Þjóðviljinn - 04.01.1990, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 4. janúar 1990 2. tölublað 55. árgangur
SIS
Brestir í
forystunni
KjartanP. Kjartansson sagði upp vegnagagntilboðsLandsbankans.
Annað skiptið sem Kjartan sagði upp áárinu. GuðjónB. Ólafsson
hvorkijátar né neitar að hann hafifengið atvinnutilboð erlendis frá
Iframhaldi af
Landsbankans í 52'
aatilboði
ut Sam-
bandsins í Samvinnubankanum
og skyndilega uppsögn Kjartans
P. Kjartanssonar fjármálastjóra
Sambandsins á gamlársdag, hef-
ur athygii manna beinst að því
hvað Guðjón B. Ólafsson for-
stjóri ætli sér, en þeir Kjartan
hafa verið mjög nánir samstarfs-
menn.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans lét Guðjón B. Ólafsson
það fyrst í ljós við stjómarmenn
Sambandsins kringum stjómar-
fund í september 1989 að hann
hefði fengið atvinnutilboð frá
Bandaríkjunum. Það fylgdi sög-
unni að hann þyrfti að gefa
ákveðið svar fyrir janúarlok
1990.
Guðjón B. sagðist hvorki vilja
neita því né játa að hann hefði
fengið slíkt tilboð. „Ég ætla mér
ekki að ræða þessi mál mín á op-
inberum vettvangi. Ég ætla
hvorki að játa þessu né neita,
hvort mér hafi verið boðið starf.
Hitt er annað mál að ég hef ekki
hugsað mér neitt að hlaupa frá
því sem ég er að gera núna í bili á
meðan menn á annað borð vilja
hafa mig,“ sagði Guðjón B. við
Þjóðviljann í gær.
Guðjón sagðist harma það að
sjá á bak Kjartani, hann hefði
verið trúr fyrirtækinu og góður
samstarfsmaður sinn. Hann vildi
hinsvegar ekkert tjá sig um
ástæður uppsagnarinnar. „Kjart-
an hefur tekið þessa ákvörðun en
ég stend enn í því að ræða mál við
Landsbankann, bæði þetta mál
og önnur mái. Ég vil því ekki á
þessu stigi gefa neinar yfirlýsing-
ar um þetta mál.“
Kjartan P. sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að langlundar-
geðið hefði brostið þegar
gagntilboð Landsbankans barst í
Loðna
Flotinn
á miðin
Loðnuskipin eru þegar farin að
tínast á loðnumiðin úti fyrir
Norðurlandi að loknu jólaleyfi og
í gær lagði rannsóknaskipið
Bjarni Sæmundsson einnig af
stað tU loðnuleitar.
Að sögn Ástráðar Ingvars-
sonar hjá Loðnunefnd var í gær á
miðunum gótt leitarveður og
sjávarhiti hæfilegur. Eins og
kunnugt er brást haustvertíðin og
veiddust ekki nema um 56 þús-
und tonn. _grh
árslok og því hefði hann ákveðið
að taka þessa ákvörðun, enda
hefði hann alfarið borið ábyrgð á
samningaviðræðunum við bank-
ann.
Þetta er þó ekki í fyrsta skipti
að Kjartan P. grípur til þess ráðs
að segja upp hjá Sambandinu,
samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans. Hann mun hafa gert það sl.
sumar m.a. vegna óánægju með
þær kerfisbreytingar sem boðað-
ar hafa verið hjá SÍS, að skipta
Sambandinu upp í 4 sjálfstæðar
einingar, og dreifa ákvörðunar-
valdi í fjárhagsefnum, sem veikti
fjármáladeildina. Kjartan gekk
þá frá öllum sínum málum,
skilaði bifreið þeirri sem hann
hafði til umráða er hann fór í
sumarleyfi, kvaddi samstarfs-
menn og gerði þeim grein fyrir
því að störfum sínum hjá fyrir-
tækinu væri að ljúka. Það mun
svo hafa verið fyrir sérstakan
bænastað Guðjóns B. að hann
afréð að halda áfram störfum hjá
Sambandinu.
Ljóst er að þessi hörðu við-
brögð Kjartans P. kynda enn
undir óánægju með gagntilboðið
innan Sambandsins, en heimild-
armenn Þjóðviljans telja þó of
seint fyrir SÍS að bakka út nú.
Það má því búast við því að það
verði heitt í kolunum á stjómar-
fundi Sambandsins á föstudag
þar sem ákvörðun verður tekin
um hvort gengið skuli að tilboði
Landsbankans. -Sáf/ÓHT
Sjá viðtal við Kjartan P.
Kjartansson á síðu 3
Fjárhagsvandi Sambandsins hefur nú leitt til þess að brestir em komnir (
forystulið þess. Mynd: Kristinn.
Verðlag
Verð á fiski lækkar ekki
Verðlagsstofnun segirfisk sennilega ekki lœkka í verðifyrst um sinn þráttfyrir endurgreiðslu
virðisauka. Flugfélögin, leigu- og sendibílar fara fram á hœkkun fargjalda
kindakjöti ætti að lækka þegar
eldri birgðir kláruðust.
