í opinberri heimsókn.og ber ekki á að hann hafi áhyggjur af ástandinu heimafyrir. Kona hans stjórnar þar í fjarveru hans. Reuter/-dþ. Shevardnadze í aðalstöðvum Nató Bandalögin tryggja stöðugleika Eduard Shevardnadze, utan- ríkisráðherra Sovétríkjanna, heimsótti í gær aðalstöðvar Atl- antshafsbandaiagsins í Brússel og þykir sú heimsókn þó nokkur frétt, því að þetta er í fyrsta sinn, sem sovéskur utanríkisráðherra kcmur inn í þessa taugamiðstöð hins vestræna bandalags, eins og Reuter orðar það. Samkvæmt Reuterfrétt og tilkynningu frá ís- lenska utanríkisráðuneytinu átti Shevardnadze stuttar viðræður vlð Manfred Wörner, aðalfram- kvæmdastjóra Nató, og fastafull- trúa aðildarríkja bandalagsins. Þeir Shevardnadze og Wörner reyndust vera í einum anda um að Atlantshafsbandalagið og Var- sjárbandalagið myndu halda áfram að gegna mikilvægu hlut- verki, enda stuðluðu þau að stöðugleika í Evrópu á þeim tím- um breytinga er nú gengju yfir. í fyrradag undirritaði Shevardna- dze fyrsta samning Sovétríkjanna við Evrópubandalagið um við- skipti og samvinnu. dþ. Shevardnadze - þeir Wörner í einum anda. Viðskiptaerjur í aðsigi Margir japanskir sérfræðingar um efnahagsmál óttast að á kom- andi árum kunni að kastast alvar- lega í kekki milli Japans og Vest- urlanda á sviði efnahagsmála og viðskipta. Vísa Japanir í því sam- bandi til niðurstaðna skoðana- könnunar, sem benda til þess að margir Bandaríkjamenn telji efnahagsmátt Japans fela í sér meiri hættu fyrir Bandaríkin en hernaðarmátt Sovétríkjanna. Vestur-Evrópuríki eru þó sögð óttast samkeppni Japana í iðnaði og fjárfestingum enn meira. Ríkisstjórn styður Havel Marian Calfa, sem verið hefur forsætisráðherra Tékkóslóvakíu í níu daga, hefur með fortölum fengið stjórn sína til að lýsa yfir stuðningi við að Vaclav Havel, leikritaskáld og helsti forustu- maður Borgaravettvangs, verði kjörinn forseti landsins. Paö er hlutverk sambandsþingsins að kjósa forseta, en sagt er þing- menn, sem kosnir voru með „gamla laginu“ áður en umbóta- aldan gekk í garð, séu margir mótsnúnir Havel. Sovétþing Efnahagsmálafmmvarp samþykkf Sovéska þjóðfulltrúaþingið samþykkti í gær stjornar- frumvarp um efnahagsmál með 1532 atkvæðum gegn 419. Var samþykktin ásamt með öðru traustsyfirlýsing við Níkolaj Ryz- hkov, forsætisráðherra, en hann hafði lýst því yfir að hann myndi segja af sér, ef frumvarpið yrði fellt. Heitar umræður urðu um frumvarpið og gagnrýndu rót- tækir þingfulltrúar, þeirra á með- al Borís Jeltsín, það fyrir að það gengi of skammt. Frumvarpið felur í sér sex ára áætlun. Sam- kvæmt henni skulu breytingar verða gerðar á verðlagsmyndun- arkerfi frá og með árinu 1991, aukin áhersla Iögð á framleiðslu matvæla og annars neysluvarn- ings og dregið mjög úr fjárlaga- halla fram til ársins 1993. Á tíma- bilinu 1993-95 verði stefnt í átt til markaðskerfis og myndu stjórnvöld þá í síauknum mæli nota verðlag, skatta, lán og fjár- festingar til að stjórna efnahags- lífinu. Ekki er hinsvegar gert ráð fyrir að áætlunarbúskapur verði lagður af. Reuter/-dþ. