Þjóðviljinn - 10.01.1990, Side 9
MINNING
Dagbjört Eiríksdóttir
Fædd 26.7. 1918 - Dáin 31.12. 1989
Foreldrar Dagbjartar voru
Eiríkur Jóhannesson f. 3.6. 1883
og Þorbjörg Jónsdóttir f. 17.12.
1881. Þau hófu búskap á Hrauni í
Reyðarfirði, en fluttu til Eski-
fjarðar þegar Dagbjört var
þriggja ára og bjuggu þar upp frá
því. Föðuramma hennar var
Gunnhildur Björnsdóttir gift Jó-
hannesi Árnasyni, Sellátrum í
Suður-Múlasýslu. Gunnhildur
var systir Eiríks Björnssonar að
Karlsskála í Reyðarfirði, sem var
orðlagður atorku- og fram-
kvæmdamaður, bæði í búskap og
útvegi. Dóttir hans, Guðný, gift-
ist Jóhannesi Patursyni kóngs-
bónda í Kirkjubæ í Færeyjum -
hann var hinn mikli þjóðsköru-
ngur Færeyinga á fyrri hluta ald-
arinnar (d. 1946). Þau hjón áttu
tíu börn, sem öll komust til full-
orðinsára nema eitt. Yngst þeirra
var Erlendur Patursson - hag-
fræðingur að mennt - sem hel-
gaði líf sitt baráttunni fyrir sjálf-
stæði þjóðar sinnar. Hann lést
árið 1986. - Dagbjört og Er-
lendur voru þannig þremenn-
ingar að skyldleika og var með
þeim góður kunningsskapur.
Hermann maður Dagbjartar
kynntist honum vel er þeir voru
saman við nám í Hafnarháskóla
fyrir stríð.
í dag , þegar Dagbjört Eiríks-
dóttir er kvödd hinstu kveðju,
leitar margt á huga minn. Efst í
huga eru mér þakkir til hinnar
látnu fyrir áratugatryggð og vin-
áttu.
Kynni okkar Dagbjartar hóf-
ust þegar við, haustið 1935, hóf-
um nám í héraðsskólanum að
Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu.
Þessi skólavist var okkur ótrúlega
mikils virði á margan hátt. Þá var
dr. Leifur Ásgeirsson skólastjóri.
Hann og hans ágæta kona,
Hrefna Kolbeinsdóttir, höfðu
mikil og mótandi áhrif á allan
bæjarbrag. Leifur var ekki bara
skólastjóri, heldur vinur og félagi
okkar allra.
Þarna á Laugum voru ekki ein-
göngu nemendur úr nágranna-
sveitunum, heldur úr flestum
byggðum landsins. í þessum hópi
var Dagbjört, fædd á Hrauni í
Reyðarfirði og uppalin á Eski-
firði.
í skólanum var margt góðra
námsmanna. Þó fór það svo, að
þessi litla, granna Austfjarða-
stúlka tók forystuna hvað öll
námsafköst snerti, og reyndist
mjög jafnvíg á allar námsgreinar.
Þennan vetur var mikið félags-
líf í skólanum. Dagbjört var virk í
öllu slíku. Hún söng í kór, lék í
leikritum, sté dans á dansleikjum
og var í sýningarflokki fimleika-
kvenna á staðnum.
Sumarið eftir þennan minnis-
verða vetur var ég á búi foreldra
minna í Húnaþingi. Þá gerðust
þau undur, að Dagbjört birtist
einn vordag á hlaðinu heima. Svo
mrkilega stóð á hjá okkur þá, að
búið var að rífa timburhúsið, sem
staðið hafði í áratugi, og verið að
hefjast handa um byggingu
steinhúss, sem ennþá stendur.
Fjölskyldan bjó þá í fjárhúsum og
hlöðu. Er nú skemmst frá því að
segja, að Dagbjört gekk að þessu
dálítið sérstæða heimilishaldi
með okkur og eignaðist vináttu
og traust ungra j afnt sem aldinna.
Árið 1943 giftist Dagbjört eft-
irlifandi manni sínum, Hermanni
Jónssyni. Var heimili þeirra æ
síðan í Reykjavík.
