Þjóðviljinn - 04.01.1990, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 04.01.1990, Qupperneq 9
Stuðningur við ísraels- för Jóns Baldvins Yfirlýsing frá Hinu íslenzka Tófuvinafélagi Hið íslenzka Tófuvinafélag lýsir yfir fullum stuðningi við ákvörðun ríkisstjómar íslands að senda Jón Baldvin og Bryndísi til ísraels í upphafi nýs árs. H.Í.T. hefur ávallt stutt þau hjón til allra góðra verka, jafnt þjóðarbjörg- unar afmælisteita sem og við- halds hreina kynstofna um ver- öldina. Hins vegar ber að harma þá frestun sem í dag var ákveðin á för þeirra hjóna í útlönd. Gyðingalandsförin verður von- andi farin innan tíðar og það hljóta að finnast þau lönd í ná- lægum eða fjarlægum álfum, sem heimsækja má á meðan beðið er tímamótaferðarinnar í Mið- jarðarhafsbotna. Hið íslenzka Tófuvinafélag prumpar á bamalegar yfir- lýsingar Palestínuarabavinafé- lagsins á íslandi, sem greinilega skilur ekki lögmál sögulegrar þróunarframvindu. Palestínu- arabar þeir sem hafa verið flandr- andi um slóðir frelsarans, for- feðra hans og ættmenna engum til gagns í 3000 ár hafa margsann- að að þeir em hinir mestu fjórðungsómagar, gisinlerar lásí og fullkomlega kúlúrlausir. I dag var þess t.d. getið í fréttum að tveir slíkir Arabar hefðu fengið væga dóma, 8 ár og 8 Vi ár, fyrir að grýta ráðherrabíl. Slíkar at- hafnir era sláandi dæmi um kúlt- úrleysi þessa kynstofns. Atburð- urinn sýnir einnig misskilda mannúð og ístöðuleysi ísraelskra dómstóla að kveða upp svo væga dóma. H.Í.T. væntir þess að Jón Baldvin hvetji ísraelsk stjómvöld til áfrýjunar títtnefndum dómi svo þyngja megi refsinguna fyrir ábyrgðarfyllri dómstóli. Hið íslenzka Tófuvinafélag tekur heils hugar undir stuðning Jóns Baldvins við þá stefnu ísra- elsstjómar að Palestínuarabar eigi engan tilverurétt og megi alls ekki samlagast siðuðu fólki, jafnvel þó ókristið sé, enda era þessir Arabar skítugir múslimir, náskyldir Hundtyrkjanum sem rændi í Grindavík og víðar á 17. öld. Hið íslenzka Tófuvinafélag fagnar einnig þeirri einurð sem Jón Baldvin sýnir með stuðningi sínum við ofsóknir ísraelsstjóm- ar á hendur kristna minnihlutan- um í landinu. Nóg er til af kristnu fólki og kristnu ofstæki annars staðar og því engin ástæða til að leyfa þessu fólki að vaða uppi í ísrael og valda þar trúarmengun meðal hreintrúaðra Gyðinga. Hið íslenzka Tófuvinafélag fagnar því að Bryndís skuli fá að fara með bónda sínum til Lands- ins Helga. Hún hefur sennilega ekki komið þar fyrr og þar ku vera margt að sjá sem gleðja mundi áhrifakonur norrænar. Sólböð við Dauðahafið eru sögð einkar heilnæm og allt frá dögum krossfara hefur það þótt mest fullnæging ferðlúnum fyrir- mönnum að sofa fljótandi þótt mest fullnæging ferðlúnum fyrir- mönnum að sofa fljótandi í þeim saltpækli sem Dauðahafið er. Ráðherrafrúin gæti líka fært „fanklúbbi“ sínum, Hinu ís- lenzka Tófuvinafélagi, svo sem eins og einn pela af Jórdanar- vatni, en slík vatnstaka þykir önnur mest fullnæging pílagrím- um á þeim slóðum. Hið íslenzka Tófuvinafélag fer þess á leit við utanríkisráðherra að hann bjóði fulltrúa H.Í.T. að taka þátt í förinni, þar sem fé- lagið hefur öðram betur stutt djarfar og einkar vitrænar á- kvarðanir ráðherrans. Gæti full- trúi H. í. T. kynnst af eigin raun aðferðum ísraelsku Víkinga- sveitanna við að halda kynþátt- um aðskildum og hreinum. Þá þekkingu gæti H. í. T. síðan nýtt sér hérlendis til að berjast fyrir betri gæslu útlendra loðdýra, sem óþjóðhollir loðbændur íslenskir eiga að geyma í rammgerðum einangranarbúðum en freistast sífellt til að sleppa út til þess eins að eyðileggja hinn fomnorræna hreina kynstofn íslensku tófunn- ar. Ef þeir Jón Baldvin og Ólafur Ragnar tíma ekki að bjóða full- trúa H. í. T. í förina væntir fé- lagið þess a.m.k. að það fái ítar- lega