Þjóðviljinn - 10.01.1990, Side 3
FRETTIR
Iceland Seafood
Meiri sala en áður
Heildarsalan á síðasta ári nam 44,2 miljónum
punda
Frá bruna Gúmmívinnustofunnar aö Ftéttarhálsi í maí á síðasta ári. Mynd: Jim Smart
Slökkvilið Reykjavíkur
Útköllum fækkaði
Aðeins einn stórbruni á árinu 1989 og ekkert manntjón afvöldum
eldsvoða
Heildarsala Iceland Seafood
Ltd., dótturfyrirtækis Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga,
á Evrópumarkaði í fyrra nam
44,2 miljónum sterlingspunda á
móti 41,3 miljónum punda árið
1988. Aukningin nemur því 2,9
miljónum punda eða um 7%.
Bankaráð
Mál Kristínar
í biðstöðu
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvort Kristín Sigurðardóttir frá
Samtökum um kvennalista og
starfsmaður Kaupþings tekur
sæti í bankaráði Landsbankans.
Kvennalistakonur vilja ekki taka
endanlega ákvörðun fyrr en þeim
hafa borist fullnægjandi álits-
gerðir.
„Við vildum fá álit Bankaeftir-
lits Seðlabanka og Lagastofnunar
háskólans á setu Kristínar í
bankaráði Landsbankans," sagði
Ingibjörg Hafstað hjá Samtökum
um kvennalista, „til að fá á hreint
hvað teldust hagsmunatengsl. í
staðinn leituðu forsetar Alþingis
til Friðriks Ólafssonar, skrif-
stofustjóra Alþingis, og Sigurðar
Líndals prófessors. SA
í tonnum talið voru seld á ný-
liðnu ári 24.566 tonn og var það
um 7,6% meira en árið áður.
Stærstu markaðslöndin eru Bret-
land, Frakkland og Vest-
ur-Þýskaland. í Bretlandi nam
salan 26,8 miljónum sterlings-
punda og er það svipað verðmæti
og á árinu 1988. Hins vegar varð
umtalsverð aukning á söluverð-
mæti sjávarafurða á Þýskalands-
markaði en þar nam salan 22,5
miljónum marka og jókst um
46,3% frá árinu 1988. Þá nam sal-
an á Frakklandsmarkaði 111,2
miljónum franka og var það
aukning um 18,4% frá árinu
1988.
Að sögn Benedikts Sveins-
sonar aðstoðarframkvæmda-
stjóra Sjávarafurðadeildar Sam-
bandsins var söluaukningin á
Evrópumarkaðnum aðallega í
ufsa en hefur dregist saman í-
þorski sem og í framleiðslu. Ben-
edikt sagði verðþróunina á mark-
aðnum á nýliðnu ári hafa verið
hagstæða og þá einkum í haust á
breska markaðnum.
Markaðssvæði Iceland Sea-
food Ltd. nær yfir Vestur- og
Suður-Evrópu en aðalstöðvar
þess eru í Hull í Englandi. Þá er
fyrirtækið einnig með söluskrif-
stofur í Hamborg og í Boulogne-
sur-Mer í Frakklandi.
-grh
Slökkvilið Reykjavikur var
kallað út alls 854 sinnum á síð-
asta ári, sem er eilítið sjaldnar en
var árið 1988 en þá var fjöldi út-
kalla 858. Aðeins einn stórbruni
varð á síðasta ári, Réttarhálsb-
runinn, og manntjón af völdum
eldsvoða varð ekkert.
Talin til útkalla er öll aðstoð
slökkviliðs þótt ekki sé um elds-
voða að ræða svo sem efnaleki,
vatnsleki, losun úr bílflökum og
fleira. Útköll þar sem slökkva
þurfti eld voru 335 árið 1989 en
447 árið 1988, þar afvoru 76 sinu-
eldar á móti 115 árið 1988.
Á síðasta ári voru orsakir elds
152 sinnum vegna íkveikju og
voru sinubrunar þar í miklum
meirihluta. Ókunn eldsupptök
voru 97 árið 1989 en aðeins 17
sinnum af völdum raflagna og
jafn oft mátti rekja eldsupptök til
rafmagnstækja.
Sjúkraflutningar voru alls
10.421 á nýliðnu ári og hefur
fjöldi þeirra haldist svo til
óbreyttur allt frá árinu 1973 eða
rúmlega 10 þúsund á ári. Hins
vegar tekur hver flutningur æ
lengri tíma vegna tafa í umferð-
inni og lengri vegalengda.
