Þjóðviljinn - 17.01.1990, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 17.01.1990, Qupperneq 1
Atvinnuleysi Botninum ekki enn náð Sigrún Ólafsdóttir áAkranesi: Búin að vera atvinnulaus írúma 13 mánuði og eiginmaðurinnfráþvííbyrjun nóvember. Niðurdrepandiog sjálfsvirðingin verður nánastaðengu. Félagsmálaráðuneytið: Aðmeðaltali2.100 manns á atvinnuleysisskrá allt síðasta ár. Hefur bitnað mest á konum Eg er búin að vera atvinnulaus frá 30. nóvember 1988 þegar Akraprjón hætti starfsemi eða rúma 13 mánuði og svo er maður- inn minn búinn að vera atvinnu- laus frá því í byrjun nóvember 1989 en hann vann við Blöndu- virkjun. Það er varla hægt að lýsa þeirri líðan í orðum hvernig það er að vera atvinnulaus svona lengi og án þess að maður sjái að nein breyting verði á næstunni. Fyrir utan það hvað þetta verður niðurdrepandi með tímanum og sjálfvirðing manns verður nánast að engu, sagði Sigrún Ólafsdóttir sem er ein af þeim fjölmörgu kon- íslenskir aðalverktakar Samninga- viöræöur að hefjast AUar líkur eru á því að samn- ingaviðræður um kaup ríkisins á hluta eignarhluta Sambandsins og Sameinaðra verktaka í ís- lenskum aðalverktökum hefjist í þessari viku. Að því er stefnt að ríkið auki hlut sinn í Aðalverk- tökum úr 25 prósentum I 52 pró- sent. Stefán Friðfinnsson, aðstoðar- maður utanríkisráðherra og stjórnarformaður íslenskra aðal- verktaka, segir að reiknað sé með því að Reginn hf., dótturfyrirtæki Sambandsins, selji 9 af 25 prósent eignarhluta sínum í Aðalverk- tökum, en Sameinaðir verktakar selji 18 af 50 prósent eign sinni í fyrirtækinu. „Viljayfirlýsingar ganga út á það að menn séu reiðubúnir að stuðla að því hver fyrir sig að frá málinu verði gengið fyrir aðal- fund. Og aðalfundur hefur venju- lega verið fyrir lok apríl,“ sagði Stefán. Stefán segist eiga von á því að samningaviðræðurnar gangi nokkuð liðlega fyrir sig, ellegar ekki neitt, og engin trygging sé fyrir því að samkomulag náist. „Ég vil vona það og er kannski bjartsýnn, en ég hef ekkert fyrir mér annað en yfirlýsingu þeirra um að þeir vilji ræða sölu á sínum hlut,“ sagði Stefán Friðfinnsson. Sambandsmenn halda fund um málið núna fyrir hádegið og er ætlunin að velja þar fulltrúa í samninganefnd um söluna. Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins, sagði í samtali við Þjóðviljann að hann vonaðist eftir að samkomulag næðist. -gb um á Akranesi sem hafa verið atvinnulausar í eitt ár eða meir. Á hálfsmánaðarfresti fá þeir sem eru atvinnulausir atvinnu- leysisbætur sem nema rúmum 17 þúsund krónum eða um 35 þús- und krónur á mánuði. Ef við- komandi er samfellt án atvinnu í 260 daga dettur hann út af atvinnuleysisskránni og fær því engar bætur næstu 16 vikur. „Þetta gat verður einhvern veg- inn að brúa því við verðum að lifa á einhverju þennan tíma þangað til við komumst á skrána á nýjan leik,“ sagði Sigrún. Á árinu 1989 voru í heild skráðir 552 þúsund atvinnuleysis- dagar á landinu öllu samkvæmt yfirliti Vinnumálaskrifstofu fé- lagsmálaráðuneytisins um at- vinnuástandið. Áð mati skrifstof- unnar jafngildir þetta því að 2.100 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá allt árið, en sem hlutfall af mannafla samsvarar það til 1,6% sam- kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar. Konur urðu meira fyrir barðinu á atvinnuleysinu en karlar. 2,2% kvenna á vinnumarkaði voru án atvinnu á móti 1,2% karla. Til samanburðar má geta að skráðir atvinnuleysisdagar árið 1988 voru 215 þúsund og flestir hafa þeir áður orðið 385 þúsund árið 1984. Að sögn Óskars Hallgríms- sonar forstöðumanns Vinnu- málaskrifstofunnar er fátt sem bendir til þess að atvinnuleysis- botninum sé enn náð sem kemur heim og saman við spá Þjóðhags- stofnunar um atvinnuhorfurnar í ár. En sú spá er byggð á þeirri atvinnukönnun sem gerð var síð- asta haust. Samkvæmt Þjóð- hagsspánni er búist við að eftir- spum eftir vinnuafli á vinnu- markaðnum verði að meðaltali hin sama og var á síðasta ári. Hins vegar er búist við að atvinnuleysi fari vaxandi og um 3 þúsund manns