Þjóðviljinn - 10.01.1990, Blaðsíða 6
MENNING
Sinfónían
Tónleikar
helgaðir Brahms
Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran flytja
tvíleikskonsert. Tónleikarnir endurteknir á Akranesi
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur síðustu áskriftartónleika
fyrra misseris í Háskólabíói ann-
að kvöld, fimmtudag. Tónleik-
arnir eru helgaðir Jóhannesi
Brahms (1833-1897) og einleikar-
ar verða þau Guðný Guðmunds-
dóttir fiðluleikari, kons-
ertmeistari Sinfóníunnar, og
Gunnar Kvaran sellóleikari.
Stjórnandi verður Petri Sakari,
aðalstjórnandi Sinfóníunnar.
Á tónleikaskránni eru þrjú af
verkum Brahms, samin á tíu ára
tímabili: Tragíski forleikurinn,
sem var frumfluttur í Vínarborg á
jóladag 1880, Konsert fyrir fiðlu,
selló og hljómsveit, frumfluttur í
Köln í október 1887 og Sinfónía
nr. 2, sem var frumflutt í Vín í
árslok 1877.
Guðný Guðmundsdóttir og
Gunnar Kvaran hafa á undan-
förnum árum komið víða fram
sem dúó. Auk tónleikaferða um
ísland hafa þau leikið í Dan-
mörku, Bandaríkjunum og Kan-
ada og hyggja á tónleikaferð til
Bandaríkjanna í apríl.
Tónleikarnir verða endurtekn-
ir í íþróttahúsinu á Akranesi á
föstudagskvöldið og hefjast kl.
20:30 bæði kvöldin. Fyrstu
áskriftartónleikar síðara misseris
verða þann 8. febrúar og hafa
handhafar áskriftarskírteina for-
kaupsrétt frá 15/1 til 2/2.
LG
Guðný Guðmundsdóttir og
Gunnar Kvaran leika tví-
leikskonsert eftir Brahms á tón-
leikum Sinfóníunnar annað kvöld.
Ást og afbrýði í Lindarbæ
Ruth Hansen
kynnt
Menningarsamtök Norðlend-
inga og Alþýðubankinn hf.
kynna þessa dagana verk listak-
onunnar Ruth Hansen. Ruth er
fædd á Akureyri 1944, er ein
þeirra, sem staðið hafa að Mynd-
hópnum og hefur tekið þátt í
samsýningum hans frá 1979.
Á listkynningunni eru 9 mál-
verk unnin með olíu á striga og
eru 2 þeirra frá 1985 en hin frá
1989. Kynningin er í útibúi Al-
þýðubankans hf. á Akureyri,
Skipagötu 13. Hún er opin á af-
greiðslutíma og stendur til 2. fe-
brúar.
Jólabækurnar
ræddar
Félag íslenskra fræða boðar til
fundar um jólabækurnar í
Skólabæ við Suðurgötu í kvöld
kl. 20:30.
Guðmundur Andri Thorsson.
bókmenntafræðingur hefur fram-
sögu um nýútkomnar jólabækur
og eru höfundar og gagnrýnend-
ur hvattir til að mæta og taka þátt
í umræðum.
Nemendaleikhúsið í Lindarbæ
æfir þessa dagana Óþelló eftir
William Shakespeare. Óþelló er
eitt af þungavigtarleikritum
Shakespeares og fjallar um ást og
afbrýði, hatur og bráðan bana.
Leikstjóri er Guðjón Pedersen,
leikmynd gerir Grétar Reynis-
son, íris saumar búninga og
dramatúrg er Hafliði Arngríms-
son. Mynd: Jim Smart
Leikfélag
Hafnarfjarðar
Teiknaðu
Hróa
Hött!
Leikfélagið efnir til teiknisam-
keppni 6-12 ára
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur
efnt til teiknisamkeppni í tilefni
að því að félagið hefur hafið
æfingar á barnaleikriti um Hróa
Hött í leikgerð og leikstjórn Guð-
jóns Sigvaldasonar.
Samkeppnin er opin börnum á
aldrinum 6-12 ára og er myndefn-
ið að sjálfsögðu Hrói og félagarn-
ir í Skírisskógi. Blaðastærð á að
vera A-3 og skal teikningin vera
greinilega merkt nafni og heimil-
isfangi teiknarans. Myndirnar
sendist Leikfélagi Hafnarfjarðar,
pósthólfi 116, 220 Hafnarfirði.
Skilafrestur rennur út
fimmtudaginn 8. febrúar.