-grh
Veðurofsinn
Tjónið nemur tugum miljóna
Kröpp 930 millibara lœgð ásamt miklum sjógangi olli gríðarlegu tjóni á Stokkseyri og Eyrarbakka. Tvö fiskvinnsluhús
brunnu til kaldra kola í Sandgerði. Vindhraðinn mældist allt að 88 hnútar í Vestmannaeyjum
Geysilegt eignatjón varð á
Stokkseyri og Eyrarbakka
vegna flóða og þess óveðurs sem
gekk yfir suðvesturhorn landsins
í fyrrinótt. Þá varð stórbruni í
Sandgerði þessa sömu nótt þegar
brunnu tvö fiskverkunarhús.
Þrátt fyrir veðurofsann sem
mældist allt að 88 hnútar á Stór-
höfða í Vestmannaeyjum urðu
ekki teljandi meiðsl á mönnum og
mesta mildi að ekki fór verr, því í
nokkrum tilfellum voru menn
hætt komnir.
Það sem olli þessum ósköpum
var kröpp 930 millibara lægð sem
er ein af þessum árstíðabundnu
sem hingað koma á vetri hverj-
um. Að sögn Eyjólfs Þorbjörns-
sonar veðurfræðings hjá Veður-
stofu íslands koma ávallt tvær til
þrjár slíkar á ári hverju. Til að
mynda var lægðin sem kom hing-
að á aðfangadag dýpri eða 920
millibör en ekki eins kröpp og
þessi. Mestur var veðurofsinn um
miðja nóttina og þegar líða tók á
morguninn lægði hann en þá fór
hann að hvessa fyrir norðan. Eyj-
ólfur bjóst við að þegar lægðin
gengi austur fyrir land í dag yrði
mesta púðrið farið úr henni og
næstu daga yrði rólegt veður en
mundi ganga á með éljum víðs
hvar á landinu.
Stokkseyrin
illa leikin
Á Stokkseyri byrjaði að draga
til tíðinda í fyrrinótt um klukkan
02 þegar þakplötur fóru að fjúka
af húsum og ýmislegt lauslegt en
á klukkustundar kafla á milli hálf
fjögur og hálffimm urðu mestu
hamfarirnar þegar sjór byrjaði að
ganga yfir sjóvarnargarðana og
nánast yfir allt þorpið. Þó var
ekki stórstraumsflæði og verður
ekki fyrr en eftir nokkra daga.
Að sögn Aðalbjörns Baldurs-
sonar formanns slysavarna-
deildarinnar Drafnar flæddi sjór
inn í nokkur hús auk þess sem
rúður brotnuðu í öðrum. Þá fór
alveg í rúst nýleg skemma þar
sem geymd voru veiðarfæri auk
bfla og er eignatjón þar verulegt.
Sömuleiðis urðu töluverðar
skemmdir á harðfiskverkun. Að-
albjörn sagði að sjógarðarnir og
götur þorpsins væru nánast eins
og rúst eftir hamfarirnar og eins
væru lóðir og garðar full af sandi
og drullu sem sjórinn hefði borið
með sér. Flytja varð fólk á brott
úr þrem til fjórum húsum þegar
verst lét og náði sjóhæðin á göt-
um þorpsins svo hátt að það
drapst á vél björgunarbfls slysa-
varnadeildarinnar sem er með
þeim hærri. Þá hvolfdi þar trakt-
or með tveimur mönnum innan-
borðs en þeim tókst að bjarga
sér. Engir bátar voru í Stok-
kseyrarhöfn í fyrrinótt en þeir eru
allajafna í höfn í Þorlákshöfn.
Aðalbjörn sagði í gær ógerlegt
að segja til um hversu tjónið af
völdum veðursins, en þó einkum
sjógangsins, væri mikið en taldi
ekki ólíklegt að það næmi tug-
miljónum króna. Aðalbjörn
sagði að þetta hefði verið það
allra versta veður sem hann
myndi eftir að komið hefði á
Stokkseyri og væru þeir þó ýmsu
vanir í gegnum tíðina.
Eyrarbakki
eins og eftir
sprengjuárás
Á Eyrarbakka urðu miklar
skemmdir á sjóvarnargörðum,
götum og lóðum, auk þess sem
sjór flæddi inn í íbúðarhús. Þá
fauk þakið í heilu lagi af
saltfiskshúsi hraðfrystihússins og
ekki nóg með það heldur og yfir
annað hús sem stóð þar næst við.
Að sögn Magnúsar Karels Hann-
essonar sveitarstjóra varð það
happ í þessu óhappi að járnbitar
voru í þakinu og því fór það í
heilu lagi í stað þess að tvístrast
um allt þorpið.
