Þjóðviljinn - 11.01.1990, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 11.01.1990, Qupperneq 3
FRETTIR Fossvogsdalur Jarðgöng líkleg Vegagerð ríkisins hefur nú til athugunar erindi frá Kópavogs- kaupstað um að jarðlög í Foss- vogsdal verði könnuð með það fyrir augum að jarðgöng fyrir umferð bifreiða verði lögð um dalinn. Kristján Guðmundsson bæjarstjóri í Kópavogi segir að ef gerð ganga sem þessara reynist tæknilega möguleg, geri Kópa- vogskaupstaður það að tillögu sinni að sú leið verði farin. í samtali við Þjóðviljann sagði Kristján þessa lausn geta orðið leið til sátta í deilu Reykjavíkur- borgar og Kópavogskaupstaðar um framtíðarskipulag Fossvogs- dals. Verkfræðifélag íslands hefði fyrst sett hugmynd um jarð- göng fram og borgarstiórinn í Reykjavík sagt þá leið hugsan- lega geta verið til sátta í deilu bæjarfélaganna. Kristján sagði fulítrúa Kópavogs hafa átt vin- samlegan fund með fulltrúum Reykjavíkurborgar en nú væri beðið eftir niðurstöðum Vega- gerðarinnar. Samkvæmt skýrslu sem Verk- fræðistofa Sigurðar Thoroddsens gerði yrði kostnaðurinn við tvö- föld umferðargöng um 1,5 milj- arðar króna að frátöldum kostn- aði við mannvirki beggja vegna við þau, að sögn Kristjáns. Talað væri um tvenn göng sem yrðu hvor um sig um 2 kílómetrar að lengd og kostnaðurinn við hvern kílómetra því 350 miljónir króna. Þar sem um þjóðveg í þéttbýli yrði að ræða kæmi ríkið til með að greiða hluta kostnaðarins. Kristján sagði ljóst að þótt göngin reyndust tæknilega mögu- leg yrðu þau ekki byggð alveg á næstu árum. -hmp Fiskverðsdeilan Allt fast sem fyrr Deiluaðilar rœðast við á Vopnafirði en ekki á Eskifirði og Fáskrúðsfirði. HrafnkellA. Jónsson: Kröfur sjómanna byggðar á stað- reyndum heimilisbókhaldsins „Hér hefur ekkert gerst og allt fast sem fyrr í þessari deilu. Það er viðbúið að þetta komi við pyngju einhverra en það er nóg af mat í frystikistunni og góður bar- áttuandi í mannskapnum. Við munum ekki hvika frá fyrri kröf- um okkar um hækkun fiskverðs þó reynt sé að beygja okkur og taka mannskapinn á taugum með því að ræða ekkert við hann,“ sagði Hafþór Hannesson togar- asjómaður á Fáskrúðsfirði sem jafnframt á sæti í samninganefnd sjómanna. Hið sama er að segja frá Eski- firði og Vopnafirði. Þar hefur heldur ekkert miðað í átt til samkomulags í deilu sjómanna við sína viðsemjendur um hækk- un fiskverðs. Að vísu talast menn við á Vopnafirði til að reyna að finna lausn á deilunni sem við- semjendur sjómanna á Eskifirði og Fáskrúðsfirði virðast ekki telja ómaksins virði. Á Eskifirði hafa sjómennirnir haft opið hús á degi hverjum til að hittast og voru í gær í „andlegri og líkamlegri afslöppun", eins og Hrafnkell A. Jónsson formaður verkalýðsfélagsins Árvakurs orð- aði það. Hann sagði það vera augljóst af sinnuleysi viðsemj- enda sjómanna að þeim væri stjórnað af mörgum spottum enda féllu kröfur sjómanna um hækkun fiskverðs ekki að efnahags- né gengisstefnu stjórnvalda hvað þá að hinni svokölluðu núll-lausn aðila vinnumarkaðarins. Þar er gert ráð fyrir að fiskverð breytist lítið sem ekkert. „Það sem fyrst og fremst hefur ráðið kröfugerð sjómanna og baráttuanda þeirra fyrir bættum kjörum eru staðreyndir heimilis- bókhaldsins en ekki að þeir séu að leggja stein í götu stjórnvalda né að halda uppi einhverri stjórn- arandstöðu í verki,“ sagði Hrafnkell A. Jónsson. -grh Kópavogur Heimir ekki fram Heiinir Pálsson, formaður bæjarráðs Kópavogs, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér að nýju í bæjarstjórnarkosningun- um í vor. „Það er langt síðan ég tók ákvörðun um það og ég sé ekki ástæðu til að draga það lengur að segja félögum mínum opinber- lega frá því,“ sagði Heimir í sam- tali við Þjóðviljann. Um þessar mundir fer fram skoðanakönnun meðal Alþýðu- bandalagsmanna í