Þjóðviljinn - 11.01.1990, Qupperneq 7
ÞJOÐMAL
Alþýðubandalagið í meirihlutasamstarfi
á 21 stað
Sveitarstjórnarmál
Hugað að
framboðum
Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga að
hefjast. Alþýðubandalagsfólk fundar
Undirbúningur sveitarstjórn-
arkosninganna á vori kom-
anda er nú sem óðum að hefjast.
Sveitarfélög í landinu eru alls 213
talsins. Víða eru óhlutbundnar
kosningar í litlum sveitarfé-
lögum, en Alþýðubandalagið á
hlut að meiri hluta í nær helmingi
þéttbýlisstaðanna.
Svanfríður Jónasdóttir, að-
stoðarmaður fjármálarráðherra
og þáverandi formaður fram-
kvæmdastjórnar Alþýðubanda-
lagsins, dreifði á Landsfundi
flokksins í haust fróðlegu yfirliti
Ólafsvík
Alþýöubandalagiö í sókn
Fyrir rúmum tveim árum voru
Olafsvíkingar mikið í fréttum,
því bæði héldu þeir þá upp á 300
ára verslunarafmæli og 100 ára
afmæli barnafræðslu með mikl-
um hátíðahöldum. Þar er Al-
þýðubandalagið í meirihluta í
bæjarstjórn ásamt Alþýðuflokki,
Framsóknarflokki og Lýðræðis-
sinnum. Við spurðum Heiðar El-
van Friðriksson, formann Al-
þýðubandalagsins hvernig hefði
gengið.
„Samstarfið gekk illa framan af
en hefur verið gott undanfarið,"
svaraði Heiðar. „Það var kannski
ekki alveg að marka hvað vand-
ræðin voru mikil fyrst því afmæl-
isárið mikla, 1987, var framund-
an og í mikið lagt til að halda upp
á það. Við reistum nýtt félags-
heimili, stórglæsilegt, sem nú er
því sem næst fullfrágengið. Allir
sem leika í húsinu eða koma hing-
að með tónleika ljúka lofsorði á
það. En það var geysilega dýrt og
fjármagnskostnaður stefnir nú í
að gleypa helming af tekjum
bæjarfélagsins.“
Atvinna er yfirdrifin í Ólafs-
vík, einkum við að saltverka
þorsk, og um tuttugu erlendir far-
andverkamenn eru í vinnu þar
núna, aðallega Pólverjar. „Þeir
eru mest í beitningu," sagði
Heiðar, „þetta er harðduglegt
fólk en algerlega mállaust nema á
pólsku. Allar verbúðir eru full-
setnar fólki, bæði í frystihúsinu
og á hótel Nesi, og frystihúsið tók
einbýlishús á leigu handa Pól-
verjunum. Annars er ekki gott að
fá húsnæði á leigu hér og lítið
byggt af húsum vegna bágrar
stöðu bæjarsjóðs.“
Þó fækkar fólki ekki í bænum,
nýtt fólk kemur í staðinn fyrir þá
fáu sem fara.
Peningarnir sem ekki fara til
bankanna fyrir sunnan eru m.a.
notaðir til að bæta höfnina.
„Höfnin hérna er ágæt,“ segir
Heiðar, „en mætti vera stærri, og
við erum núna að auka viðlegu-
plássið. Því lýkur vonandi á ár-
inu.“
Eitt af því sem Ólafsvíkingar
eru óánægðir með eins og fleiri er
raforkuverð. „Við fáum reikning
upp á 20-30 þúsund krónur á
tveggja mánaða fresti, sem hegg-
ur svolítið í kaupið hjá fólki
vegna þess að þetta er fastur lið-
ur. Lægsti reikningurinn á mínu
heimili í fyrra var 17 þúsund
krónur, hann kom um mitt
sumar.
Annars erum við bjartsýn í Ól-
afsvík. Margir eiga vélsleða og
ferðir upp á jökul eru vinsælar
bæði meðal heimamanna og
ferðamanna. Menn skjótast þetta
til dæmis á kvöldin á sumrin til að
ná sólsetrinu. Það er geysilega
fallegt."
Eruð þið farin að undirbúa
kosningar?
„Það verður fundur í stjórn
Alþýðubandalagsins um fram-
boðsmál á sunnudaginn, þá
skýrast málin. En ég held að
flokkurinn hafi aukið fylgi sitt hér
um slóðir undanfarið."
um þátttöku hans í sveitarstjórn-
um. Þar kemur í ljós að Alþýðu-
bandalagið er í meirihlutasam-
starfi í 21 sveitarfélagi en í minni-
hlutanum á24stöðum. Á 17stöð-
um var boðinn fram G-listi, en þó
ber að athuga, að dæmi eru um
sameiginleg framboð sem notuðu
listabókstafinn G.
