Þjóðviljinn - 10.01.1990, Síða 7

Þjóðviljinn - 10.01.1990, Síða 7
ERLENDAR FRÉTTIR Austur-Þýskaland Mengaðasta land í Evrópu Krataflokkar úr báðum hlutum Pýskalands hvetja til stórátaks í um- hverfismálum í Austur-Þýskalandi Sérfræðingar jafnaðarmanna- flokka þýsku ríkjanna áætla að ekki dugi minna en 200 milj- arðar marka (7.000 miljarðar ís- lenskra króna) til að bæta þær umhverfisskemmdir sem orðið hafa í landinu, fyrst og fremst af völdum orkuframleiðslu og -eyðslu. Fulltrúar flokkanna héldu fund í Bonn og lögðu þar til að þýsku ríkin gerðu með sér umhverfis- verndarbandalag sem byggðist ma. á því að stjórnvöld í Bonn reiddu fram fimmtung áðurn- efndrar fjárhæðar, þe. fjóra milj- arða marka á ári í tiu ár. Austur-Þýskaland á við ein- hver verstu umhverfisvandamál að stríða af öllum löndum í Evr- ópu. Því veldur einkum að til orkuframleiðslu eru notuð brúnkol að 80 hundraðshlutum en við brennslu þeirra myndast mikið sót, brennisteinstvíildi og aðrar gufur sem valda öndunar- erfiðleikum hjá fólki og skógar- dauða. Vesturþýska fréttaritið Der Spiegel skýrir frá því í nýjasta tölublaði sínu að eitt orkuver í austurhluta Austur-Þýskalands dæli út í andrúmsloftið jafnmiklu brennisteinstvíildi og öíl orkuver í Noregi og Danmörku saman- lögð. Orkusóun ereinnig gífurleg í landinu. Þannig eru Austur-Þjóðverjar þriðju mestu orkunotendur heims á eftir fbú- um Bandaríkjanna og Kanada sem eru hins vegar mun iðnvædd- ari en Austur-Þýskaland. Krataflokkarnir tveir komust að þeirri niðurstöðu að til þess að bæta þær skemmdir sem orðið hafa á íbúðasvæðum í Austur- Þýskalandi þyrfti að verja 100 miljörðum marka, 60 miljarða þyrfti til að endurnýja orkuver landsins og 40 miljarða til að auka orkunýtingu í iðnfyrirtækj- um. Austurþýskir kratar sögðu að afnema yrði allar niður- greiðslur á orku í því skyni að hvetja til orkusparnaðar. Nauðsynlegt væri að ná orku- Austurþýskt orkuver: eitt slíkt veldur meiri mengun en öll orkuver í Danmörku og Noregi samanlögð. eyðslunni niður um 20% á næstu fimm árum, draga verulega úr notkun brúnkola, loka þeim ork- uverum sem mestum spjöllum valda og skipta yfir í gasbrennslu sem veldur langtum minni meng- un. Vesturþýsir kratar bentu á að yfirvöld í Bonn þyrftu að leggja fram verulegar fjárhæðir til þessa verkefnis, hugsanlega með því að hætta við boðaðar skattalækkanir á fyrirtækjum. - Það væri ekki síður hagur Vestur-Þjóðverja að draga úr mengun fyrir austan því við það minnkaði álagið á vestur- þýskt umhverfi. Þeir lögðu einnig til að Vestur-Þjóðverjar létu Austur-Þjóðverjum í té olíu og gas af varabirgðum sínum og tækniþekkingu til að draga úr menguninni. Flokkarnir voru sammála um að Vestur-Þjóðverjar ættu að hætta að senda úrgang til urðunar í Austur-Þýskalandi. Eins og er taka Austur-Þjóðverjar við fimm miljónum tonna af vesturþýskum úrgangi árlega gegn greiðslu í gjaldeyri. Ennfremur lýstu flokk- arnir því yfir að gildandi sam- starfssamningar ríkjanna á sviði umhverfismála væru nafnið tómt og einungis til skrauts. Þörf væri fyrir miklu víðtækará samstarf ríkjanna. Vesturþýski umhverfismála- ráðherrann, Klaus Töpfer, hefur lýst því yfir að hann sé reiðubúinn að veita nærri einum miljarði marka til verkefna í Austur- Þýskalandi. Flann sagði í fyrra- dag að mengunin í Austur- Þýskalandi væri meiri en nokk- urn hefði órað fyrir og að það myndi taka í það minnsta áratug að komast fyrir verstu afleiðingar hennar. Frank Bogisch, sem sæti á í framkvæmdastjórn austurþýska jafnaðarmannaflokksins, sagði eftir fundinn í Bonn að Austur- Þýskaland væri eitt skítugasta ríki álfunnar og ef ekki yrði gripið til þeirra ráða sem dygðu til að ná tökum á umhverfismálunum væri útlitið svart fyrir börnin sem nú vaxa úr grasi. Reauter/-ÞH Suður-Afríka Sex felldir í verkfalls- Ekki færri en sex manns féllu og 18 særðust í átökum verkfalls- manna við járnbrautirnar í Germiston í