verði atvinnulausir að jafnaði eða tæp 2,5% af vinnu- framboði. Mest er talið að atvinnuleysið verði nú í janúar eða4% - 5%. Aftur á móti er þess vænst að yfir sumarið verði atvinnuleysið um 1% - 2% og nái síðan lágmarki í haust. Fari síðan aftur vaxandi út árið þannig að í lok næsta árs svari atvinnuleysi til um 3% af vinnuframboði. -grh Iðnaðarmenn Baðstofan endurbyggð Iðnaðarmannafélagið í Reykja- vík hefur hafið endurbyggingu á baðstofu iðnaðarmanna í risinu á gamla Iðnskólanum við Vonar- stræti í því formi sem hún var þegar hún eyðilagðist í eldi 1986. Meðal þess sem brann voru fal- legar útskurðarmyndir eftir Rík- harð Jónsson. Ætlunin er að fá færustu tréskurðarmenn landsins til að skera út í furu eftir myndum og öðrum gögnum um handbragð Ríkharðs. „Ég er mjög bjartsýnn á að okkur takist það. Þetta er mjög vandasamt verk, en með natni og yfirlegu verður það hægt,“ sagði Gissur Símonarson, formaður Iðnaðarmannafélagsins, í samtali við Þjóðviljann. Yfir innganginum í baðstofuna verður áletrunin „Verkið lofi meistarann“ grafin með höfða- Jónas Þór Jónasson verkstjóri við endurbyggingu rissins í gamla Iðnskólanum við Vonar- stræti. letri, og yfir öndvegi verður út- skorinn hluti ljóðs eftir Jón Trausta, meðal annarra verka. Töluverður fjöldi iðnaðar- manna vinnur við endurbyggingu hússins. Það er fyrirtækið ístak sem sér um framkvæmdirnar. Gissur Símonarson sagði að Iðnaðarmannafélagið mundi nota baðstofuna undir ýmiss kon- ar félagsstarfsemi. Dómkirkju- söfnuðurinn mun einnig nýta sér hana að einhverju leyti, en hann hefur fengið umráð yfir öðrum hæðum gömlu skólabyggingar- innar. Dómkirkjumenn ætla sér að ljúka við endurbætur á sínum hluta um hvítasunnuna, en Giss- ur sagði að Iðnaðarmannafélagið ætlaði sér meiri tíma í að koma baðstofunni í upprunalegt form. Um kostnaðinn við verkið sagði Gissur að fyrir tveimur árum hefði verið áætlað að endurbygg- ing baðstofunnar kostaði um þrjár miljónir, en hann sagðist ekki vita hver endanlegur kostn- aður yrði. -gb Verkfall langferðabílstjóra Verkfal Isbijótar keyra á bíl Vinnuveitendur kœra verkfallsmenn fyrir að stöðva samgöngutœki ólög- lega. Halldór Bergsson: Hrœðir okkur ekki Vinnuveitendasamband íslands hefur kært verkfallsmenn Sleipnis fyrir Rannsóknarlög- reglu ríkisins fyrir að brjóta 179. grein hegningarlaga og um- ferðarlög og það að sýna ver- kfallsbrjótum ofbeldi. Halldór Bergsson formaður verkfalls- nefndar segir kæruna falla um sjálfa sig. Hún sé af sama toga og þegar verslunarmenn voru kærð- ir vegna aðgerða gegn Flug- leiðum og þegar verkfallsmenn voru kærðir 1984 fyrir að stöðva kaupskip í siglingum. I gærmorgun stöðvuðu verk- fallsmenn skutbíl þvert fyrir framan Vestfjarðaleiðarútu á mótum Bústaðavegar og Tungu- vegar, sem var á leið með starfs- menn álversins til vinnu. Bflstjóri rútunnar keyrði inn í hlið skut- bflsins og ýtti honum á undan sér nokkra metra og segir Halldór bíl- inn líklega ónýtan, báðar aftur- hurðir hefðu skemmst mikið og toppurinn aflagast. Verkfalls- brjóturinn hefði síðan ekið af vettvangi án þess að athuga hvort menn hefðu slasast. Að sögn Halldórs voru mörg verkfallsbrot framin í gær, at- vinnurekendur reyndu allt hvað þeir gætu. Ákeyrslan hefði verið alvarlegasta brotið í gær. Land- leiðum hefði þó verið gefin und- anþága til að keyra 4-7 ára börn í Hofstaðaskóla, vegna beiðni frá skólastjóra skólans. í bréfi Vinnuveitendasam- bandsins til Rannsóknarlögregl- unnar halda atvinnurekendur áfram ásökunum sínum um of- beldi og skemmdarverk og gefa í skyn að eitthvað sé athugavert við afskipti lögreglunnar í Hafn- arfirði af verkfallinu. Fullyrt er að tectylefni hafi verið sprautað framan í bflstjóra og dekk og viftureim skorin. Halldór sagði allar þessar ásak- anir úr lausu lofti gripnar. Engar viðræður hafa farið fram á milli deiluaðila og sagði Halldór vinnuveitendur hafa lýst því yfir að engar viðræður færu fram fyrr en að verkfalli loknu, en síðasti dagur þess er í dag. -hmp

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.