Þjóðviljinn - 06.01.1990, Side 3

Þjóðviljinn - 06.01.1990, Side 3
Loðna Byrjunin lofar góðu ífyrrinótt tilkynntu 12 skip samtals 8.570 tonn r Agætis loðnuveiði var í fyrri- nótt á miðunum norðaustur af Langanesi og tilkynntu þá 12 skip samtals 8.570 tonn sem þau sigldu flest hver með til hafna á Austurlandi. Svo til allur flotinn er kominn á miðinn enda lofar byrjunin eftir jólafrí góðu miðað við ördeyðuna sem ríkti á miðun- um á haustvertíðinni. Að sögn Ástráðar Ingvars- sonar hjá Loðnunefnd virðist sem einhver ferð sé á loðnunni austur um og suður fyrir Langa- nesið. Mun betri skilyrði eru nú í sjónum en var í nóvember og des- ember. Þá voru hitaskil í sjónum sem gerðu það að verkum að loðnan stóð mjög djúpt og ekki veiðanleg nema á færi þeirra skipa sem höfðu djúpar nætur. Nú hins vegar er loðnan aðeins á 20 - 40 faðma dýpi og auðveiðan- leg. En það eru ekki aðeins íslensk loðnuskip á miðunum heldur og einnig um 10 norsk. Norðmenn mega stunda loðnuveiðar hér við land fram til 15. febrúar en þó aldrei fleiri en 20 í einu. Kvóti þeirra eru tæp 140 þúsund tonn á vertíðinni og þar af hafa þau aflað um 53 þúsund tonn. Af þessum heildarkvóta þeirra eru um 40 þúsund tonn frá fyrri loðnuver • tíð. -grh FRETTIR Sambandið Frestur til sunnudags Stjórn Sambandsins bregður Landsbankanum um svik Stjórn Sambands íslenskra samvinnufélaga komst ekki að niðurstöðu á fundi sínum í gær um það hvort taka skyldi tilboði Landsbankans í 52% hlut SÍS í Samvinnubankanum. Frestaði stjórnin ákvörðun sinni til auka- fundar á sunnudag. Mikil óánægja kom fram á fundinum með þá ákvörðun Landsbankans að lækka tilboð sitt um 200 milljónir króna frá því í haust. Töldu stjórnarmenn ein- sýnt að Landsbankamenn hefðu gengið á bak orða sinna í þessu máli. Ljóst er að sölumálið er í meira uppnámi nú en nokkru sinni fyrr. Talsmenn Sambandsins gáfu eng- ar upplýsingar um málið í gær- kvöidi. AifT’ Er Guðjón B. að heilsa eða kveðja? Þröstur Olafsson, Höskuldsdóttir með óræðan svip. Mynd: Jim Smart. Islandsbanki sitjandi, tekur í hönd forstjórans. Til vinstri situr Dagbjört Hollustuvernd EignarhaMsfélögin ráða Hluthafar gömlu bankanna eiga ekki rétt á að sitja hluthafafundi íslandsbanka Hluthafar og eigendur Alþýðu- banka, Iðnaðarbanka og Verslunarbanka sem sameigin- lega eiga Islandsbanka, eiga ekki rétt á setu á hluthafafundum Is- landsbanka. Aðalsteinn Júlíusson hjá eignarhaldsfélagi Verslunar- bankans sagði hluthafa gamla bankans kjósa sér stjórn og sú stjórn færi síðan með atkvæða- rétt eignarhaldsfélagsins inni í Is- landsbanka. „Þetta er spurning um að leggja alfarið niður Alþýðubank- ann eða ekki,“ sagði Halldór Björnsson hjá Verkamannafé- laginu Dagsbrún. En bæði Verkammannfélagið og lífeyris- sjóður hans eiga hlut í Alþýðu- bankanum. Á meðan núverandi fyrirkomulag er við lýði sagði Halldór Dagsbrún ekki beint vera hluthafa í fslandsbanka, heldur Alþýðubankanum sem síðan væri eignaraðili að íslands- banka. Halldór sagði það koma í ljós á hluthafafundi Alþýðubank- ans í vor hvort menn væru full- sáttir við áhrif sín í íslandsbanka með þessum hætti. Halldór sagðist halda að skiptar skoðanir væru í þessum efnum og hefðu verið frá upp- hafi. Menn yrðu bara að taka staðreyndum, ekki þýddi að berja höfðinu við steininn og velta sér upp úr fortíðinni, heldur reyna að hafa sem mest áhrif á íslandsbanka og hægt væri.