Á þessu tímabili var ég ekki
heimilisföst í Reykjavík, en
þurfti að sjálfsögðu stundum að
leggja leið mína til höfuðborgar-
innar. Oft var það svo, að dvölin í
Reykjavík hófst með gistingu hjá
þeim hjónum og gjarna lauk ferð-
inni á því, að farið væri til þeirra
með pjönkur sínar, áður en snúið
væri aftur til átthaganna. Mál-
tækið segir: „Þar sem er hjarta-
rúm, þar er húsrúm" og sannaðist
það á þeim hjónum.
Ég var ekki ein um það að kný-
ja dyra á heimili þeirra. Þar var
oft mjög gestkvæmt.
Á þessum góðu árum sá ég
föður Dagbjartar, Eirík Jóhann-
esson. Hann va þá kominn á efri
ár og þreyta og heilsubrestur
höfðu sett mark á hann. Honum
fylgdi friður, mildi og hlýja og
hver stund í návist hans var góð.
Ég hitti einnig öll systkini
þeirra hjóna á þessum árum. Þótt
ekki tækjust með okkur náin
kynni, gerði ég mér grein fyrir
því, að þetta var mikið atgervis-
fólk til líkama og sálar.
Þarna kynntist ég venslafólki
þeirra frá Húsavík og ísafirði. í
þeirra hópi voru ungmenni, sem
voru hér við nám, og fullorðið
fólk, sem kom til höfuðborgar-
innar ýmissa erinda.
Minnisstæðastar verða mér þó
systurnar Arnfríður Ingvarsdótt-
ir, móðir Hermanns, og Sigríður
Ingvarsdóttir, systir hennar og
fóstra Hermanns. Þær voru svo
einstakar að reisn og glæsibrag.
Dagbjört stundaði nám við
Fóstruskóla íslands og lauk það-
an námi vorið 1956 með góðum
vitnisburði. Hún helgaði sig
fóstrustörfum æ síðan, lengst á
geðdeild Barnaspítala Hringsins,
eða þar til hún lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Frá okkar fyrstu kynnum var
mér ljóst, hve mikið yndi Dag-
björt hafði af börnum og hver
ábyrgð er á herðar okkar lögð að
hlúa sem best að hverjum ein-
staklingi.
Nú, þegar ég kveð Dagbjörtu
hinstu kveðju, leitar svo margt á
hugann. Efst í huga er mér þakk-
lætið fyrir allt, sem hún var mér,
börnum mínum, fósturdóttur og
barnabörnum.
Ég trúi því, að minningin um
gleðistundirnar, sem við áttum
saman, eigi oft eftir að ylja mér.
Hinu trúi ég einnig, að hennar
hollu ráð og lífsviðhorf eigi eftir
að veita mér styrk þegar á móti
blæs.
Eiginmanni hennar, fóstur-
syni, tengdadóttur og barnabörn-
um sendi ég hlýjar kveðjur.
Dagbjörtu kveð ég með virð-
ingu og þökk.
Gyða Sigvaldadóttir
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Birting og borgarstjórnar-
kosningarnar
Félagsfundur verður haldinn nk. fimmtudagskvöld, 11. janúar, í
Tæknigarði, Dunhaga 5 og hefst hann kl. 20.30.
Fundarefni: Birting og borgarstjórnarkosningarnar.
Tekst að fækka listum? Hvað gerir Birting?
Frummælandi: Kjartan Valgarðsson.
Stjórnin
Eskifjörður - Félagsfund-
ur
Alþýðubandalagið á Eskifirði heldurfélags-
fund í Valhöll fimmtudaginn 18. janúar kl.
20.30
Dagskrá:
1. Landsmálin - staða og horfur. Hjörleifur
Guttormsson alþingismaður.
2. Félagsstarfið framundan.
3. Nýjungar í atvinnumálum.
Félagar - mætum öll.
Stjórnin
Fundir á Austurlandi
Steingrímur J. Sigfússon samgöngu- og
landbúnaðarráðherra og Hjörleifur Gutt-
ormsson alþingismaður verða á opnum
fundum:
j Staðarborg i Breiðdal laugardaginn
13. janúar kl. 13:30.
