Þjóðviljinn - 03.01.1990, Page 9
MINNING
Oddný Sumarrós Einarsdóttir
F. 22. apríl 1921 - D. 23. desember 1989
Systir mín Oddný Einarsdóttir
lézt á sjúkrahúsinu á Vífilsstöð-
um á Þorláksdag, 68 ára að aldri.
Oddný fæddist á Norðfirði og
þar ólst hún upp á sama heimili
og ég. Móðir okkar var tvígift.
Síðari maður hennar var Einar
Brynjólfsson sjómaður á Norð-
firði.
Þau Einar og móðir mín
eignuðust tvö börn, Rafn og
Oddnýju. Þau eru nú bæði fallin
frá.
Ég var nokkuð eldri en þessi
systkini mín og af þeim ástæðum
varð það mitt hlustkipti að hafa
mikið af þeim að segja, á meðan
þau voru ung.
Fóstri minn Einar og móðir
mín, unnu mikið utan heimilis.
Hann fylgdi fiskibátum en móðir
mín vann við ýms störf, þó mest
við fiskverkun.
Ég varð því oft að gæta heimilis
og passa yngsta bamið sem var
Oddný.
Þegar fram liðu stundir kom
dugnaður og samviskusemi
Oddnýjar í ljós. Hún fór snemma
að vinna og síðar tók hún við for-
sjá móður okkar, sem þá var farin
að kröftum.
Hugulsemi og hlýja Oddnýjar
við móður mína síðustu árin líða
mér ekki úr minni. Á heimaslóð
okkar á Norðfirði, eða í Nes-
kaupstað eins og staðurinn heitir
nú, eignaðist Oddný marga vini
og kunningja. í þeim hópi var
kona mín, Fjóla Steinsdóttir. Þær
urðu góðar vinkonur og unnu
reyndar saman um nokkum tíma.
Allt varð þetta til þess, að
Oddný varð nákomnari mér en
önnur systkini mín.
En svo kom að miklum um-
skiptum. Oddný giftist Benedikt
Valgeirssyni í Ámeshreppi í
Strandasýslu. Þar norður í Ár-
neshreppi settu þau niður bú sitt
og systir mín var aiflutt frá heima-
byggð sinni. Langt var orðið á
milli gamalla vina og fjölskyldut-
engsl breyttust.
En við sem þekktum Oddnýju
bezt vomm þó glöð. Við vissum
að hún hafði eignazt góðan og
traustan mann.
Síðar kynntist ég Benedikt
nokkuð og sannfærðist um, að
hann var heilsteyptur sómamað-
ur. Ég vissi að systir mín var vel
gift, þó að heimili hennar yrði
langt frá mínu. Böm þeirra Bene-
dikts og Oddnýjar em 7. Á heim-
ili þeirra í Árnesi hefur því eflaust
oft verið mikið að gera.
Hjónin vom dugleg og sam-
hent og á hinum nýja stað eignað-
ist Oddný marga nýja vini, eins
og á heimastaðnum fyrir austan.
Börn þeirra em myndarbörn og
traustleg.
Umskiptin frá Neskaupstað í
Ámes á Ströndum hafa eflaust
verið mikil. Aðstaða og umhverfi
annað. Oddný var alin upp í út-
gerðarbæ en varð bóndakona í af-
skekktri sveit. Þeir sem hæfileika
hafa til að aðlagast nýjum að-
stæðum, eignast síðan nýtt
samfélag.
Ég veit að hugur Oddnýjar
stóð oft austur á gamlar slóðir til
vina og vandamanna. Samband
mitt við Oddnýju systur rnína
breyttist auðvitað eftir að hún
fluttist norður í Árneshrepp.
Ég f ann þó, þegar ég hitti hana,
að hún var ánægð með sitt hlut-
skipti. Mér varð ljóst að hún
hafði eignazt marga vini á nýjum
stað og ég vissi að eiginmaður
hennar var fyrirmyndar maður,
traustur og reglusamur. Og hún-
var svo heppin að hún hafði
eignast hraust og myndarleg
böm.
Oddný átti við heilsuleysi að
stríða síðustu árin. Þá reyndi oft
mikið á rósemi hennar og andlegt
jafnvægi. Hlýhugur hennar til
okkar systkinanna var alltaf sam*
ur og jafn.
Það var fallega gert af henni,
þrátt fyrir margvíslega persónu-
lega erfiðleika, að sýna bróður
mínum, Guðjóni, sem átti við
mikla örðugleika að etja, þá vel-
vild og þann vinarhug, að leyfa
honum sumar eftir sumar að
dvelja nokkum tíma í Ámesi. Ég
er sérstaklega þakklátur Bene-
dikt fyrir skilning hans og velvild í
þeim efnum.
