Þjóðviljinn - 20.12.1989, Page 11
LESANDI VIKUNNAR
I DAG
Reynir Jónasson
organisti
Hvað ertu að gera núna Reynir?
Ég er að æfa sjálfan mig, orgel-
ið í Neskirkju og kórinn fyrir jól-
in. Og síðan er mikið að gera hjá
mér við að spila í glöggpartíum.
Hvað varstu að gera fyrir 10
árum?
Þá var ég í sama starfi í sömu
sókn, en kenndi líka tónmennt í
Álftamýrarskóla.
Hvað gerirðu helst í frístund-
um?
Ég syndi daglega og skokka
þar að auki. Þegar snjórinn kem-
ur fer ég á skíði. Það er held ég
ekkert eins yndislegt og að svífa
niður brekkur á svigskíðum. Ég
hef líka verið á gönguskíðum en
svigið finnst mér skemmtilegra.
Segðu mér frá bókinni sem þú
ert að lesa núna.
Ég var að enda við bók eftir
Vigdísi Grímsdóttur sem heitir
Tíu myndir úr lífi þínu. Ég er al-
veg heillaður af bókinni. Svo er
ég rétt að byrja á bókinni hans
Thors Vilhjálmssonar, Fljótt,
fljótt, sagði fuglinn.
Hvað lestu helst í rúminu á
kvöldin?
Það er undir hælinn lagt, en
oftast les ég þó ljóð í rúminu, og
þá helst Stefán Hörð Grímsson.
Ljóðin hans virka vel á mig; sum
þeirra eru einföld, öðrum botna
Mynd: Kristinn.
Hernám hugans
ég ekkert í, en öll eru þau spenn-
andi.
Hver er uppáhaldsbarnabókin
þín?
Það var gömul kona sem
kenndi mér að lesa þegar ég var
u.þ.b. 5 ára og kennslubókin var
Dísa ljósálfur. Kára bækurnar
eftir Stefán Júlíusson fékk ég svo
í jólagjöf og þær gat ég lesið sjálf-
ur. Þær voru dásamlegar og ég
hélt mikið upp á þær. Seinna fékk
ég miklu magnaðri bækur sem
heita: Þegar drengur vill og í út-
legð. Þær eru eftir erlendan
höfund sem ég man ekki hvað
heitir, en sagan gerist á Korsíku
og þetta voru miklar spennubæk-
ur.
Hvers minnistu helst úr Bibl-
íunni?
Það er hluti af Fjallræðunni;
Það sem þér viljið að aðrir menn
gjöri yður, það skuluð þér og
þeim gjöra. Þetta eru uppáhalds-
orðin mín úr þeirri bók.
Segðu mér af ferðum þínum í
leik- og kvikmyndahús í vetur.
Ég hef ekkert farið í leikhús í
vetur, en ætla að sjá Ljós
heimsins og Höll sumarlandsins
þegar sýningar hefjast aftur. Ég
er búinn að sjá Pella sigurvegara
og það var ógleymanlegt.
Fylgistu með einhvcrjum
ákveðnum dagskrárliðum í út-
varpi og sjónvarpi?
Ég set mig ekki úr færi að sjá
Derrick. Gaman að fá að sjá ein-
hverja mynd af Þýskalandi og líf-
inu þar. Derrick er líka alltaf
spennandi. Ég horfi stundum á
Spaugstofuna, og þeim tekst oft
ansi vel upp. í útvarpi er ekkert
sérstakt sem ég hlusta á fyrir utan
fréttirnar. Það er ósköp þægilegt
að hlusta á þær með kvöldmatn-
um.
Hefurðu alltaf kosið sama
stjórnmálaflokkinn?
Nei, ekki alltaf.
Ertu ánægður mcð frammi-
stöðu þess flokks sem þú kaust í
síðustu kosningum?
Ekki alls kostar. Það þarf að
reka herinn burt.
Eru til hugrakkir stjórnmala-
menn og konur?
Ég geri ráð fyrir því.
Viltu nafngreina þá?
Hjörleifur Guttormsson er hug-
rakkur.
Er landið okkar varið land eða
hernumið?
Svo sannarlega er það hernum-
ið, og það í tvennum skilningi;
hernám hugans er það versta.
Það lýsir sér t.d. í því hve ótrú-
lega margir íslendingar eru sam-
mála því sem Bandaríkjastjórn
ákveður í utanríkismálum.
Hvert gæti svar vesturs verið
við því sem nú er að gerast í
austri?
Bandaríkjamenn gætu hætt af-
skiptum í Mið- og Suður-
Ameríku, og leyft þjóðum þar að
verða sjálfráða.
Hvaða eiginleika þinn viltu
helst vera laus við?
Ég neita að svara þessari
spurningu.
Hvaða eiginleika þinn finnst
þér skrítnast að aðrir kunni ekki
að meta?
Ég held að ég sé dálítið smá-
munasamur, en ég met það sjálf-
ur til kosta í flestum tilfellum.
T.d. við að stjórna kór eða spila.
En þetta leggst ákaflega misjafn-
lega í fólk.
Hvað borðarðu aldrei?
Ég get borðað allt sem manna-
mat má telja. Það er ósiður að
fúlsa við mat sem manni er boð-
inn.
Hvar myndirðu vilja búa ann-
ars staðar en á íslandi?
Ég myndi vilja dveljast um
skeið í Mið- eða Suður-Evrópu
og fá tækifæri til að kynnast þeim
þjóðum betur.
Hvernig finnst þér þægilegast
að ferðast?
Það fer eftir því hvert ég er að
ferðast. Ef almenningsvagna-
kerfið væri betra hérna í Reykja-
vík myndi ég alla jafna ferðast
með þeim hér innanbæjar. En
fyrir utan það vil ég helst ferðast
með lystiskipum. Ég fór einu
sinni með Gullfossi til
Kaupmannahafnar, og í þeim túr
drakk ég dús við Jón Leifs og
borðaði hafragraut og rjóma með
Halldóri Laxness.
