Þjóðviljinn - 10.01.1990, Blaðsíða 10
VIÐ BENDIJM Á
Tíbet
Rás 1 kl. 16.20
I Barnaútvarpinu í dag verður
fjallað um Tíbet og íbúa þess.
Þeir eru lamatrúar og nýlega fékk
útlægur leiðtogi þeirra, Dalai
Lama, friðarverðlaun Nóbels
fyrir friðsama baráttu sína fyrir
frelsi þjóðar sinnar. Sögur og
kvæði Tíbetbúa fjalla einnig um
sama efni, frelsisbaráttu þjóðar-
innar undan ómannúðlegu þjóð-
skipulagi og erlendu valdi. Lesin
verður þjóðsagan um Tamanz-
ana og Tarchalá og leikin tónlist
frá Tíbet, sem þykir bæði mjög
sérstök og skemmtileg. Umsjón
hefur Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Arfurinn
Sjónvarpið kl. 21.40
Miðvikudagskvikmyndin er
júgóslavneska dramað Arfurinn,
eða Dedishina frá 1984. Hún
segir frá slóvenskri fjölskyldu
sem upplifir þrjú róstusöm og
gjörólík tímabil. Myndin hefst
árið 1914 og lýsir sögu fjölskyld-
unnar fram yfir síðari heimsstyrj-
öld, í Slóveníu og Júgóslavíu. Það
er ekki úr vegi að rifja upp sögu
slíkra þjóða í Evrópu nú þegar
enn eitt breytingatímabilið
gengur í garð. Leikstjóri er Matj-
az Klopcic en aðalhlutverk leika
Polde Bibic og Milena Zupanicic.
Freddi
Kruger
Rás 1 kl. 22.30
Hann heilsar alltaf með hægri
hendi, er nafnið á þessum þætti
Þorsteins J. Vilhjálmssonar sem
fjallar um hryllingsmyndapers-
ónuna Fred Kruger. Hann er orð-
inn einn af persónugervingum
slíkra kvikmynda eftir vafasamar
vinsældir sjnar í mörgum Mar-
tröðum í Álmstræti. Einn þek-
ktasti leikstjóri kvikmynda af
þessu tagi, Wes Craven, gerði
fyrstu myndina árið 1984 og síðan
hafa þær fylgt hver af annarri og
er ekkert Iát á framleiðslunni.
Þorsteinn rekur æviferil Fredda
og fær unglinga til að skýra hvers
vegna kauði hefur náð slíkum
vinsældum.
Michael
Aspel
Stöð 2 kl. 22.30
Michael Aspel er vafalaust einn
kunnasti sjónvarpsmaður Breta
sem helgar sig viðtölum við frægt
fólk. f þáttunum Þetta er þitt líf
tekur hann á móti einum gesti í
hverjum þætti og fær gamla vini
og kunningja, sem viðkomandi
hefur jafnvel ekki séð í mörg
herrans ár, til að samgleðjast að-
algestinum. í þessum þætti er
Sarah Brightman gestur Aspels
en í næstu þáttum koma Omar
Sharif og Zsa Zsa Gabor í heim-
sókn.
DAGSKRÁ ÚTVARPS OG SJÓNVARPS
SJÓNVARPIÐ
Miðvikudagur
17.50 Töfraglugginn Umsjón: Árný Jó-
hannsdóttir.
18.50 Táknmálsfréttir
18.55 Poppkorn Umsjón: Stefán Hilm-
arsson.
19.20 Hver á aö ráöa? Bandarískur gam-
anmyndaflokkur. Þýöandi: Ýrr Bertels-
dóttir.
19.50 Bleiki pardusinn
20.00 Fréttir og veður
20.35 Á tali hjá Hemma Gunn Stjórn út-
sendingar Björn Emilsson.