Hvað varðar verðhækkanir á
Guðmundur Sigurðsson hjá
Verðalgsstofnun segir verð-
lækkunar á fiski ekki að vænta
þrátt fyrir endugreiðslu á hluta
virðisaukaskattsins, þar sem fisk-
verð hefði rokið upp að undan-
förnu á fiskmörkuðum vegna
mikillar eftirspurnar. Fiskur
hefði þó væntanlega hækkað
meira í verði ef engar endur-
greiðslur kæmu til.
Það kemur í hlut Verðlags-
stofnunar að fylgjast með því að
sú lækkun vöruverðs sem á að
eiga sér stað vegna upptöku sölu-
skatts, skili sér til almennings.
Guðmundur sagði stofnunina
koma til með að framkvæma
þetta eftirlit með hefðbundnum
hætti. Upplýsingum hefði verið
safnað í desembermánuði á verði
vöru og þjónustu, og þá fyrst og
fremst þeim þáttum sem virðis-
aukaskatturinn ætti að hafa bein
áhrif á. Þessar upplýsingar nýtt-
ust til samanburðar við verðlag í
janúar.
Samkvæmt ákvörðun ríkis-
stjómarinnar á endurgreiðsla á
hluta virðisaukaskatts á nokkmm
algengum matvælum að leiða til
verðlækkunar á kindakjöti í
heilum og hálfum skrokkum,
fiski, mjólk og íslensku græn-
meti. Guðmundur sagði eftirlit
með fiskinum vera sérstaklega
erfitt en hann gerði þó ráð fyrir
að fylgja mætti málum þar eftir,
vegna þess að stofnunin hefði
skráð niður verð í fiskbúðum og á
fiskmörkuðum. Það gæti einnig
orðið erfitt að fylgjast með því í
vor hvort ákvörðun um lækkað
grænmetisverð skilaði sér til
neytenda, þar sem nánast væri
um mismunandi verð á mörgum
tegundum grænmetis að ræða frá
degi til dags.
Þá er verð á kindakjöti sem
hefur verið stykkjað niður,
frjálst. Guðmundur sagði Verð-
lagsstofnun hafa verðlista frá
kjötvinnslustöðvunum og verð á
einstökum brauðtegundum sagði
Guðmundur þær ekki stafa af
upptöku virðisaukaskatts. En
stofnunin færi á stúfana til að
kanna hvaða brauðtegundir þetta
væru og verð þeirra yrði borið
saman við verðlista sem væru til
frá velflestum bakaríum.
Hjá Verðlagsstofnun liggja
beiðnir frá flugfélögunum um
10% hækkun fargjalda og 23,6%
hækkun farmgjalda, en farm-
gjöld bera nú virðisaukaskatt en
báru ekki söluskatt áður, sem
skýrir hluta hækkunarinnar, að
sögn Guðmundar. Leigubíl-
stjórar fara fram á 10,9% hækk-
un taxta sinna en þeir fengu að
sögn Guðmundar síðast 4,2%
hækkun í september og sendibíl-
stjórar fara fram á 15,3% hækk-
un en þeirra taxtar hækkuðu
einnig í september og þá um
3,1%. Hækkunarbeiðni leigubíl-
stjóra er gömul og sagði Guð-
mundur því nauðsynlegt að
reikna hana upp. -hmp
Austfirðir
Sjómenn binda landfestar
Áhafnir togaranna Hólmatinds
og Hólmaness á Eskifirði mættu
ekki til skips þegar togararnir
óttu að halda á miðin á þriðjudag
vegna óánægju með það verð sem
útgerð togaranna greiðir fyrir
aflann en það er lágmarksverð
verðlagsráðs. Útgerðin greip þá
tU þess ráðs að segja upp öllu
starfsfólki Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar, en HrafnkeU A. Jónsson
formaður Verkalýðsfélagsins Ár-
vakurs segir uppsagnirnar með
öllu ólöglegar.
Sáttafundur var haldinn með
áhöfnum togaranna og útgerð-
inni í gærdag þar sem útgerðin
bauð sjómönnunum að 10% af
lönduðum afla yrði greiddur á
markaðsverði íslenskra fisk-
markaða en eftir að nýtt fiskverð
verði ákveðið í febrúar verði
þetta hlutfall tekið til endurskoð-
unar. Sjómenn höfðu farið fram á
það í lok desember að hlutfallið
yrði 35% en lækkuðu sig niður í
30% til að mæta útgerðinni. En
allt að 30 kr. munur er á lág-
marksverði verðlagsráðs og fisk-
markaðsverði.
Eftir að sáttafundi lauk í gær,
funduðu sjómenn í sínum hópi en
komust ekki að niðurstöðu og
hafa boðað til annars fundar í
dag. Starfsfólk Hraðfrystihússins
hunsaði uppsagnir sínar og mætti
til vinnu í gær og ræddu sín mál en
skráði sig síðan allt á atvinnu-
leysisskrá.
Sjómenn á Fáskrúðsfirði og
Vopnafirði eiga einnig í deilum
við útgerðarmenn um fiskverð og
mættu sjómenn á Fáskrúðsfirði
ekki til skips í gærkvöldi vegna
þessa. -hmp
r