Þjóðviljinn - 04.01.1990, Side 2

Þjóðviljinn - 04.01.1990, Side 2
FRETTIR Valið kunngjört í dag Samtök íþróttafréttamanna hafa valið íþróttamann ársins fyrir árið 1989. Valið verður kunngjört ki. 20.30 í kvöld en Jjóst er hverjir urðu tíu efstu íþróttamennirnir í kjörinu. Ekki eru miklar breytingar á lista tíu efstu manna og síðustu ár, því nær allir á listanum hafa komið áður þar við sögu. Þeir eru Alfreð Gíslason, Arnór Guð- johnsen, Ásgeir Sigurvinsson, Bjami Friðriksson, Einar Vil- hjálmsson, Kristján Arason, Ragnheiður Runólfsdóttir, Sig- urður Einarsson, Þorgils Óttar Mathiesen, Þorvaldur Örlygs- son. Greinilegt er á þessari upp- talningu að erfitt er að segja til um hver hreppi hnossið. -þóm Opnað með lúðraþyt og stjömuljósum íslandsbanki opnaði með mættikl. átta í bítið í gær og hlust- bauð starfsmenn velkomna. Því lúðraþyt, stjömuljósum og flug- aði á lúðrablástur og svo flutti næst var merki bankans tendrað eldasýningu við aðalstöðvar Jón Sigurðsson viðskiptaráð- og bankaráð settist á fund. Kl. bankans í Húsi verslunarinnar í herra stutt ávarp. Ásmundur 9.15opnaðibankinnsvofyrirvið- gærmorgun. Starfsfólk bankans Stefánsson formaður bankaráðs skiptavini. Mynd Jim Smart. Höfuðborgarsvœðið Dýrkeypt íbúaþróun Byggðastofnun: Áframhaldandifólksflutningarfrá landsbyggðinni og suður mun hafa í för með sér meiri kostnað en tekjur Ymislegt virðist benda til þess að ef áframhald verður á fólksflutningum frá landsbyggð- inni og suður muni það hafa í för með sér meiri kostnað en tekjur fyrir höfuðborgarsvæðið. Þetta er meðal þeirra niðurstaðna sem fram koma í nýútkominni skýrslu Byggðastofnunar um kostnað þéttbýlismyndunar og áhrif fólks- flutninga á höfuðborgarsvæðið. Samkvæmt framreikningi Byggðastofnunar á fólksfjölgun og fólksflutningum í landinu á næstu 20 ámm eða fram til ársins 2010 mun íbúum á höfuðborgar- svæðinu fjölga um 20 þúsund manns án þess að tekið sé tillit til aðflutninga fólks. Lætur nærri að það sé samanlagður fjöldi þeirra sem búsettir vom þann 1. des-' ember árið 1989 á Vestfjörðum íþróttamaður ársins FasUr liðir og á Norðurlandi vestra. Sé hins vegar miðað við þá búferlaflutn- inga sem verið hafa frá lands- byggðinni og suður á undanföm- um ámm mun íbúum á höfuð- borgarsvæðinu fjölga um allt að 50 þúsund næstu tvo áratugina. Meðal þess kostnaðar sem fyrirsjáanlegur er að muni aukast ef fram fer sem horfir með íbúa- þróun á höfuðborgarsvæðinu næstu 20 árin er að Rafmagns- veitur Reykjavíkur þurfa að hraða framkvæmdum við upp- byggingu aðdreifikerfis síns sem og Hitaveitan við framkvæmdir og rannsóknir vegna aðflutning- anna. Gera má ráð fyrir hratt vaxandi lóðakostnaði og eins mun kostnaður við sorphirðu aukast. Þá er fyrirsjáanlegt að leggja þurfi út í mikinn kostnað bæði í viðhaldi og nýfjárfesting- um í gatnakerfi svæðsins, jafn- framt því sem auka þarf og bæta heilsugæsluna og fjölga sjúkra- rúmum. Bæði ríki og sveitarfélög mega búast við hækkandi kostn- aði við skólahald og mikil aukning verður í eftirspum eftir plássi á dagvistun. Þá mun hús- næðiskostnaður aukast og einnig félagsleg vandamál. Hins vegar eru ekki