21.40 Arfurinn (Dedichina). Júgóslavn-
esk bíómynd frá árinu 1984. Leikstjóri:
Pavlo Kogoj. Aöalhlutverk: Polde Bibic,
Milena Zupanicic. Dramatísk mynd um
slóvenska fjölskyldu, sem upplifir þrjú
róstursöm en gjörólík tímabil frá 1914 og
framyfir síöari heimsstyrjöld, í sögu Sló-
vena og Júgóslavíu. Þýöandi Stefán
Bergmann.
23.00 Ellefufréttir
23.10 Arfurinn framhald.
23.45 Dagskrárlok.
STÖÐ2
Miðvikudagur
15.35 Travis McGee Leikarinn góðkunni,
Sam Elliott, fer hér meö hlutverk hins
snjalla einkaspæjara Travis McGee.
Hann ætlar aö rannsaka dularfullt báta-
slys sem gamall vinur hans er talinn
vera valdur að. Aöalhlutverk: Sam El-
liott, Gene Evans, Barry Gorbin og Ric-
hard Farnsworth. Lokasýning.
17.05 Santa Barbara
17.50 Fimm félagar Spennandi mynda-
flokkur fyrir alla krakka.
18.15 Klementína Vinsæl teiknimynd
með, íslensku tali.
18.40 í sviösljósinu
19.19 19.19 Fréttir og fréttaumfjöllun,
íþróttir og veöur ásamt frétttengdum
innslögum.
20.30 Af bæ í borg Frábær bandarískur
gamanmyndaflokkur.
21.00 í slagtogi I slagtogi viö Jón Óttar
Ragnarsson og Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráöherra. Umsjón: Jón Ótt-
ar Ragnarsson.
21.40 Snuddarar (Snooþs) Nýr þanda-
rískur sakamálaþáttur. Leynilögreglu-
par níunda áratugarins, þau Chance og
Micki Dennis, elta uþþi vandleyst glæþ-
amál í Washington D.C. En stundum er
ekki útséð um hver eltir hvern eöa
hvaö? Aðalhlutverk: Tim Reid og Daþ-
hne Maxwell Reid.
22.30 Þetta er þitt líf Breskir viðtalsþættir
þar sem Michael Asþel er gestgjafinn.
23.00 Oliuborpallurinn (Oceans of Fire)
Ævintýraleg spennumynd um nokkra
fanga sem láta sér fátt fyrir brjósti
brenna. Þeir hafa tekið aö sér djúpsjáv-
arköfun vegna olíuborunar og oft er æöi
tvísýnt um hvort þeir komi aftur til Paka
úr þessum lífshættulegu leiööngrum.
Aðalhlutverk: Lyle Alzado, Tony Burton,
Bay'Boom-Boom'Mancini, Ken Norton,
Cynthia Sikes og David Carradine.
Bönnuð börnum. Lokasýning.
00.35 Dagskrárlok.
RÁS 1
FM,92,4/93,5
Miðvikudagur
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Karl V.
Matthíasson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið - Randver Þorláks-
son Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl.
8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsing-
ar laust fyrir kl. 7.30,8.00,8.30 og 9.00.
Þóröur Helgason kennari talar um dag-
legt mál laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.00 Litli barmatíminn: „Lítil saga um
litla klausu" eftir Loft Guðmundsson
Sigrún Björnsdóttir.
9.20 Morgunleikfimi með Halldóru
Björnsdóttur.
9.30 Landpósturinn-FráNorðurlandi
Umsjón: Áskell Þórisson.
10.00 Fréttir.
10.03 Neytendapunktar Hollráö til
kaupenda vöru og þjónustu og baráttan
við kerfið. Umsjón: Björn S. Lárusson.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Úr menningarsögunni - Saga
geðveikinnar frá skynsemisöld til 19.
aldar Umsjón: Þórunn Valdimarsdóttir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur Umsjón: Halldór Árni
Sveinsson.
11.53 Á dagskrá Litið yfir dagskrá miövik-
udagsins í Útvarpinu.