Á Fáskrúðsfirði í Verkalýðshúsinu
laugardaginn 13. janúar kl. 17.
Á Reyðarfirði í Verkalýðshúsinu sunnu-
daginn 14. janúar kl. 13:30.
Allirvelkomnir. Alþýðubandalagið
Fundir á Austurlandi
Hjörleifur Guttormsson ræðir landsmál og
heimamálefni á opnum fundum á næstunni
sem hér segir:
Á Bakkafirði í félagsmiðstöðinni, mánu-
daginn 15. janúar kl. 20.30
Á Vopnafirði í Austurborg, þriðjudaginn
16. janúar kl. 20.30
Á Seyðisfirði í Herðubreið, miðvikudaginn
17. janúar kl. 20.30.
Allir velkomnir
Hjörleifur
Steingrímur J.
Alþýðubandalagið Hjörleifur
>ö<
JL Hafnarfjarðarbær
Auglýsing um breytingu á deili-
skipulagi í Hafnarfirði
Samkvæmt ákvöröun skipulagsstjórnar meö
vísan til 17. gr. skipulagslaga frá 18. maí 1986
er lýst eftir athugasemdum við breytingartillögu
að staðfestu deiliskipulagi í Hafnarfirði (Set-
bergshverfi).
Breytingin felst í því að tengja saman enda Ljós-
abergs og Glitbergs, sem eru botngötur. Lóðirn-
ar nr. 6,8,9,10 og 11 við Glitberg fá aðkomu frá
Ljósabergi. Aðkoma frá öðrum húsum við Glit-
berg breytist ekki.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu bæjarverk-
fræðings að Strandgötu 6, Hafnarfirði frá 19.
janúar til 16. febrúar 1990.
Athugasemdum við skipulagstillöguna skal
skila til bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir 2. febrúar
1990 og skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins
frests teljast samþykkir tillögunni.
Hafnarfirði, 9. janúar 1990
Skipulagsstjóri ríkisins
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
H| REYKJHIÍKURBORG (f|
Auglýsing um 'I*
fasteignagjöld
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Reykjavík
1990 og verða álagningarseðlar sendir út
næstu daga ásamt gíróseðlum vegna fyrstu
greiðslu gjaldanna.
Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar, 1.
mars og 15. apríl.
Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í
Reykjavík, en einnig er hægt að greiða gíró-
seðlana í næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi.
Fasteignagjaldadeild Reykjavíkur, Skúlatúni 2,
veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna, sími
18000.
Tekjulágirelli-og örorkulífeyrisþegar hafa feng-
ið lækkun á fasteignaskatti samkvæmt reglum,
sem borgarstjórn setur og framtalsnefnd úr-
skurðar eftir, sbr. 4. mgr. 5. gr. laganr. 91/1989
um tekjustofna sveitarfélaga. Vegna mistaka
við tölvuvinnslu var sama hlutfallsleg lækkun og
ákveðin var á árinu 1989 reiknuð inn á
álagningarseðla vegna ársins 1990. í mörgum
tilvikum og sennilega flestum mun þessi lækkun
reynast rétt. í öðrum tilvikum kunna elli- og ör-
orkulífeyrisþegar að eiga rétt á meiri lækkun
gjaldanna og í örfáum tilvikum minni lækkun.
Þegar framtöl hafa verið yfirfarin, sem vænta
má að verði í mars- eða aprílmánuði, verður
viðkomandi tilkynnt um niðurstöður, ef um
breytingu verður að ræða.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
9. janúar 1990
ALÞYÐUBANDALAGIB
Alþýðubandalagið Kópavogi
Spilakvöld
Þriggja kvölda spilakepþni hefst mánudaginn 15. janúar I Þinghól
Hamraborg 11 Kópavogi kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Felagsfundur
Félagsfundur föstudagskvöldið 12. janúar kl. 20.30 að Selási 9
Egilsstöðum.
Rætt verður um landsmálin og flokksstarfið í byrjun árs
Steingrímur J. Sigfússon ráðherra og Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður verða á fundinum.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin