Þjóðviljinn - 06.01.1990, Side 2

Þjóðviljinn - 06.01.1990, Side 2
FRÉTTIR Fiskverðsdeilan Aðvömnin í klósettið Landsamband útvegsmanna hefur íhótunum við sjómenn á Austurlandi sem neita enn að siglafyrr en samið verður um hærra fiskverð. Grindavík: Sjómenn samþykktu20% verðhœkkun á ufsa og 6-7 krónu hœkkun á netaþorski Við hentum þessu skeyti sem okkur barst frá Landssam- bandi íslenskra útvegsmanna beint í klósettið og sturtuðum því niður. Auðvitað hleypti þessi hót- un fllu blóði í menn í fyrstu og þá sérstaklega af því að beiðnin um að senda skeytið kom frá útgerð- inni hér í plássinu. En menn jöfnuðu sig fljótt þar sem skeytið er og var ekki tekið alvarlega, sagði Eiríkur Stefánsson formað- ur Verkalýðs- og sjómannafélags- ins á Fáskrúðsfirði. í umræddu skeyti LÍÚ er við- komandi útgerðarfélögum á Austurlandi sem sjómenn eiga í fiskverðsdeilum við áskilinn rétt- ur til skaðabótakrafna vegna að- gerða þeirra á skipum félaganna. Þau hafa verið bundin við bryggju það sem af er þessu ári og fátt sem bendir til að fiskverðs- deilan þar eystra leysist í bráð. Á Eskifirði slitnaði upp úr við- ræðum sjómanna á Hólmanesi og Hólmatindi við Aðalstein Jóns- son, Alla ríka, en hann bauð þeim að 10% heimalandaðs afla yrði gerður upp á fiskmarksað- verði en því höfnuðu sjómenn sem vilja að sá hlutur verði 30%. Á Fáskrúðsfirði hefur útgerðar- auðvaldið ekki verið til viðræðu um kröfur sjómanna sem krefjast 37% hækkunar fiskverðs og ekki heldur hafa tekist samningar við togara-og smábátasjómenn á Vopnafirði. Áftur á móti þótti sjómönnum af þeim tveim vertíðarbátum í Grindavík sem neituðu að róa nema að því tilskildu að fiskverð yrði hækkað, ekki stætt á öðru en að taka tilboði fiskvinnsluarms útgerðarmanna eftir að þeir höfðu hótað að segja þeim stríð á hendur og afskrá þá og ráða aðra í þeirra stað. Að sögn Sævars Gunnarssonar formanns Sjómanna- og vél- Viðskipta- og málaskólinn hf. hefur sett á stofn Fjölmiðla- skóla íslands sem mun bjóða upp á fjölda námskeiða sem tengjast fjölmiðlum og Gunnar Már Gunnarsson einn forsvarsmanna skólans segir mögulegt að skólinn fari af stað í enda þessa mánaðrr með þriggja anna fjölmiðianám á háskólastigi. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur hefur gert námskeiðslýsingar og mun sjá um faglega stjórnun hans fyrst um sinn. Fjölmiðlaskólinn hefur gert samkomulag við Blaðamannafé- lag íslands um að félagið styrki félagsmenn sína til að sækja nám- skeið við skólann og sagði Lúðvík Geirsson formaður Blaðamann- afélagsins það í samræmi við þá stjórafélags Grindavíkur höfðu sjómennirnir áður hafnað tilboði fiskverkenda sem hljóðaði upp á 20% hækkun á verði ufsa sem er aðaluppistaða afla Grindavíkur- báta fram eftir miðri bátavertíð. Ennfremur fá sjómenn þar 6-7 krónu hækkun á verði netaþorsks þannig að fyrir tveggja nátta stefnu félagsins að efla menntun félagsmanna. Lúðvík vakti at- hygli á að um 70 íslendingar stunduðu nú einhvers konar fjöl- miðlanám erlendis. Að sögn Gunnars Más eru námskeiðin einnig ætluð almenningi og starfsmönnum ýmissa fyrirtækja og stofnana sem koma þurfa upp- lýsingum á framfæri við fjöl- miðla. Sigrún Stefánsdóttir hefur sett saman námskeiðslýsingar fyrir skólann og mun hún einnig kenna við skólann. Hún sagði nám- skeiðin í þriggja anna náminu taka mið af uppbyggingu blaða- mannaskólans norska, þangað sem íslendingar hefðu margir sótt nám en langur biðlisti væri við þann skóla. Sigrún sagði að þorsk verða greiddar 35 krónur fyrir hvert kfló og 50 krónur fyrir kflóið af einnar nætur þorski. „Við erum ánægðir með þetta samkomulag svo langt sem það nær en að hinu leytinu er það langt frá því verði sem gengur og gerist á fiskmörkuðunum. Þar er verið að selja netafisk á um 70 staðið hefði til að Háskóli íslands færi af stað með námskeið fyrir þá sem lokið hefðu BA eða BS prófi og blaðamenn með amk. fjögurra ára starfsreynslu. Þriggja anna námið í Fjölmiðl- askólanum væri hugsað sem við- bót við þetta en inntökuskilyrði í þetta nám er að viðkomandi hafi lokið stúdentsprófi. Það hefur ekki verið tekin af- staða til þess innan Blaðamann- afélagsins hvort það styrki félags- krónur kflóið. Þá minni ég á að samkvæmt ákvæðum í kjara- samningum okkar við útgerðar- menn er þeim skylt að tryggja sjómönnum gangverð sem ég lít svo á að sé það verð sem fæst fyrir fiskinn hverju sinni,“ sagði Sævar Gunnarsson. menn sína í þriggja anna námið með samsvarandi hætti og það styrkir þá sem fara í fjölmiðla- nám