Þjóðviljinn - 11.01.1990, Side 6

Þjóðviljinn - 11.01.1990, Side 6
ERLENDAR FRETTIR Flestir telja að yfirlýsing Li Pengs hafi þann tilgang einan að draga úr andúð almennings í heiminum á þeim stjórnvöldum sem sendu skrið- dreka til að valta yfir þá sem kröfðust frelsis og lýðræðis í Kína. Hugrekkið sem mótmælendur sýndu andspænis morðtólunum vakti aðdáun fólks um allan heim. Rúmenía Hið Ijúfa líf Zoe Ceausescu Kína Heriögum aflétt Bandaríkjastjórn fagnar enflestir telja að lítið breytist í frjálsræðisátt Li Peng, forsætisráðherra Kína, lýsti því yfir í sjónvarpsá- varpi i gær að herlögum sem gilt hafa í Peking frá því í maímánuði í fyrra verði aflétt í dag, fímmtudag. Kvað hann ástandið í borginni orðið stöðugt og hefði herinn náð frábærum árangri í að kveða niður pólitískar óeirðir sl. vor. Vestrænir sendimenn og Kín- verjar sem fréttamenn Reuter ræddu við voru sammála um að þessi ráðstöfun myndi ekki draga úr strangri öryggisgæslu í borg- inni, yfirlýsingu Li Pengs væri fyrst og fremst ætlað að bæta álit kfnverskra stjórnvalda á alþjóða- vettvangi. í sjónvarpsávarpinu sýndi Li Peng af sér allt annað fas en þegar hann greindi frá þeirri ákvörðun sinni að siga hernum á þann „ör- fámenna hóp fólks“ sem sat á Torgi hins himneska friðar og krafðist lýðræðis. Nú var hann klæddur að vestrænum hætti og í bakgrunni voru bókahillur, mild- in skein úr hverjum drætti. í fyrravor var hann klæddur í Maó- Afundi forsætisráðherra að- ildarríkja Comecon, við- skiptahandalags Sovétríkjanna, Austur-Evrópu, Kúbu, Víetnams og Mongóiíu, í Sofía, höfuðborg Búlgaríu, var samþykkt í gær að skipa nefnd sem á að skila til- lögum fyrir miðjan mars um breytingar á skipulagi bandalags- ins og samstarfi nu sem á sér stað á þess vegum. Búist er við að um- skiptin taki 3-5 ár. Comecon hefur starfað í 40 ár og innan vébanda þess hafa ákvarðanir verið teknar um inn- byrðis viðskipti landanna 10. Bandalagið hefur ákveðið framleiðslu- og útflutningskvóta á þeim vörum sem viðskiptin ná til og sömuleiðis þau kjör sem stakk, harður á svip og skók hnef- ann orðum sínum til áherslu- auka. Viðbrögð ríkja á Vestur- löndum voru þau að draga úr öllum samskiptum við Kína og minnka aðstoð, einkum hernað- araðstoð við stjórnvöld. Erlendir sendimenn í Peking segja að yfir- lýsing Li Pengs hafi þann tilgang að auðvelda erlendum ríkis- stjórnum að opna dyrnar á nýjan leik. Þannig verði nú auðveldara fyrir George Bush forseta Banda- ríkjanna að halda því fram að til- raunir hans til að hafa áhrif á kín- versk stjórnvöld hafi borið ávöxt. Bush sendi fyrir skömmu tvo háttsetta embættismenn sína í heimullegar heimsóknir til Pek- ríkt hafa í viðskiptunum. Al- gengast er að um vöruskipti sé að ræða en þegar svo er ekki eru reikningarnir gerðir upp með rúblum sem ekki er hægt að skipta utan bandalagsríkjanna. Skiptar skoðanir hafa verið um ágæti þessa bandalags. Oft hefur verið fullyrt að það væri tæki Sov- étríkjanna til að arðræna hin rík- in en þegar raddir koma upp um að breyta skipulaginu