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mióvikudagur 20. desember 1989 Aquino fær storaukin völd Báðar deildir Filippseyjaþings samþykktu í gær frumvarp um stóraukin völd til handa Corazon Aquino forseta, með það fyrir augum að henni takist að fyrir- byggja fleiri hermannauppreisnir og rétta af bágan efnahag ríkis- ins. Stjórnarandstæðingar veitast nú að Aquino af hörku og ljóst er að andstaðan gegn henni í hern- um er sfður en svo búin að vera. Óttast er jafnvel að hún eigi ban- atilræði yfir höfði sér. Jólaslátrun mótmælt Baráttumenn fyrir dýraréttind- um réðust í fyrrinótt inn í slátur- hús í hollensku borgunum Elst og Zevenaar og frömdu spjöll á út- búnaði og flutningabifreiðum. Gerði fólkið þetta að eigin sögn til að mótmæla drápum á dýrum til áts í jólaveislum. Fé til höfuðs hryðjuverkamönnum Bandaríkjastjórn hefur hækk- að fjórfalt fjárhæð þá, sem hún áður hafði lagt til höfuðs hryðju- verkamönnum. Héðan af fær hver sá, sem gefur bandarískum yfirvöldum nýtilegar upplýsingar um hryðjuverkamenn, tvær milj- ónir dollara. Bandaríska utan- ríkisráðuneytið segist kvíða því að hryðjuverkamenn gerist á næstunni athafnasamir í Vestur- Evrópu og Vestur-Afríku. 100 dóu úr inflúensu Skæðir inflúensufaraldrar hafa undanfarið herjað Bretland og létust yfir 100 manns af völdum þeirra í fyrstu viku mánaðarins. Er það mikil hækkun frá því í síð- ustu vikunni í nóv., en þá létust 16 manns í Bretlandi úr inf- lúensu. í fyrstu viku des. s.l. ár varð inflúensa sjö manneskjum þar í landi að bana. Brandenbúrgarhlið opnað fyrir jól Brandenbúrgarhliðið, frægt af sigurgöngum fyrri tíða, í margra augum tákn Berlínar og í seinni tíð einkum skiptingar hennar, verður opnað fyrir umferð áður en jólin ganga í garð, að sögn Hans Modrow, forsætisráðherra Austur-Þýskalands. Hlið þetta tígulegt stendur þétt við Berlín- armúr. Modrow tilkynnti við sama tækifæri að frá og með að- fangadegi jóla yrði Vestur- Þjóðverjum heimilt að ferðast til Austur-Þýskalands án vegabréfs- áritunar. Búist er við mikilli um- ferð yfir hin nýopnuðu landa- mæri um jólin, þar eð margt fólk muni halda þau með ættingjum, sem því hefur verið fyrirmunað að umgangast í áratugi. Malajsía hyggst senda Víetnama heim Stjórnvöld í Malajsíu tilkynntu í gær að þau myndu senda til baka víetnamska bátflóttamenn, sem þangað eru komnir, ef þeir teld- ust ekki vera eiginlegir flótta- menn að stjórnvalda mati. Yrðu viðræður hafnar við víetnömsk stjórnvöld um þetta í næsta mán- uði. Um 20,000 víetnamskir bát- flóttamenn eru þar í landi. í mars s.l. ákváðu Malajsía og fleiri ríki þar um slóðir að hætta að líta skil- yrðislaust á alla Víetnama, sem til þeirra kæmu, sem flóttamenn. Mannfall í Salvadorsstríði Farabundo Martí-þjóðfrelsis- fylkingin í Salvador tilkynnti í gær að hún hefði látið 401 skæru- liða fallinn frá því að sókn hennar með árásum inn í höfuðborg landsins hófst 11. nóv. s.l. Meðal þeirra föllnu er Dimas Rodrigu- ez, einn helstu herforingja skæru- liða. Salvadorsher segist hafa misst 476 menn fallna á sama tíma.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.