12.00 Frétlayfirlit. Auglýsingar.
12.15 Daglegt mál Endurlekinnþátturfrá
morgni sem Þóröur Helgason kennari
flytur.
12.20 Hádegisfréttlr
12.45 Veöurfregnir. Dánarfregnir. Auglý-
singar.
13.00 í dagsins önn - Slysavarnarfélag
íslands, síðari þáttur. Umsjón: Bergl-
jót Baldursdóttir.
13.30 Miðdegissagan: „Samastaður í
tilverunni" eftir Málfríði Einarsdóttur
Steinunn Sigurðardóttir les.
14.Ú0 Fréttir.
14.03 Harmoníkuþáttur Umsjón: Sigurö-
ur Alfonsson.
15.00 Fréttir.
15.03 Samantekt um búferlaflutninga
til Svíþjóðar Umsjón: Einar Kristjáns-
son.
15.50 Neytendapunktar Umsjón: Björn
S. Lárusson.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin
16.08 Þingfréttir
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið - „Tamanza og
Tanchalá", þjóðsaga frá Tibet Um-
sjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Debussy og
Rachmaninoff „Nuages", Næturljóð
nr. 1 eftir Claude Debussy. Cleveland
hljómsveitin leikur; Vladimir Ashkenazy
stjórnar. Pianókonsert nr. 3 í d-moll op.
30 eftir Sergei Rachmaninoff. Vladimir
Ashkenazy leikur meö Concertgebouw
hljómsveitinni í Amsterdam; Bernard
Haitink stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan Fréttaþáttur um erlend
málefni.
18.10 Á vettvangi Umsjón: Páll Heiöar
Jónsson og Jón Ormur Halldórsson.
18.30 Tónlist. Auglýsingar. Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá Þáttur um menningu og
listir líöandi stundar.
20.00 Litli barnatiminn: „Litil saga um
litla kisu“ eftir Loft Guðmundsson
Sigrún Björnsdóttir les.
20.15 Frá tónskáldaþinginu í París
1989 Siguröur Einarsson kynnir.
21.00 Söguskoðun E. H. Carr. Haraldur
Jóhannsson les erindi um sögu-
heimspeki.
21.30 íslenskir einsöngvarar Ágústa
Ágústsdóttir syngur lög eftir Björgvin
Guðmundsson, Jónas Ingimundarson
leikur með á píanó.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan Fréttaþáttur um erlend
málefni.
22.15 Veðurfregnir. Orö kvöldsins. Dag-
skrá morgundagsins.
22.30 Hann heilsar alltaf með hægri
hendi Hrollvekjan „Martröðin í Álm-
stræti" og skrimslið Fred Kruger. Um-
sjón: Þorsteinn J. Vilhjálmsson.
23.10 Nátthrafnaþing Málin rædd og
reifuð. Umsjón: Ævar Kjartansson og
Ólína Þorvaröardóttir.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur Umsjón: HalldórÁrni
Sveinsson.
01.00 Veðurfregnr.
01.10 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
RÁS 2
FM 90,1
7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu
inn í Ijósið Leifur Hauksson og Jón Ár-
sæll Þórðarson hefja daginn með hlust-
endum.
8.00 Morgunfréttir - Morgunútvarpið
heidur áfram.
9.03 Morgunsyrpa Eva Ásrún Alberts-
dóttir og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
Neytendahorn kl. 10.03 og afmælis-
kveðjur kl. 10.30.
11.03 Þarfaþing með Jóhönnu Harðar-
dóttur - Morgunsyrpa heldur áfram og
gluggað í heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfráttir
12.45 Umhverfis landið á áttatíu með
Gesti Einari Jónassyni.
14.03 Hvað er að gerast? Lísa Pálsdóttir
kynnir allt það helsta sem er að gerast í
menningu, félagslífi og fjölmiðlun.
