Þjóðviljinn - 10.01.1990, Page 12

Þjóðviljinn - 10.01.1990, Page 12
Árni Tryggvason hönnuður Nei, ég bý í góðu hverfi og svaf einsog steinn. Magnús Jónsson nemi Nei, og þótt ég hafi óneitanlega orðið þess var þá varð ég ekki fyrir neinni truflun. Guðjón Gíslason dúkari Nei, það fauk ekki neitt. Ég vakn- aði svona tvisvar þrisvar um nótt- ina en veðrið var talsvert betra um morguninn. SPURNINGIN Fauk eitthvaö hjá þér í óveðrinu í gær? Daði Ólason nemi Nei, nei, það gerði það ekki. Ég svaf svona með höppum og glöppum en varð ekki meint af. Guðný Hilmarsdóttir Borgarspítala Nei, það varð ekkert tjón af því. Ég svaf svona af og til og vaknaði við lætin. blÓÐVIMINN Miðvikudagur 10. janúar 1990. 6. tölublað 55. órgangur SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 SÍMFAX 681935 Landgrœðsluskógar Ataks 1990 Birkibyltingin að bresta á Allir hvattir tilað vera með ístœrsta gróðursetningarátakiIslandssögunnar Avori komandi sleppa ein og hálf milljón lítilla bjarka úr prísund sinni hjá garðyrkju- bændum í uppsveitum Arnes- sýslu. 73 gróðursnauð svaeði víðs vegar um land verða vettvangur byltingarstarfsins í byrjun og sloka rætur bjarkanna í sig af áfergju. Plönturnar hyggjast „valda straumhvörfum í gróður- sögu landsins“, eins og segir í kynningu á Átaki 1990, „upp frá þessu verða stærri skref stigin til að endurheimta glötuð land- gæði.“ - Átakið hófst formlega á Kjarvalsstöðum sl. sunnudag, segir Hulda Valtýsdóttir, for- maður Skógræktarfélags íslands, -nú erum viö að undirbúa svæðin og hefja upplýsingar og fræðslu. Sjónvarpið sýnir meðal annars 7 þætti sérstaklega á vegum Átaks- ins. Við munum gefa út fræðslu- bæklinga, hafa samband við skólana og svo framvegis. Tilefni Átaksins er 60 ára afmæli Skóg- ræktarfélags íslands, sem er sam- bandsfélag allra áhugamannafé- laga um skógrækt í landinu, en félagsmenn þeirra eru alls um 7000. - Er þetta Atak aðeins á vegum skógrœktarfélaganna? - Nei, Landgræðsla ríkisins, Skógrækt ríkisins og landbúnað- arráðuneytið eru samstarfsaðilar okkar í þessu verkefni, en nú er leitað til þjóðarinnar allrar. Við tökum að okkur að safna fé til að kaupa þessa 1,5 miljón birkipl- antna, síðan ætlum við að dreifa þeirn til áhugahópa, skólafólks, sveitarfélaga og alls almennings, sem óskar að hjálpa við gróðurs- etninguna. - Hvernig voru þessi svœði val- in? - Boð voru látin ganga til skóg- ræktarfélaga og annarra aðila um að benda á svæði. Þau voru svo endanlega valin í samráði við sérstaka fagnefnd Átaksins, en í Merki Átaks 1990 á eftir að sjást víða á þessu ári. Ástæða er til að hvetja fólk til að fylgjast með sjónvarpsþáttunum í tilefni Ataksins. LANDGRÆÐSLUSKOGAR ATAK 1990 henni sitja nokkrir vísindamenn og sérfróðir aðilar. - Er eingöngu plantað birki? - Nei, við dreifum líka sitka- greni og sérstakri víðitegund, en ekki síst lúpínufræi, birkifræi og grasfræi. Allt miðast við það að geta grætt upp gróðursnauð svæði. - Hvað er þetta stórt átak miðað við venjuleg afköst okkar Islend- inga í trjáplöntun á einu ári? - Við ætlum að dreifa þessari 1,5 miljón plantna, en árleg plöntun hér hefur numið um ein- ni miljón árlega. Og það er von okkar að stofnanir og áhugafólk láti Átakið ekki koma í staðinn fyrir venjulegt framtak, heldur verði það að sem mestu leyti við- bót. Og samt er þetta lítið. Svíar, sem ekki byggja skóglaust land, láta sér ekki nægja að planta minna en 450 miljónum plantna árlega. - Hverjir heldurðu að komi til samstarfs? - Stuðningsaðilarnir eru marg- ir. Eimskipafélag íslands hefur þegar gefið 7,5 miljónir króna í tilefni 75 ára afmælis síns og um 400 aðilar hafa heitið stuðnihgi og vinnu. Skógræktarfélögin verða eflaust mjög framarlega í starfinu og víða í góðri samvinnu við sveitarfélög, sem hafa brugð- ist vel við. Við bindum líka mikl- ar vonir við árangur af sölu Grænu greinarinnar 19.-22. apríl í vor. Það nýja við Átak 1990 er uppgræðsluþátturinn. Núna eru valin gróðursnauð svæði og skógarplönturnar notaðar til að hjálpa þeim. Þess vegna kallast þetta landgræðsluskógar. Það er einnig skilyrði að skógarnir verði gerðir aðgengilegir almenningi, enda tilgangurinn að koma upp útivistarskógum sem víðast. Önnur nýjung er „Vinarskó- gurinn“. Komið hefur verið fyrir söfnunarbaukum víða þar sem erlendir ferðamenn staldra hér- lendis og þeim gefinn kostur á að skilja eftir sig tré. „Vinarskógin- um“ sem á að koma upp fyrir þetta fé, ásamt öðru sem hugsan- ’lega berst frá útlöndum, hefur enn ekki verið valinn staður. Átak 1990 fær 10 kr. af hverri Fuji-filmu sem seld verður hér- lendis á árinu, auk þess sem Fuji- umboðið hefur kostað gerð 7 sjónvarpsþátta í tengslum við Atakið. Fyrirtækið Víðsjá fram- leiðir þættina undir stjórn Gísla Gestssonar. Ferðaland hf. gefur 10% af andvirði plötunnar „ís- land er land þitt“, en Magnús Þór Sigmundsson er höfundur lagsins við texta Margrétar Jónsdóttur. Verndari Átaks 1990 er forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir. ÓHT Framtíðarlandið? Halllormsstaðarskógur er dæmi um birkiskóg sem hefur fóstrað og skýlt mörgum tignarlegustu trjám landsins. Myndin er frá Mörkinni í Hallormsstað. Mynd: ÓHT.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.