í minni sveitarfélögum er Al-
þýðubandalagið oft í samstarfi
með öðrum aðilum sem buðu
fram sameiginlega undir lista-
bókstafnum H.
Mánudaginn 15. janúar verður
haldinn fundur í framkvæmda-
stjórn Alþýðubandalagsins og
verða sveitarstjórnarkosningar
og undirbúningur þeirra eflaust
til umfjöllunar. í byrjun febrúar
mun miðstjórn flokksins koma
saman til 2 daga fundar og má
gera ráð fyrir að annar dagurinn
fari að verulegu leyti til umræðna
í tengslum við komandi kosning-
ar.
Breytt viðhorf eru nú að mörgu
leyti í sveitarstjórnarmálum, eftir
að ný lög um verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga hafa tekið gildi.
Nefna má grundvallarbreytingar
á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga,
sem verður nú loksins fær um að
gegna hlutverki sínu. Honum er
ætlað að jafna aðstöðu minni
sveitarfélaganna, bæði með
rekstrar- og stofnframlögum.
Meðal þeirra verkefna sem nú
flytjast til sveitarfélaganna má
fyrst nefna það veigamesta, allan
rekstur grunnskóla, að frátekn-
um kennaralaununum, en einnig
rekstur tónlistarskóla, heimilis-
þjónustu osfrv.
ÓHT
Siglufjörður
u
Ekkert vol og væl
ndirbúningur sveitarstjórn-
arkosninganna í vor er að fara
af stað hjá okkur, segir Sigurður
Hlöðvesson tæknifræðingur, for-
maður Bæjarráðs Siglufjarðar og
annar tveggja bæjarfulltrúa Al-
þýðubandalagsins, sem mynda
meiri hluta bæjarstjórnar ásamt
Framsóknarflokki og Sjálfstæðis-
flokki. Hinn fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins er Brynja Svavars-
dóttir, húsmóðir. Alþýðubanda-
lagið hefur nú átt aðild að meiri-
hlutasamstarfí í tvö kjörtímabil
samfleytt.
- Við héldum aðalfund Al-
þýðubandalagsfélagsins hér á
Siglufirði fyrir viku, erum að
undirbúa blaðaútgáfu ogslíkt. Ég
held að staðan hjá okkur sé eftir
atvikum ágæt, við erum bjartsýn
hér og leið á svartagallsrausi.
- Hér hafa verið gríðarlegar
framkvæmdir undanfarin miss-
eri, t.d. í gatnagerð. Hér er nýtt
íþróttahús, nýr grasvöllur, nýtt
skíðasvæði, ný slökkvistöð og
bygging dvalarheimilis aldraðra
langt komin. Því miður erum við
skemmra á veg komin með barn-
aheimilið. Fjárhagsstaða bæjar-
ins er náttúrlega erfið á svona
miklum framkvæmdatímum. En
þótt við séum á svörturn lista
hvað þetta varðar getur maður
ekki annað en verið ánægður
með árangurinn. Hér er búið í
haginn fyrir framtíðaríbúa Siglu-
fjarðar.
- Atvinna er hér þokkaleg
núna, en þó er það mjög bagalegt
ef ekki tekst að gera rækjuvinns-
luna klára fyrir vertíðina, sem nú
fer að styttast í. Hér hefur ekkert
verið unnið í henni síðan leigut-
ími Sigluness rann út. Einhver
biðstaða er nú í sölumálum, stríð
milli ráðuneyta. Fjármálaráðu-
neytið var búið að gera samning
við Sunnu, en vinnsluleyfi vantar
frá sjávarútvegsráðuneyti. Þetta
kemur sér afar illa.
- Lagfæring stendur fyrir dyr-
um í Strákagöngum. Gólfið verð-
ur lagfært og göngin fóðruð
innan, sennilega veturinn 1990/
1991. Vonandi verða ekki allir
gangasérfræðingar uppteknir við
að bora sundur Vestfjarðakjálk-
ann á vegum Steingríms J. Sigfús-
sonar á þeim tíma. Hvað ætli
megi bora mikið svo þessi fjöll
haldist uppi hjá þeim?
- Hér er lítill snjór og varla
vélsleðafæri fyrir áhugamenn.
Veðrið er milt þessa stundina, en
dýrt að halda á sér hita hér á
Siglufirði. Hitaveitan okkar er
með þeim dýrari á landinu og á í
feiknarlegum erfiðleikum. Vatn-
ið er nægilegt, en skuldirnar eru
að drepa okkur. Hér var kynt
með olíu áður fyrr og mjög lítið
um rafhitun.
- Annars er hér allt gott og já-
kvætt að frétta, flest í góðu
standi. Okkur Siglfirðingum
leiðist þetta vol og væl sem víða
heyrist. ÓHT
Fimmtudagur 11. janúar 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7