14.06 Milli mála Árni Magnússon leikur
nýju lögin. Stóra spurningin. Spurn-
ingakeppni vinnustaða kl. 15.03, stjórn-
andi og dómari Dagur Gunnarsson.
16.03 Dagskrá Dægurmálaútvarp. Stef-
án Jón Hafstein, Guörún Gunnarsdóttir,
Sigurður Þór Salvarsson, Þorsteinn J.
Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómas-
son. - Kaffispjall og innlit upp úr kl.
16.00. - Stórmál dagsins á sjötta tíman-
um. - Gæludýrainnskot Jóhönnu Harð-
ardóttur.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni út-
sendingu sími 91-38 500
19.00 Kvöldfréttir
19.32 íþróttarásin Fylgst með og sagðar
fréttir af íþróttaviðburðum hér á landi og
erlendis.
22.07 Lísa var það heillin. Lísa Pálsdóttir
fjallar um konur í tónlist.
00.10 I háttinn
01.00 Áfram ísland íslenskir tónlistar-
menn flytja dægurlög.
02.00 Fréttir.
02.05 Konungurinn Magnús Þór Jóns-
son segirfrá Elvis Presley og rekur sögu
hans,
03.00 Á frívaktinni Þóra Marteinsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
04.00 Fréttir.
04.05 Glefsur Úr dægurmálaútvarpi mið-
vikudagsins.
04.30 Veðurfregnir.
04.40 Á vettvangi Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Jón Ormur Halldórsson.
05.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
05.01 Ljúflingslög Svanhildur Jakobs-
dóttir kynnir.
06.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
06.01 Á þjóðlegum nótum Þjóðlög og
vísnasöngur frá öllum heimshornum.
BYLGJAN
FM 98,9
07.00-10.00 Páll Þorsteinsson. Alls
kyns upplýsingar fyrir hluslendur sem
vilja fylgjast með, fréttir og veður á sín-
um stað.
10.00-14.00 Valdís Gunnarsdóttir Sér-
staklega vel valin og þægileg tónlist
sem heldur öllum i góðu skapí. Bibba i
heimsreisu kl. 10.30.
14.00-18.00 Bjarni Ólafur Guðmunds-
son Leitaðu ekki langt yfir skammt. Allt
á sínum stað, tónlist og afmæliskveðjur.
Bibba í heimsreisu kl. 17.30.
18.00-19.00 Arnþrúður Karlsdóttir -
Reykjavik síðdegis. Finnst þér aö
eitthvað mætti betur fara í þjóðfólaginu í
dag, þín skoðun kemst til skila. Síminn
er 61 11 11.
19.00-20.00 Snjólfur Teitsson. Afslapp-
andi tónlist í klukkustund.
20.00-24.00 Haraidur Gíslason. Halli er
með óskalögin í pokahorninu og ávallt i
sambandi viö íþróttadeildina þegar viö
á.
24.00-07.00 Næturvakt Bylgjunnar.
Biluðum bílum
á að koma út fyrir
vegarbrún!
UMFERÐAR
RÁÐ
SÁ ÞIG KOBBI! ÞETTA VAR
LÉLEGT KAST. TÍGRISDÝR
KUNNA EKKI AÐ KASTA
FYRIR FIMM AURA...
Hvers vegna Kalli, óvænt að
ÞÚ bjóðir þig fram. Þú hlýtur
að hafa unnið vel. Komdu
hingað upp.
Jæja
gefum
Kalla alla
athygli.
Byrjaðu
Kalli. -
Takk. Áður en ég
byrja vil óg að
allir taki eftir að
skýrslan mín er
faglega innbundin
í plastmöppu.
Það er mjög
gott, haltu
áfram.
Þegar skýrsla er
bundin í plast er
öruggt að maður
fái „A“. Skrifið
það hjá ykkur
börnin mín
v smáu. j-
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 10. janúar 1990