Þjóðviljinn - 17.01.1990, Síða 11

Þjóðviljinn - 17.01.1990, Síða 11
LESANDI VIKUNNAR Ásmundur Gíslason staðarhaldari r Oþarflega hreinskilinn og skjótorður Hvað ertu að gera núna, Ás- mundur? Ég veiti forstöðu Skjólgarði, sem er í senn elli-, hjúkrunar- og fæðingarheimili hér á Höfn í Hornafirði. Svo á ég stóra fjöl- skyldu, konu og sjö börn, þannig að það er alltaf nóg að gera heima fyrir. Hvað varstu að gera fyrir 10 árum? Þá var fjölskyldan öllum stund- um að leggja drög að byggingu þess húss sem við búum nú í. Bygging hússins gekk fljótt fyrir sig og við fluttum inn ári seinna. Hvað gerirðu helst í frí- stundum? Við eigum fimm hesta sem þarf að sinna og erum rétt að ljúka við að byggja hús yfir þá. Svo erum við 40 félagar í Karlakórnum Jökli sem hittumst tvsivar í viku til að æfa. Hér á Höfn kemur vikulega út blaðið Eystrahorn, sem er frétta- og fróðleiksblað, og ég starfa dálítið við það. Segðu mér frá bókinni sem þú ert að lesa núna. Ég er annars vegar að lesa fróð- lega ævisögu Tryggva Ófeigs- sonar útgerðarmanns og hins vegar smásögur eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson. Hvað lestu helst í rúminu á kvöldin? Ég les lítið í rúminu því það má segja að það séu einu stundir dagsins sem við hjónin höfum út af fyrir okkur og það er margt sem ræða þarf um að loknum löngum vinnudegi hjá okkur báð- um. En ég les þá helst Eystra- horn, Hestinn okkar og Eiðfaxa. Hver er uppáhaldsbarnabókin þín? Hún heitir Kári litli og Lappi. Hvers minnistu helst úr Biblí- unni? Það er hverjum manni hollt að rifja Boðorðin tíu upp reglulega, annars kemur mér oft í hug að þú skulir koma fram við náungann eins og þú vilt að hann komi fram við þig. Segðu mér af ferðum þínum í leik- og kvikmyndahús í vetur. Ég hef farið á sýningar hjá Leikfélagi Hornafjarðar en ekk- ert í kvikmyndahús. Fylgistu með einhverjum ákveðnum dagskrárliðum í út- varpi og sjónvarpi? í sjónvarpi fylgist ég bæði með fréttum í hefðbundnum frétta- tíma og í 90 á stöðinni. Gamla gufan er alltaf jafn notaleg en ef ég stilli á Rás tvö er það helst til að hlusta á Dagskrá. Hefurðu alltaf kosið sama stjórnmálaflokkinn? Já. Ertu ánægður með frammi- stöðu hans? Nei, það er ég ekki. Ég þurfti langan umhugsunarfrest áður en ég kaus síðast og er blendinn í trúnni enn. íslensk stjórnmál finnast mér torskilin eins og þau koma fyrir í dag. Eru til hugrakkir stjórnmála- menn og konur? Já. Viltu nafngreina þá? Helgi Seljan, Lúðvík Jóseps- son og Halldór Asgrímsson, hann hefur staðið sig vel undanfarið. Um leið langar mig til að minnast á forsetann okkar, Vigdísi Finnbogadóttur, sem ætíð stend- ur sig með sóma. Er landið okkar varið land eða hcrnumið? Ég tel það hernumið. Ég er andvígur hersetu og hef alltaf verið. Hvert gæti svar okkar í vestri verið við atburðum síðustu vikna og mánaða í austri? Það hefur auðvitað létt á ógnarjafnvæginu sem ríkt hefur og friðelskendur hljóta að sjá fram á betri tíma. Vestur ætti að reyna að aðstoða þessar þjóðir við að koma á lýðræði og bæta efnahag án þess þó að hella yfir þær annarri Marshallsaðstoð. Hvaða eiginleika þinn viltu helst vera laus við? Ég vil sem minnst tala um eigin kosti og galla, en ég er óþarflega hreinskilinn og skjótorður á stundum. Hvaða eiginleika þinn flnnst þér skrítnast að aðrir kunni ekki að meta? Hvað ég bý til góðan mat. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Vel gerður hræringur með rjóma. Svo er íslenska kinda- kjötið bragðmesta og besta kjöt sem ég hef bragðað og stendur alltaf fyrir sínu. Hvar myndirðu vilja búa ann- ars staðar en á íslandi? íslandi. Hvernig flnnst þér þægilegast að ferðast? Á hestbaki. Hvert langar þig helst til að ferðast? Til þeirra staða á íslandi sem ég hef enn ekki komið á. Og svo á ég mér þann draum að ferðast ríð- andi heilt sumar um ísland. Hvaða bresti landans áttu erf- iðast með að þola? Hræsni og hégómagirnd. En hvaða kosti Islendinga metur þú mest? Hjálpsemi, óhemju dugnaður og vinnusemi einkennir Islend- inga og menningarleg viðleitni þeirra er aðdáunarverð. Hverju vildir þú breyta í ís- lensku þjóðfélagi? Þjóðfélagið þarfnast einföld- unar og að skorið verði á eitthvað af þem óþarfa milliliðum sem blómstra í landinu. Hvaða spurningu hef ég gleymt? Spurðu mig um flóttann af landsbyggðinni. Hvað fínnst þér um flóttann af landsbyggðinni? Þetta er ömurlegt hlutskipti fyrir íslensku þjóðina. Forystu- menn þjóðarinnar, þ.e. háttvirt Alþingi, þarf með öllunt ráðum að koma því inn hjá íslendingum hvert lifibrauðið sé. Ekki þjón- ustugreinar á höfuðborgar- svæðinu heldur fiskurinn í sjón- um. Hamingja landans felst held- ur ekki í því að fara reglulega út að borða, í Óperuna eða skemmtistaði höfuðborgar- svæðisins, hana er ekki síður að finna í fábrotnu lífi. Ég held að lífshamingja grundvallist fyrst og fremst í samskiptum fólks, far- sælu heimilislífi og náungakær- leika. Guðrún Þióðviliinn FYRIR 50 ÁRUM Ríkisstjómin ætlar að lækka kaupið í Krísuvíkurveginum um meira en þriðjung. Það á að fara úr Dagsbrúnarkaupi niður í 98 aura um tímann. Aukinn stríðs- undirbúningur í Hollandi og Belg- íu. Brezka stjórnin lofar öflugri hjálp ef þessi ríki lenda í styrjöld við Þýzkaland. I DAG 17.janúar miðvikudagur. 