Þjóðviljinn - 20.12.1989, Page 10
VjÐ'BENDUMA'
Á milli
mála
Rás 2 kl. 14.03
Þátturinn Á milli mála hefur að
geyma nokkuð staðlað efni, sem
þó hefur sterkari jólasvip með
hverjum degi. Þátturinn hefst á
því að Lísa Pálsdóttir kynnir hvað
er að gerast í menningu, félagslífi
og fjölmiðlum en síðan tekur
Arni Magnússon við og leikur lög
af nýjustu plötum. Uppúr klukk-
an þrjú er Stóra spurningin, sem
er spurningakeppni vinnustaða.
Stjórnandi og dómari hennar er
Dagur Gunnarsson og eru spurn-
ingar hans af ýmsum toga. Á milli
mála stendur til klukkan fjögur,
en þá tekur Dægurmálaútvarpið
við.
Þegar amma
var ung
Rás 1 kl. 16.20
í barnaútvarpinu í dag heimsækir
Kristín Helgadóttir vistfólk
Hrafnistu og fær það til að segja
frá jólunum þegar það var ungt.
Þannig verður gerð grein fyrir
hve gífurlegum breytingum jóla-
hald hefur tekið á öldinni, ss.
hvað var gert til skemmtunar,
hvernig gjafir voru gefnar og
hvort jafn erfitt hafi verið að bíða
eftir jólunum þá og í dag.
Willy
Brandt
Sjónvarpið kl. 21.40
Arthúr Björgvin Bollason ræddi
fyrir skömmu við Willy Brandt
fyrrum kanslara Vestur-
Þýskalands og borgarstjóra
Vestur-Berlínar árið 1961 þegar
múrinn var reistur. Eðlilega hef-
ur hann skýra afstöðu til nýlegra
atburða í Berlín og fleiri þjóð-
mála. Þá rifjar hann upp ýmislegt
sem fyrir hann hefur komið á
löngum stjórnmálaferli og segir
frá kynnum sínum af merkum
samtíðarmönnum.
Sagan
af Ruby
Sjónvarpið kl. 22.10
Bandaríska kvikmyndin Ruby
Gentry, eða Sagan af Ruby, frá
árinu 1952 er miðvikudagsbíó-
myndin að þessu sinni. Ranglega
er farið með nafn leikstjóra
myndarinnar í dagskrá Sjón-
varpsins en þar er framleiðand-
inn Selznick sagður Ieikstjóri í
stað Kings Vidors. Það skiptir
kannski ekki höfuð máli, en
myndin segir frá því hvernig ást-
arþríhyrningur myndast þegar
stóra ástin í lífi Ruby kvænist
heldri konu í samfélaginu. Til að
hefna sín á honum ákveður hún
að gjalda líku líkt, en það hefur
alvarlegar afleiðingar í för með
sér. Stjörnurnar Jennifer Jones
og Charlton Heston fara með
hlutverk þessa þokkalega pars og
sýnir Jones einkar hrífandi leik.
SJÓNVARPIÐ
17.50 Tólf gjafir til jólasveinsins 8. þátt-
ur. Lesari Örn Guðmundsson.
17.55 Töfraglugginn Umsjón: Árný Jó-
hannsdóttir.
18.50 Táknmálsfréttir
18.55 Yngismær Brasilískur framhalds-
myndaflokkur.
19.20 Poppkorn Sýnt verður m.a. nýtt
myndband frá þeim bræðrum Jóni, Ág-
ústi og Ólafi Ragnarssonum. Umsjón:
Stefán Hilmarsson.
19.50 Tommi og Jenni
20.00 Fréttir og veður
20.35 Kynning á jóladagskrá útvarps-
ins Umsjón: Ágúst Tómasson.
20.45 Á tónleikum með Gypsy Kings
Ný bresk upptaka frá tónleikum hljóm-
sveitarinnar í Albert Hall I London.
21.40 Willy Brandt Arthúr Björgvin Bolla-
son ræddi þann 5. desember sl. við
Willy Brandt, fyrrum kanslara Vestur-
Þýskalands og fyrrum borgarstjóra
Vestur-Berlínar. Brandt kemur víða við I
þessu viðtali. Hann lýsir viðhorfum sín-
um til atburða slðustu vikna, rifjar upp
ýmislegt sem fyrir hann hefur borið á
löngum stjórnmálaferli og segir frá
kynnum sínum af merkum samtíðar-
mönnum. Þýðandi Veturliði Guðnason.
22.10 Sagan af Ruby Bandarisk bíómynd
frá 1952. Aðalhutverk Jennifer Jones,
Charlton Heston og Karl Malden. Mynd-
in fjallar um hinn sigilda ástarþríhyrning.
I kjölfar þess að ástvinur stúlku nokkurr-
ar giftist til fjár, ákveður hún að gera slíkt
hið sama, og það á eftir að draga dilk á
eftir sér.