Kópavogi þar sem þeir eru beðnir að tilgreina þá sem þeir vilja sjá á framboðs- lista í komandi kosningum. Fé- Leiörétting í frétt af fundi um málefni Þjóðleikhússins í blaðinu í fyrra- dag, var ekki alveg rétt haft eftir Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu. Á fundinum sagði Herdís að starfsfólk Þjóðleikhússins skyldi vera þakklátt fyrir að vera álitið þess virði að fá dýrt og gott leikhús sem uppfyllti kröfur tím- ans. Hlutaðeigandi eru beðnir vel- virðingar á mistökunum. lagsmenn hafa fengið lista yfir þá sem hafa verið í störfum og nafn Heimis er þar á meðal. „Ég hafði gert uppstillingar- nefnd grein fyrir því að ég gæfi ekki kost á mér til endurkjörs og þess vegna þykir mér mjög vont að láta félaga mína í félaginu í Kópavogi halda að þeir geti gengið að mér í þetta starf þegar þeir eru að stilla sér upp lista,“ sagði Heimir. Hann segist líta á það sem þegnskyldu að leggja lið í félags- málunum, það hafi hann gert í fjögur ár. „Pað er alveg augljóst mál að vinna af þessu tagi tekur bæði mikinn tíma og mikla starfs- orku. Nú treysti ég mér ekki til að sinna því starfi lengur eins og ég vil geta sinnt því og hef ákveðið að þakka fyrir mig.“ Heimir segir að þar með sé hann ekki að hlaupa út úr pólitík- inni, því hann muni áfram starfa í Alþýðubandalagsfélaginu í Kópavogi. „Ég hef ekki undan neinu að flýja í þessu efni. Áhugamálin eru mörg og þau hafa flest orðið að sitja á hakanum. Mér finnst ég ekki geta misboðið mér öllu lengur,“ sagði Heimir Pálsson, formaður bæjarráðs Kópavogs. -gb Lokaspretturinn hafínn Könnunarviðræðum Alþýðu- sambands Islands, Vinnuveit- endasambands íslands og Vinnu- málasambandi samvinnufélag- anna fer brátt að Ijúka og mun þá skýrast hvort hægt verður að fara svokallaða „núll-leið". Á löngum miðstjórnarfundi ASÍ í gær var forsetum sambandsins falið að halda áfram þessum viðræðum við atvinnurekendur og ríkisvald. Miklar umræður urðu um ágæti þessara viðræðna en aðeins Kar- vel Pálmason taldi ckki rétt að halda áfram á sömu braut. Mönnum ber þó ekki saman um hve mikið starf er enn óunnið og þótt sumir telji mögulegt að ganga frá samningi um eða eftir helgina verður að teljast mjög ólíklegt að það takist. „Það þarf ekki lengri tíma til að vita hvort þessi leið er fær,“ sagði Björn Grétar Sveinsson í Þjóðviljanum en ýmsir eru ósammála þessari fullyrðingu. Ýmis ljón eru á vegi samningsaðila, ma. hvort hægt sé að fá starfsmenn ríkisins til að taka þátt í pakkanum. Þannig getur farið svo að viðræðunum ljúki án teljandi árangurs í næstu viku. Þótt könnunarviðræðurnar hafi aðallega verið fólgnar í at- hugun á verðlags- og væntanlegri vaxtaþróun hafa nokkrar hug- myndir komið fram til að kjaras- amningur uppfylli skilyrði varð- andi atvinnu og kaupmátt. Sú stefna hefur þegar hlotið meðbyr aðildarfélaga og verður því að teljast mjög líklegt að slíkur samningur verði undirritaður. Mikilvægast þykir að lækka fram- færslu heimila og fyrirtækja í landinu með lækkun eða óbreyttu verðlagi og með lækk- uðu vaxta. Þannig mætti halda verðbólgu í skefjum, kaupmáttur almennings myndi aukast og atvinnuleysi drægist saman. Eitt afbrigði samnings sem uppfyllir þessi skilyrði felur í sér tvær 1,5% launahækkanir, vaxta- lækkun við undirritun og óbreytt verð á landbúnaðarafurðum og opinberri þjónustu á árinu. Sam- kvæmt þessu er vonast eftir að- eins um 6% verðbólgu og myndi kaupmáttur aukast verulega með þessum hætti. Óvíst er hve langur samningstíminn verður en væn- legast þykir að semja amk. til eins árs, eða jafnvel til vorsins 1991. Verkalýðshreyfingin mun þó varla skrifa uppá slíkt plagg nema í því séu ákvæði um uppsögn samnings lækki kaupmáttur á ný. Ljón á veginum En það eru ýmis ljón á vegin- um. Með samningi sem þessum vonast samningsaðilar til