Þjóðviljinn - 10.01.1990, Side 1
Miðvikudagur 10. janúar 1990 6. tölublað 55. árgangur
RÚV
Sjónvarpiö íhugar aðra rás
Rœtt um aðRíkisútvarpiðfari afstað með aðra sjónvarpsrás. Svavar Gestsson: Ég tel koma veltilgreina aðRÚV sémeð
aðra rás til útsendingar á sjónvarpsefni. Markús Örn Antonsson: Hefur komið til tals
Eg hef heyrt þetta utan að mér
en það hefur enn sem komið er
ekki verið rætt við mig um þetta
sérstaklega, sagði Svavar Gests-
son menntamálaráðherra um
þann orðróm að Ríkisútvarpið sé
að velta því fyrir sér að fara af
stað með aðra sjónvarpsrás.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er þetta rætt nú meðal
manna sem tengjast RÚV, eink-
um í Ijósi slæmrar stöðu Stöðvar
2. Verði Stöð 2 gjaldþrota
skapast ákveðið tómarúm á Ijós-
vakamarkaðinum því fjöldi hcim-
ila í landinu hefur nú um tvær
sjónvarpsrásir að velja.
„Ég hef einsog er ósköp lítið
um þetta að segja. Ég tel hinsveg-
ar koma vel til greina að Ríkisút-
varpið sé með aðra rás til útsend-
ingar á sjónvarpsefni. Að mínu
mati er ekki ólíklegt að það verði
skoðað," sagði Svavar.
„Þetta hefur komið til tals
innan Ríkisútvarpsins, þá í
tengslum við leyfisveitingu sam-
gönguráðherra í lok síðasta árs,
þegar RÚV var úthlutað einu rás-
inni sem eftir var, þrátt fyrir að
tveir aðrir aðilar sýndu þeirri rás
mikinn áhuga, Stöð 2 og ísfilm,"
sagði Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri við Þjóðviljann í gær
þegar þetta var borið undir hann.
Markús Örn sagði að þeir
hefðu varað við því að RÚV
hefði ekki aðgang að fleiri rásum
til útsendinga, enda hafi dag-
skrártími Sjónvarpsins lengst
mikið að undanförnu og því erfitt
að koma ýmsu efni fyrir á góðum
útsendingartíma.
„Ef einhverjir möguleikar áttu
að vera fyrir hendi með viðbótar-
þjónustu Sjónvarpsins hefði ver-
ið mjög óvarlegt að úthluta öðr-
um en RÚV þessari rás,“ sagði
Markús Örn.
Hann sagði að enn væri ekkert
farið að ræða hverskonar dagskrá
yrði á annarri rás en það mætti
benda á að sérhæft efni sem höfð-
aði til smærri hópa ætti oft erfitt
uppdráttar, t.d. fræðsluvarpið,
en nú væru að fara af stað við-
ræður við menntamálaráðuneyt-
ið um það hvernig RÚV gæti
komið markvissar inn í fræðslu-
varpið.
Svavar var spurður að því
hvort hann sæi fyrir sér að rás tvö
hjá Sjónvapinu yrði afþreying-
arrás á meðan hin rásin sinnti
meira menningar- og fræðslumál-
um.
„Það er ýmislegt hægt að hugsa
sér í þeim efnum hvernig
dagskrárefni raðaðist á þessar
rásir, en ég tel að það komi vel til
greina að skoða það mál. Hins-
vegar liggur ekkert til úrlausnar á
mínu borði.“
-Sáf
Lítið tjón varð á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir mikla veðurhæð. Mynd: Jim Smart
Alver
Greinilegur áhugi hjá
Frekari viðrœðum haldið áfram í nœstu viku
etta voru mjög gagnlegar við-
ræður og þar kom fram gagn-
kvæmur og greinilegur áhugi á
því að halda áfram samtölum um
þátttöku þeirra í Atlantalvcrkefn-
inu, sagði Jón Sigurðsson iðnað-
arráðherra um viðræður við full-
trúa bandaríska álfyrirtækisins
Alumax sem lauk í gær.
íslensk stjórnvöld vilja fá
bandaríska fyrirtækið til að taka
þátt í byggingu nýs álvers með
hollenska fyrirtækinu Hoogo-
vens og Granges frá Svíþjóð, eftir
að Alusuisse gekk úr skaftinu.
Stefnt er að því að fyrirtækin þrjú
haldi fund um málið í næstu viku
og að sögn iðnaðarráðherra er
líklegt að hann verði hér á landi.
íslensk stjórnvöld munu þá einn-
ig taka þátt í viðræðunum.
Hollendingarnir og Svíarnir
hafa-lýst þeirri skoðun sinni að
þeir kjósi fremur að ganga til
samstarfs við evrópskt fyrirtæki
um byggingu nýs álvers, en Jón
Sigurðsson segir að þeir útiloki
hins vegar ekki samstarf við aðra.