LEGO hefur gengið til sam-
starfs við leikfélagið um fram-
kvæmd keppninnar og eru vegleg
verðlaun f boði. Fimm manna
dómnefnd velur álitlegustu
myndirnar og verða þær til sýnis
gestum og gangandi í leikhúsinu
og víðar en niðurstöður verða
kynntar þann 20. febrúar. Hrói
Höttur verður síðan frumsýndur í
Hafnarfirði þann 24. febrúar.
LG
BÆKUR
Agætir eru þeir í tilverunni
Eyvindur P. Eiríksson
Viltu
Goðorð 1989
Það fer ekki mikið fyrir flókn-
um líkingum í þessari kvæðabók
Eyvindar. Heldur kemur hann
sér beint að efninu, er oft fyndinn
og víða hlýlegur. Hann er einnig
hittinn á mannlega niðurlægingu
og lýsir hversdagsmanninum af
vinsemd, þar sem hann stendur
frammi fyrir fjandsamlegu vald-
inu:
Tölv bölv
Þú ert skráður og skjalfestur
bandaður
tölvaður.
Allt vita þeir um þig.
Allt.
Þeir skemmta sér yfir þér
í hádegissnarlinu:
Afbrýðisömum heimskum
mislukkuðum pungsíðum
náttúrulausum flatfœttum.
Þetta eiy vita þeir ekki:
Þú ert manneskja.
Petta kvæði er úr fyrsta kaflan-
um og nefnist hann Skástök.
Kvæðið Kvikustak lýsir ein-
semd, þjáningu og ótta af miklu
innsæi.
Kvikustak
ísnálarnar koma
út úr frostþokunni
þegjandi
ofan geilina
í skoruna
þar sem hjarta mitt hniprar sig
lifandi
og stingast í kvikuna.
MAGNÚS GEZZON
SKRIFAR
Broddstak er einnig fullt af
þjáningu og gæti sem best lýst
þeirri firringu og viðkvæmni sem
oft grípur skáld því þau þjást ein-!
att meira en venjulegt fólk.
Ég skal viðurkenna að við
fyrsta lestur kom ég helst auga á
stórkarlalegt spaug: í kyrrð
næturinnar/ slæ ég stóran fret
segjr t.d. í ljóðinu Un-Ús. Að-
vænt er nafti ljóðs á síðu 14,
kvæðið gæti allt eins heitið Að-
venta. Efnið er trúarlegt og segir
frá Kristi. Annað kvæði, Lamb-
stak hefur áberandi trúarlegt
inntak og er á s. 37.
Lítum á kvæðið Bússi Gobbi
hakk hakk sem gæti allt eins fjall-
að um afgamla karla í fámennu
vestfirsku þorpi, en líklega eru
það fremur Gorbatsjov og Bush
sem þama ríða hjá garði. Þetta er
einkennandi fyrir þann stórkarla-
lega anda sem víða ríkir í kvæð-
unum:
Bússi Gobbi hakk hakk
Hakk hakk
hakka hakka hakk hakk
í hakk
hakka hakka hakk hakk
í spað
hakka hakka hakk hakk
í kjöt
hakka hakka hakk hakk
í glás
Hakka hakka blœkur
og bein
hakka hakka hunda
við stein
hakka hakka fýlur
ogfól
hakka hakka strúta
í stól
í kaflanum Sérstök er ljóð þar
sem sögusviðið er norðan við
Skutulsfjörð og nokkur sem ger-
ast í Finnlandi. Eitt ljóð heitir
Jylland og endar á þessum orð-
um:
Ég ek norður þann litla
grœna EB-skaga
- ég hef öl og snafs
það er heitt og trén þjóta hjá
ég er hamingjusamur maður
meðal manna.
Bókin geldur þess að öllu ægir
saman og samstillingu vantar þótt
kaflaskiptingin sé viðleitni í þá
átt. Pað er t.d. fulllangt á milli
efnisþátta Ijóða sem standa hlið
við hlið líkt og Haltekki s. 21 of
Tölv bölv á 22. Þa er sem sé mikið
á seyði í þessari bók. Hvort
tveggja fer honum vel, hlýjan og
viðkvæmnin, spaugið og óvæntu
lokaorðin líkt og í þessu kvæði:
'Alltafstak
Ég er alltaf að reyna
að þóknast öllum í einu
þess vegna er ég svona.
Sko!
Eyvindur P. Eiríksson.
Mynd: Kristinn
En ég get hnerrað
mér til hressingar.
Ha?
Kápumyndin eftir Magnús
Tómasson er snjöll en ég efast um
gildi þess að nota sömu kápu-
mynd á allar 8 bækumar í þessum
flokki Goðorðsmanna. Ég tel að
þessi ráðstöfun svipti bækurnar
höfundareinkennum.