að allir aðilar vinnumarkaðarins verði með í púkkinu. Það er hinsvegar afar ólíklegt þarsem háskóla- menn hjá ríkinu hafa þegar samið um talsvert meiri launahækkanir á árinu. Páll Halldórsson formað- ur BHMR segir félagið ætla að standa við gerðan samning, enda kostaði hann sex vikna verkfall. „Samningurinn var torfenginn á sínum tíma og það verður staðið við hann. Ég vil ljá máls á því að það væri móðgun við félagsmenn að fara fram á að gefa eftir samn- inginn og málið er því ósköp ein- falt af okkar hálfu,“ sagði Páll í samtali við Þjóðviljann. Einar Oddur Kristjánsson for- maður VSÍ hefur sagt það nauðsynlegt að stöðva samning BHMR og ríkisins með einhverj- um hætti og eigi ríkið að rifta honum ef í hart fer. Þessi orð for- mannsins hafa vitaskuld farið misjafnlega i menn og þykir ekki vænlegt í samningaviðræðum að tala þannig um rétt samningsað- ila. Sami formaður hefur einnig sagt að ekki megi semja um neinar launahækkanir, en líklegt verður að telja að vinnuveitendur gangi að þriggja prósenta hækk- un. Þá er óvíst hvernig staðið verð- ur að samningi ríkisins við BSRB en litlar sem engar viðræður hafa enn farið fram á þeim vettvangi. Þar eru samningsmál svo til alger- lega í höndum einstakra félaga en fulltrúar ASÍ og VSÍ telj a eðlilegt að BSRB semji á sömu nótum á sama tíma. Ögmundur Jónasson formaður BSRB vildi ekkert um það spá hvort samtökin yrðu í samfloti með ASÍ eður ei. „Burtséð frá öllum kauphækkun- um og prósentum þá erum við sammála því prinsippi að treysta kaupmáttinn án þess að verð- bólgan haldi áfram á sömu braut, því þar fara hagsmunir launafólks saman. Hinsvegar eru ýmis mál sem á eftir að ganga frá í okkar í BRFNNIDEPLI Hugsanlegt er að samningar takist í nœstu viku, en margt bendir til að það mis- takist. Viðsemjendur fá aldrei alla til að vera með í „tíma- mótasamningnum“ sem engu að síður kemur öllum til góða. Takist samningar samkvœmt „núll- leið“ er hinsvegar ólíklegtað öll verka- lýðsfélögin samþykki þá vegnafyrri reynslu ogýmissa aðstæðna í þjóðfélaginu samtökum. Félögin skoða þau hvert í sínu lagi og er enn mörgu ólokið, td. varðandi skerðingu stjórnvalda á lífeyrisréttindum,“ sagði Ögmundur í samtali við Þjóðviljann í gær. Alþýðusambandið vill að fjármálaráðuneytið taki upp ga- malt frumvarp um lífeyrismál og getur það sett verulegt strik í samstarf ASÍ og BSRB. Sam- kvæmt því myndu lífeyris- greiðslur starfsmanna hjá ríkinu hækka verulega og er mjög ólík- legt að BSRB sætti sig við slíkt í miðjum samningaviðræðum. Það myndi ugglaust valda misklíð á milli samtakanna. Ekki samþykktir? Þótt þessi samningur, sem sumir kalla tímamótasamning, verði undirritaður er alls ekki ör- uggt að hann verði samþykktur í ýmsum verkalýðsfélögum. Deila sjómanna og fiskkaupenda um fiskverð á Austurlandi getur einnig haft mikið að segja og tru- flað samningsgerðina. Þannig munu sjómenn varla samþykkja þessa samninga og er jafnvel ótt- ast að verkalýðsfélög á höfuð- borgarsvæðinu muni eiga í erfið- leikum með að fá samningana samþykkta. Verkafólk á lands- byggðinni metur mikils ef atvinna verður tryggð, en í þéttbýlinu hugsar launafólk meira um beinar kauphækkanir. Einn trúnaðarmaður innan Dagsbrúnar taldi svona samning aldrei verða samþykktan í þeirra röðum. „Meiri launahækkanir eru skilyrði fyrir því að við sam- þykkjum samninginn. Það hefur margsinnis endurtekið sig að svona óbeinir samningar klúð- ruðust alltaf stuttu eftir að þeir voru undirritaðir," sagði trúnað- armaðurinn. Vandamálin eru greinilega mörg og farið getur svo að „tímamótasamningurinn“ verði jafnvel ekki samþykktur þegar upp verður staðið eftir mikla fyrirhöfn. Því fáir eru víst spámenn í sínu föðurlandi, eða hvað? -þóm Fimmtudagur 11. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.