eru það stjórnvöld í Tékkóslóvakíu sem vilja fara hægast í sakirnar. Fregnir af fundinum í Sofia herma að sovéski forsætisráð- herrann hafi lagt til að fyrirhug- aðar breytingar frá áætlunarbú- skap yfir í frjáls gjaldeyrisvið- skipti og viðskipti á grundvelli ing og mátti þola talsverða gagnrýni fyrir þær. Fór það eftir að í gær fagnaði Dan Quaile varaforseti yfirlýs- ingu Li Pengs og kvað stjórn sína myndu nú taka bann við lán- veitingum til Kína til endurskoð- unar. Vestrænir sendimenn segja að stjórnvöld í Peking láti afar lítið af hendi með yfirlýsingu Li Pengs. Fyrir það fyrsta séu her- sveitir staðsettar skammt utan við borgina, í öðru lagi sé öryggis- gæsla í borginni mjög ströng og í þriðja lagi hafi stjórnin sett það í lög í síðasta mánuði að banna all- ar mótmælaaðgerðir sem ekki hafa hlotið samþykki yfirvalda. Reuter/-ÞH heimsmarkaðsverðs tækju þrjú ár en Tékkar vildu draga þær í fimm ár. Stjórnin í Ungverjalandi hefur lagt til að Ungverjar, Pólverjar og Tékkar myndi með sér eins- konar innra bandalag til að draga úr þeim áhrifum sem breytingar á Comecon munu hafa á efnahag ríkjanna þriggja. Ríkin hafa not- ið þess að fá hráefni til iðnaðar- framleiðslu frá Sovétríkjunum á hagstæðu verði og einnig að hafa tryggan markað fyrir vörur sínar í Sovétríkjunum og öðrum ríkjum Comecon. Sagt er að þessi ríki óttist að verða úti á heimsmark- aði með vörur sem ekki standast vestrænni framleiðslu snúning hvað snertir gæði. Dagblaðið Frjáls æska í Búka- rest hefur birt lýsingar á líf- erni Zoe, dóttur hins fallna ein- valds Nikolae Ceausescu í Rúm- eníu. Er hún sögð hafa átt ótal elskhuga, legið í ferðalögum og verið svo til alltaf drukkin. Zoe er hátt á fertugsaldri og var handtekin sama dag og for- eldrar hennar voru teknir af lífi. Hún situr nú í fangelsi ásamt bróður sínum Nicu og bíður dóms en enginn veit hvar uppeldis- bróðir þeirra, Valentin, er niður- kominn. Zoe bar titil deildarforseta í stærðfræðideild tækniskóla í Búkarest en hún var sárasjaldan í borginni. Hún ferðaðist víða um lönd og ekki alltaf til að skoða söfn, að sögn Frjálsrar æsku. Blaðið segir að hún hafi verið ást- sjúk og ef hún kom auga á sé- legan pilt þá lét hún hann ekki í friði fyrr en hann þýddist hana. Og var henni þá nokk sama hvort viðkomandi var ráðherra, bar- þjónn eða dæmdur afbrotamað- ur. Aðferðin sem hún beitti til að ganga úr skugga um karlmennsku Að fundinum loknum í gær sagði aðstoðarforsætisráðherra Búlgaríu, Georgi Pirinski, við fréttamenn að fyrstu skrefin í átt til frjálsra gjaldeyrisviðskipta og heimsmarkaðsverðs yrðu tekin á næsta ári. Sagði hann nauðsyn- legt að breytingin gerðist hægt svo unnt reyndist að gera upp reikningana milli ríkjanna á eðli- legan og sársaukalausan hátt. Ráðherrarnir viðurkenndu að skiptar skoðanir hefðu verið á fundinum enda væru tímar ein- stefnunnar í samskiptum ríkj- anna liðnir. Þeir létu í ljósi ánægju með árangur fundarins og töldu að hann markaði tímamót í sögu Comecon. Fulltrúi Kúbu á fundinum, Carlos Rafael