Nú þegar komið er að leiðar -
Iokum,kveð ég Oddnýju systur
mína, sem stóð mér nær en önnur
systkini mín, með vinarhug og
þakklæti. Ég votta Benedikt og
öllum börnum þeirra hjóna sam-
úð mína, og þakka þeim öllum
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
Ragnar Aðalsteinsson hrl.
Sigurður Helgi Guðjónsson hrl.
Viðar Már Matthíasson hrl.
tilkynnir, að
Tryggvi Gunnarsson
hefur gerst meðeigandi í málflutningsskrifstof-
unni frá 1. janúar 1990 að telja og er heiti skrif-
stofunnar frá þeim degi
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
Ragnar Aðalsteinsson hrl.
Sigurður Helgi Guðjónsson hrl.
Viðar Már Matthíasson hrl.
Tryggvi Gunnarsson hdl.
Borgartúni 24 Sími 27611
Pósthólf 399 Telefax 27186
121 ReykjavíkTelex (051 )-94014175 BORG G
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Kópavogi
Spilakvöld
Fyrsta spilakvöldið á þessu ári í þriggja kvölda spilakeppninni verður haldið
í Þinghóli, Hamraborg 11, þriðju hæð, kl. 20.30, mánudaginn 8. janúar.
Allir velkomnir.
Stjórnln
fyrir hugulsemi og hlýhug við
systur mína í veikindaerfið-
leikum hennar.
Ég og kona mín vottum öllum
aðstandendum Oddnýjar samúð
okkar.
Lúðvik Jósepsson
Hún amma er dáin. Á Þorláks-
messudag kvaddi hún amma mín,
Oddný Sumarrós Einarsdóttir,
þetta líf. Það er erfitt að sætta sig
við það þegar jafn yndisleg kona
og hún amma yfirgefur þennan
heim. En hún varð snemma
heilsulítil og átti við mikil
veikindi að stríða á seinni árum.
Þrátt fyrir öll hennar veikindi var
hún ávallt andlega hress og
reyndi alltaf að vera kát sama
livemig ástand hennar var. Oft
þurfti að flytja hana með sjúkra-
flugi til Reykjavíkur en alltaf
kvaddi hún okkur systurnar með
brosi á vör og reyndi að veifa
okkur hversu máttfarin sem hún
var og hversu mikið hún þjáðist.
Sömu sögu er að segja þegar ég
heimsótti hana á spítalann. Alltaf
reyndi hún að tala um daginn og
veginn og spurðist frétta að
norðan og hvemig mér gengi í
skólanum þrátt fyrir allar hennar
þjáningar. Og alltaf brosti hún til
mín þegar ég fór.
Elsku amma í sveitinni sem ég
dvaldi hjá hluta úr hverju ári frá
því að ég man eftir mér og þangað
til foreldrar mínir fluttu með okk-
ur systumar til þeirra hjónanna
alla leið norður í Trékyllisvík
fyrir nokkmm ámm, okkur til
mikillar ánægju. Á svona stund-
um leitar hugurinn til baka og ég
minnist þeirra stunda þegar
amma ásamt afa kenndi mér staf-
ina á hverjum degi þegar upp-
vaskinu var lokið, og var engin
leið að sleppa við lesturinn þó svo
að snjóþotan biði eftir manni úti
á hlaði. Amma var alltaf með
borðhníf eða prjón til þess að
benda á stafina og var það eink-
um þolinmæði hennar og
þrautseigju að þakka að ég lærði
að lesa þennan vetur. Á kvöldin
kom amma svo inn til okkar með
bók í hendi og las fyrir okkur
krakkana áður en við fómm að
sofa, og alltaf var nú gott að
leggjast lúinn upp í rúm og hlusta
á ömmu lesa. Eitt var það sem
amma gerði á hverju einasta
kvöldi áður en við bömin sem hjá
heni vom sofnuðum og það var
það að hún birtist alltaf rétt eftir
að við vomm komin upp í rúm
með brjóstsykurmola eða
súkkulaðibita og stakk upp í okk-
ur. Og ekki alls fyrir löngu sváf-
um við systumar hjá henni og afa
og ekki stóð á ömmu að koma
með molann.