17. dagur ársins. Antóníusmessa. Sólarupprás í Reykjavíkkl. 10.50-sólarlag kl. 16.26. Viðburðir ÞjóðhátíðardagurMónakó. Eim- skipafélag íslands stofnað 1914. Starfsmannafélag Reykjavíkur stofnað 1926. Félag bifvélavirkja stofnað 1985. APÓTEK Reykjavik. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúöa vlkuna 12,-18. jan. 1990 er í Garös Apóteki og Lyfjabúöinni Iðunni. Fyrmefnda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Siðamefnda apótekiö er opið á kvöldin f 8-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík sími 1 11 66 4 12 00 Seltj.nes sími 1 84 55 Hatnarfj sími 5 11 66 Garðabær sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík sími 1 11 00 Kópavogur sími 1 11 00 Seltj.nes sími 1 11 00 Hafnarfj sími 5 11 00 Garðabær sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gef nar í sím- svara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspít- alinn: Göngudeildin er opin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt s. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Keflavík: Dagvakt. Upplýsingars. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. v 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknarjimar: Landspítalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-Í8, ogeftirsamkomulagi. Fæðingardeild Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúni 10 B Mladaga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstig opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspítali: alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 PAGBÓK daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spítalirui: alla daga 15-16 og 18.30-19. Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavík: alla daga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung- linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allan sólarhringinn. Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum. Sími 687075. MS-félagiðÁlandi 13. Opiðvirkadagafrá kl. 8-17. Síminner 688620. * Kvennaráðgjötin Hlaðvarpanum vestur- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, , fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, ■ sími21500,símsvari. Sjálf shjálparhópar þeirra sem oröið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari. Upplýsingar um eyðni. Sími 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing ámiðvikudögumkl. 18-19, annarssím- svari. Samtök um kvennaathvarf, simi 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin ’78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21- '23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er 91-28539. Bllanavakt rafmagns- og hitaveitu: s. 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sif jaspellamál. Simi 21260 alla virka daga kl. 1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, erveittísíma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlið 8 er „Opið hús" fyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á 1 fimmtudögum kl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið I síma91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 16. jan. 1990 kl. 9.15. Sala Bandaríkjadollar............. 61.18000 Sterlingspund............... 101.25300 Kanadadollar.................. 52.63900 Dönskkróna..................... 9.25570 Norskkróna.................... 9.33190 Sænskkróna..................... 9.90930 Finnsktmark................... 15.25690 Franskurfranki................ 10.54550 Belgískur franki............... 1.71090 Svissneskurfranki............. 40.19710 Hollensktgyllini.............. 31.79750 Vesturþýskt mark.............. 35.85220 Itölsklíra.................... 0.04814 Austurrískursch................ 5.09410 Portúg. Escudo................. 0.40850 Spánskurpeseti................. 0.55340 Japansktyen................... 0.42001 Irsktpund..................... 94.77100 KROSSGÁTA Lárétt: 1 narr4ánægð- ur 6 orka 7 slóg 9 espir 12 lóga 14 dá 15 hreysi 16 formóðirin 19 ídýfa 20 not21 dyggir Lóðrétt: 2 orka 3 að- eins4lævís5þreyta7 meiðast8tíðast10 harmarll úldinn 13 hás17sjór18bleyta Lausnásíðustu krossgátu Lárétt: 1 æsta4 koll 6 ger7ragn9lstak12 Iinan14kró15ein16 færni 19snap20iðar 21 rafta Lóðrétt: 2 sóa 3 agni 4 kria 5 lóa 7 ríkast 8 glófar10sneiða11 kunnri 13nár17æpa 18 nit Miðvikudagur 17. janúar 1990 ÞJÓÐVILJI SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.