Rodriguez vara- forseti, greiddi atkvæði með til- lögunni sem samþykkt var á fundinum en sló ýmsa varnagla í viðtali sem kúbanska fréttastofan Prensa Latina átti við hann. Sagði hann að þótt ákveðið hefði verið að taka upp frjáls markaðs- viðskipti milli rfkjanna þýddi það engan veginn að „stjórnleysi“ myndi ríkja í framleiðslunni. „Þótt einkaeignarrétturinn verði að einhverju leyti viðurkenndur er ekki þar með sagt að hann verði gerður að hornsteini sam- félagsins,“ sagði Rodriguez. Staða Kúbu innan Comecon er um margt ólík stöðu ríkjanna í Austur-Evrópu. Aðild Kúbu tryggir landinu bæði markaði fyrir útflutningsvörur sínar og efnahagsaðstoð. Fyrir vikið hafa Kúbanir að verulegu leyti sloppið við áhrif sveiflna á sykurverði á heimsmarkaði og auk þess haft aðgang að sovéskri olíu á hag- stæðu verði. Eftir að ríki Austur- Evrópu fóru að losa sig undan einokun kommúnistaflokkanna hafa kúbönsk stjórnvöld brugðist við með því að ítreka tryggð sína við sósíalismann og miðstýrðan áætlunarbúskap í efnahagsmál- um- Reuter/-ÞH þeirra var einföld: hún reyndi að drekka þá undir borðið og ef þeir urðu of drukknir til að bregðast við ástleitni hennar varpaði hún þeim á dyr. Einkum var henni uppsigað við liðsmenn öryggis- sveitanna Securitate. Ef þeir stóðu ekki og sátu eins og henni fannst rétt áttu þeir á hættu að vera sendir til starfa langt út í sveit. Þeim sem henni fannst lið- tækir í bólinu reyndist hún hins vegar vel og fann þeim yfirleitt góð störf einhvers staðar í kerf- inu. Tvívegis er Zoe, sem gekk undir nafninu „prinsessan“, sögð hafa gengist undir meðferð vegna áfengisneyslu og oft á hún að hafa stungið af frá Búkarest í óþökk foreldra sinna. Þá brá móðir hennar, Elena, gjarnan á það ráð að skipa öryggissveitunum að hefja víðtæka leit að stúlkunni um allt land. Eitt sinn átti slíkt að hafa gerst þegar Zoe varð ást- fangin af lækni sem Elenu fannst henni ekki samboðinn. Zoe bjó í stórri íbúð skammt frá forsetahöllinni í Búkarest og þar var stór bar sem ávallt var fullur af eðalvínum. Rúmenska sjónvarpið sýndi á dögunum myndir úr íbúðinni sem skreytt var dýrum málverkum auk þess sem þar fundust margar dýrmæt- ar bækur ánafnaðar „doktor Zoe“. Reuter/-ÞH Mandela látinn laus? Fullyrðingar þess efnis að stjórnvöld i Suður-Afríku hyggist innan skamms láta blökku- mannaleiðtogann Nelson Mand- ela lausan gerast æ háværari með hverjum deginum. Útvarps- stöð í eigu ríkisins hélt því fram í gær að það væri einungis tíma- spursmál hvenær Mandela yrði látinn laus úr prísundinni sem hann hefur verið í um aldarfjórð- ungs skeið. Dagblaðið Citizen sem fylgir stjórn F.W. de Klerk að málum sagði í leiðara í gær að það þjónaði ekki lengur neinum tilgangi að halda Mandela föng- num. Walter Sisulu, leiðtogi Afr- íska þjóðarráðsins sem látinn var laus úr fangelsi fyrir nokkru, hélt því fram í gær að enginn hagnað- ist lengur á fangavist Mandela, hvorki stjórnin, Mandela sjálfur né blökkumenn í landinu. Getgát- um er leitt að því að Mandela verði látinn laus um