skýrslu utanríkisráðherra um framkvæmd þeirrar aðferða- fræði sem ísraelskar víkinga- sveitir beita svo árangurssamlega gegn óæðri kynstofnum og öðr- um sníkjugróðri lífríkisins. Fái fulltrúi H. í. T. ekki að fljóta með má þó auka nokkuð árangur fararinnar með því að senda yfirmenn íslensku Víking- asveitarinnar. Sveitarinnar gæti reynst meiri þörf á næstunni fái árans alþýðufjöldinn að njóta frekari sultarólarstyttingar. I ís- rael gæti Víkingasveitin okkar fengið intensífan kúrs í virkum athöfnum við að halda óþjóðholl- um óþrifaöflum í skefjum, skjóta með gúmmíkúlum augun úr fólki í friðargöngum og berja kven- pening, böm og örvasa, ráða- mönnum til nokkurrar uppörv- unar og yndisauka. Hið Islenzka Tófuvinafélag endurtekur eindreginn og óskor- aðan stuðning sinn við Gyðinga- landsför Bryndísar og Jóns Bald- vins, óskar þeim fararheilla og væntir þess að þau hjón beri hróður Islands um veröld víða og veki jafnt og fyrr alþjóðlega at- hygli á framsækinni mannúðar- stefnu íslenska utanríkisráðu- neytisins. Stjóm Hins íslenzka Tófuvin- afélags mun að sjálfsögðu taka á móti utanríkisráðherrahjónun- um við heimkomuna með friðar- dúfnafjöld, rauðum dreglum og Lúðrasveit Verkalýðsins. Á nýjársdegi 1989 Stjórn H. í. T. BÆKUR Hestarog menn á férð og flugi Árbók hestamanna 1989 Hestar og menn Guðmundur Jónsson og Þorgeir Guðlaugsson Skjaldborg Hestamenn era býsna sprækir við útgáfustarfsemina. Þeir gefa út tvö ágæt tímarit, Hestinn okk- ar og Eiðfaxa. Auk þess koma árlega einhverjar bækur á þeirra vegum. Ein þeirra era Hestar og menn, árbók hestamanna, sem nú kemur út í þriðja sinn. Höf- undar hennar era þeir Guðmund- ur Jónsson og Þorgeir Guðlaugs- son. Þetta er vönduð og vel gerð bók, hartnær 300 bls., með ara- grúa ágætra mynda bæði í svart- hvítu og lit, auk teikninga eftir hollenska listakonu. Meginhluti bókarinnar era við- töl við þekkta hestamenn, bæði innlenda og erlenda, - eða öllu heldur frásagnir þeirra. Og vilji einhver spyrja hverjir þeir séu þá eru það þessir: Baldur Ari Guð- laugsson, Einar öder Magnús- son, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Rósa Einarsdóttir, Atli Guð- mundsson, Hinrik Bragason, Sandra Suhutzbach, sem nú er Evrópumeistari í fjórgangi, And- reas Trappe, en hann er Evrópu- meistari í fimmgangi og Jón Pétur Ólafsson, Evrópumeistari í gæðingaskeiði. Verður lesandinn margs vísari um þetta ágæta fólk og era frásagnir þess bæði fróð- legar og skemmtilegar. Þá er og rakin saga fjórðungsmótanna á Austurlandi og sagt frá síðasta fjórðungsmótinu þar, ís- landsmótinu í Borgarnesi, úrtöku og undirbúningi fyrir EM og Evrópumótinu í Danmörku. Síðast en ekki síst er svo að nefna „Ferð um Tröllaskaga”. Þar segja þau hjónin Grétar Geirsson, bústjóri á Hólum og Jónína Hjaltadóttir frá ferð, sem þau, ásamt fleiram, fóra á hest- um frá Hólum í Hjaltadal, yfir Heljardalsheiði og niður í Svarfaðardal í sumar er leið. í ferðinni vora Skagfirðingar, Sel- timingar og Kópavogsbúar, hin besta blanda. Er frásögn þessi öll hin greinarbesta og ýmsu ofið þar inn í til skemmtunar og fróðleiks. Hestar og menn er hin prýði- legasta bók bæði að innihaldi og ytri gerð. Áreiðanlega mörgum hestamanninum aufúsugestur ekki síður en hinar fyrri árbækur. -mhg ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Gísii Guðmundsson leiðsögumaður og kennari frá Tröð lést 29. desember. Anna M. Guðjónsdóttir Valgerður Guðmundsdóttir og börn hins látna. FLÓAMARKAÐURINN SMÁAUGLÝSINGAR Tll sölu sófasett 3+2+1, eldhúsborð, m/4 stólum, Ijós o.fl. Einnig Commodore 64 m/diskadrifi. Á sama stað óskast hillur í stofu. Sími 18475. Ungbarnanudd Kenni foreldrum ungbarna á aldrin- um fjögurra vikna til tíu mánaða nudd fyrir ungbörn. Ragnheiður í síma 41734. fbúð óskast Vinkonur um þrítugt