Þjóðviljinn - 06.01.1990, Side 4
þJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Evrópa 1992
- meira sorp
fæni réttindi
Eins og allir fjölmiölanotendur eru minntir á reglulega, er
hagvöxtur einatt geröur aö heilögum mælikvaröa á það hve
starfhæf þjóðfélögin eru. Og sýnist það í fljótu bragöi ofur
eðlilegt: þeim mun betur sem samfélagi gengur aö auka
afköst sín, þeim mun meira er væntanlega til skiptanna
handa þegnunum.
Á seinni árum hefur þó magnast gagnrýni á þaö aö menn
gangi út frá því sem vísu að hægt sé að setja jafnaðarmerki á
milli hagvaxtar og framfara. Menn hafa bent á að margt er
þaö sem lyftir hagvexti sem í rauninni er baggi á samfé-
laginu: fjölgun umferðarslysa getur t.d. skapaö „ný atvinnu-
tækifæri" og lyft undir formlegan hagvöxt. I annan stað eru
augu margra aö opnast fyrir því aö sá hagvöxtur er falskur,
sem fæst meö því aö ganga á auðlindir eins og mold, vatn,
loft, skóga, fiskstofna, meö því aö spilla umhverfi og skeröa
þær náttúrulegu auðlindir sem framhald velmegunar byggir
á. Víða um lönd, t.d. í Bandaríkjunum, eru nú til umræðu
hugmyndir um endurskoöun hagvaxtarútreiknings sem
veröi með því móti, aö frá framleiösluaukningu dragist sá
„kostnaöur" sem spilling náttúru og skerðing auölinda hefur
í för með sér. Meö þeim hætti vonast menn til aö komast nær
því hvernig þjóöfélög eru í raun og veru á vegi stödd.
Þessi mál eru einnig deiluefni í Evrópubandalaginu. Eins
og menn vita er því spáð, aö hagvöxtur í löndum bandalags-
ins muni taka nokkurn fjörkipp þegar búið er aö afnema allar
tálmanir í viðskiptum og á streymi fjármagns og vinnuafls
milli aöildarríkjanna. Og sú þróun öll, sem stórfyrirtækin
ráða, gengur all greiðlega. Öðru máli gegnir bæði um fé-
lagsmálapakkann og svo umhverfismál bandalagsins.
Vikuritiö Spiegel birti fyrir skömmu grein um þessi mál
undir fyrirsögninni: „Evrópubandalagiö 1992 - meira sorp
og minni réttindi". Þá er átt viö þaö, aö í stórum dráttum
veröa ofan á kröfur höföingja iðnaðarins um aö engar ráö-
stafanir megi gera sem „auki félagslegar byröar fyrirtækj-
anna“. Dæmi er tekið af því, aö búiö sé aö útvatna svo mjög
réttindaskrá verkafólks í Evrópubandalaginu, að þar sé nú
ekkert eftir um meðákvörðunarrétt verkafólks í fyrirtækjum,
lágmarkslaun eöa lágmarksorlof. í henni sé helst fjasað
mjög almennum oröum um „réttlátar greiðslur" til verkafólks
sem „nægi til að halda uppi hæfilegum lífskjörum" - hvaö
sem menn vilja láta þaö þýöa.
í annan staö tekur Spiegel dæmi af nýrri sérfræðinga-
skýrslu sem kommisar umhverfismála í EB, Ripa di Meana,
hefur nýlega lagt fram. Þar er því spáö, aö hagvöxtur sá sem
ráð er fyrir gert muni kosta aukna spillingu lofts, vatns og
moldar. Til dæmis muni eitraöar lofttegnundir þenja sig um
8-12% á næstu árum. Þá veröi aö miklum mun erfiðara en
fyrr að losna viö sorp og iðnaðarúrgang. Sérfræðingarnir
leggja það til, aö hert verði á lágmarkskröfum um umhverfis-
vernd og hverju ríki um sig gert mögulegt að heröa á þeim
eftir þörfum (fleiri en ein ríkisstjórn sætir nú ámæli í BrOssel
fyrir ráöstafanir gegn einnota umbúöum, sem þar á bæ eru
kallaðar tilræöi við frjálsa viðskiptahætti). Skýrsluhöfundar
mæla og með skattlagningu til umhverfismála.
Þessi skýrsla hefur hlotið hinar verstu viðtökur hjá miöst-
jórnarapparatinu í Brussel vegna þess að hér er um að ræða
tillögur sem aukið gætu „samfélagslegan kostnað“ fyrir-
tækjanna. Er nú unniö aö því af kappi aö skjóta þær sem
flestar í kaf. Það ágæta blað Spiegel lætur mál þessi veröa
sér til svofelldrar niðurstööu: „Einu sinni enn kemur það á
daginn, aö öll loforð um Evrópu sem þjóni ekki aðeins
hagsmunum iðnaðarhringanna, eru innantóm orð“.
Gáum að þessu.