Hvert langar þig helst til að
ferðast?
Mest langar mig til Suður-
Ameríku.
Hvaða bresti landanst áttu erf-
iðast með að þola?
Óstundvísi og skort á biðraða-
menningu. Jafnframt langar mig
til að ítreka það sem ég sagði
áðan um hernám hugans.
En hvaða kosti íslendinga
metur þú mest?
Þeir eru músíkalskir og við
eigum marga góða listamenn.
Hvernig líst þér á framtíð ís-
lands?
Ég er svartsýnn á framtíð okk-
ar. T.d. ef núverandi stefnu í
utanríkismálum verður haldið.
Erum við sem sagt ekki á réttri
leið?
Málin eru orðin svo marg-
slungin en einhvern veginn finnst
mér eins og þetta hafi byrjað með
Viðreisnarstjórninni og það virð-
ist erfitt að finna nýja átt. Við
höfum t.d. alls ekki efni á öllu
þessu frelsi sem mörgum verður
svo tíðrætt um.
Ertu ánægður með Þjóðvilj-
ann?
Mér þykir auðvitað vænt um
málgagnið mitt, en hann mætti að
sjálfsögðu vera öðruvísi. Aðal-
lega vil ég sjá hann stækka. Nýtt
Helgarblað er oftast gott en ekki
alltaf. í heild finnst mér Þjóðvilj-
inn hafa batnað undanfarið.
Hvers óskarðu þér í jólagjöf?
Ég myndi vilja fá nýtt orgel á
nýjan stað í kirkjuna mína.
Hef ég gleymt einhverri spurn-
ingu Reynir?
Nei, ég held þú sért búin að
spyrja mig spjörunum úr.
Guðrún
þJÓÐVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Fátt merkilegratíðindagerðist á
Alþingi ígær. í neðri deild voru
framfærslulögin til fyrstu um-
ræðu og var þeim vísað til ann-
arrar umræðu og nefndar. Ann-
arsfórmesturtími þingmannaí
að ræða um eyðingu hrafns og
svartbaks og virtust þingmenn
hafa stórum meiri áhuga fyrir
þeim málum en vandamálum
þeimersnertafólkið.
20. desember
miðvikudagur. 354. dagurársins.
Imbrudagar. Mörsugurbyrjar.
Sólarupprás í Reykjavík kl. 11.21
-sólarlagkl. 15.30.
Viðburðir
Eldgos í Eyjafjallajökli hefst árið
1821. Eldgos í Leirhnjúki hefst
1975. Tímaritið Samstaða, gefið
út af Vietnamnefndinni hefur
göngu sína 1972. Seinnatók
Baráttuhreyfing gegn heims-
valdastefnu yfir útgáfuna.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúöavikuna
15.-21. des. er í Laugarnesapóteki og
Árbæjarapóteki.
Fyrrnefnda apótekiö eropið um helgar
og annasf næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Síöarnef nda apótekið er
( opiöákvöldin 18-22 virkadagaogá
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LOGGAN
' Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur..........sími 4 12 00
Seltj.nes...........sími 1 84 55
Hafnarfj............sími 5 11 66
Garðabær............sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík..........sími 1 11 00
Kópavogur..........sími 1 11 00
Seltj.nes...........sími 1 11 00
Hafnarfj...........sími 5 11 00
Garðabær............sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir I síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspít-
alinn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspitalans: opin allan
sólahringinn simi 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
.1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öidrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðin við
Barónsstíg opin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspftali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeiid:
heimsóknirannarraenforeldrakl. 16-17
daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spítalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19.
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjukrahús Akraness:
alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
YMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathyarf fyrir ung-
lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opið
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum
efnum.Simi 687075.
MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga f rá
kl. 8-17. Síminn er 688620.
Kvennaráðgjöfin Hlaövarpanum vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, •
sími21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplysingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, sími 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Simsvariáöðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Rafmagnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sifjaspellamál. Sími
21260 alla virka daga kl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt i síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 á fimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlið 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögumkl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið í síma 91 -
22400 alla virka daga.
GENGIÐ
18. des. 1989
kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar............ 61.65000
Sterlingspund................ 99.01300
Kanadadollar................. 53.10800
Dönskkróna.................... 9.22210
Norsk króna................... 9.25680
Sænsk króna................... 9.86080
Finnsktmark.................. 15.10660
Franskurfranki............... 10.48650
Belgískur franki............ 1.70390
Svissneskurfranki............. 40.01430
Hollenskt gyllini............ 31.75460
Vesturþýskt mark.............. 35.84200
Ítölsklíra.................... 0.04803
Austurrískur sch.............. 5.08980
Portúg. Escudo................ 0.40800
Spánskur peseti............... 0.55380
Japansktyen.................... 0.42737
írsktpund..................... 94.4450
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 band4spýja
6 heiður 7 hviða 9 vond
12hluta14eðja15
planta16órói19hyski
20hræddist21 glatar
Lóðrétt: 2 spil 3 varö-
veita 4 vind 5 yfirbragð
7 þröngi 8 hresst 10
þvær 11 saddir 13 stilli
17þykkni 18askur
Lausn á siðustu
krossgátu
Lárétt: 1 gróf4gögn6
úða 7 viss 9 feit 12 kafli
14svo 15ger16rekur
19næði 20nafn21
akkar
Lóðrétt:2rói3fúsa4
gafl5gái7visinn8
skorða 10 eigrar 11 túr-
Ínn13fák17eik18
Una
Miðvikudagur 20. desember 1989 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 11