Þjóðviljinn - 10.01.1990, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 10.01.1990, Qupperneq 11
LESANDI VIKUNNAR I DAG Ásdís Skúladóttir, leikstjóri og félagsfræðingur Ef maður er ánægður er kominn Hvað ertu að gera núna, Ásdís? „Ég skipti mér nokkuð jafnt milli þess að vera leikstjóri og fé- lagsfræðingur um þessar mundir. Ég er að setja upp barnaleikrit eftir Ole Lund Kirkegaard í Kópavogi, það heitir Virgill litli. Við erum að byrja að æfa núna. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson þýddi verkið eins og Fróða og alla hina grislingana sem var sýnt í fyrra við miklar vinsældir. Og Gerla gerir leikmynd eins og í fyrra. Sem félagsfræðingur starfa ég með Frístundahópnum Hana- nú. Við erum núna í óðaönn að skipuleggja starfið næstu þrjá mánuði, ætlum meðal annars á gömlu dansana, listasöfn, tón- leika og í leikhús okkur til and- legrar og líkamlegrar næringar." Hvað varstu að gera fyrir tíu árum? „Hvernig á ég að muna það, ég sem er í lausamennsku á vinnu- markaðnum! En ég held að um þetta leyti 1980 hafi ég fengið frí frá því að leika félagsfræðinginn í Er þetta ekki mitt líf? tíl að leikstýra Týndu teskeiðinni eftir Kjartan Ragnarsson norður á Sauðárkróki. Sýningin var valin besta áhugamannasýningin það ár og send til Finnlands." Hvað gerirðu helst í frístund- um? „Ég hef alltaf öfundað fólk sem getur sagt frá alls konar spenn- andi hlutum sem það gerir í frí- stundum, og ég spyr mig: Af hverju gerir þú ekkert svona? Þá tel ég stundirnar í sólarhringnum og kemst að því að 10 tímar fara í það að koma sér í háttinn, sofa og fara af stað á morgnana. Hvunn- dagsmanneskjur eins og ég vinna aðra 10 tíma, og þá eru bara fj órir afgangs! Ætli þeir fari ekki í að kíkja á fjölskylduna, kaupa inn, hengja upp þvott, lesa, fara í leikhús og á tónleika þegar tæki- færi gefst. Þetta er allt í lagi ef maður hefur gaman af vinnunni sinni. Þegar Thor Vilhjálmsson kemur í heimsókn í Hana-nú eða við förum á sinfóníutónleika, þá er ég auðvitað fremur að skemmta mér en að vinna. Frí- stundir mínar eru eiginlega sam- verustundir mínar með fólkinu í Hana-nú.“ Hvaða bók ertu að lesa núna? „Ég hef aðallega verið að fletta íslensku orðsifjabókinni undan- farið. Við veittum okkur þann munað að kaupa hana með af- borgunum. Ég hef líka verið að lesa Glímuskjálfta, ljóðasafn Dags Sigurðarsonar. Það er gam- an að rifja upp ljóð skálds sem maður hefur lifað tímana með og tími til ég hef sérstaklega gaman af fyrstu bókunum hans. Sveitasælu Fay Weldon las ég líka og fannst hún ekki nærri því eins bitastæð og Kvendjöftjllinn. Miklu skemmtilegra að lesa Landhelg- ismálið eftir Lúðvík Jósepsson." Hvað lestu helst í rúminu á kvöldin? „Oft les ég bækur, en oftast blöðin. Þá tek ég Moggann og Þjóðviljann og renni yfir allt sem mér finnst ég þurfa að lesa. Síðast fyrir svefninn les ég svo minning- argreinarnar, það færir mér ró. Þó að þær séu misjafnlega vel skrifaðar er þetta forvitnilegt efni. Maður sér líf fólks í hnot- skurn, lífshætti sem stundum eru fjarri okkur nú á tímum. Á kvöld- in sækir oft að manni erfiði kom- andi dags og þá er gott að lesa um látið fólk. Daglegt amstur verður svo óttalega smátt andspænis dauðanum. Til hvers að gera sér rellu þó að bíllinn þurfi að fara á verkstæði? Við lifúm bara einu sinni. En fyrst og fremst les ég minningargreinar af áhuga á mannfólkinu. Þær eru skrifaðar frá svo ólíkum sjónarhóli, bæði félagslegum og trúarlegum.“ Hvaða bók myndirðu taka með þér á eyðiey? „Ljóðabókin hennar Ingi- bjargar Haraldsdóttur, Nú eru aðrir tímar, kemur fyrst upp í hugann." Hver var uppáhalds barnabók- in þín? „Dísa ljósálfur. Þó var ég svo hrædd við hana að ég þorði varla að opna hana og fletta henni! Svo tók Rósa Bennett við þegar ég varð eldri.