Þjóðviljinn - 04.01.1990, Qupperneq 3
FRETTIR
Vatnsendi
Klippt á Kópavog
Reykjavík vill kaupa hluta Vatnsendafyrir 162 miljónir. Eigandi vill aðeins selja 100 hektara
sem gerir landið mjög dýrt. Heimir Pálsson: Viljum halda landinu í eigu Kópavogs
ið ræðum þetta fram og aftur
■ þessa dagana og þetta er eins-
og í fornsögunum, við höfum þrjá
eða fjóra kosti og enginn góður,
sagði Heimir Pálsson forseti
bæjarstjórnar Kópavogs um
kauptilboð Reykjavíkurborgar í
hluta Vatnsenda og hvort Kópa-
vogur muni beita forkaupsrétti
sínum og ganga inn í kaupin.
Borgin hefur gert landeiganda til-
boð í þann hluta jarðarinnar sem
næstur er Reykjavík en landið er
allt innan marka Kópavogs.
„Það er hreint ekki ánægjuleg
tilhugsun að landið verði í eigu
Reykjavíkur, enda þótt við mun-
um ráða skipulagningu á svæð-
inu. Annars vonumst við að leyst
verði úr þessu foma deilumáli á
farsælan hátt og mun það væntan-
lega skýrast á næstu dögum,“
sagði Heimir ennfremur.
Vatnsendalandið er í aðalskipu-
lagi Kópavogs til 2008 og er þar
gert ráð fyrir íbúðabyggð, versl-
un og þjónustu, útivistar- og iðn-
aðarsvæðum, auk landbúnaðar-
svæðis við býlið.
Vatnsendi er í eigu Magnúsar
Hjaltested og einsog hann sagði í
Þjóðviljanum í gær hefur hann
hug á að selja um 100 hektara
landsins, sem er alls 800 hektar-
ar. Borgin gerði hinsvegar tilboð
í 350 ha svæðisins fyrir 162 milj-
ónir króna en Magnús vill ekki
selja nema 100 hektara fyrir
sömu upphæð. Kaupi borgin að-
eins 100 hektara er þetta land
greinilega orðið mjög dýrt, eða
162 krónur á fermetra. Sam-
kvæmt tilboði borgarinnar yrði
útborgun 12 miljónir en eftir-
stöðvar greiddar á 15 ámm.
„Við emm alls ekki að setja
Kópavogsbæ stólinn fyrir dymar
með þessu tilboði. Þeim er heim-
ilt að ganga inn í kaupin - taki
eigandi því - og tilboðinu er hag-
að þannig að vilji Kópavogur
kaupa landið ætti það ekki að
reynast erfitt vegna hve útborgun
er lág,“ sagði Davíð Oddsson um
tilboð borgarinnar. Hann taldi
borgina hafa fulla þörf fyrir þetta
svæði í framtíðinni en Kópavog
hinsvegar eiga mun stærra lands-
Séð yfir hluta þess lands sem Reykjavík vill kaupa en Kópavogur hefur forkaupsrétt á. Mynd: Jim Smart.
svæði fyrir sig annars staðar.
Borgarstjóri sagði ekki tímabært
að skipuleggja svæðið að svo
stöddu en þar væri með mjög
góðu móti hægt að koma fyrir 7-8
þúsund manna byggð og jafnvel
allt að 15 þúsund manna byggð.
Svæðið sem um ræðir liggur
nokkuð vestan við Elliðavatn,
rétt fyrir neðan útvarpsstöðina á
Vatnsenda. Þar búa um 250
manns og í viðtölum Þjóðviljans
við nokkra þeirra kom fram
megn óánægja þeirra með fyrir-
huguð kaup borgarinnar. „Til-
boð borgarinnar er dæmigert
fyrir yfirgang hennar og hef ég
ekki trú á að stjóm hennar verði
vinsælli fyrir næstu kosningar
með þessum hætti,“ sagði einn
íbúi á svæðinu sem reyndar vildi
ekki láta nafns síns getið.
Heimir Pálsson taldi ólíklegt
að tilboð borgarinnar væri hluti
af kosningarbaráttu Sjálfstæðis-
flokksins. „Þetta er heldur lang-
sóttur leikur fyrir kosningar og
má mikið vera ef ekki em mörg
eitmð peð þar innan um,“ sagði
Heimir Pálsson. -þóm
Utanríkisráðherra
Fer
hvenji
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra tilkynnti
stjórnvöldum í ísrael á þriðjudag
að hann hefði ákveðið að fresta
opinberri heimsókn sinni til ísra-
els, sem hefjast átti í gær, um ó-
ákveðinn tíma vegna óvissuást-
ands í landinu, eins og það var
orðað í tilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu.