ásamt 13 ára dreng óska eftir 4ra herbergja íbúð sem allra fyrst. Reglusemi og skilvísi heitið. Upplýsingar í síma 693900, Þóra eða 24827. Fingravettllngur fannst Fingravettlingur (telpu) rauður, mynstraður, fannst nýlega við Land- akotstún. Uppl. í síma 17198. Mokkakðpa til sölu nr. 40-42, verð kr. 5.000. Einnig twe- edkápa nr. 42, verð kr. 4.000. Uppl. í síma 36117. Kettllngar fást geflns á góð heimili. Uppl. í síma 27758. fbúð til leigu 2ja herbergja íbúð til leigu í Grafar- vogi. Uppl. í síma 656332. Gömul þvottavél fæst geflns Aúk þess glerkassi sem gæti nýst sem fiskabúr. Uppl. í síma 24834. Óskum eftir að taka á leigu húsnæði í Reykjavík eða nágrenni gjarnan gegn heimilis- aðstoð. Uppl. í síma 674506. Taska tapaðlst á Hótel Borg Á gamlárskvöld tapaðist taska (fjöl- mynstraður bakpoki) á Hótel Borg. í töskunni voru engir peningar en mikið af snyrtivörum sem eigandinn, ung stúlka, hafði fengið í jólagjöf. Þessa er nú sárt saknað. Skilvís og heiðarlegur finnandi vinsamlegast hringi í síma 36718, Sara (símsvari ef enginn er við) eða 681310 og 681331 á skrifstofutíma. Fundarlaun. Til sölu litasjónvarp, Saba 26 tommu, í góðu lagi. Uppl. í síma 10542 e. kl. 4. Óska eftir að kaupa Lada Samara ’88-’89, Mazda árg. '86-’87 eða annað svipað. Uppl. í síma 39263 eftir kl. 18.00. Vantar notaða dýnu helst Dux, 120x200, lítinn fataskáp og kommóðu. Uppl. í vs. 50080 frá kl. 2-7, Birgitta. Óska eftir varahlutum úr Lada Lux. Á sama stað er til sölu s/h ferðasjónvarpstæki. Uppl. í síma 687804. Tll sölu Alda þvottavél og þurrkari í góðu lagi. Verð kr. 8.000. Uppl. í síma 20173. Vantar þig helmllishjálp? Tekaðmérþrif íheimahúsum. Ervön og vandvirk. Uppl. í síma 74212. Rossignol skíði til sölu 1,65 m að lengd með Marker öryggis- bindingum. Uppl. í síma 76805. Datsun Cherry árg. '80 til sölu á 30.000 kr. Er með grænan miða og þarf lítið til að fá fulla skoðun. Uppl. í síma 37549. Stór 65 ára gamall bufffetskápur fæst gefins. Uppl. í síma 19638. Vantar hreinlætistæki Óskum eftir að kaupa klósett með stút í gólf, handlaug, sturtubotn og blöndunartæki. Uppl. í síma 91- 43452. Tll sölu íslensk-dönsk orðabók eftir Sigfús Blöndal, gefin út af prentsmiðjunni Gutenberg 1920-1924. Selst á góðu verði. Uppl. í síma 79215. Barnagæsla fyrir hádegi Barngóð kona við Jörfabakka í Breiðholti getur tekið börn í dagvistun fyrir hádegi. Uppl. í síma 79215. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýóubandalagið Kópavogi Spilakvöld Fyrsta spilakvöldið á þessu ári í þriggja kvölda spilakeppninni verður haldið í Þinghóli, Hamraborg 11, þriðju hæð, kl. 20.30, mánudaginn 8. janúar. Allir velkomnir. Stjórnin Jólatrésskemmtun Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jóla- trésskemmtun fyrir börn félagsmanna sunnu- daginn 7. janúar kl. 15.00 á Hótel íslandi. Miðaverð fyrir börn kr. 500.- og fyrirfullorðna kr. 200.- Miðar eru seldir á skrifstofu V.R., Húsi verslun- arir.nar, 8. hæð. Upplýsingar í síma 687100. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Hundaeigendur í Reykjavík Athygli ykkar er vakin á því að framvegis verður gjalddagi leyfisgjalds 1. janúar og eindagi 1. mars ár hvert. Við greiðslu gjaldsins, sem er kr. 7.200 fyrir hvern hund ber eigendum að framvísa hreinsunarvottorði eigi eldra en frá 1. septemb- er s.l. Gjaldinu er veitt móttaka á skrifstofu eftirlitsins, Drápuhlíð 14, daglega frá kl. 8.20 til kl. 16.15. Bent skal á, að hafi gjaldið ekki verið greitt innan 2ja mánaða (fyrir 1. mars 1990) fellur leyfið til að halda hund í Reykjavík niður. Heilbrigðiseftirlitið væntir góðs samstarfs við hundaeigendur í framtíðinni og hvetur þá til að kynna sér vandlega og virða ákvæði nýrrar samþykktar um hundahald í Reykiavík.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.