Amma gerði mikið af því að
prjóna og meðan kraftamir
leyfðu prjónaði hún sokka og
vettlinga á öll bamabömin sem
þá vom fjórtán og gaf þeim í jóla-
gjöf. Eitt er víst að þetta vom
mikið notaðar jólagjafir og sér-
staklega kærkomnar. Einnig
lagði hún amma oft kapla og
kraup hún stundum tímunum
ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA S
saman á eldhússtólnum við þessa
iðju sína eftir að hún missti
heilsuna og var hætt að geta unn-
ið stærri húsverkin. Þegar ég var
yngri tíndum við barnabömin oft
blóm eða bláber og gáfum ömmu
því það var svo gaman að gleðja
hana. Hún var alltaf jafn ánægð
þó svo að það hafi oft á tíðum
verið lítið annað en illgresi sem
við vomm að myndast við að tína
í vönd handa henni. Sama var
hvemig „blómin” vom útlítandi,
alltaf setti hún þau í vatn og hafði
þau í eldhúsglugganum og þakk-
aði okkur innilega fyrir þau.
Ég man lítið sem ekkert eftir
ömmu úti við því snemma varð
hún of lasburða til þess að geta
verið úti, en þrátt fyrir það fylgd-
ist hún vel með því sem var að
gerast á bænum. Á hverju vori
var svo náð í fallegustu lömbin og
þau borin inn til ömmu svo hún
gæti séð þau og þegar eitthvert
lambið varð veikt var farið með
það inn til ömmu og þar hjúkraði
hún því af mikilli natni.
Maður gat oft hlegið með
ömmu því hún sagði svo
skemmtilega frá og þegar hún hló
sem innilegast komst enginn hjá
því að brosa eða hlæja. Hún hafði
líka einstaklega fallegt bros og
þegar ég var lítil fannst mér engin
kona geta orðið eins falleg og hún
amma þegar hún brosti og ég er
ekki frá því að ég hafi haft rétt
fyrir mér. Gamall maður sagði
eitt sinn við mig að hún væri sú
greindasta og skýrasta kona sem
hann hefði kynnst og ég er fylli-
lega sammála honum og þrátt
fyrir að hún amma hafi verið
ósköp lítil og veikbyggð, þá stóð
hún ávallt eins og klettur upp úr
hafi ef eitthvað amaði að. Hún
sagði mér líka fyrir mörgum árum
er ég var hjá þeim hjónum eitt
sinn sem oftar, að ég gæti sagt
henni ömmu allt, hún myndi
hjálpa mér ef eitthvað væri að og
jeyndist hún mér alveg sérstak-
lega vel.
Amma kom heim í sveitina fá-
einum dögum fyrir ferminguna
mína, eftir að hafa legið á sjúkra-
húsi í nokkum tíma. Þ6 var hún
langt frá því að vera nógu frísk til
þess að ferðast svona langa leið
og það sem meira er þá kom hún
út í kirkju og gekk með mér til
altaris. Varþað meiragert afvilja
en mætti og þótti mér ákaflega
vænt um það og þykir enn. Þetta
sýnir bara hve viljasterk hún var
og kjarkmikil og hún gerði það
sem hún ætlaði sér.
Eitt var það sem hún amma átti
sem hjálpaði henni mikið í gegn-
um öll hennar veikindi. Hún átti
yndislegan eiginmann sem studdi
hana og gerði allt fyrir hana fram
á síðustu stundu.
Elsku afi, guð gefi þér styrk á
þessum erfiða tíma og biðjum
guð að varðveita þessa yndislegu
konu sem gaf okkur svo margt.
Betri ömmu get ég ekki hugsað
mér. Blessuð sé minning hennar.
Ingibjörg Valgeirsdóttir
Árnesi
Byggðastofnun
auglýsir til sölu eftirtaldar eignir:
1) Hraðfrystihús í Höfnum
2) Sunnubraut 21 Vík í Mýrdal
3) Fiskverkunarhús í landi Þinghóls Tálknafirði
4) ísborg Garði
5) Glerárgötu 34A, Akureyri
6) Hótel Akureyri
Nánari upplýsingar veitir Páll Jónsson á skrif-
stofu Byggðastofnunar Rauðarárstíg 25
Reykjavík sími 91-25133 og Valtýr Sigur-
bjarnarson Byggðastofnun Geislagötu 5 Akur-
eyri sími 96-21210 varðandi eignirnar á Akur-
eyri.
Ástkær eiginkona mín
Guðmunda Guðmundsdóttir
frá Hurðarbaki
Skólavöllum 8, Selfossi
lést aðfaranótt nýársdags í Sjúkrahúsi Suðurlands, Sel-
fossi.
Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd ættingja.
Kristján Guðmundsson
Maðurinn minn,
Grímur M. Helgason
cand. mag.,
Kambsvegi 23,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. jan-
úar kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeir sem
vildu minnast hans eru beðnir að láta líknarstofnanir njóta
þess.
Hólmfríður Sigurðardóttir