Engar nánari skýringar era
gefnar í tilkynningu utanríkisráð-
uneytisins á því hvaða „óvissu-
ástands“ er vísað til. En ráðu-
neytið hafði boðað á þriðjudag
að ráðherrann myndi gefa frá sér
yfirlýsingu vegna frestunar
heimsóknarinnar seinnipartinn
sama dag. Þetta var síðan dregið
til baka en yfirlýsing boðuð á
miðvikudag.
Utanríkisráðherra sætti nokkr-
um ámælum þegar ljóst var að
umrædd heimsókn stæði fyrir
dyram, vegna hryðjuverka
stjórnvalda í ísrael gagnvart ó-
breyttum borguram á herteknu
svæðunum. Ekki er ljóst á yfirlýs-
ingu Jóns Baldvins hvort þetta
varð til þess að hann frestaði
heimsókn sinni eða stjómar-
kreppa sem yfirvofandi var í f sra-
el vegna brotttreksturs vísinda-
málaráðherrans úr ríkisstjóm-
inni. En sú kreppa leystist á
þriðjudag. -hmp
Símsmiðir
Komnir í öimur störf
Páll Þorkelsson formaður ný-
stofnaðs Félags símsmiða,
segir simsmiði nú hafa fullnægt
þeim skilyrðum sem samninga-
nefnd ríkisins setti þeim fyrir ári
tU að verða fullgUdur samnings-
aðUi, en þá bregði svo við að rfldð
neiti að ræða við þá. Svanfríður
Jónasdóttir aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra segir ráðuneytið
stöðugt vera að ræða við sím-
smiði. Félag íslenskra síma-
manna sé með lausa samninga og
við þá sé rætt í samninganefnd og
undirnefndum.
Um áramótin lögðu 70 sím-
smiðir niður störf þar sem upp-
sagnir þeirra tóku þá gildi. Páll
Þorkelsson segir 30 símsmiði til
viðbótar hafa sagt upp störfum og
á mörgum stöðum á landinu séu
engir símsmiðir við störf og á ein-
um stað séu þeir allir komnir út á
sjó eða í önnur störf.
Páll sagði símsmiði hafa sótt
um aðild að Rafiðnaðarsambandi
íslands í fyrra en það hefði ekki
gengið vegna andstöðu ríkisins.
Nú væru símsmiðir komnir í Raf-
iðnaðarsambandið og hefðu
stofnað þar eigið félag og þeir
hefðu átt tvo fulltrúa í samninga-
nefnd við gerð síðustu kjara-
samninga í október. Á samninga-
fundum þá hefði komið fram að
ríkið væri ekki tilbúið til að viður-
kenna kröfur símsmiða vegna
þess að Félag íslenskra síma-
manna, þar sem símsmiðirnir
vora áður, væri enn með samning
í gildi. Nú væru samningar lausir
og símsmiðir hefðu sagt upp
störfum til að fullnægja öllugi
skilyrðum til stofnunar nýs félags
en þá vildi ríkið ekki ræða við þá.
Áð sögn Páls hafa yfirmenn
Pósts og síma sýnt símsmiðum
vissan skilning í þeirra baráttu en
virtust samt algerlega ráðþrota
gagnvart þeim vanda sem nú væri
kominn upp, þrátt fyrir að sím-
smiðir hefðu rætt við þá sín mál
fyrir mörgum mánuðum. Rafiðn-
aðarsambandið stæði heilt að
baki símsmiða og hefði skorað á
sína félagsmenn að ganga ekki í
störf þeirra. Á meðan engar við-
ræður færu fram héldi ástand í
símamálum áfram að versna og
bilunum fjölgaði. Viðgerðar- og
flutningsbeiðnir hefðu þegar ver-
ið orðnar um 300 seinnipartinn í
desember.
Svanfríður Jónasdóttir sagði
ríkið ekki tilbúið að viðurkenna
hvaða félag sem væri fyrir hvaða
hóp sem væri. Félagafrelsið gæfi
mönnum ekki sjálfkrafa rétt
gagwart ríkinu. Þó til að mynda
einhver hópur innan Kennara-
sambands Islands sætti sig ekki
við gerða samninga gæti hann
ekki gengið í Rafiðnaðarsamb-
andið og ætlast til að samið verði
við þá á þeim vettvangi. Ríkið
ætti nú í samningaviðræðum við
símsmiði í gegnum Félag ís-
lenskra símamanna.
—hinp
sís
Langlundargeðið brast
Kjartan P. Kjartanssonfjármálastjóri Samhandsins létfyrirvaralaust afstörfum á gamlársdag. Kjartan: Ég kann enga
skýringu ámismuninum á kauptilboðunum í hlut Sambandsins í Samvinnubankann
Kjartan P. Kjartansson fjár-
málastjóri Sambandsins lét af
störfum hjá Sambandinu á gaml-
ársdag eftir að Landsbankinn
gerði Sambandinu gagntilboð um
hlutabréf þess í Samvinnubank-
anum. Kjartan hefur starfað hjá
Sambandinu í á fjórða áratug,
þar af tuttugu ár sem fram-
kvæmdastjóri.