Suður-Afríku við aðra starfsmenn sem settu sig á móti verkfallinu. Verkfallið hefur staðið í níu vikur og hafa amk. 22 fallið í átökum sem tengjast því. Að sögn talsmanna suður- afríska verkamannasambands- ins, COSATU, hófust rósturnar í gær á því að járnbrautarlest með fjölda verkfallsmanna kom á brautarstöðina í Germiston sem er skammt austan við Jóhannes- arborg. Á brautarpallinum voru samankomnir um 2.000 andstæð- ingar verkfallsins vopnaðir hníf- um og kylfurn og réðust þcir að verkfallsmönnum með þeim af- leiðingum að amk. sex féllu og 18 særðust. Talsmenn COSATU sögðu að lögreglumenn hefðu fylgst með átökunum án þess að hafast að en því neita stjórnendur lögreglunn- ar. Kvaðst lögreglan hafa skakkað leikinn og þurft að beita táragasi í því skyni. Sjónarvottar sáu þó nokkur lík borin í burtu af brautarstöðinni. Verkfallsmenn berjast fyrir hærri launum og viðurkenningu á starfsréttindum samtaka sinna. Ríkisfyrirtækið SATS sem starf- rækir flestar járnbrautarlestir og allar hafnir og flugvelli landsins hefur mætt verkfallinu-af.fyllstu hörku og rekið yfir 22.000 verk- fallsmenn eða um fjórðung þeirra blökkumanna sem starfað hafa hjá fyrirtækinu. Reuter/-ÞH Olía Verðlækkun heldur áfram Mildara veður íNorður-Ameríku ogaukin framleiðsla OPEC-ríkjanna veldur lœkkandi olíuverði Olíuverð hélt áfram að lækka á mörkuðum í Lundúnum í gær. Verð á Norðursjávarolíu lækkaði um 35 cent fatið en í fyrradag lækkaði það enn meir eða um 1,55 dollara fatið. Fatið er nú selt á 20,75 dollara en sl. fimmtudag var verðið 23 dollarar fyrir fatið og hafði ekki farið hærra í fjögur ár. Sérfræðingar telja að það sé einkum tvennt sem valdi þessari verðlækkun. í fyrsta lagi hafi um helgina dregið verulega úr vetrar- hörkum sem ríkt hafa í Banda- ríkjunum og Kanada að undan- förnu og leitt til verulegrar hömstrunar á olíu til húshitunar. Á hinn bóginn voru birtar tölur um framleiðslu OPEC-ríkjanna sem sýndu að hún hefur aukist þrátt fyrir samkomulag ríkjanna um að takmarka hana. Nýr samn- ingur um að minnka framleiðs- luna um eina miljón fata á dag tók gildi um áramót en áhrifa hans tekur ekki að gæta fyrr en eftir nokkra mánuði. Talsmaður Alþjóða orkumála- stofnunarinnar í París kvaðst í gær eiga von á að verðið fyrir Norðursjávarolíu myndi komast í jafnvægi í kringum 19 dollara fat- ið. Hið háa verð undangenginna vikna hafi ekki verið raunhæft. Hins vegar væru margir séfræð- ingar þeirrar skoðunar að olíu- markaðurinn væri loksins að jafna sig á verðhruninu sem varð snemma á níunda áratugnum og orsakaðist af verulegum sam- drætti í orkueyðslu í kjölfar hinna miklu verðhækkana sem urðu áratuginn á undan. Framleiðsla OPEC-ríkjanna er nú 23-24 miljónir fata á dag og hefur aukist um 50% frá 1985 þegar hún fór lægst. Samt hefur verðið farið heldur hækkandi. Því veldur samdráttur í fram- leiðslu stórveldanna tveggja, Sovétríkjanna og Bandaríkj- anna, auk þess sem olíunotkun hefur farið vaxandi í heiminum. Alþjóða orkumálastofnunin spá- ir því að eftirspurn eftir olíu í öllum löndum nema Sovétríkjun- um, Austur-Evrópu og Kína aukist um eina miljón fata á dag og verði 52,9 miljónir fata. Fari það eftir er það mesta ®líunotkun sem um getur, meiri en hún varð mest um 1980. Reuter/-ÞH EINDAGINN ER 15. HVERS MÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreg- inni staðgreiðslu af launum og reikn- uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin skulu gerð eigi síðar en 15. hvers mán- aðar. Með skilunum skal fylgja greinar- gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila- greinum", blátt eyðublað fyrir greidd laun og rautt fyrir reiknað endurgjald. Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó svo að engin staðgreiðsla hafi verið dregin af í mánuðinum. Allar fjárhæðir skulu vera í heil- um krónum. RSK RlKISSKATTSTJÓRI Miðvikudagur 10. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.