nein fyrirsjáanleg vandamál í vatnsbúskap á höfuð- borgarsvæðinu vegna aðflutning- anna. Hvað tekjuhliðina varðar munu skattgreiðslur fjölskyldna og fyrirtækja sem flytja til svæðsins aukast. Þá munu öflugri markaðir á höfuðborgarsvæðinu skapa meiri tekjumöguleika fyrir fyrirtækin en á landsbyggðinni. Hins vegar mun fjárfestingar- og rekstrarkostnaður þeirra verða meiri. -grh Atthagasamtök Héraðsmanna Félgsmenn Átthagasambands Héraðsmanna sem og aðrir Hér- aðsmenn, vinir og kunningjar, ætla að hittast í Bláa salnum Hót- el Sögu laugardaginn 6. janúar kl. 20.30. Nýr opnunar- tími Listasafns Opnunartima Listasafns íslands hefur verið breytt. Framvegis verður safnið opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12 til 18. Veitingastofa safnsins er opin á sama tíma. Nú stendur yfir sýning á íslenskri myndlist 1945 - 1989 í eigu safnsins. Aðgangur er ókeypis, svo og að auglýstum leiðsögnum. Nýtt útibú Borgarbókasafns Á föstudag opnar nýtt útibú frá Borgarbókasafhinu, Grandaúti- bú, en það tekur við af útibúinu sem var til húsa að Hofsvallagötu 16 í rúm 50 ár. Grandaútibú er til húsa að Grandavegi 47 og hefur þar til umráða 90 fermetra hús- næði en gamla útibúið var í 30 fermetra húsnæði þannig að öll aðstaða breytist. Otibúið er að- gengilegt hreyfihömluðum, þá er í safninu sérstök barnadeild og lítil tímaritadeild. Fyrst í stað verður bókasafnið opið á sama tíma og var á Hofsvallagötunni, þ.e. frá 16-19 mánudaga til föstu- daga, en stefnt er að því að lengja opnunartímann fljótlega. Davíð Oddsson borgarstjóri mun opna Grandaútibúið formlega kl. 16 á föstudag. Samið um orlofsferðir launafólks Samtök launafólks, Samvinnu- ferðir-Landsýn og Flugleiðir undirrituðu á þriðjudag sam- komulag um orlofsferðir launa- fólks sumarið 1990. Samið var um 4.500 flugsæti til allra helstu áfangastaða Flugleiða og verða ferðimar á mjög hagstæðum kjömm. Sala ferðanna hefst snemma á þessu ári og verður hún á vegum félaganna og Sam- vinnuferða-Landsýnar. í tengsl- um við ferðimar bjóða Sam- vinnuferðir-Landsýn sumarhús og bflaleigubfla víða í Evrópu á sérstökum vildarkjörum. Verka- lýðsfélögin sem í hlut eiga eru ASÍ, BSRB, VR, KÍ, BHMR, FFSI og BÍ. Nánari upplýsingar um söludaga ferðanna veita verkalýðsfélögin. Fyrir skömmu luku fjórtán nem- ar í Reykjavík og Hafiiarfirði sveinsprófum í stálsmíði, vél- smíði og málmsteypu. Skírteini vom afhent við hátíðlega athöfn sem Félag málmiðnaðarmanna og Félag jámiðnaðarmanna gengust fyrir. Við það tækifæri var þeim Svavari Sigmundssyni og Heimi Haukssyni veittar viðurkenningar fyrir að hafa skarað framúr. Á myndinni em nokkrir hinna nýútskrifuðu jám- iðnaðarsveina og í fremri röð halda þeir Svavar og Heimir á viðurkenningunum. Sögusjóður stúdenta í febrúar verður veittur árlegur styrkur úr Sögusjóði Stúdenta í Kaupmannahöfn að upphæð 7.000 danskar krónur. Sjóðurinn veitir styrki til verkefna er tengj- ast sögu íslenskra námsmanna í Kaupmannahöfn, verkefna sem að einhverju leyti tengjast sögu íslendinga í Kaupmannahöfn og í sérstökum tilfellum til annarra verkefna sem tengjast dvöl ís- lendinga í Danmörku, er stjóm