-hmp Orabaunir ógallaðar Hollustuvernd ríkisins hefur unnið að athugun á framleiðslu- vörum og framleiðsluaðstæðum Niðursuðuverksmiðjunnar Ora ásamt heilbrigðiseftirliti Kópa- vogs vegna einstaks matareitrun- artilfellis sem kom upp á Djúpa- vogi og kvartana sem hafa borist um óeðlilega lykt og bragð af nið- ursoðnum baunum verksmiðj- unnar. Niðurstöður benda ekki til þess að varan sé gölluð. Kvikmyndir Maraþonsýning í MÍR Stríð ogfriður Bondartsjúks ogSolaris Tarkovskíjs Nastasja Rostova stígur hér fyrsta dansinn með Volkonski greifa í kvikmynd- inni Stríði og friði, eftir sögu Tolstojs. Kvikmyndasýningar Menning- artengsla Islands og Ráðstjórn- arríkjanna, MÍR, hefjast að nýju á morgun eftir hlé yfír jólahátíð- ir. Sýningar verða á hverjum sunnudegi í bíósal félagsins að Vatnsstíg 10, þó með nokkrum undantekningum, en aðgangur er almennt ókcypis á meðan húsrúm leyfir. Sýningaráætlun liggur fyrir og er hún í marga staði einkar áhug- averð. Sýnd verða bæði gömul og nýleg verk og haft að leiðarljósi að kynna nokkra af fremstu kvik- myndagerðarmönnum Sovétríkj- ' anna. Meðal stórvirkja sem sýnd verða næstu mánuði má nefna Stríð og frið í leikstjórn Sergei Bondartsjúks, Solaris eftir And- rei Tarkovskíj, auk mynda eftir Eldar Rjasanov, Roman Karmen og Stanislav Rostotskí. Á morgun verður sýnd ein af frægari heimildakvikmyndum Romans Karmens, Granada frá árinu 1967. Karmen er einhver annálaðasti stjórnandi heimild- akvikmynda fyrr og síðar og liggja eftir hann kvikmyndir um flesta stóratburði aldarinnar. Granada var síðasta kvikmynd Karmens og fjallar um borgara- styrjöldina á Spáni 1936-38, en Karmen lést árið 1978. Andrei Tarkovskíj hefur jafn- an verið talinn fremsta mynd- skáld Sovétmanna og þótt víðar væri leitað. Kvikmynd hans Sol- aris verður sýnd 14. janúar en hana gerði Tarkovskíj árið 1972. Myndin er byggð á pólskri vís- indaskáldsögu og er nokkurs konar 2001 Sovétmanna. Ef talað er um metnaðarfullar stórmyndir kemur Stríð og friður Bondartsjúks fljótt í hugann, en þessi sjö klukkutíma langa kvik- mynd er án efa klassískt tákn fyrir epískar stórmyndir. Hún verður sýnd á maraþonsýningu frá morgni til kvölds laugardaginn 20. janúar, með kaffi- og matar- hléum. Boðið verður uppá rússneska rétti en aðgangur að- eins veittur gegn framvísun að- göngumiða. Bondartsjúk fékk hvarvetna lof fyrir þetta verk og þótt það þyki kannski vafasöm viðurkenning má nefna að Stríð og friður fékk Óskar sem besta erlenda kvikmyndin árið 1968. Daginn eftir verður sýnd kvik- myndin Hvítur hrafn eftir Valerí Lonskoj, en um hana veit undir- ritaður því miður fátt. 28. janúar verður myndbandasýning í kaff- isal þarsem sýndar verða stuttar fræðsiu- og heimildarmyndir frá Sovétríkjunum. 4. febrúar verð- ur síðan Sónata yfir vatninu á dagskrá, en hana gerðu Varis Brasla og Gunar Tsilinski í Lett- landi. Eldar Rjasanov heimsótti ís- land í nóvember sl. í tilefni sov- éskrar kvikmyndaviku og verða sýndar þrjár myndir í febrúar eftir hann. Ævintýri á skrifstof- unni er ein af eldri kvikmyndum hans, en hún verður sýnd 11. fe- brúar. Viku síðar verður sýnd Brautastöð fyrir tvo og þar á eftir Grimmileg ástarsaga. Tvær kvikmyndir verða síðan eftir Stanislav Rostotskí. Eitt af hans eldri verkum, Vindarnir sjö, verður sýnt 4. mars og hin fræga Hvíti Bim verður svo viku síðar á dagskrá. Næstu helgi á eftir fellur kvikmyndasýning niður vegna aðalfundar MÍR, en síðasta verk- ið á þessari dagskrá er Jámflóðið, byggt á skáldsögu Alexanders Serafimovitsj og í leikstjóm J. Dzigans. _þóm Laugardagur 6. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 HELGARRÚNTURINN ÞRETTÁNDINN er í dag og má því búast við að himinhvolfið fyllist vælandi flugeldum í kvöld þótt varla verði það neitt í líkingu við það sem gerðist á gamlársdagskvöld. Einnig verður kveikt í bálköstum og stiginn álfadans og álfakóngar og drottningar mæta ásamt föruneyti. Skátafélagið Segull í Seljahverfi í Reykjavík verður með árlega þrett- ándabrennu sína á auðu svæði milli Sundlaugar Ölduselsskóla og byggðar við Grjótasel Athöfnin hefst með blysför frá Skátaheimilinu Tindaseli 3 kl. 19.45 en kveikt verður í kestinum kl. 20. Á Akureyri verður einnig álfabrenna sem íþróttafélagið Þór stendur fyrir á félags- svæði sínu í Glerárhverfi og hefst skemmtunin kl. 17. Auk álfa og huldufólks mæta álfar úr mannheimum, þeir Halli og Laddi, Bjartmar Guðlaugsson og stórsöngvarinn Jóhann Már Jóhannsson. Og í Mos- fellsbæ standa ýmis félög að brennu sem hefst með blysför frá bílastæði Nóatúns kl. 20. TÓNLISTIN lifir þótt jólin fjari út og er boðið upp á óvenju miklar kræsingar þessa helgi. í Kristkirkju mun sönghópurinn Hljómeyki frumflytja nýtt söngverk eftir Hjálmar H. Ragnarsson, messu í fimm þáttum við latneskan kirkjutexta og Lofsöng um Maríu. Hljóm- leikarnir á sunnudag kl. 17. Sinfóníuhljómsveit æskunnar frumflytur hérlendis Pellias & Melisande eftir Schönberg undir stjórn Pauls Zuk- ofskys. Tónleikarnir eru í Háskólabíó á sunnudag kl. 14. í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar verða tónleikar í dag, laugardag kl. 17. Þetta eru tríótónleikar þar sem Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari, David Tutt pí- anó og Christian Giger selló flytja verk eftir Mendelssohn og Brahms. Á Akranesi eru John Speight barítonsöngvari og Jónas Ingimundarson píanó með tónleika í Vinaminni í dag kl. 14.30. Helginni lýkur svo í Heita pottinum í Duus-húsi með jassi á sunnudagskvöld kl.21.30. MYNDLISTARSÝNINGAR sem komu upp fyrir jól eru áfram í flest- um sýningarsölum en á Kjarvalsstöðum verða opnaðar þrjár sýningar í dag. Meistari Kjarvai í austursal, Margrét Jónsdóttir með olíumálverk í vestursal og þeir félagar Helgi Þorgils Friðjónsson og Hallgrímur Helgason með portrettsýningu. LEIKHÚSIN halda áfram sínu striki. í Þjóðleikhúsinu Lítið fjölskyld- ufyrirtæki í kvöld og Óvitar á morgun. í Borgarleikhúsinu tvíleikurinn um Ljósvíkinginn og Töfrasprotinn í dag og á morgun. Leikfélag Akureyrar sýnir Eyrnalanga og annað fólk og Unglingaleikklúbburinn Saga Fúsa froskagleypi. í KVIKMYNDAHÚSUNUM eru um þessar mundir sýndar tvær ís- lenskar kvikmyndir, Magnús í Stjörnubíói og stuttmyndirnar SSL 25 eftir Óskar Jónsson í Regnboganum. Þá verður MÍR með fyrstu kvik- myndasýningu ársins á sínum vegum á sunnudag kl. 16 en þar er heimildamyndin Grenada, Grenada, Grenada mín eftir Romans Karmen og Konstantín Simonov. ÍÞRÓTTAMENNIRNIR eru sjálfsagt enn þungir á sér eftir hátíðarnar. Hápunktur helgarinnar eru landslcikirnir við Tékka í handbolta í dag og annað kvöld í Laugardalshöll. Þá leikur fslenska kvennalandsliðið í handbolta tvo landsleiki við Finna um helgina á undan leikjum karl- anna. íslandsmótið í handbolta, körfubolta og blaki hefst aftur um helgina.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.