“ Hvað sástu síðast í leikhúsi? „Töfrasprotann, barnaleikrit Leikfélags Reykjavíkur, og skemmti mér prýðilega. Sonur minn fjögra ára heillaðist alveg og talar ekki um annað en svart- álfa og prinsessur síðan." Er eitthvað sem þig langar að sjá í leikhúsunum núna? „Fyrst og fremst Heimili Vern- hörðu Alba í Þjóðleikhúsinu sem gömul skólasystir mín, María Kristjánsdóttir, stjórnar. Og ég sé eftir að hafa ekki farið norður að sjá uppsetningu Þórunnar Sig- urðardóttur á sama verki. Mér skilst að það séu aðrir tónar hjá Maríu.“ Fylgistu reglulega með ein- hverjum dagskrárliðum í útvarpi og sjónvarpi? „Eg hlusta alltaf á 7 fréttir út- varpsins, annað er ekki ákveðið. En ég hlusta oft á þættina í dags- ins önn og er svolítið veik fyrir Derrick. Almennt finnst mér efast ákaflega margt á Rás 1 sem gam- an er að hlusta á, einkum á dag- inn.“ Hefurðu alltaf kosið sama stjórnmálaflokkinn? „Já, það hefur alltaf endað með því.“ Ertu ánægð með flokkinn þinn? „Ég get ekki svarað því ját- andi, lífið er ekki svo einfalt að því verði nokkurn tíma fundinn endanlegur farvegur. Ef maður er ánægður er kominn tími til að hugsa sig um og rifja upp ljóðið um efann eftir Brecht!“ Langar þig til að skamma ein- hvern stjórnmálamann? „Já, stundum langar mig til að skamma ýmsa karlkyns þing- menn. Ekki út af pólitískum skoðunum heldur vegna þess að mér finnst þeir ekki virða hlut- verk sitt sem þingmenn. Þeir eru oft svo strákslegir í orðum um málefni sem varða fólk miklu, og svo eru þeir að furða sig á að þjóðin skuli ekki virða þá og Al- þingi.“ Hvernig myndir þú leysa vanda þessarar þjóðar? „Ég veit það ekki, en ég held að ég myndi leggja af stað með orðin frelsi, jafnrétti og bræðra- lag og reyna að vinna samkvæmt þeirra fyllstu merkingu." Hvað borðarðu aldrei? „Ég held ég éti allt - eins og helvítis kötturinn!" Hvar myndirðu vilja búa ann- ars staðar en á íslandi? „Hvergi.“ Hvernig finnst þér þægilegast að ferðast? „Mér finnst ágætt að ferðast bæði í flugvél og bíl, en þó er alltaf einhvers staðar á bak við efinn um að ég komist á áfangast- að. Helst vildi ég losna við allar ferðir milli staða!" Hvernig sérðu framtíðarlandið fyrir þér? „Þar ríkir jöfnuður og ham- ingja. Það land er ekki til ennþá, en við getum vonast eftir því.“ Hef ég gleymt einhverri spurn- ingu? „Já, þú hefur ekki spurt mig hvert ég sé að fara.“ Hvert ertu að fara, Ásdís? „Ég er að fara á vegum Kópa- vogsbæjar til Óðinsvéa á 3-4 daga námskeið um leikhús fyrir aldrað fólk. Annars staðar á Norður- löndum hafa aldraðir sett upp leiksýningar, til dæmis til að fræða og skemmta yngra fólki og börnum. Það hefur ekki verið gert hér ennþá en vonandi kemur að því.“ SA þJOÐVILIINN FYRIR 50 ÁRUM Kjötið hækkar um 15 aura kg. Mjólkin hækkar næstu daga. 1000jólatrébrennd. Mussolini reynir að koma á Balkanbanda- lagi gegn Sovét. Mannerheim til- kynnirmiklasigra. 10. janúar miðvikudagur. 10. dagurársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 11.06 -sólarlag kl. 16.05. Viðburðir Gútemplarareglan stofnuð árið 1884. Alþýðumaðurinn, málgagn krata á Akureyri hefurgöngusína árið 1931. Verkalýðsfélag Stykk- ishólms stofnað árið 1915. Félag íslenskra útvarpsvirkja stofnað 1938. APÓTEK Reykjavik. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúða vikuna 5.-11. jan. 1990 er í Holts Apóteki og Laugavegs Apóteki. Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Síðarnef nda apótekið er t opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur sími 4 12 00 1 84 55 Hafnarfj sími 5 11 66 Garðabær sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík sími 1 11 00 Kópavogur sími 1 11 00 Seltj.nes sími 1 11 00 Hafnarfj sími 5 11 00 Garðabær sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma- pantanir í sima 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím- svara 18888. Borgarspitalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspít- alinn: Göngudeildin er opin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Keflavík: Dagvakt. Upplýsingars. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartimar: Landspítalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20 og eftirsamkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilt jvemdarstöðin við Barónsstíg opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspítali: alla daga15-16og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknirannarraenforeldrakl. 16-17 DAGBÓK daglega. St. Jósefsspitali Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spítalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19. Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavik: alla daga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKI. Neyðarathvarf fyrir ung- lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allansólarhringinn. Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum. Simi 687075. MS-félagið Álahdi 13. Opið virka daga frá kl. 8-17. Síminner 688620. ’ Kvennaráðgjöfín Hlaðvarpanum Vestur- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, • sími 21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrirsifjaspellum, s. 21500, símsvari. Upplýsingar um eyðni. Sími 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarlræðing ámiðvikudögumkl. 18-19, annarssím- svari. Samtök um kvennaathvarf, simi 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökln '78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsímafélags lesbíaog hommaá mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21— 23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er 91-28539. Bilanavakt rafmagns- og hiiaveitu: s. 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sif jaspellamál. Sími 21260allavirkadagakl. 1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt I sima 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 áfimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlíð8 er„Opiðhús“fyrirallakrabb- ameinssjúklinga og aöstandendur þeirra á fimmtudögum kl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í sima 91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 9. jan. 1990 kl. 9.15. Sala Bandaríkjadollar............. 60.63000 Sterlingsþund............... 100.26700 Kanadadollar................. 52.24200 Dönsk króna................... 9.34570 Norsk króna................... 9.33490 Sænskkróna.................... 9.88910 Finnsktmark.................. 15.23370 Franskurfranki............... 10.63500 Belgískur franki.............. 1.72830 Svissneskurfranki............ 39.78350 Hollenskt gyllini............ 32.14310 Vesturþýskt mark............. 36.29450 Itölsk líra................... 0.04847 Austurrískur sch.............. 5.16200 Portúg. Escudo................ 0.40990 Spánskurþeseti................ 0.55530 Japansktyen................... 0.41850 írsktpund.................... 95.66800 KROSSGÁTA Lárétt: 1 buxur4kylfu 6 stækkuðu 7 grind 9 Iaera12áleit14spil15 nægileg 16kæpan 19 magri20ólgaði21 veiðir Lóðrétt: 2 stilli 3 hnif 4 geð 5 hás 7 vitlausri 8 stólpa 10stakrar 11 hræðsla13dauði17 eyri 18 bleyta Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 blær 4 borg 6 afl7hrak9æska12 Iaust14und15ólm16 nægur19traf20nafn 21 ragan Lóðrétt: 2 lár 3 raka 4 blæs 5 rík 7 hausts 8 aldnar10stóran11 arminn13ugg 17æfa 18 una Miðvikudagur 10. janúar 1990 ÞJÓÐVILJII DA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.