23.00 Ellefufréttir
23.10 Sagan af Ruby framhald
23.45 Dagskrárlok
STÖÐ 2
15.20 Hulin fortíð Mynd þessi er byggð á
sannsögulegum atburðum og segir frá
ungri konu sem lendir í bílslysi og missir
minnið.
17.00 Santa Barbara
17.45 Jólasveinasaga Fyrir þó nokkru
síðan fengu öll börn í heiminum jólagjaf-
irnar og nú eru þau að skrifa til jóla-
sveinsins og þakka honum fyrir.
18.10 Júllí og töfraljóslð
18.30 I sviðsljósinu
19.19 19.19 Fréttir og fréttaumfjöllun.
20.30 Murphy Brown
21.05 Framtíðarsýn
22.00 Ógnir um óttubil (Midnight Caller),
22.50 í Ijósaskiptunum
23.15 Hugrekkj Spennumynd sem gerist
í Salt Lake þar sem lögregla og slökkvi-
lið eiga í höggi við stórhættulegan
brennuvarg.
00.50 Dagskrárlok.
DAGSKRÁ ÚTVARPS OG SJÓNVARPS
RÁS 1
FM,92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra ÞórirStep-
hensen flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 I morgunsárið - Randver Þorláks-
son. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir
kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýs-
ingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00. Hulda Valtýsdóttir blaðamaður tal-
ar um daglegt mál laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Jólaalmanak Útvarpsins „Frú
Pigalopp og jólapósturinn" eftir Björn
Rönningen í þýðingu Guðna Kolbeins-
sonar. Margrét Ólafsdóttir flytur. Um-
sjón: Gunnvör Braga.
9.20 Morgunleikfimi með Halldóru
Björnsdóttur.
9.30 Landpósturinn - Frá Norðurlandi
Umsjón: Áskell Þórisson.
10.00 Fréttir.
10.03 Neytendapunktar Hollráð til
kaupenda vöru og þjónustu og baráttan
við kerfið. Umsjón: Björn S. Lárusson.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Úr menningarsögunni - Saga
hjónabandsins, frá landafundum til
samtíma Umsjón: Þórunn Valdimars-
dóttir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur Umsjón: Eva L. Ban-
ine.
11.53 Á dagskrá Litið yfir dagskrá mið-
vikudagsins í Útvarpinu.
12.00 Fréttir. Auglýsingar.
12.15 Daglegt mál Endurtekinn þátturfrá
morgni sem Hulda Valtýsdóttir blaða-
maður flytur.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Auglýsingar. Tónlist.
13.00 í dagsins önn- Kvennafangelsin
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir.
13.30 Miðdegissagan: „Samastaður í
tilverunni" eftir Málfríði Einarsdóttur
Steinunn Sigurðardóttir les.
14.00 Fréttir.
14.03 Harmoníkuþáttur Umsjón: Bjarni
Marteinsson.
15.00 Fréttir.
15.03 Samantekt um kynskiptan
atvinnumarkað Umsjón: Sigrún Stef-
ánsdóttir.
15.45 Neytendapunktar Umsjón: Björn
S. Lárusson.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin
16.08 Þingfréttir
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið — Þegar ég var
ung voru jólin ... Umsjón: Kristín
Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi — Elgar og Field
Konsert í e-moll op. 85 fyrir selló og
hljómsveit eftir Edward Elgar. Jacque-
line du Pré leikur á selló með Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna; Sir John Barbirolli
stjórnar. Konsertnr. 1 iEs-dúreftirJohn
Field. John O'Connor leikur á píanó
með Nýju Irsku kammersveitinni; Janos
Fúrst stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan Fréttaþáttur um erlend
málefni.
18.10 Á vettvangi Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Bjam1 Sigtryggsson.
18.30 Tónlist. Auglysingar.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá Þáttur um menningu og
listir líðandi stundar.
20.00 Jólaalmanak Útvarpsins „Frú
Pigalopp og jólapósturinn" eftir Björn
Rönningen í þýðingu Guðna Kolbeins-
sonar. Margrét Ólafsdóttir flytur. Um-
sjón: Gunnvör Braga.
20.15 Nútímatónlist Þorkell Sigurbjörns-
son kynnir.
21.00 Stiklað á stóru um hlutleysi, her-
nám og hervernd Tiundi og síðasti
þáttur. Umsjón: Pétur Pétursson.
21.30 Islenskir einsöngvarar Ingveldur
Hjaltested syngur lög eftir Schubert,
Brahms og Richard Strauss; Jónína
Gísladóttir leikur með á pianó.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan Fréttaþáttur um erlend
málefni.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Sjómannslíf Sjötti þáttur af átta um
sjómenn í íslensku samfélagi.
23.10 Nátthrafnaþlng Málin rædd og
reifuð Umsjón: Ævar Kjartansson og
Ólína Þorvarðardóttir.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur Umsjón: Eva L. Ban-
ine.
01.00 Veðurfregnir.
01.10 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
RÁS 2
FM 90,1
7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu,
inn í Ijósið Leifur Hauksson og Jón Ár-
sæll Þórðarson hefja daginn með hlust-
endum.
8.00 Morgunfréttir - Bibba í mál-
hreinsun.
9.03 Morgunsyrpa Eva Ásrún Alberts-
dóttir og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
Neytendahorn kl. 10.03 og afmælis-
kveðjur kl. 10.30. Bibba í málhreinsun
kl. 10.55. Þarfaþing með Jóhönnu Harð-
ardóttur kl. 11.03 og gluggað f
hreimsblöðin kl. 11.56.
12.00 Fréttayfirlif. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Umhverfis landið á áttatfu með
Gesti Einari Jónassyni.
14.03 Hvað er að gerast? Lísa Pálsdóttir
kynnir allt það helsta sem er að gerast I
menningu, félagslífi og fjölmiðlum.
14.06 Milli mála Árni Magnússon leikur
nýju lögin. Stóra spurningin. Spurn-
ingakeppni vinnustaða, stjórnandi og
dómari Dagur Gunnarsson kl. 15.03.
16.03 Dagskrá Dægurmálaútvarp. Stef-
án Jón Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir,
Sigurður Þór Salvarsson, Þorsteinn J.
Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómas-
son. - Kaffispjall og innlit upp úr kl.
16.00. - Stórmál dagsins á sjötta tíman-
um.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur f beinni
útsendingu sfmi 91-38500
19.00 Kvöldfréttir
19.32 Iþróttarásin Fylgst með og sagðar
fréttir af íþróttaviðburðum hér á landi og
erlendis.
22.07 Lísa var það heillin Lísa Pálsdóttir
fjallar um konur í tónlist.
00.10 I háttinn
01.00 Áfram Island Dægurlög flutt af ís-
lenskum tónlistarmönnum
02.00 Fréttir
02.05 Konungurinn Magnús Þór Jóns-
son segir frá Elvis Presley og rekur sögu
hans.
03.00 Á frívaktinni Þóra Marteinsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
04.00 Fréttir
04.05 Glefsur Úr dægurmálaútvarpi mið-
vikudagsins.
04.30 Veðurfregnir.
04.40 Á vettvangi Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Bjarni Sigtryggsson.
05.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
05.01 Ljúflingslög Svanhildur Jakobs-
dóttir kynnir.
06.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
06.01 Á þjóðlegum nótum Þjóðlög og
vísnasöngur frá öllum heimshornum.
BYLGJAN
FM 98,9
07.00-10.00 Páll Þorsteinsson. Alls
kyns upplýsingar fyrir hlustendur sem
vilja fylgjast með, fréttir og veður á sín-
um stað.
10.00-14.00 Valdís Gunnarsdóttir Sér-
staklega vel valin og þægileg tónlist
sem heldur öllum I góðu skapi. Bibba í
heimsreisu kl. 10.30.
14.00-18.00 Bjarni Ólafur Guðmunds-
son Leitaðu ekki langt yfir skammt. Allt
á sínum stað, tónlist og afmæliskveðjur.
Bibba i heimsreisu kl. 17.30.
18.00-19.00 Arnþrúður Karlsdóttir -
Reykjavík síðdegis. Finnst þér að
eitthvað mætti betur fara i þjóðfélaginu I
dag, þín skoðun kemst til skila. Síminn
er 61 11 11.
19.00-20.00 Snjólfur Teitsson. Afslapp-
andi tónlist I klukkustund.
20.00-24.00 Haraldur Gíslason. Halli er
með óskalögin í pokahorninu og ávallt í
sambandi við iþróttadeildina þegar við
á.
24.00-07.00 Næturvakt Bylgjunnar.
/
Þekkir þú þetta
ákvæði umferðarlaga?
\
„Sá sem ábyrgö ber á skráningarskyldu
vélknúnu ökutæki skal bæta þaö tjón
sem hlýst af notkun þess enda þótt tjóniö
veröi ekki rakið til bilunar eöa galla á
tækinu eöa ógætni ökumanns.“
HEFURÐU HUGLEITT
HVAÐ ÞETTA ÞÝÐIR?
iias
FERÐAR
Á mjóu slitlagi (einbreiðu)
þurfa báðir bilstjórarnir
að hafa hægri hjól fyrir
utan slitlagið við
mætingar.
|| UMFERDAR
Práð
Móðir vopnuð út úr eld
breddu hakkar | húsinu, út,
grimmilega niðurt ^
saklausan fisk 's-
sem fórn í
hefðbundinn
kvöldverð
fjölskyldunnar!!
10 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Miðvikudagur 20. desember 1989