Þjóðviljinn - 04.01.1990, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 04.01.1990, Qupperneq 12
Hvernig leggst nýja áriö í Þ'9? Lára Lúðvígsdóttir húsmóðir Bara mjög vel og ég vonast eftir góðri heilsu og velgengni á árinu. Rína Þorsteinsdóttir nemi Það leagst bara vel í mig. Ég vona að árið verði eins gott og síðasta ár en veðrið verði betra. Guðjón Sigurðsson á röltinu Árið leggst ágætlega í mig. Efna- hagur landsins er á uppleið og fiskvinnslan er að komast í samt lag eins og hún á að vera. Jón Pétursson nemi Nýja árið leggst vel í mig. Ég vona að stjómmálamenn verði meira ábyrgir gerða sinna á árinu en þeir hafa verið. Sigþrúður Ármannsdóttir skrifstofumaður Árið leggst vel í mig og ég vona að allt verði betra en það var á síðasta ári. þjómnuiNN " Fimmtudagur 4. janúar 1990 2. tölublað 55. árgangur SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 SÍMFAX 681935 Rithöfundaverðlaun RÚV Enginn hörgull á verkefnum Hjörtur Pálsson ljóðskáld hlaut árleg rithöfundaverðlaun Rikisútvarpsins, sem úthlutað var á gamlársdag. Hjörtur, sem hefur helgað sig ritstörfum und- anfarin 4-5, ár segir verðlaunin koma sér vel, bæði vegna þeirrar viðurkenningar, sem í þeim felist, og eins auðveldi fjárstuðningur- inn honum að sinna skriftunum ótruflaður. Hjörtur hefur gefið út 4 ljóða- bækur og eitt sagnfræðirit auk þess sem hann hefur þýtt 18 bækur, þar af 17 í óbundnu máli. Einu ljóðaþýðingarnar, sem komið hafi út eftir sig, segir hann vera úrval úr ljóðum danska skáldsins Henriks Nordbrandts, en hann er einn þeirra, sem að þessu sinni voru tilnefndir til Bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs. Mörg orð um það sem hann vinnur að um þessar mundir vill Hjörtur ekki hafa, segist þó hafa verið að vinna að bók undanfarin misseri og búast við að koma henni frá sér í haust. Eins langi sig til að koma frá sér ljóðabók innan allt of langs tíma. - Pað er óhætt að segja að það sé enginn hörgull á verkefnum, segir hann að lokum. LG Hjörtur Pálsson segir viðurkenninguna og vinnufriðinn, sem verðlaununum fylgir, koma sór vel. Mynd - Kristinn. Sjóður Ásu Wright Jákvæð viðurkenning og ánægjuleg Herði Ágústssyni veitt viðurkenning úr verðlaunasjóði Ásu Wright - Þetta er mjög ánægjulegt, það er ekki hægt að segja annað, segir Hörður Agústsson listmálari, en hann hlaut á föstu- daginn var viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmunds- dóttur Wright fyrir rannsóknir sínar á íslenskri byggingarsögu aUt frá Landnámsöld. - Þetta er fyrst og fremst já- kvæð viðurkenning og ánægju- leg, segir hann, - og það sem mér Hörður: Mikið verk framundan. Mynd - Kristinn. er efst í huga er að ég vona að þessi viðurkenning verði til að vekja athygli íslendinga á sinni húsagerðarlist og stuðli að því að betur verði gætt að slíkum minj- um hér á landi. Til þess er ég að þessu. Hörður vinnur sem stendur að fjórða bindinu um Skálholt í rit- röð sinni Staðir og kirkjur, og fjallar það bindi um staðarhald í Skálholti, byggingar og það líf, sem þar hefur verið lifað. Auk þriggja binda um Skálholt hefur hann meðal annars lokið 2 bind- um um Laufás og einu um Mos- fell, en segir mikið verk framund- an. Hann vilji vekja athygli íslend- inga á því að eins og aðrar Evróp- uþjóðir höfum við líka átt glæsta byggingarlist, allt þetta tal um moldarkofa sé ekki nema hálfur sannleikurinn. Sama máli segir hann að gegni um myndlistina; þótt myndlistararfurinn sé kann- ski ekki eins merkur og bók- menntaarfurinn sé óþarfi að þegja yfir honum eins og gert hafi verið fram undir þetta. lG Tónleikar Bolaa andlíti tón- listarínnar Emil ogAnna Sigga gera sitt besta til að túlka tónlist P. D. Q. Bachs á tónleikum í Norræna húsinu í kvöld Sönghópurinn Emil ásamt Önnu Siggu og vel völdum hljóð- færaleikurum ætla í kvöld að reyna að gera sitt besta í að túlka tónlist ættarskammar Bach- fjölskyldunnar, P.D.Q. Bachs. Að sögn Emils er listrænum hæfileikum þessa yngsta og sísta sonar J.S. Bachs best lýst með því að segja að það sé hin mesta Emil og Anna Sigga æfa fyrir tónleikana. Mynd - Jim Smart. óheppni að latneska orðasam- bandið „Diabolus in Musica" hafi verið tekið í notkun á tímum P.D.Q. því viðurnefnið Tónlist- ardrísill hefði hæft honum með ágætum. Bræður hans munu hins vegar hafa lýst honum sem bólu á andliti tónlistarinnar. Emil kveður eftirlifandi af- komendur Bachs hafa reynt að afmá öll verksummerki um tilvist P.D.Q. að honum látnum, en þó ekki tekist betur til en svo að bandaríski hljómfræðingurinn og pédékúristinn Peter Schickele hafi fundið nokkur handrit af verkum hans. Ákvað Schickele að helga líf sitt rannsóknum á lífi og verkum P.D.Q. Bachs, hefur nú skrifað ævisögu hans og staðið að útgáfu og hljóðritunum á fjölda verka hans. Emil og Anna Sigga munu í kvöld flytja nokkur af þessum verkum í sal Norræna hússins og hefjast tónleikarnir kl. 20:30. LG

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.