svipað leyti og þing Suður-Afríku kemursam- an sem er um næsta mánaða- mót. Rostropovitsj ekki ánægður Sovéski sellóleikarinn Mstislav Rostropovitsj sem er í útlegð vann í gær nokkurn sigur í máli sem hann höfðaði á hendur pólska kvikmyndaleikstjóranum Andrzej Zulawski fyrir vafasama notkun á tónleikaupptöku selló- leikarans í kvikmynd um Boris Godunov. í myndinni er flutning- ur Rostropovitsj á tónverki eftir Mussorgskí notaður sem undir- leikur við þvaglát og ástarleiki. Dómstóll í París féllst ekki á að banna notkun upptökunnar en fyrirskipaði að fremst í myndinni skyldi birt yfirlýsing þess efnis að sellóleikarinn væri ekki ánægður með meðferðina á tónlist sinni. Svíþjóð Fjáiiög með aðhaldi Stjórnin varar við miklum launahœkkunum en lengir fœðingarorlofí 15 mánuði. Félagsleg aðstoð nemur 28% af útgjöldum ríkisins Stjórn sænska jafnaðarmanna- flokksins lagði í gær fram frumvarp til fjárlaga fyrir fjárl- agaárið 1990-91 en samkvæmt því er ætlunin að veita aðhald og hamla gegn þenslu verðlags og launa. Frumvarpið gerir ráð fyrir tekjuafgangi upp á 550 milj- arða íslenskra króna. Frumvarpið gerir ráð fyrir minnkandi tekjum ríkisins en ör- lítilli aukningu útgjalda. Þau út- gjöld sem mest aukast eru vel- ferðarmál, en til þeirra renna 28% útgjalda ríkisins, og aðstoð við erlend ríki en hún verður á næsta ári 13 miljarðar íslenskra króna. Mesta aukningin verður á aðstoð Svía við ríki Austur- Evrópu. Kjell-Olof Feldt fjármálaráð- herra varaði við miklum launa- hækkunum í komandi kjara- samningum og kvað stjórn sína myndu fylgjast grannt með samn- ingagerð. A nýliðnu ári hækkuðu tímalaun að meðaltali um 9,5% sem er talsvert umfram verð- bólgu en hún var 6,4% á árinu. Sagði ráðherrann að draga yrði úr launahækkunum svo sam- keppnisstaða sænskra fyrirtækja versnaði ekki á alþjóðamarkaði. Feldt sagði að ein helsta ástæða mikilla kauphækkana væri skortur á vinnuafli og við því ætl- aði stjórnin að bregðast með því ma. að liðka til fyrir innflutningi á erlendu vinnuafli. Meðal þess sem hækkar sam- kvæmt fjárlagafrumvarpi jafnað- armanna er framlag til fæðingar- orlofs foreldra sem verður lengt úr 12 mánuðum í 15 á þessu ári. Er það markmið stjórnarinnar að lengja það í 18 mánuði á næsta ári. Hvort foreldra sem er getur nýtt sér orlofið og engu skiptir hvort þeir eru giftir eða ekki. Vel er búið að fjölskyldunni í sænsku þjóðfélagi því samkvæmt frumvarpinu á að verja 460 milj- örðum íslenskra króna til fjöl- skyldumála á sama tíma og her- inn fær 350 miljarða til ráðstöfun- ar. Fyrir vikið eru 85% mæðra barna á forskólaaldri virkar á vinnumarkaði. Greiða foreldrar aðeins fimmtung þeirrar fjárhæð- ar sem það kostar að hafa barn í dagvist eða rúmlega 8.000 ís- lenskar krónur á mánuði. Reuter/-ÞH Comecon Slakað á efnahagssamvinnu Ríkin 10 í Comecon ætla að breyta efnahagssamstarfi sínu og stefna að frjálsum markaðsviðskiptum sín á milli 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 11. janúar 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.