Þjóðviljinn hafði samband við
Kjartan í gær og spurði hann um'
ástæður þess að hann hættir hjá
Sambandinu.
„Ég er búinn að vera í þessum
samningum frá því snemma árs
og hef talið mig vera búinn að
ljúka þeim í stærstum drögum
þegar minnisatriðin vora undir-
rituð 1. september; annars hefði
maður ekki skrifað undir. Þá var
meiningin að ljúka þessu fyrir
októberlok. Ég taldi á þeim tíma
að ég væri að ljúka þessu fýrir
hönd Sambandsins og að banka-
menn væra að ljúka þessu fyrir
hönd Landsbankans. Síðan kem-
ur í ljós að það sem ég taldi að
verið væri að semja um gekk ekki
í gegn, það náði ekki staðfestu
hinumegin. Þegar maður er bú-
inn að standa í þessu mánuðum
saman og stendur allt í einu and-
spænis því að það koma ný boð og
ný tilmæli frá bankaráði sem situr
síðasta fund sinn í lok ársins, þau
boð ganga þvert á það sem búið
er að vera að klappa saman á
undangengnum vikum, þá hlýtur
einhversstaðar að bresta lang-
lundageð í þessu.“
Bitnar það ekki á röngum að-
ila? Það er bankaráð Landsbank-
ans sem kemur með nýtt tilboð,
en ekki stjóm SÍS sem hleypur
frá fyrra tilboði. Samt segir þú
upp hjá Sambandinu. Hvemig
kemur það heim og saman?
»Ég er að semja við æðstu
menn bankans og starfandi menn
og hlýt því að þurfa, sem fram-
kvæmdastjóri Sambandsins að
eiga við þá viðamikil samskipti
áfram. Ég taldi að ég væri ekki
heppilegasti maðurinn fyrir Sam-
bandið til þess að eiga áframhald-
andi samskipti við bankann svo
snurðulaust væri.“
Það er ekki laust við að manni
finnist sömu reglur vera famar að
gilda í viðskiptalífinu og í
stjómmálunum. Nú verður for-
stjóra á og þá skal fjármálastjóri
vflcja. Hverju svararðu því?
„Nei, það er af og frá. Guðjón
átti ekki nokkum hlut að þessu.
Hann fól mér alfarið val og veg-
semd af samningunum. Ég gerði
honum og stjóminni að sjálf-
sögðu grein fyrir viðræðunum, en
hann bar ekki á nokkum máta
ábyrgð á þeim, öðravísi en að
hann hefði að sjálfsögðu orðið að
helga samningana þegar þar að
kemur. Ef mér mistekst þau
skylduverk sem ég á að sinna og
ef ég rapportera þau öðravísi,
bara eftir bestu vitund, heldur en
raun verður á, þá verð ég að sjálf-
sögðu að bera ábyrgð á því. Hitt
er annað mál að það er ákaflega
sjaldgæft að menn vilja bera
ábyrgð á sínum gjörðum hér á
íslandi. Þeir vilja skjóta sér ein-
hversstaðar á bak við aðra.“
Þú lítur semsagt á þetta sem
mistök af þinni hálfu?
„Ég vil ekki endilega kalla
þetta mistök. Ég vil segja að sú
trú sem ég hafði og það mat sem
ég lagði á samningana, það
reyndist ekki rétt vegna afstöðu
þeirra sem ég var að kljást við. Ég
ætla ekki að ásaka þá, að minn
skilningur sé réttari en þeirra.“
Það ber mjög mikið á milli
þessara tveggja tilboða, þess sem
gengið var frá 1. september og
þess sem kom núna. Tilboðið nú
er um þriðjungi lægra en fyrra
tilboðið. Kanntu skýringu á því?
„Nei. Ég kann enga skýringu á
því. Ég var með kröfugerð um
sölu bankans sem var töluvert
hærri en við féllumst á 1. sept-
ember, en það gerðum við í því
augnamiði að ná saman við þjóð-
bankann á eins farsælum Únum
einsog hægt var, þannig að þetta
yrði ekki mikið þóf. Ég var með
töluvert hærri fjárhæðir en þá var
ákveðið að sættast á við, sem
hefði gefið okkur 825 miljónir.“
Að lokum, Kjartan: Hvað
tekur nú við hjá þér?
„Þegar maður tekur svona
ákvörðun væra það óheilindi ef
maður væri búinn að baksa við að
tryggja sér starf eða stöðu ein-
hversstaðar annarsstaðar. Þá
væri maður að nota einhverja
tylliástæðu. Ég hef engum slíkum
störfum að hverfa að núna.“
En þú ert alfarið hættur hjá
Sambandinu?
„Um leið og ég vék úr starfinu,
þá vék ég úr starfinu. Það þýðir
að þá vék ég úr starfi hjá Sam-
bandinu."
-Sáf
Fimmtudagur 4. janúar 1990 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3