erlendis. Lúðvík Geirssyni þótti þó ekki ólíklegt að svo yrði. Að sögn Gunnars Más hefur þegar verið send inn beiðni til Lánasjóðs íslenskra námsmanna um að námið á þriggja anna námskeiðinu verði lánshæft. En námið á þessu námskeiði verður full vinna að sögn forsvarsmanna skólans. -hmp -grh Skólar Fjölmiðlaskóli stofnaður Sigrún Stefánsdóttir, Gunnar Már Gunnarsson og Lúðvík Geirsson kynntu Fjölmiðlaskóla (slands í húsakynnum skólans að Borgartúni 24 á fimmtudag. Mynd: Kristinn. MARGRÉT JÓNSDÓTTIR opnar málverkasýningu í vestursal Kjar- valsstaða á laugardag kl. 14. Við opnunina syngur Gunnar Guðbjörns- son tenórsöngvari við undirleik Guðbjargar Sigurjónsdóttur píanó- leikara. Margrét var einn af stofnendum og eigendum Gállerí Suður- götu 7. Þetta er sjöunda einkasýning hennar en auk þess hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis. Sýningin stendur til 21. janúar og er opin frá 11-18 daglega. Þjóðleikhúsið Efast um breytingamar Listasafn Sigurjóns Tríótónleikar og Ijóöalestur Stjórn Bandalags íslenskra listamanna ályktaði á stjórnar- fundi sínum 3. janúar sl. um fyr- irhugaðar breytingar á Þjóðleik- húsinu. Ályktunin fer hér á eftir: „Bandalag íslenskra lista- manna bendir á, að Þjóðleikhús- ið er listaverk með menningar- sögulegu gildi og allar breytingar á því, hið innra sem ytra, ber að skoða í því ljósi. Þó sjálfsagt sé að gera breytingar til hagræðis fyrir leiklistarstarfsemina, er ástæðu- laust að gjörbreyta yfirbragði sal- arins einungis breytinganna vegna eða til að fylgja tísku. Stjórn Bandalags íslenskra listamanna fagnar umbótum, sem verða til gagns og eflingar leiklist í húsinu, en lætur í ljós efasemdir um, að stór hluti breytinganna, sem á að gera í húsinu og þess kostnaðar, sem verja á til þeirra, verði til bóta fyrir áhorfendur eða þá lista- menn, sem í húsinu starfa. Telji byggingarnefnd nauðsyn á öllum þessum breytingum er sjálfsögð krafa, að hún skýri þá nauðsyn opinberlega og styðji það gögnum og rökum.“ Tríótónleikar og Ijóðalestur verða á dagskrá í Listasafni Sig- urjóns Ólafssonar um helgina, tónleikarnir í dag og ljóðalestur- inn á morgun, en sú venja er kom- in á í safninu að hafa þar bók- menntadagskrá fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Fyrir tónleikunum standa þau Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari, David Tutt píanóleikari og Christian Giger sellóleikari, en þau hafa leikið saman undanfarin ár og komu síðast fram í Safni Sigurjóns við vígslu þess árið 1988. Tríóið hefur tónleikana kl. 17 og leikur píanótríó nr. 1 eftir Þriðju ljóðatónleikar vetrarins verða á Gerðubergi næstkomandi mánudagskvöld og hefjast kl. 20:30. Þar syngur John Speight bariton við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og er laga- flokkur eftir Britten og sönglög eftir Purcell, H. Wolf, Schubert Mendelssohn og píanótríó nr. 1 eftir Brahms. Bókmenntadagskráin verður, sem fyrr segir helguð ljóðalestri. Geir Kristjánsson mun lesa úr þýðingum sínum á rússneskum ljóðum úr bókinni Undir hælum dansara. Gyrðir Elíasson les úr nýrri ljóðabók sinni Tvö tungl og Stefán Hörður Grímsson úr bók sinni Yfir heiðan morgun. Á milli atriða leikur Gísli Magnússon pí- anóleikari nokkur stutt verk. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 15 og tekur um það bil klukku- stund. og Schumann meðal efnis á tón- leikaskránni. John Speight er auk söngsins afkastamikið tónskáld. Hann stundaði tónlistarnám við Guild- hall School of Music and Drama og kennir nú við Tónskóla Sigur- Skíma helguö málrækt Skíma, málgagn móðurmáls- kennara, er nýkomið út og er það helgað málræktarátakinu. í blað- inu eru birtar níu greinar sem að stofni til eru fyrirlestrar sem flutt- ir voru á málræktardögum í Kennaraháskóla íslands 28.-30. ágúst sl. Greinarnar eru eftir þau Guð- mund B. Kristmundsson, Pétur Gunnarsson, Hrafnhildi Ragn- arsdóttur, Pál Skúlason, Þráin Bertelsson, Margréti Pálsdóttur, Jónínu Friðfinnsdóttur, Helga Skúla Kjartansson og Ögmund Helgason. sveins D. Kristinssonar. John hefur sungið víða bæði hér á landi og erlendis og meðal annars tekið þátt í sýningum íslensku óper- unnar, hann söng til að mynda nýiega hlutverk Fígarós í upp- færslu Óperunnar á Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart. Hlíf Sigurjónsdóttir, David Tutt og Christian Giger flytja píanótríó í Safni Sigur- jóns í dag. Ljóðatónleikar John Speight syngur á Gerðubergi 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.