Og þá telji þeir Alumax ákjósan-
legan samstarfsaðila.
í viðræðunum við fulltrúa
Alumax var einnig lítillega rætt
um hugsanlegan áhuga þeirra á
að fjárfesta í þriðja álverinu á ís-
landi, gangi ekki saman með
þeim og evrópsku fyrirtækjunum
tveimur. „Það er enn til umræðu
og athugunar, en ætli við athug-
um ekki fyrst hvað getur komið
út úr þessu,“ sagði iðnaðarráð-
herra. Um þátttöku íslenska
ríkisins í byggingu nýs álvers,
sagði Jón að ekki væri tímabært
að ræða það fyrr en ljóst væri
hvað kæmi út úr þríhliða við-
ræðum erlendu fyrirtækjanna.
Áætlanir Atlantalhópsins miða
að því að nýtt álver rísi í
Straumsvík, en iðnaðarráðherra
hefur haldið að þessum aðilum að
metnir verði kostir og gallar þess
að setja það niður á öðrum stað.
Þar hafa verið nefndir Eyjafjörð-
ur og Reyðarfjörður. Banda-
ríkjamennirnir hafa lýst áhuga
Veðurofsinn
gríðarlegt
Gríðarlegt tjón varð á Stokks- liggjandi hús í veðurofsanum og
cyri og Eyrarbakka í þeim telja menn þar mestu mildi að
náttúruhamförum sem gengu yfir það skyldi ekki brotna í spón og
þessi byggðarlög í fyrrinótt. Þá tvístrast yfir byggðina.
brunnu tvö fiskverkunarhús til j Sandgerði brunnu tvö fisk-
kaldra kola í Sandgerði í veðurof- verkunarhús til kaldra kola og
sanum án þess að slökkviliðið vegna veðursins gat slökkviliðið
gæti nokkuð að gert. ekki ráðið við neitt. -grh
Að sögn heimamanna á
Stokkseyri var þorpið nánast í
rúst eftir hamfarir næturinnar og
þá aðallega vegna sjógangs sem
braut niður sjóvarnargarða og
vegi auk þess að bera með sér
ógrynni af sandi og drullu út um
allt. Þá varð fólk að flýja úr íbúð-
um sínum vegna flóða. Þar fór
einnig nýleg skemma í rúst auk
harðfiskverkunarhúss.
Eftir nóttina leit Eyrarbakki út
eins og eftir sprengjuárás en þar
flæddi sjór einnig um allt. Þar
fauk þakið af saltfiskhúsi hrað-
frystihússins í heilu lagi yfir nær-
Alumax
sínum á að taka þátt í staðarval-
inu, verði af samstarfi þeirra um
byggingu nýs álvers.
Miðað er við að hið nýja álver
framleiði 200 þúsund tonn á ári
og er kostnaðurinn talinn verða
750-800 miljónir dollara, án
vaxta á byggingartímanum. Með
vöxtum verður kostnaðurinn
100-150 miljónum hærri, eftir því
hversu langur byggingartíminn
er. Ef álbræðsla í hugsanlegu
nýju álveri á að hefjast á síðari
hluta árs 1993 í fyrri áfanga og ári
seinna í síðari áfanga þarf að hefj-
ast handa um undirbúning virkj-
anaframkvæmda á fyrri hluta
þessa árs.
-gb
Sjá síðu 3
Samningar
Stutt í niður-
stöður
Það á að koma í Ijós á næstu 2-4
dögum hvort menn vilja fara
þessa leið eða ekki og það þýðir
ekkert að bíða lengur með það.
Ef menn eru sammála því eiga
þeir að drífa sig í að ganga frá
samningum, því það verður að
klára farminn strax og hann kem-
ur í land,“ sagði Björn Grétar
Sveinsson formaður Verkalýðsfé-
lagsins Jökuls í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Könnunarviðræður ASÍ og
VSÍ hafa nú staðið yfir í rúman
mánuð og ættu þær að fara að
skila sér í ákveðnum niðurstöð-
um. Skiptar skoðanir eru um það
manna á meðal hve mikil vinna er
eftir til að hægt verði að ganga til
samninga samkvæmt svokallaðri
„núll-lausn“. Björn Grétar segir
könnunarviðræðurnar á réttri
leið, miðað við ákveðnar for-
sendur. Hann sagði þær vera
komnar það langt á veg að
auðveldlega ætti að vera hægt að
ákveða í þessari viku hvort samið
verði á þeim nótum.
Einar Oddur Kristjánsson for-
maður VSÍ tók undir það að
niðurstaða þyrfti að liggja fyrir
innan tíðar. Hann sagði samn-
ingsaðila ekki hafa endalausan
tíma en vildi ekki gefa neinn ák-
veðinn frest þar að lútandi.
-þóm