Þegar veðurofsinn og sjógang-
urinn var hvað verstur var þorpið
nánast umflotið sjó og þurfti af
flytja nokkrar fjölskyldur úr hús-
um sínum. Að öðru leyti gátu
menn þá lítið aðhafst sökum
hamfaranna. Magnús Karel sagði
í gær að menn væru að reyna að
átta sig á umfangi skemmdanna
sem sjórinn hefði unnið á hýbýl-
um manna og öðrum eignum en
ljóst væri að það næmi miljónum
króna. Um miðjan dag í gær var
verið að ryðja upp í verstu
skörðin sem mynduðust í sjó-
varnargarðana þar sem brimið lét
all ófriðlega fyrir utan þótt vind
hefði lægt töluvert frá því sem var
um nóttina. „Af þessum
ósköpum má ljóst vera að við
þurfum að fá mun öflugri sjó-
varnargarða en þá sem við
höfðum og mér dettur í hug eins
og ástandið er núna að gott væri
að bjóða fjárveitinganefnd Al-
þingis hingað til að skoða um-
merkin þó svo að við höfum
innan hennar ágætan talsmann
sem er Margrét Frímannsdóttir
alþingismaður," sagði Magnús
Karels Hannesson sveitarstjóri.
Stórbruni
í Sandgerði
Umtalsvert tjón varð í Sand-
gerði í fyrrinótt þegar eldur varð
laus í tveimur samliggjandi fisk-
verkunarhúsum í eigu Erlings
Jónssonar og Svavars Ingibergs-
sonar. í þeim skemmdist eitthvað
af fiski en í þeim var einnig geymt
töluvert af veiðarfærum og þá að-
allega línur af þrem til fjórum
bátum. Þegar eldsins varð vart
gekk veðurofsinn yfir byggðina
og mesta mildi að ekki skuli hafa
kviknað í öðrum húsum þegar
eldglæringarnar gengu eins og
skæðadrífa yfir bæinn. Sökum
veðurofsans gat slökkvilið þorps-
ins ekki við neitt ráðið og brunnu
húsin til kaldra kola. Þar gekk
sjórinn yfir garða og bryggjur en
ekki urðu teljandi skemmdir á
bátum í höfninni að sögn Sigurð-
ar Bjarnasonar hafnarstjóra.
Sagði hann að víða í þorpinu
hefði verið ansi skrautlegt yfir að
líta í gærmorgun þegar veðrið fór
að ganga niður.
Tveir menn björguðust giftu-
samlega þegar þeir fóru í höfnina
er fylla gekk yfir þar sem þeir
voru að huga að festingum báta.
En menn voru varaðir við í fyrra-
kvöld og beðnir að hafa gát á bá-
tum sínum þegar ljóst varð hvert
stefndi með veðrið. Einhverjar
skemmdir urðu á hafnarm-
annvirkjum í þorpinu í látunum
og brotnaði ma. steypa úr gömlu
bryggjunni auk þess sem malbik
brotnaði upp úr þekjunni.
Bryggja fór
í Grindavík
í Grindavík eyðilagði veður-
ofsinn og sjógangurinn Kvía-
bryggju svo til alveg þegar hún
losnaði frá landi en hún var um
100 metrar að lengd. Að sögn
Sverris Vilbergssonar á hafnar-
vigtinni máttu heimamenn ekki
við þessum missi þar sem Svíra-
garðsbryggja eyðilagðist í brimi
fyrr í vetur. Löndunarplássum
við Grindavíkurhöfn hefur því
fækkað á skömmum tíma úr níu í
þrjú og munar um minna þegar
vertíðin er í þann veginn að byrja
af fullum krafti.
í ólátunum gekk sjór á land í
Grindavík en þó aðallega á hafn-
arsvæðinu og þá rofnuðu skörð í
sjóvarnargarða vestan til í bæn-
um. Þá slapp einn sjómaður með
skrekkinn í Grindavíkurhöfn
þegar brimið hreif hann með sér
og skilaði honum sfðan á land á
ný án þess að verða fyrir
meiðslum eftir að hafa flotið um
200 metra á fleka sem hann náði
að halda sér í.
Lítiö um tjón
á öðrum stöðum
í Vestmannaeyjum varð ekk-
ert stórtjón þrátt fyrir að vind-
hraðinn hafi mælst allt að 88
hnútar í verstu vindhviðunum í
fyrrinótt. Að sögn lögreglu þar
hafði þó hjálparsveit skáta nóg að
gera við að koma í veg fyrir fok á
þakplötum og öðru sem gjarnt er
að fjúka þegar hann hvessir jafn
hressilega og raun varð á. Engin
meiðsl urðu þar á mönnum né
skemmdir á bátum Eyjamanna.
Sömu sögu er að segja frá höf-
uðborgarsvæðinu. Þótt ýmislegt
lauslegt hafi fokið og uppslættir
nýbygginga hrunið varð þar ekki
umtalsvert tjón. Þá var skóla-
haldi aflýst vegna veðurs í grunn-
skólum borgarinnar.
-grh
Miðvikudagur 10. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3