sjóðsins telur ástæðu til að styrkja. Umsóknir um styrkinn Kvóti 1990 Halldór gefur línuna Sjávarráðuneytið hefurgef- ið út þrjár reglugerðir um stjórnfiskveiða. Heildar- þorskaflinn um 300þúsund tonn og grálúðuafli um 45 þúsund tonn Nýútkomin reglugerð sjávarút- vegsráðuneytisins um stjórn botnfiskveiða í ár gerir ráð fyrir þvi að heildarþorskaflinn geti orðið allt að 300 þúsund tonn og grálúðuaflinn um 45 þúsund tonn. Af öðrum botnfisktegund- um verður heimilt að veiða 65 þúsund tonn af ýsu, 90 þúsund tonn af ufsa og 80 þúsund tonn af karfa. Að öðru leyti eru þær reglur sem gilda um botnfiskveiðar á ár- inu í aðalatriðum þær sömu og giltu í fyrra með þeirri unda- ntekningu þó, að þar sem kvóta- lögin gilda aðeins til ársloka er óheimilt að veiða umfram úthlut- un ársins af aflaheimildum næsta árs. Þá verða sóknardagar togara aðeins 230 í stað 245 og þeim fækkar einnig hjá skipum í öðrum útgerðarflokkum og um 15 hjá þeim flokkum báta sem flesta sóknardaga höfðu, en um færri daga hjá öðrum. Ennfremur hefur ráðuneytið gefið út reglugerð um veiðar á úthafsrækju sem eru að mestu leyti sömu reglur og giltu í fyrra og er viðmiðunaraflinn einnig hinn sami eða 23 þúsund tonn. Eins og undanfarin ár geta loðnu- skip valið á milli rækjuveiðileyfa og almenns botnfiskleyfis. Þriðja og síðasta reglugerðin sem sjávarútvegsráðuneytið hef- ur gefið út er um veiðar smábáta. Þær reglur eru óbreyttar frá fyrra ári að öðru leyti en því sem leiðir af lækkun heildarafla í þorski. Á næstu dögum mun ráðuneytið senda útgerðum báta 10 brúttó- rúmlestir og stærri valbréf þar sem gerð verður grein fyrir kost- um þeirra í aflamarki og sóknar- marki. Einnig fá þeir aðilar sem leyfi fengu til veiða á báti undir 10 lestum bréf þar sem skýrðir verða veiðikostir þeirra jafnframt því sem þeir fá einnig sent umsóknar- eyðublað um veiðileyfi. -grh skulu hafa borist stjóm sjóðsins fyrir 17. febrúar 1990. gks hf. stofnað Skömmu fyrir jól var stofnað nýtt fyrirtæki í húsgagnaiðnaði gks hf með sammna tveggja gróinna fyrirtækja í greininni, Gamla Kompanísins og Kristjáns Sig- geirssonar. Þróunarfélag íslands er einnig stofnaðili að fyrirtækinu en Félag íslenskra iðnrekenda aðstoðaði við undirbúninginn. í fréttatilkynningu frá gks segir að tilgangurinn með sameiningunni sé að koma á fót einu öflugu fyrir- tæki sem á arðsaman hátt byggi á hönnun, kaupum og sölu á hús- gögnum, innréttingum svo og öðram skyldum vöram og þjón- ustu. Hlutafé nýja fyrirtækisins er ákveðið 82,5 miljónir króna og era þegar fengin hlutafjárloforð fyrir um 75 miljónum. Afgangur- inn 7,5 miljónir verður seldur á næstu vikum á opnum markaði. Velta fyrirtækisins í ár er áætluð um 250 miljónir króna. Allir starfsmenn í framleiðslustörfum fyrirtækjanna tveggja sem að nýja fyrirtækinu standa hafa ver- ið endurráðnir en þeir era rúm- lega 50 talsins. Megináhersla verður lögð á skrifstofu- og stofn- anahúsgögn. Á næstu tveimur mánuðum verður starfsemin öll flutt að Bfldshöfða 18, í húsnæði Gamla Kompanísins. 2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 4. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.