ÁB
Fúsi froska-
gleypir snýr aftur
Unglingaleikklúbburinn Saga sýnir Fúsa froskagleypi í Dynheimum á
Akureyri
Unglingaleikklúbburinn Saga á
Akureyri hóf 13. leikár sitt með
uppsetningu á leikritinu um Fúsa
froskagleypi, en það var frum-
sýnt 9. desember sl. Leikfélag
Hafnarfjarðar sýndi þetta leikrit
fyrir tveimur árum við mjög góð-
ar undirtektir og var leikritið gef-
ið út á spólu og plötu í fyrra.
Höfundur leikritsins er Ole
Lund Kirkegaard, en það er leik-
gerð samnefndrar skáldsögu eftir
hann. Þýðandi er Olga Guðrún
Árnadóttir og höfundur söng-
texta er Ólafur Haukur Símonar-
son. Tónlistin er eftir þá Jóhann
Mórávek, Arnar Tryggvason og
Friðþjóf í Sigurðsson en hann er
jafnframt höfundur leikmyndar.
Búninga gerði Steinunn Ólafs-
dóttir, Ingvar Björnsson annaðist
lýsingu og þau Jakob B. Grétars-
son og Steinunn Ólafsdóttir
leikstýrðu uppfærslunni.
Danski rithöfundurinn Ole
Lund Kirkegaard er unnendum
barnabóka að góðu kunnur. Sag-
an um Fúsa froskagleypi er eitt af
skemmtilegri verkum hans. Sag-
an fjallar um óþokkann Fúsa sem
á að hafa gleypt heilan lifandi
frosk og samskipti hans við litlu
ærslabelgina og bæjarbúa.
I leikgerð höfundarins er
stuðst við söguþráð bókarinnar í
öllum meginatriðum. Aðalper-
sónurnar eru þrír ungir drengir,
sögumaðurinn leikinn af Hönnu
Vigdísi Jóhannesdóttur, Jakob
leikinn af Andreu Margréti Þor-
valdsdóttur og Fúsi leikinn af
Viðari Einarssyni.
Fúsi ráfar reykjandi um og
virðist hafa það eitt að markmiði
að hrekkja og pína litlu strákana
sem skortir afl og vöðva en
hvorki hugmyndaflug né vit.
Hvað eftir annað leika litlu strák-
arnir Fúsa grátt og koma honum í
hendur smiðsins sem gerir sér
það helst til dundurs að drekka öl
og flengja óþekktarorma. Einn
daginn kemur svo sirkus til
bæjarins með tilheyrandi ærslum
og látum. Það dregur til tíðinda
og má segja að sá hlær best sem
síðast hlær og leikhúsgestir kom-
ast að því að verstu skúrkar geta
orðið nýtustu þjóðfélagsþegnar.
Það hefur verið sagt að leikrit-
ið sé hrollvekjandi fjölskyldu-
leikur skrifaður fyrir börn. Allir
leikararnir, 23 í 28 hlutverkum,
eru unglingar á aldrinum 13 til 22
ára. Skortur á strákum í ungling-
aleikklúbbnum Sögu veldur því
að stelpur fara með hlutverk litlu
pollanna, en svo var einnig í upp-
færslu Leikfélags Hafnarfjarðar.
Alls standa 30 manns að sýning-
unni.
Sex sýningar voru á Fúsa frosk-
agleypi fyrir jól en á morgun,
sunnudaginn 7. janúar verður
áttunda sýninginn. Næsta sýning
er svo þriðjudaginn 9. janúar, þá
laugardaginn 13. janúar og síð-
asta sýningin er áformuð sunnu-
daginn 14. janúar.
Það er ástæða til að hvetja alla
sem tök hafa á að bregða sér í
Dynheima og horfa á skemmti-
lega sýningu því ungir jafnt sem
aldnir ættu að hafa gaman af.
AP/hha
þJÓÐVILJINN
Síðumúla 6-108 Reykjavík
Sími: 681333
Kvöldsími: 681348
Símfax:681935
Utgofandi: Utgáfufólag Þjóöviljans.
Framkvœmda8tjóri: Hallur Páll Jónsson.
Rltstjórar: Árni Bergmann, ólafur H. Torfason.
Fróttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson.
Aðrlr blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Elías Mar (pr.), Guðmundur
RúnarHeiðarsson, Heimir Már Pétursson, HildurFinnsdóttir(pr.),
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson
(Ijósm.), Lilja Gunnarsdóttir, ÓlafurGíslason.Þorfinnurömarsson
(íþr.), Þröstur Haraldsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingi-
mundardóttir, UnnurÁgústsdóttir.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir.
Bilstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu- og afgreiðslustjóri: Guðrún Gísladóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna
Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síöumúla6, Reykjavík, símar: 68 13 33 &68 16 63.
Símfax:68 19 35
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 90 kr. Nýtt Helgarblað: 140 kr.
Áskriftarverðámánuðl: 1000kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. janúar 1990